Morgunblaðið - 14.06.1992, Qupperneq 29
:
■i
MORGUNBLAÐIÐ ATVNNA/RAÐ/SHlÁ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992
------------------------------------:
29
Matreiðslumaður
Óskum eftir að ráða vana manneskju til sum-
arafleysinga í Grillið, söluskála Kaupfélags
Héraðsbúa, Egilsstöðum.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu félagsins
í síma 97-11200.
Vélavarsla o.fl.
Lítið þjónustufyrirtæki á sviði ísetningar og
prentunar óskar að ráða traustan og þjón-
ustulipran starfsmann til framtíðarstarfa sem
fyrst.
Starfið felst í vinnu við ísetningavél, út-
keyrslu á vörum og frágang á prentefni.
Leitað er að iaghentum aðila sem getur
unnið sjálfstætt. Æskilegur aldur 30-55 ára.
í boði er framtíðarstarf f samheidnum hóp
á björtum og þrifalegum vinnustað.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
hjá Ráðgarði frá kl. 09-12 fyrir 19. júní nk.
RÁÐGARÐURHE
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
NÓATÚN 17 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 68 66 88
Fjölbreytt
skrifstofustarf
Fyrirtæki á sviði umhverfismála óskar eftir
að ráða skrifstofumann nú þegar.
Starfið felst í skrifstofustörfum, s.s. rit-
vinnslu, vélritun, skjalavörslu og færslu bók-
halds, upplýsingagjöf, sölu, innheimtu og
eftirliti ásamt gestamóttöku og undirbúningi
funda.
Hæfniskröfur eru að umsaekjendur hafi
áhuga á umhverfismálum og haldgóða
reynslu af ofangreindum störfum. Dönsku-
og enskukunnátta skilyrði.
Reyklaus vinnustaður.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní 1992.
Umsóknareyðublöðð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustlg 1 a - 101 Reykjavlk — Slmi 621355
Framtíðarstörf
Neðangreind framtíðarstörf eru laus til
umsóknar:
1. Afgreiðslu-/lagerstarf hjá traustu fyrir-
tæki með bifreiðavörur. Leitað er að
starfsmanni með þekkingu á bifreiðum,
sem er tilbúinn að ganga í þau störf sem
til falla. Vinnutími 9-18.
2. Mötuneytisstarf hjá virtri stofnun í
Reykjavík. Framreiðsla á aðkeyptum mat
ásamt frágangi í eldhúsi. Góð framkoma,
snyrtimennska og samviskusemi skilyrði.
80% starf.
3. Kaffiumsjón hjá sömu stofnun. Innkaupt
tilbúningur og framleiðsla á kaffi og með-
læti ásamt öðru tilfallandi. Leitað er að
liprum starfsmanni með góða samskipta-
hæfileika. Vinnutími f.h. frá kl. 7-12.
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní
1992.
Umsóknareyðublöðð og nánari upplýs-
ingar á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustlg 1a - 101 Reykjavlk - Slmi 621355
Hraðboði
DHL óskar eftir að ráða hraðboða til út-
keyrslu og afhendingar á sendingum.
Viðkomandi þarf að hafa bílpróf, stúdents-
próf og búa yfir góðri enskukunnáttu.
Snyrtimennska og góð framkoma eru einnig
skilyrði.
Vinsamlegast sendið umsóknir í lokuðu um-
slagi til DHL Hraðflutninga hf., Skeifunni 7,
108 Reykjavík, fyrir 24. júní nk., merktar:
„Hraðboði - 13542“.
Öllum umsóknum verður svarað.
Garðabær
Leikskólastjóri
Garðabær auglýsir laust til umsóknar starf
leikskólastjóra við nýjan leikskóla, sem fyrir-
hugað er að taki til starfa 1. október.
Um er að ræða leikskóla með einni deild við
Hofsstaðabraut (nú Vörðuvöllur) og verður
ráðið í starf leikskólastjóra frá 1. sept.
Nánari upplýsingar veitir dagvistarfulltrúi í
síma 656622 frá kl. 9.00-13.00.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofu
Garðabæjar eða skrifstofu félagsmálastjóra
fyrir 26. júní nk.
Bæjarstjóri.
Lausar stöður
Stöður nefndarmanna í yfirskattanefnd eru
lausar til umsóknar.
