Morgunblaðið - 14.06.1992, Side 28
ATVINNU/RAD-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
ATVINNU
Bifreiðastjórar
Okkur vantar bifreiðastjóra til afleysinga í
sumarleyfum. Þurfa að hafa réttindi til akst-
urs strætisvagna.
Upplýsingar hjá verkstjóra okkar í Skógar-
hlíð 10, símar 13792 og 20720.
Norðurleið - Landleiðir hf.
SVÆÐISSTJÚRN SUÐURLANDS -um mélefni fatlaðra
EYRAVEGI37 - 800 SELFOSS - SlMAR 99-1839 & 99-1922
sími 98-21839
Þroskaþjálfar
Staða forstöðumanns við Meðferðarheimil-
ið Lambhaga 48, Selfossi, er laus til umsókn-
arfrá 1. sept. nk. í eitt ár. Ýmsir valmöguleik-
ar á áframhaldandi starfi að þeim tíma liðn-
um.
Meðferðarheimilið Lambhagi veitir þjónustu
fötluðum börnum af Suðurlandi á aldrinum
0-16 ára.
Rekstrarstjórn sérdeildar Suðurlandsum-
dæmis á Selfossi og Svæðisstjórn Suður-
lands óska eftir að ráða þroskaþjálfa til
starfa á sama heimili til að annast þjálfun
mikið fatlaðra grunnskólaþarna.
Nánari upplýsingar um bæði þessi störf gef-
ur forstöðumaður Meðferðarheimilisins í
síma 98-21869 eða skrifstofa Svæðisstjórnar
Suðurlands í síma 98-21839.
Umsóknarfrestur er til 30. júní nk.
Forstöðumaður
framkvæmdadeildar
Innkaupastofnunar
ríkisins
Fjármálaráðuneytið hefur falið skrifstofu
okkar að auglýsa og taka á móti umsóknum
í ofangreint starf. Starfið er laust samkvæmt
nánara samkomulagi.
Leitað er að einstaklingi með menntun og
reynslu í stjórnun, undirbúningi og umsjón
verklegra framkvæmda.
Verksvið framkvæmdadeildar er markað í
lögum nr: 63/1970, um skipan opinberra
framkvæmda og stýrir forstöðumaður starfi
deildarinnar.
Nánari upplýsinar um starfið fást á skrif-
stofu Guðna Jónssonar, Tjarnargötu 14,
Reykjavík.
Umsóknir er tilgreini aldur og menntun
ásamt starfsreynslu sendist Guðna Jóns-
syni, ráðgjöf og ráðningarþjónustu, Tjarn-
argötu 14, Reykjavík.
Umsóknarfrestur um starfið er til 30. júnf nk.
CUÐNT TÓNSSON
RÁÐCJÖF&RÁÐNINCARÞjÓNUSTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Tölvunar-/
kerfisfræðingur
Óskum eftir reglusömum tölvunar- eða kerfis-
fræðingi í framtíðarstarf.
Bókhaldskunnátta æskileg. Fullt starf hefst
1. september.
Umsóknir með upplýsingum sendist auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir 19. júní merktar:
„T - 13600“.
G§ÐI
-geðanMvegna!
Framkvæmdastjóri
Óskum að ráða í stöðu framkvæmdastjóra
hjá Goða hf. í boði er áhugavert og krefjandi
starf.
Goði hf. er í meirihlutaeign liðlega 20 slátur-
leyfishafa og kaupfélaga og er markaðs- og
sölufyrirtæki þeirra með kjötvörur og skyldar
vörur.
Starfssvið framkvæmdastjóra:
★ Framkvæmdastjóri hefur með höndum
daglega framkvæmdastjórn fyrirtækisins.
★ í starfinu felst yfirstjórn framleiðslu-,
markaðs- og fjármála fyrirtækisins.
★ Framkvæmdastjóri gætir hagsmuna fyrir-
tækisins út á við og annast samninga-
gerð fyrir hönd þess.
★ Framkvæmdastjóri hefur frumkvæði að
stefnumörkun og mótun framtíðar-
markmiða í samvinnu við stjórn og aðra
stjórnendur fyrirtækisins.
Æskilegt er að framkvæmdastjóri geti hafið
störf sem fyrst.
Við leitum að hæfum einstaklingi í þetta mikil-
væga starf, sem hefur staðgóða reynslu af
rekstri og stjórnun fyrirtækja. Viðkomandi
þarf að hafa frumkvæði og forystuhæfileika.
Rekstrar-og stjórnunarmenntun nauðsynleg.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Farið verður með ailar umsóknir og fyrir-
spurnir sem trúnaðarmál.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar
„Framkvæmdastjóri Goði hf.“, fyrir 25. júní nk.
Hagvangiirhf
Rekstur skrifstofu
Júmbó matvælaiðja hf. óskar að ráða
starfsskraft til að annast daglegan rekstur
skrifstofu (bókhald, fjárreiður, starfs-
mannahald og fleira tilfallandi).
Um er að ræða fullt starf og verður starfs-
maður þessi staðgengill framkvæmdastjóra
í fjarveru hans.
Leitað er að nákvæmum og samviskusömum
starfskrafti sem getur tamið sér sjálfstæð
og skipulögð vinnubrögð og hefur metnað í
starfi.
Góð bókhaldskunnátta ásamt starfsreynslu
er skilyrði.
Umsóknir með ítarlegum upplýsingum um
menntun og fyrri störf leggist inn á auglýs-
ingadeild Mbl. fyrir 19. júní 1992 merktar:
„Júmbó - 4329“.
Norræn málstöð óskar eftir
staðgengli í stöðu
kennsluráðgjafa
(pedagogisk konsulent (forstekonsulent))
Sá sem ráðinn verður mun aðallega sinna
verkefnum í tengslum við grannmálakennslu-
og grannmálarannsóknir á Norðurlöndum.
Kennsluráðgjafi ber ábyrgð á námskeiða-
starfsemi málstöðvarinnar og er ritari Sam-
vinnunefndar um Norðurlandakennslu í út-
löndum („Samarbeidsnemnda for Norden-
undervisning í utlandet"). Umsækjendur
þurfa að hafa háskólapróf í dönsku, norsku
eða sænsku sem aðalgrein. Auk þess verður
lögð áhersla á kennarareynslu og þekkingu
á öðrum Norðurlandamálum.
Laun eru 210.293,- norskar krónur á ári, og
möguleikar á launauppbót fyrir umsækjendur
frá öðrum löndum en Noregi (staðaruppbót
(,,utenlandstillegg“) o.þ.h.). Ráðningartími
staðgengils er til 31.8.’93 en framlenging til
fleiri ára gæti komið til greina. Staðan er
laus frá miðjum september 1992. Umsækj-
endur eru beðnir að láta þess getið hvenær
þeir geta hafið störf.
Þeir, sem gegna opinberum stöðum, eiga
rétt á fjögurra ára leyfi til að taka að sér störf
í norrænum stofnunum.
Vinnustaður er Norræn málstöð (Nordisk
spráksekretariat) í Ósló.
Umsóknir skulu sendar 15. ágúst til:
Nordisk spráksekretariat,
Postboks 8107 Dep,
N-0032 Oslo.
Sími: 90472 420570.
Símbréf: 90472427676
Nánari vitneskju um stöðuna má fá með því
að snúa sér til málstöðvarinnar.
Norrsen málstöð var stofnuö af Ráðherranefnd Norðurlanda sem
samstarfsvettvangur norrænna málnefnda. Málstöðin vinnur að því
að varöveita sameiginlegt málfélag á Noröurlöndum og stuðlar að
gagnkvæmum skilningi norrænna mála.