Morgunblaðið - 31.05.1992, Síða 29
MÓRGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMÁ SUNNUDAGIÍR 31. MAÍ 1992
Kjötiðnaðarmaður
sem hefur að sérgrein sósu- og salatgerð,
óskast til starfa á Akureyri sem fyrst.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „K - 9000“.
Lögfræðingur
Stórt þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar að
ráða lögfræðing til starfa í lögfræðideild fyrir-
tækisins.
Framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðar-
mál, sé þess óskað.
Umsóknir, ertilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, leggist inn á auglýsingadeild Mbl. fyrir
9. júní, merktar: „Lögfræðingur - 3482“.
Stykkishólmsbær
Píanókennarar ath.!
Píanó- og hljómborðskennari óskast við Tón-
listarskóla Stykkishólms frá 1. september nk.
Upplýsingar gefnar í síma 93-81565, Daði
Þór, skólastjóri, og 93-81322, Jóhanna Guð-
mundsdóttir, formaður skólanefndar.
Bæjarstjóri.
Rekstur skrifstofu
Fyrirtæki í matvælaiðnaði í borginni óskar
að ráða starfskraft til starfa fljótlega, til að
annast daglegan rekstur skrifstofu (bók-
hald - fjárreiður - starfsmannahald).
Vinnutími er frá kl. 8 til kl. 16 virka daga.
Leitað er að nákvæmum og samviskusöm-
um starfskrafti, sem hefur tamið sér sjálf-
stæð og skipulög vinnubrögð og hefur metn-
að í starfi. Góð bókhaldskunnátta ásamt
starfsreynslu til að takast á við þetta starf
er skilyrði. Æskilegur aldur 35-45 ára.
Góð laun í boði.
Farið verður með allar umsóknir og fyrir-
spurnir sem algjört trúnaðarmál.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 7. júní nk.
Guðnt TÓNSSON
RAÐC JQF & RAÐN I N CARÞJÓN L15TA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Yfirverkstjóri
Yfirverkstjóra vantar til starfa í frystihúsi í
kaupstað úti á landi.
Hlutverk: Matsmaður hússins v/frystra af-
urða. Yfirumsjón með fiskvinnslu fyrirtækis-
ins, skipulagningu og samhæfingu fram-
leiðsluþátta s.s. hráefnisölu, mönnun o.fl.
Menntun: Fiskvinnsluskólapróf eða sam-
bærileg menntun. Hafa reynslu í rekstri fisk-
vinnslustöðva. Þarf að geta hafið störf í byrj-
un september 1992. Framtíðarstarf fyrir
metnaðarfullan mann.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar:
„Yfirverkstjóri 199“ fyrir 13. júní nk.
Haeva C— ngurhf
Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
„Amma“ óskast
Áreiðanleg kona óskast til að koma heim og
gæta tveggja barna allan daginn frá miðjum
ágúst nk.
Erum í vesturbæ Reykjavíkur.
Frekari upplýsingar veitir Margrét í síma:
16721 eftir kl, 17.00 í dag og allan daginn
næstu daga.
í. F. A.
Framkvæmdastjóri
ÍFA
Landssamtökin ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA óska
eftir að ráða framkvæmdastjóra. Erum að
leita að einstaklingi sem hefur ,brennandi
áhuga á almenningsíþróttum og hefur auk
þess skipulagshæfileika og kunnáttu á sviði
skrifstofuhalds.
Laun samkvæmt samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 15. júní nk.
Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá Sig-
urði Magnússyni og Stefáni Konráðssyni á
skrifstofu ÍSÍ, íþróttamiðstöðinni Laugardal,
104 Reykjavík, sími 91-813377.
Umsóknir sendist til skrifstofu ÍSÍ, merktar
Framkvæmdastjóri ÍFA.
LYSI)
Aðstoðarmaður
óskast
Lýsi hf. auglýsir eftir aðstoðarmanni í hálft
starf á rannsóknarstofu fyrirtækisins.
