Morgunblaðið - 31.05.1992, Page 16

Morgunblaðið - 31.05.1992, Page 16
I MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. MAÍ 1992 Seinni heimsstyrjöldin breytti öllum forsendum í heiminum, og hann sat í sendinefnd sem fór til Bretlands 1940 til að semja um viðskiptasam- bönd, þegar teikn voru á lofti um að stríðið yrði ekki staðbundið og myndi hugsanlega vara um ófyrir- sjáanlega framtíð. Fyrra atriðið gerðum við okkur ljóst þegar Bret- ar rufu hlutleysi landsins, en í kjölf- ar þess hélt pabbi til Bandaríkjanna til að leita eftir samningum um verslun, og einnig vernd yfir stríðs- árin. Bandaríkjamenn höfðu þá dregið línu umhverfis Ameríku, Grænland og víðar og lýst því yfir að þeir myndu ekki líða nein átök innan þessara marka, án beinna afskipta. Fyrir atbeina Roosevelts var ísland síðan tekið með. í þess- ari ferð kynnist hann Coca-cola, þjóðardrykk Bandaríkjanna, og sá á augabragði að vinsældir hans gætu ekki einskorðast við þau. Pabbi hélt því til fundar með stjórn fyrirtækisins á New York-svæðinu. Hann hugðist flytja drykkinn inn, en fyrirtækið hafði fasta reglu um að drykkurinn væri framleiddur á viðkomandi sölusvæði, og hann tók þá ákvörðun að stofnsetja verk- smiðju á íslandi. Þá var aðeins til kók í einni stærð af flösku, nema hvað þegar stríðsrekstur Þjóðverja hófst, rofnuðu aðflutningsleiðir hráefnis þangað og gerður var samningur við þýska umboðið. Sá samningur veitti þeim leyfi til að framleiða appelsín undir nafninu Fantastic og dreifa, og það drukku Hitler og félagar öll stríðsárin. Fantastic-drykkurinn varð síðan forveri Fanta sem við seljum í dag.“ Pókerspilið gerði gæfumuninn „Stofnfundur Vífilfells var síðan haldinn snemma árs 1942 og var Björn Ólafsson hf. aðaleigandi, en smærri eigendur voru Vilhjálmur Þór, atvinnumálaráðherra í utan- þingsstjórninni, og hálfbróðir hans, Gunnlaugur Einarsson læknir, auk Sigurðar Jónssonar endurskoð- anda. Stjórnin hélst svona, en tveir síðastnefndu hættu snemma, og Örn Þór, sonur Vilhjálms, seldi sinn hlut í áföngum frá 1984. í dag eiga því fyrirtækið erfingjar Björns Ól- afssonar og hálfbróður hans, Guð- mundar Elíassonar. Til að setja upp fyrstu vélina, af Dixie-gerð, fengu þeir Red nokkurn Davies, mikinn ævintýramann sem hafði verið í Shanghai og átt fótum sínum fjör að launa þegar Japanar hertóku borgina. Hann þraukaði þó ótrúlega lengi, og sendi móðurfyrirtækinu öðru hveiju skeyti, þar sem hann lýsti því yfir að hann hefði hækkað verðið á kók. Þá var sú stefna að drykkurinn ætti að kosta nákvæm- lega sem svaraði fimm sentum, ekki eyri meira og ekki eyri minna. Móðurfyrirtækið sendi skeyti um hæl og sagði að hann mætti ekki selja drykkinn á hækkuðu verði, en hann svaraði og kvaðst hafa hækkað drykkinn enn meir. Þá sendu þeir skeyti og tilkynntu að hann væri rekinn, en hann síms- endi þau boð, að hann hefði hækk- að verðið enn og nú ríflegar en í fyrri skiptin. Þá fékk hann þau svör að hann væri ráðinn aftur, því þá var stríðið farið að hafa áhrif í Bandaríkjunum og þeir voru búnir að uppgötva fyrirbæri sem hét verðbólga. Vífilfell flutti í byijun inn 100 þúsund tómar flöskur, en síðan gerðist það að íslenska inn- flutningsnefndin neitaði þeim um að kaupa fleiri flöskur og meiri sykur, og bar við höftum vegna stríðsins. Red Davies spilaði þá póker allar nætur á Hótel Borg við Charles Bonesteel hershöfðingja og yfirmann Bandaríkjahers á íslandi, og undir morgun þegar seig á ógæfuhliðina fyrir hershöfðingj- anum lýsti hann því yfir að verk- smiðjan mætti fá sent eitt skip le- stað sykri og flöskum, og það gerði gæfumuninn um framhaldið. Raun- ar spilaði inn í að Roosevelt forseti hafði fyrirskipað, að bandarískir hermenn, hvar sem þeir væru staddir í heiminum, ættu að eiga ndih drai erra aums eftir Sindro Freysson/ Myndir: Kristjón Arngrímsson o.fl. COCA-COLA eða kók, eins og við köllum drykkinn í daglegu tali, hefur sigrað öll land- amæri ólíkrar hugmyndafræði og valds, því neysla er öllum mönnum eiginleg og þorstinn víðast hvar keimlíkur. Þess vegna hafa allt frá hirðingjum Afríku til kommúnískra kerf- isfauska í núliðnum Sovétríkjum sopið kók og skilgetin afkvæmi þess. í hálfa öld hefur