Morgunblaðið - 14.06.1992, Side 7
7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992
Ræðutími og ræðufjöldi á Alþingi:
Æðarvarp
í byggð
Bíldudal.
FJÖLSKRÚÐUGT fuglalíf er
nú á Bíldudal enda komið að
varpi margra fuglategunda.
Óvenju mikið af grágæs hefur
sést við kauptúnið og á landi
Litlueyringa eru hundruð
æðarfugla, en þar er lítið æðar-
varp.
Þar safnast margar tegundir
saman og margar þeirra verpa á
þeim stað. Má þar nefna kríu,
stelk, stokkönd, tjald og óðins-
hana. Grágæsin heldur sig einnig
á varpsvæðinu og heiðlóan. Þessi
Eins og sjá má er stutt í næsta
fuglaparadís setur líflegan svip á
kauptúnið og er næsta íbúðarhús
aðeins í 20 metra fjarlægð.
Innar í dalnum er íþróttasvæði
og á síðasta ári verpti tjaldspar á
bak við annað knattspyrnumark-
ið. Og í miðjum leik kom tjaldspar-
ið inn á völlinn til að mótmæla
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
íbúðarhús frá varpsvæðinu.
boltasparkinu. En þrátt fyrir
margar tilraunir íþróttaunnenda
til að bjarga eggjum parsins með
því að stilla hjólbörum við hreiðr-
ið misfórst varpið. í Otradal hefur
sést til æðarkóngs en æðarkóngur
er þar árlegur gestur.
R. Schmidt.
Alþýðubandalagsmenn töluðu
lengst en sjálfstæðismenn oftast
Olafur Ragnar tók
ÞINGMENN Alþýðubandalags
töluðu samanlagt í rúmlega 220
klukkustundir á liðnu Alþingi og
var það mun lengri tími en aðrir
þingflokkar notuðu. Þingmenn
Sjálfstæðisflokks tóku hins vegar
oftast til máls, eða 2.066 sinnum.
Sá þingmaður sem oftast talaði
var Ólafur Ragnar Grímsson, en
hann steig 376 sinnum í ræðustól.
Flokksbróðir hans, Steingrímur
J. Sigfússon, talaði hins vegar
lengst, eða í 54 klukkustundir og
36 mínútur.
Samkvæmt upplýsingum frá skrif-
stofu Alþingis töluðu þingmenn Al-
376 sinnum til máls
þýðubandalags, sem eru 9, saman-
lagt í 220 klst. og 22 mín. í alls 1.845
ræðum. Þingmenn Framsóknar-
flokks, sem eru 13, töluðu í 177 klst.
og 33 mín. í 1.490 ræðum. 26 þing-
menn Sjálfstæðisflokks töluðu í 135
klst. og 28 mín. í 2.066 ræðum. 10
Alþýðuflokksmenn töluðu í 74 klst.
og 40 mín. í 897 ræðum og 5 þing-
menn Kvennalista í 74 klst. og 25
mín. í 758 ræðum.
Sá þingmaður, sem oftast tók til
máls á síðasta þingi, var Ólafur
Ragnar Grímsson, formaður Alþýðu-
bandalags, en hann steig í ræðustól
376 sinnum. Flokksbróðir hans, Sva-
var Gestsson, kom næstur með 312
ræður og í þriðja og fjórða sæti voru
Alþýðubandalagsmennimir Stein-
grímur J. Sigfússon með 295 ræður
og Kristinn H. Gunnarsson með 256.
Ólafur Þ. Þórðarson, Framsóknar-
flokki, fylgdi Kristni fast á eftir með
237 ræður.
Ef iitið er til ræðutíma einstakra
þingmanna kemur í ljós, að lengst
talaði Steingrímur J. Sigfússon, eða
í 54 klst. og 36 mín. Næstur kom
Ólafur Ragnar með 41 klst. og 27
mín., þá Halldór Asgrímsson með
32 klst. og 27 mín. og Svavar Gests-
son með 30 klst. og 43 mín., Kristinn
H. Gunnarsson talaði í 26 klst. og
44 mín. og litlu skemur talaði Ólafur
Þ. Þórðarson, eða í 26 klst. og 26
mín.
miTSUSHIBR
ÖGOLF
kyltur 1-3-5 Image Senior kylfur 1-3-5-7
Veió4l.770rsMM Veri 67.430,-
utiuf:
GLÆSIBÆ - sími 91 - 812922
Einn stærsti golfkylfuframleiðandi heims
Glæsileg graphite
Ifsett á f rábæru verði
LEIÐIN TIL
FUNDIN!
Winnipeg 14. júlí - 4. ágúst.
Leiguflug okkar tii Winnipeg er tvímælalaust ódýrasta leið íslendinga vestur um haf - og
ekki sakar að Winnipeg er hreint stórkostleg borg: Afburða góð söfn, fjölbreytt leikhúslít,
ótrúlegur fjöldi matsölustaða og stórkostlegar verslanir þar sem gera má góð kaup.
í Winnipeg er kjörið að fá sér bílaleigubíl og hann sjáum við um að panta, einnig bókum
við flug, lestarferðir, skoðunarferðir og hótel fyrir þig.
Hér gefst gullið tækifæri til að skoða fegurð Klettafjalla, eða nánast hvað sem er
- möguleikarnir eru óþrjótandi á víðum lendum Kanada og Bandaríkin eru skammt undan!
Verð frá 39.700 kr.
Barnaafsláttur: 2-11 ára 13.000 kr., börn yngri en 2 ára greiða 6.000 kr.
Flugvallaskattar og gjöld nema 1.650 kr. fyrir fullorðna og 1.025 kr. fyrir börn.
/
Við minnum á Islendingahátíðina í Gimli 1.-2. ágúst!
■ FARKKRT FIF
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 6910 70
Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 • Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60
Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 40 87