Morgunblaðið - 14.06.1992, Síða 26
t26
+
Fóstra mín,
ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Borgarbraut 25,
Borgarnesi,
er látin.
Jarðsett verðurfrá Borgarneskirkju mánudaginn 15. júníkl. 14.00.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Lára Vilhelmsdóttir.
t
Higinmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
BENEDIKT HANNESSON,
Hofsvallagötu 18,
sem lést á Kumbaravogi 11. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju 18. júní kl. 15.00.
Hallfríður Magnúsdóttir,
Ásta Benediktsdóttir, Haraldur Samúelsson,
Hannes Benediktsson,
Knútur Benediktsson, Ásta Þórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför móður minnar og ömmu,
ELÍNAR ELÍSABETAR SIGURÐARDÓTTUR,
hjúkrunarheimilinu Skjóli,
áður Tómasarhaga 29,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 15. júní kl. 15.00.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Kristfn Pálmadóttir,
Pálmi Guðmundsson.
+
Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
GUÐRÚNARBERGSDÓTTUR,
Grenimel 4,
Reykjavík,
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 16. júní kl. 13.30.
Þorleifur Guðmundsson,
Erna Þorleifsdóttir, Sigurjón Jóhannsson,
Bergur Þorleifsson, Sigríður Skaftfell,
Þórhildur Þorleifsdóttir, Arnar Jónsson,
Eggert Þorleifsson, Halldóra Thoroddsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför ástkærar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR SVEINSDÓTTUR,
Dúfnahólum 2,
sem lést mánudaginn 8. júní, fer fram frá Háteigskirkju þriðjudag-
inn 16. júnf kl. 13.30.
Sveinn Eyþórsson, Hafdis Eggertsdóttir,
Birgir Eyþórsson, Birna Stefánsdóttir,
Gunnar Eyþórsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGEBORG B. SIGURÐSSON,
Grænumörk3,
Selfossi,
sem andaðist að morgni 10. júní, verður jarðsungin frá Selfoss-
kirkju fimmtudaginn 18. júní kl. 13.30.
Ernst Sigurðsson,
Kristin M. Sigurðsson, Einar L. Gunnarsson,
Margrét Sigurðsson, Baldur Jónasson
og barnabörn.
+
Útför mannsins míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
KARLS ELfASSONAR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
fer fram frá Víðistaðakirkju 15. júní kl.
13.30.
Þeim sem vildu minnast hans er góðfús-
lega berrtá að láta Sólvang njóta þess.
Fjóla Óskarsdóttir,
Elías Andri Karlsson, Rannveig Jónsdóttir,
Ómar S. Karlsson, Fjóla Valdimarsdóttir,
Óskar G. Karlsson, Brynhildur Jónsdóttir,
Sólbjörg Karlsdóttir, Tómas Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Krisiján Ásgeirs-
son - Minning
Ástkær tengdafaðir minn,
Kristján Ásgeirsson, varð bráð-
kvaddur á heimili sínu á Selfossi
5. júní sl., aðeins rúmlega ári eft-
ir fráfall eiginkonu sinnar, Ingi-
bjargar Jónu Jónsdóttur.
Kristján Ásgeirsson var fæddur
9. október 1919 á Bauluhálsi í
Arnarfirði. Foreldrar hans voru
Guðbjörg Oktavía Kristjánsdóttir
og Ásgeir Kristján Matthíasson.
Aðeins sex vikna gamall var hann
sendur í fóstur til Ríkeyjar Guð-
mundsdóttur og Kristjáns Frí-
manns Gíslasonar á Gljúfurá í
Arnarfirði. Þau hjón fluttu síðar
að Hjallkárseyri í Arnarfirði og
þegar Kristján var 17 ára fluttu
þau til Bíldudals og bjuggu þar á
Kaldabakka.
Kristján kvæntist 27. júlí 1942
Ingibjörgu Jónu Jónsdóttur, frá
Efsta-Hvammi í Dýrafirði.
Þau hjónin bjuggu lengst af á
Bíldudal, þar sem Kristján vann
við ýmis störf, sjómennsku, bif-
reiðaakstur og lengst af sem versl-
unarstjóri við kaupfélagið á staðn-
um.
Um áramótin 1975-’76 tóku þau
hjónin sig upp og fluttu búferlum
suður á Eyrarbakka, þar sem
Kristján tók við stjórn útibús kaup-
félagsins þar í bæ. Árið 1986 tóku
þau sig enn upp, en nú var ekki
farið lengra en upp á Selfoss, þar
sem Kristján tók fyrst að sér
umsjón með versluninni 3K, en
vann síaðr um tíma í bygginga-
vörudeild KÁ á Selfossi.