Vífilfell hf. selt landsmönnum drykkinn, sem hingað kominn var nokkurs konar fyrirboði þeirra öru breytinga sem urðu frá seinni heimsstyrjöld á lífsmáta og neysluvenjum þjóðarinnar. Kók er fyrir löngu orðið meira en svaladrykkur, það er sendiherra banda- ríska draumsins margfræga og þeirra lifnað- arhátta sem honum eru samfara. Samkvæmt þessum skilningi er Vífilfell sendi- ráð, nyrsti útvörður og ötull boðberi draumsins. Pétur Björnsson, forstjóri fyrir- tækisins, er þá tvímælalaust sendiherra sem getur hrósað sigri, enda þykir íslenska framleiðslan skara framúr og hvergi er meira drukk- ið af gosdrykkjum fyrirtækisins í heiminum en hér, miðað við höfðatölu. Aðeins sólbakaðir íbúar Mexíkó, slaga upp í okkar drykkju á kók. Allt hófst þetta árið 1886, sama ár og tæplega þijú þúsund íbúar Reykjavíkur fögnuðu aldarafmæli kaupstaðarins, þeg- ar bandarískur lyfjafræðingur, dr. John Styth Pember- ton, blandaði elexír sem átti aðallega að hjálpa van- búnum landbyggjum á leið til lítt numdra gresjanna í suðri, að þreyja þorrann. Hann blandaði safa úr ýmsum ávöxtum og jurtaefnum, og við þetta bætti hann sykri og kókaíni. Af síðastnefnda hráefninu og kóla-jurtinni dró drykkurinn nafn sitt. Laust eftir alda- mótin bönnuðu stjórnvöld í Bandaríkjunum notkun kókaíns í matvæli sökum þess hve hættulegt það væri, uppskriftinni var breytt lítillega og þær vinsæld- ir sem drykkurinn hafði áunnið sér hjá þorstlátum landsmönnum margfölduðst. Coca-cola var ekki leng- ur lyfjaelexír, heldur svaladrykkur framtíðar. Til • • PETUR BIORNSSON forstjóri Verksmiðjunnar Vífilfells hefur svalað þorsta þ jéðarinnar í hólf a öld með drykk sem blandaður var í upphaf i til að létta landnemum lífið ó ferðinni út ó sléttur Bandaríkjanna Pétur Björnsson stendur í elsta hluta verksmiðjulagersins í Stuðlahálsi, þar sem fyrir- tækið verður undir einu þaki í fyrsta skipti í sögu þess næstkomandi haust. marks um það er, að í dag er kók selt í tæplega 160 löndum, og seg- ir sagan að ef allt Coca-cola sem framleitt hefur verið væri tappað á meðalstórar flöskur og þeim raðað upp, næði röðin 1.045 sinnum til tunglsins og aftur til jarðar. Það mun jafngilda einni ferð á dag í tvö ár, tíu mánuði og ellefu daga — en taka skal með í reikninginn að þessar tölur úreldast á hverri sek- úndu sökum hraðans í framleiðslu og neyslu. Þriðja kynslóðin og stríðið sem breytti ásýnd heimsins Pétur býður mér kaffísopa hon- um til samlætis og mér til nokkurr- ar furðu, á öðrum veitingum átti ég von úr þessum herbúðum. Það þarf þó kannski ekki að koma al- gjörlega á óvart, því enn þamba Islendingar meira kaffi og mjólk en gosdrykki, og eiga aðrar drykkj- arvörur langt í land með að ná þessum þremur. Sjálfur segist Pét- ur vera hófsemdarmaður á gos- drykki, fái sér þó flösku af gamla, sígilda kókinu stöku sinnum, en sumir í ijölskyldunni drekki svo mikið af gosi að helst þyrfti hann að reisa aðra verksmiðju til að anna eftirspurn á þeim markaði. Þar er um hina svokölluðu „þriðju kyn- slóð“ að ræða, og í nokkra .stund ræðum við alþjóðlega goðsögu um þá ágætu kynslóð, en hún segir að fyrsta kynslóðin byggi upp fyrir- tæki af naumum efniviði og geri að stórveldi, önnur kynslóðin haldi stöðunni og styrki hana skynsam- lega, en síðan taki letiblóðin í þriðju kynslóðinni við og byiji að þruðla með eignir fyrirtækisins og veiki það með innri ágreiningi. „Vonandi er þetta helber goðsaga," segir Pétur og sýpur á kaffinu, „faðir minn, Björn Olafsson, byggði fyrir- tækið upp til frambúðar. Hann vann sig upp frá engu fljótlega eftir aldamót, var sjálfmenntaður, en vann um tíma sem fulltrúi á Aðalpósthúsinu í Reykjavík, og stofnaði síðan heildsölu. Hún þraukaði kreppuna af, sem þótti gott eins og sakir stóðu í efnahags- málum. Um 1930 fór hann að hafa afskipti af pólitískum störfum, og var fyrst fjármálaráðherra í utan- þingsstjórninni sem sat frá 1942 undir forsæti Sveins Björnssonar þá ríkisstjóra og Björns Þórðarson- ar forsætisráðherra. Tvisvar síðan sat hann sem ráðherra með fjármál og viðskiptamál á sinni könnu, þangað til hann hætti öllum af- skiptum af stjórnmálum 1960.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.