Morgunblaðið - 14.06.1992, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐÍÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992
SLOYAKIA
viku. Hann sést hér á kosningaspjaldi á götu í Prag.
Minnimátfarkennd
knýr#
siálfstæöishreyfinguna
Sigurvegarar
kosninganna í
Tékkóslóvakíu
semja nú um framtíð
sambandsríkisins.
eftir Önnu Bjornadóttur
KVÍÐI og áhyggjur settu svip á beina útsendingu úr sjónvarpssal í
Bratislava á kosninganótt í Tékkóslóvakíu fyrir viku. Stjórnandi
þáttarins var-óánægður með úrslitin og sagði með fyrirlitningu að
öreigalýðurinn í Slóvakíu hefði kosið stjórn við sitt hæfi. Hreyfing
fyrir lýðræðislegri Slóvakíu, HZDS, sigurvegari kosninganna, hafði
ekki fyrir að senda fulltrúa í sjónvarpssal. Vladimir Meciar, leiðtogi
hennar, hefur lítið álit á sameiginlegu sjónvarpi Tékka og Slóvaka
og vill að það verði lagt niður. HZDS lofaði að hægja á einkavæð-
ingu og draga úe atvinnuleysi og verðbólgu í Slóvakíu í kosningabar-
áttunni og þriðjungur kjósenda treysti líflegum frambjóðendum
hennar til þess. Þeir studdu einnig stefnu hreyfingarinnar um aukið
sjálfstæði Slóvakiu. Það olli menningarvitum í sjónvarpssal þungum
áhyggjum. Þeir óttast að óstöðvandi sjálfstæðsskriða sé komin af
stað með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Allir viðmælendur mínir í
Tékkóslóvakíu fyrir kosn-
ingamar töldu af og frá
að það kæmi til vopna-
átaka milli Tékka og Slóvaka ef sam-
bandsríkið klofnar. „Við erum ekki
á Balkanskaga," var viðkvæði
flestra. Þeir voru sannfærðir um að
það færi ekki fyrir Bratislava eins
og Sarajevo í Bosníu. En margir ótt-
ast að það geti slettst upp á vinskap
Slóvaka og Ungveija í framtíðinni.
Nógu góðir til að tala
slóvakísku
Sjálfstæðishreyfmg slavnesku
þjóðanna í Slóvakíu og á tékknesku
svæðunum hófst upp úr 1848 og
umhyggja fyrir slóvakísku og tékkn-
esku jókst. Átak var gert til að
hreinsa þau af þýsku- og ungversku-
slettum, eins og íslensku af dönsku-
slettum nokkrum árum seinna, og
málin eru nú jafn rétthá í Tékkó-
slóvakíu. Þau eru svipuð og Tékkar
og Slóvakar skilja auðveldlega hvorir
aðra. Þeir tala og skrifa hvorir sitt
mál á fundum og í samskiptum sín
á milli án þess að það valdi misskiln-
ingi. Málfræði og stafsetning er þó
nokkuð ólík; munurinn á málunum
er nægur til þess að erlendar bækur
eru jafnvel þýddar á bæði tungumál-
in ef þær eru gefnar út í höfuðborg-
um beggja sambandslýðveldanna,
Prag og Bratislava.
Um 600.000 Ungverjar búa í Slóv-
akíu, en íbúar hennar eru alls um 5
milljónir. íbúar Bæheims og Mæris
eru um 10 milljónir. Ungveijar búa
aðallega í suðurhluta sambandslýð-
veldisins og í sumum þorpum heyrist
ekkert nema ungverska. Kosninga-
bandalag Ungveija hlaut rúm 7%
atkvæða í þingkosningunum. Það
berst fyrir réttindum Ungveija í
Slóvakíu og hefur nokkuð náin tengsl
við stjómvöid í Búdapest, höfuðborg
Ungveijalands. Kennsla fer fram á
á ungversku í barnaskólum í Slóvak-
íu þar sem Ungveijarnir eru fjöl-
mennastir. Þeir viija auka hlut ung-
verskunnar og láta kennslu á henni
ná upp í efri bekki skólakerfisins.