Kristjáni og Ingibjörgu varð
fimm barna auðið, þ.e.: Guðrún,
húsmóðir á Bíldudal, gift Guð-
mundi Þ. Ásgeirssyni; Ríkharður,
verkfræðingur, búsettur í Hafnar-
firði, kvæntur ídu Sveinsdóttur;
Minning:
Páll Gunnarsson
Fæddur 31. ágúst 1958
Dáinn 3. júní 1992
Það er erfítt að hugsa sér hóp-
inn án Palla. Hvert sem litið er
stendur Palli föstum fótum í gamla
vinahópnum, traustur, úrræðagóð-
ur og hjálpsamur. Við ætlum ekki
hér að segja frá lífshlaupinu sem
varð svo sorglega stutt, heldur
minnast í örfáum orðum þessa
góða vinar sem .örugglega á stórt
rúm í hugum okkar sem vorum
svo gæfusamir að fá að þekkja
hann og deila með honum gleði
og sorg. Það sem ávallt kom upp
í hugann þegar nafn Palla bar á
góma var þetta trausta jafnaðar-
geð og bjartsýni sem svo rækilega
kom í ljós í þeim erfiðleikum sem
hann átti við að stríða síðastliðið
ár. Á meðan kraftar hans entust
fylgdist hann fullur áhuga með
því sem var að gerast í kringum
hann og setti jafnan fram sínar
ákveðnu og oftast vandlega hugs-
uðu athugasemdir; hann spurði um
gömlu vinina, og bar hag þeirra
fyrir bijósti.
Það verður aldrei fyllt í skarðið
hans Palla. Þegar við vinimir lítum
fram á veginn setur að okkur
söknuð. Við fáum ekki lengur not-
ið heilræðanna, það verður ekki
lengur hægt að leita til Palla þeg-
ar hjálpar er þörf og það er svo
óendanlega margt sem hverfur
með Palla. Það er í anda Palla að
hafa þetta stutt, hann lagði meiri
áherslu á að gera, en að segja,
eins og góðum drengjum sæmir.
Það var aðdáunarvert að sjá
hvernig þau Palli og Jóka stóðu
saman í erfíðleikum þeim sem þau
máttu þola síðastliðið ár á meðan
tvísýnt var um hvort tækist að
ráða við þann illskeytta sjúkdóm
sem að endingu sigraði. Við send-
um Jóhönnu og Mörtu litlu ásamt
öllum ættingjum og vinum okkar
dýpstu samúðarkveðjur og megi
sá sem öllu ræður hjálpa ykkur
að lina sorgina sem fylgir því að
sjá á bak ástvini og góðum dreng.
Æskuvinir.
Af eilífðar ljósi bjarma ber.
Sem brautina þungu greiðir.
Vort líf, sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir
og upphiminn fegri en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Ben.)
Mig langar til að kveðja elsku-
legan hálfbróður minn með nokkr-
um orðum og þakka honum fyrir
þau fáu ár sem við fengum til að
kynnast. Því ég trúi að hafí verið
tilgangur með því. Það er undarleg
tilfínning að hugsa til þess að
Palli skuli vera farinn. En ég trúi
því að honum líði vel núna.
Elsku Jóhanna og Marta, megi
guð gefa ykkur styrk í sorg ykkar.
Gugga.
Vegna mistaka er urðu við
birtingu þessara minningarorða
í blaðinu á útfarardegi hins látna,
eru kveðjuorðin birt á ný og all-
ir hlutaðeigandi beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — símí 681960
Björk, gjaldkeri, búsett í Kópa-
vogi, gift Diðriki Ólafssyni; Víðir,
efnafræðingur, búsettur í Kópa-
vogi, hann býr með Aðalbjörgu
Helgadóttur; Sigurleifur, flugum-
ferðarstjóri, búsettur í Hafnar-
fírði, giftur Þórunni Jónsdóttur.
Kristján og Ingibjörg voru ein-
staklega samhentir lífsförunautar,
sem deildu með sér þeirri ábyrgð
að koma börnum sínum til þroska,
létu sér annt um heill og ham-
ingju fjölskyldunnar og viðhéldu
traustum böndum hennar eins og
kraftar beggja leyfðu. Þau undu
sér ætíð best í nærveru hvors ann-
ars, þar sem gagnkvæm virðing,
ást og trygglyndi ríkti. í ástríkum
hjónaböndum reynist þungstíg
spor eftirlifandi maka, að vinna
sig út úr sorginni. Oft svo að til-
gangur lífsins fer dvínandi og bið-
tíminn styttist til muna.
Það er aðstandendum Kristjáns
og Ingibjargar huggun harmi gegn
að vinirnir hafi náð saman á ný,
eftir stuttan aðskilnað.
Kristján var mætum mannkost-
um búinn, skilur eftir sig góðan
orðstír, sem hvorki mölur né tyð
fá grandað.
Hann var eisntakt ljúfmenni og
hjálpsamur sem allra götu vildi
greiða. Það sannreyndu m.a. við-
skiptavinir hans í kaupfélaginu á
Eyrarbakka, þegar hann iðulega
hljóp erinda fólks, eftir að eigin-
legum verslunartíma var lokið.
Opið alla daga frá kl. 9-22.