Um er að ræða sex stöður nefndarmanna í
yfirskattanefnd, sbr. 9. gr. laga 30/1992, um
yfirskattanefnd. Skipað er í stöðurnar í fyrsta
sinn frá 1. júlí 1992. Verða þá tveir menn
skipaðir til tveggja ára, tveir til fjögurra ára
og tveir til sex ára en eftir það er skipað í
nefndina til sex ára í senn. Fjórir nefndar-
menn skulu hafa starfið að aðalstarfi en tveir
að aukastarfi.
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi í lög-
fræði, hagfræði, viðskiptafræði eða hlotið
löggildingu í endurskoðun.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fýrri störf sendist fjármálaráðu-
neytinu fyrir 29. júní 1992. Jafnframt þarf að
tilgreina í umsókn hvort sótt er um starfið
sem aðalstarf eða aukastarf.
Fjármálaráðuneytið, 9.júní 1992.
EILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI
Deildarstjóri
mæðradeildar
Staða deildarstjóra mæðradeildar er laus til
umsóknar. Staðan er veittfrá 1. september nk.
Viðkomandi starfsmaður þarf að vera Ijósmóð-
ir og gjarnan með hjúkrunarfræðimenntun.
í starfinu felst dagleg stjórnun, almenn
mæðraverndarstörf og umsjón með nám-
skeiðum fyrir verðandi foreldra.
í boði er ný og glæsileg vinnuaðstaða og
spennandi þróunarverkefni. Góður starfs-
andi er á staðnum.
Umsóknarfrestur er til 30. júní 1992.
Nánari upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri
eða deildarstjóri mæðradeildar í síma
96-22311 milli kl. 11 og 12 alla virka daga.
Reykjavík
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraiiðar
Hjúkrunarfræðingar óskast á næturvaktir á
heilsugæslu Hrafnistu í haust. Um er að
ræða stöður þar sem tveir hjúkrunarfræðing-
ar skipta með sér vöktum alla daga vikunnar.
Hjúkrunarfræðinga vantar á stuttar kvöld-
vaktir í haust.
Sjúkraiiðar óskast í fastar stöður frá ca.
miðjum ágúst.
Býtibúrskona óskast í 100% starf frá ca.
25. ágúst. Við leitum að traustri duglegri
konu í framtíðarstarf.
Möguleiki gæti verið á barnaheimili í haust.
Upplýsingar veitir ída Atladóttir hjúkrunarfor-
stjóri í síma 35262 og 689500.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39, 108 Reykjavík, sími 678500, fax 686270
Forstöðumaður við
Félags- og þjón-
ustumiðstöðina,
Vesturgötu 7
Starfið er fólgið í stjórnun félags- og tóm-
stundastarfs í umræddri þjónustumiðstöð
og yfirumsjón með hverfisbundinni félags-
legri heimaþjónustu. Starfið gerir kröfur til
stjórnunar- og skipulagshæfileika. Reynsla
af starfi með öldruðum er nauðsynleg.
Æskileg menntun á sviði félagsráðgjafar eða
hjúkrunar.
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Sigur-
geirsdóttir, yfirmaður öldrunarþjónustudeild-
ar, í síma 678 500.
Félagsráðgjafi í
75% starf á heima-
þjónustusviði
Starfið er fólgið í mati á þjónustuþörf aldr-
aðra í heimahúsum og verkefnum er lúta að
vistunarmálum í samvinnu við forstöðumann
á vistunarsviði.
Laun skv. kjarasamningi Stéttarfélags ís-
lenskra félagsráðgjafa og Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veita Sigrún Karlsdóttir,
forstöðumaður heimaþjónustusviðs, Kristj-
ana Sigmundsdóttir, forstöðumaður vistun-
arsviðs, og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, yfir-
maður öldrunarþjónustudeildar, í síma
678 500.
Forstöðumaður
unglingaathvarfs
Við Unglingaathvarfið, Tryggvagötu 12, er
laus til umsóknar staða forstöðumanns. Um
er að ræða meðferðarstarf með 8 unglingum
og ber forstöðumaður ábyrgð á skipulagn-
ingu og framkvæmd meðferðarstarfsins.
Félagsráðgjafamenntun eða önnur menntun
er nýtist í þessu starfi er æskileg svo og
reynsla af meðferðarstarfi með unglingum.
Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður
ungíingadeildar, Snjólaug Stefánsdóttir, í
síma 625 500.
Umsóknarfrestur er til 26. júní nk.
Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnun-
ar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á um-
sóknareyðublöðum sem þar fást.