Morgunblaðið - 31.05.1992, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINIMA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGUR
31. MAI 1992
Auglýsingateiknari
Auglýsingateiknari - myndlistarmaður óskar
eftir verkefnum/starfi. Hefur mikla reynslu í
að vinna sjálfstætt. Átta ára starfsreynsla.
Nánari upplýsingar í síma 622555.
Leikskólastjóri
óskast á foreldrarekinn leikskóla í Hafnarfirði.
Starfið er veitt frá 1. september nk. eða eft-
ir nánari samkomulagi.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
fyrir 15. júní nk. merktar: „LS-12411."
„Au pair“
til Bandaríkjanna
íslensk hjón, bæði hjúkrunarfræðingar, bú-
sett á Long Island, leita að barngóðri mann-
eskju til að gæta átta ára drengs og annast
létt heimilisstörf. Viðkomandi verður að vera
a.m.k. 18 ára, hafa bílpróf og má ekki reykja.
Þarf að geta byrjað 1. júlí og vera eitt ár.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
5. júní merktar: „Ameríka - 14376".
Kl
Frá Kópavogsskóla
Okkur vantar sérmenntaðan skólasafns-
kennara frá og með næsta skólaári.
Um er að ræða sem næst 2/3 starfs.
Allar frekari upplýsingar veita skólastjóri og
aðstoðarskólastjóri í síma 40475.
Lyfjatæknir
Lyfjatæknir óskast til sumarafleysinga
í 4-5 vikur.
Upplýsingar í síma 26222 fyrir hádegi.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund.
Þarftu að ráða
starfsmann?
Okkar þjónusta byggist á þekkingu
og reynslu
Aðalmarkmið okkar er að auðvelda viðskipta-
vinum leitina að hæfum starfsmönnum.
Því veitum við:
• Persónulega þjónustu.
• Vönduð og fagleg vinnubrögð.
• Málsmeðferð byggða á marktækri
reynslu.
• 3ja mánaða ábyrgð á ráðningum.
• 6 mánaða ábyrgð á ráðningum í stjórnun-
arstörf.
• Einnig sjáum við um gerð ráðningarsamn-
ings verði þess óskað.
Við bjóðum þig velkominn á skrifstofu okkar
í Skipholti 50c. Einnig erum við fús til að
veita þér allar nánari upplýsingar í síma
628488.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
LÖG
Guðný Harðardóttir
Skipholti 50c, 2. hœð, 105 Reykjavík
AUGLYSINGAR
Atvinna óskast
Fertugur maður óskar eftir góðu framtíðar-
starfi. Hefur mjög góða tungumálakunnáttu
og margþætta starfsreynslu á sviði erlendra
samskipta, sölu- og kynningarstarfa.
Svör leggist inn á auglýsingadeild Mbl.
merkt: „Framtíð - 4949".
Sölumaður
á fasteignasölu
Vanur sölumaður óskast á fasteignasölu.
Góð vinnuaðstaða.
Nafn og símanúmer leggist inná auglýsinga-
deild Mbl. merkt: „S-11278“ fyrir4. júnínk.
Vélatækni-
fræðingur
nýlega kominn heim frá Danmörku úr námi,
óskar eftir vinnu. Ýmislegt kemur til greina.
Hef einnig 4. stigs vélstjórapróf. Margvísleg
reynsla, hef starfað sem vélstjóri til sjós, við
kælitækjaviðgerðir og fl. Uppl. í síma 656321.
Listaháskóli ríkisins
Listaháskóli ríkisins (Statens kunstakademie - SKA) er sá ríkis-
skóli sem í Noregi veitir myndlistarmönnum æðstu menntun. (
skólanum eru 105 nemendur og starfsmenn eru um 30, marg-
ir þeirra í hlutastörfum. I skólanum eru deildir fyrir grafík, högg-
myndalist og málun. Hann er staðsettur miðsvæðis í Osló
skammt frá Slottsparketn.
Skólastjóri Listaháskóla ríkisins
SKA ætlar að ráða nýjan skólastjóra. Staðan
er auglýst til fjögurra ára og er um fullt starf
að ræða. Hægt er að sækja um lengingu
ráðningarsamnings. Staðan er laus frá og
með 1. janúar 1993.
Skólastjóri ber ábyrgð gagnvart skólastjórn
á faglegum rekstri og þróun skólans.
Listaháskólinn hefur áhuga á aðila með víð-
tæka reynslu á sviði lista, alþjóðlega reynslu
og stjórnunarreynslu.