Starfið felst m.a. í vinnu við efnagreiningar,
móttöku og pökkunareftirlit. Æskilegt er að
viðkomandi hafi stúdentspróf eða reynslu
af efnamælingum og geti hafið störf sem
fyrst.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
10. júní, merktar: „L - 3485“.
Sölumaður
Fyrirtækið er rótgróið innflutnings- og smá-
sölufyrirtæki í Reykjavík.
Sölumaðurinn mun annast sölu og veita
ráðgjöf varðandi val hreinlætis- og blöndun-
artækja, nuddpotta o.fl. Einnig mun hann sjá
um móttöku pantana, útskrift reikninga auk
annars tilfallandi. Unnið er að hluta til með
aðstoð tölvu.
Áhersla er lögð á söluhæfileika, snyrti-
mennsku og þægilegt viðmót. Kostur er hald-
bær þekking og reynsla af sambærilegu.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní nk.
Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsinar á
skrifstofunni að Skipholti 50c frá kl. 9-15.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Guðný Harðardóttir
Skipholti 50c, 2. hæð, 105 Reykjavik
Sími 91-628488
Rúmlega þrítugur
rekstrarhagfræðingur (MBA frá Bandaríkjun-
um) getur tekið að sér verkefni. Fullt starf
eða hlutastarf kemur einnig til greina.
Reynsla á sviði markaðs- og útflutningsmála.
Getur hafið störf strax.
Áhugasamir leggi inn svör á auglýsingadeild
Mbl. fyrir 4. júní merkt: „Markaðsstarf -11271“.
Sölumaður
- sjávarútvegur
Starfssvið: Sala á þorsknetum, garni, tógi
o.fl. útgerðarvörum, aðstoð við rekstur, lag-
erhald o.fl. Þekking og reynsla af sjávarút-
vegi nauðsynleg. Reynsla af sölumennsku
æskileg. Laust strax.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónutu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar: „Sölumaður - 187“ fyrir 5. júní nk.
Hagvangurhf
Skeifunni 19
Reykjavík
Sími 813666
Ráðningarþjónusta
Rekstrarráðgjöf
Skoðanakannanir
NÁMSGAGNASTOFNUN
L^ugðvegur 166 • Pósthólí 5020 * 125 Keykjavík
Símar (91) 2 8(? 88 2 82 85 • Fax (91) 62 41 37
Forstöðumaður
sölu- og afgreiðslusviðs
Námsgagnastofnun auglýsir starf forstöðu-
manns sölu- og afgreiðslusviðs laust til um-
sóknar.
Á sölu- og afgreiðslusviði eru tvær deildir,
skólavörubúð og afgreiðsludeild, og er starf
forstöðumanns fólgið í yfirstjórn þeirra.
Leitað er að vel menntuðum starfsmanni
með skipulags- og stjórnunarhæfileika.
Skilyrði er að viðkomandi hafi kennara-
próf/kennsluréttindi, og reynslu af skóla-
starfi, hafi góða enskukunnáttu, gott vald á
a.m.k. einu Norðurlandamáli, þekkingu á
tölvuvinnslu og reynslu í stjórnunarstörfum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist Námsgagnastofnun,
Laugavegi 166, pósthólf 5020, 125 Reykja-
vík, fyrir 20. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofustjóri í
síma 28088.
Sölu-
og skrifstofustarf
Fyrirtækið er innflutnings- og framleiðslufyr-
irtæki í austurhluta borgarinnar.
Starfsmaðurinn mun annast sölu til við-
skiptavina fyrri hluta dagsins en verja síðari
helming dagsins við skrifstofustörf.
Áhersla er lögð á marktæka þekkingu á
skrifstofustörfum auk reynslu af sölustörfum.
Góð laun fyrir hæfan starfsmann.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní nk.
Ráðning verður skv. nánara samkomulagi.
(Beðið verður eftir hæfum starfsmanni).
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á
skrifstofunni í Skipholti 50c frá kl. 9-15.
RÁÐNINGARÞJONUSTA
Guðný Harðardóttir
Skipholti 50c, 2. hæð, 105 Reykjavík
Simi 91-628488