Vladimir Meciar, sem fólk flykkist
að til að hlusta á og er oft kallaður
lýðskrumari, hefur engan skilning á
sérréttindaþörf Ungveija og segir
þá geta talað slóvakísku eins og aðra
íbúa Slóvakíu. Ungverskir Slóvakar
vilja búa áfram í Tékkóslóvakíu og
eru á móti hugmyndum Meciars um
aukið sjálfstæði Slóvakíu. Tékkóslóv-
akía og Ungveijaland gerðu með sér
friðarsamning um landamæri land-
anna á sínum tíma. Samskipti ríkj-
anna hafa gengið vel en ekki ér vit-
að hvert samband ungversku stjórn-
arinnar við ríkisstjórn sjálfstæðrar
Slóvakíu verður og hvort gamli frið-
arsamningurinn verður látinn nægja.
Gabcikovo-Nagymaros-stíflan í Dóná
er helsta bitbein stjórnanna í Brat-
islava og Búdapest nú en deilumálum
þeirra á örugglega eftir að fjölga á
næstu árum.
Ráðherraembætti misnotað
Meciar starfaði í ungliðahreyfingu
sósíalista á yngri árum en var skráð-
ur „óvinur ríkisins" hjá öryggislög-
reglu kommúnistaflokksins, STB,
eftir innrás sovéska hersins í Tékkó-
slóvakíu í ágúst 1968. Nafn hans var
tekið af listanum 1976 og talið er
að hann hafi starfað fyrir STB á
einn eða annan hátt eftir það. Skjöl-
in um' starfsemi hans hurfu eftir
byltinguna í nóvember 1989 og talið
er að hann hafi sjálfur gefið skipun
um að fjarlægja þau. Hann var þá
innanríkisráðherra Slóvakíu og hefur
verið sakaður um að misnota aðstöðu
sína til að eyðileggja sum gögn ör-
yggislögreglunnar og geyma önnur
til að kúga andstæðinga sína með.
Meciar tók við embætti forsætis-
ráðherra Slóvakíu eftir þingkosning-
arnar í júní 1990 en varð að segja
af sér í apríl 1991 eftir að hann sagði
sig úr Almenningi gegn ofbeldi, slóv-
akíska armi Borgaravettvangsins í
tékkneska hlutanum, af því að hon-
um þótti hreyfingin ekki vinna nógu
ötullega að auknu sjálfstæði Slóvak-
íu. Jan Carnogursky, formaður
kristilegra demókrata, KDH, tók við
embætti forsætisráðherra. Hann er
fylgjandi efnahagsstefnu Vaclavs
Klaus, fjármálaráðherra Tékkóslóv-
akíu. Flokkur hans fékk um 9% at-
kvæða í kosningunum- Sögusagnir
um að hann og Ivan, bróðir hans sem
er einnig á þingi, hafi útvegað ætt-
ingjum og vinum góð störf og sjálfir
tekið vellaunuð sæti í nefndum og
ráðum spilltu eitthvað fyrir flokknum
í kosningunum. Ungur maður sem
ég talaði við í Bratislava sagðist vera
hrifinn af stefnu flokksins en hafa
heyrt of margar neikvæðar sögur
um þá bræður til að vilja kjósa þá.
„Þær eru örugglega ekki allar sann-
ar en svona sögur komast ekki á
Slóvakar
krefjast meira
sjálfstæðis og
fullkominn
aðskilnaður
ríkjanna er
hugsanlegur.
kreik nema það sé einhver fótur fyr-
ir þeim,“ sagði hann. Talsmaður
flokksins viðurkenndi að Ivan ætti
sæti í stjómum fyrirtækja en neitaði
afdráttarlaust að þeir bræður hefðu
gert eitthvað ólöglegt eða siðlaust.
„Jan býr enn í sama raðhúsinu og
hann bjó í áður og myndi keyra
Skoda eins og ég ef BMW hefði ekki
fylgt embættinu."
Alvarlegir erfiðleikar
Það er auðséð í Bratislava og Prag
að Slóvakía er fátækari hluti sam-
bandsríkisins. Hún er enn grá og
óspennandi á yfirborðinu, eins og
borgir austantjaldsríkjanna voru, en
Prag er full af lífi og framkvæmda-
semi, þótt Vesturlandabúum þyki
vinnubrögðum Tékka oft ábótavant.
Aðeins 20% erlendra fjárfestinga
I