Fyrir liggur starfslýsing og tekin hefur verið
saman skrá yfir þær forsendur, sem taldar
eru nauðsynlegar fyrir starfið. Við hvetjum
þá, sem ætla að sækja um stöðuna, að kynna
sér þá skrá sem og starfslýsinguna. Þær er
hægt að nálgast með því að snúa sér til SKA.
Umsækjendur verða auk umsóknar að senda
inn skjalfest yfirlit yfir starfsreynslu sína á
þessu sviði og af reynslu sinni af stjórnun.
Umsækjendur verða að gera grein fyrir hug-
myndum sínum og markmiðum með sér-
stakri áætlun. Umsækjendur, sem taldir eru
líklegir til starfans, mega gera ráð fyrir að
verða boðaðir í viðtal.
Laun eru samkvæmt launaflokki 1 tr. 27,
NOK 305 593. Frá laununum er eru dregin
2% til Lífeyrissjóðs ríkisins (Statens pen-
sjonskasse).
Stjórn SKA mun skipa nefnd, sem saman-
stendur af aðilum með haldgóða þekkingu á
sviði lista og sérfræðingum á sviði stjórnun-
ar, sér til ráðgjafar. Ráðuneyti kirkjumála,
menntunar og rannsókna hefur yfirumsjón
með ráðningunni.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar um há-
skólann er hægt að fá með því að hafa sam-
band við SKA, Olavsgate 32, 0166 Oslo, sími
90 47 2 200150.
Nánari upplýsingar um stöðu skólastjóra
veitir Per de Seva, skrifstofustjóri.
Umsækjendur verða að hafa vald á norræn-
um tungumálum.
Umsóknarfrestur rennur út 20. júní 1992.
Hljóðupptökustjóri
nýútskrifaður frá skóla í Bandaríkjunum ósk-
ar eftir vinnu strax.
Öllum fyrirspurnum svarað.
Tilboð óskast send auglýsingadeild Mbl.
merkt: „BG - 14377".
Atvinnurekendur ath.!
Fjöldi námsmanna á skrá með margvíslega
menntun og starfsreynslu.
Opið frá kl. 9-18 alla virka daga.
ATVINNUMIÐLUN NÁMSMANNA,
símar 621080 og 621081.
Tölvunarfræðingur
með mikla reynslu, getur bætt við sig minni
verkefnum á sviði forritunar, ráðgjafar eða
kennslu. Aðstoð við val á hug- eða vélbún-
aði, gerð og úrvinnsla útboðsgagna, hönnun
hugbúnaðarkerfa. Löng reynsla af Unix,
DOS, OS/2, Windows, Macintosh, PC net-
umhverfi og gagnasafnskerfum. Vinsamleg-
ast sendið fyrirspurnir í PO. box 5404, 125'
Reykjavík merkt: „SOFT - 92".
miir IÐNSKÓLINN f REYKJAVÍK
Ræstingar
Starfsfólk vantar strax við ræstingu í sumar.
Upplýsingar í síma 26240.
Iðnskólinn í Reykjavík.
Vantar þig
aukavinnu?
Bókaforlagið Vaka-Helgafell óskar að ráða
áhugasamt fólk til að annast lifandi kynningar-
og sölustarf ertengist klúbbum þeim, erfyrir-
tækið rekur.
Vinsamlegast hafið samband við Hildi Hall-
dórsdóttur í síma 688300 á mánudag og
þriðjudag kl. 9.00-13.00.
Síðumúla 6
Sími 688 300
Sérhæfður sölu-
maður á tæknisviði
Stórt og öflugt innflutningsfyrirtæki á ýmsum
tæknibúnaði hefur falið mér að útvega sér
starfsmann í stöðu sölumanns.
Leitað er að framsæknum einstaklingi, sem
hefur þekkingu og reynslu af sölu á ýmsum
tæknibúnaði þ.ám. símkerfum og öðru því
tengdu.
Viðkomandi þarf að hafa frumkvæði og metn-
að, hafa þjónustuvilja og góða samskipta-
hæfileika.
í boði er krefjandi starf hjá traustu fyrirtæki,
spennandi og fjölbreytt verkefni ásamt góð-
um launum fyrir réttan aðila.
Umsóknareyðublöð, ásamtfrekari upplýsing-
um um starfið, eru veittar á skrifstofu minni,
Hafnarstræti 20, 4. hæð.
TEITUR lÁRUSSON
STARFSMANNAÞJÓNUSTA hf.
HAFNARSTRÆTI20, VH) LÆKJARTORG, 101 REYKJAVÍK, SÍMI624550.