Morgunblaðið - 14.06.1992, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐiÐ-
atvin
SUNNUDAGUR14;-Jt)NriW
33
■AUGLYSINGAR
ÓDAL fyrirtækjasala
Skeifunni 11A, 3. hæð,
© 682600
Lögmaður Siguröur Sigurjónsson hrl.
Sölumenn Magnús ióhannsson og Aron Pétur Karlsson.
Opið alla virka daga frá ki. 10.00 tii 18.00.
Viltu selja fyrirtækið?
Við erum með kaupendur að fyrirtækjum í
sérhæfðum rekstri í öllum stærðarflokkum.
Viltu kaupa fyrirtæki?
Erum með í sölu mörg góð fyrirtæki á fjöl-
mörgum sviðum.
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar.
Til sölu á Dalvík
Neðangreindar eignir úr þrotabúi Ríkarðs
Björnssonar (Víkurbakaríi Dalvík) eru til sölu:
1. Fasteignin Hafnarbraut 5, Dalvík. Eignin
er samtals 463 fm. í hluta eignarinnar
hefur verið rekin brauðgerð sem mögu-
leiki er að selja sérstaklega ásamt tækj-
um. Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi til
að skipta eigninni.
2. Fasteignin Drafnarbraut 2, efri hæð, Dalvík
sem er 199,6 fm ásamt 28,9 fm bílskúr.
3. Bifreiðin G-8655 Daihatsu Hijet, árg.
1987.
Tilboðum skal skila til Árna Pálssonar hdl.,
bústjóra til bráðabirgða, Brekkugötu 4, Akur-
eyri fyrir 1. júlí nk. sem jafnframt veitir allar
nánari upplýsingar í síma 96-11200.
Hlutabréf tihsölu
Hlutabréf í Ágæti hf. með afsetningarrétti á
kartöflum til sölu.
Upplýsingar í síma 91-41708.
Strandavíðir
úrvals íslensk limgerðisplanta.
Einnig aðrar trjátegundir. Hagstætt verð.
Upplýsingar í símum 667490, 668121 og
666466 eftir kl. 9 á kvöldin.
Mosskógar
v/Dalsgarð, Mosfellsdal.
Fjallabfll 4wd - leiga
Óska eftir að leigja fjórhjóladrifinn fjallabíl í
sumarfríi mínu á Islandi, frá 5. júlí til 24. júlí.
(Leiga á bíl í Þýskalandi gæti komið á móti).
Vinsamlegast hafði samband við:
Christian Stakelbeck, WeinheimerStr. 104,
D-W6806 Viernheim, Þýskalandi.
Sími 90 49 6204 8272 (talar ensku).
Parhús á Seltjarnarnesi
Til leigu parhús á Seltjarnarnesi 6 herb., eld-
hús og 2 baðherb. um 160 fm. Leigist frá
15. júlí 1992. Engin fyrirframgreiðsla.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„S — 11883“ fyrir 20. júní.
3ja-4ra herbergja íbúð
Af sérstökum ástæðum óskast 3-4ra her-
bergja íbúð til leigu miðsvæðis í Reykjavík
strax.
Upplýsingar gefa Lárus, sími 626383, og
skrifstofa Leigjendasamtakanna, sími 23266.
Húsnæði til leigu - góð kjör
Til leigu á jarðhæð um 500 fm verslunarhús-
næði að Skútuvogi 4, með góðum innkeyrslu-
dyrum og nægum bílastæðum. í húsnæðinu
er verslunarrekstur en það hentar einnig vel
fyrir hverskonar léttan iðnað. Hagstæð kjör
og samningstími samkomulag. Einstaklega
góð staðsetning og greið aðkoma.
Gnmð
"creSt1
Birgðaverslun, Skútuvogi 4, 104 Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefur Geir Harðarson,
framkvæmdastjóri, í síma 689535.
Raðhús til leigu
í nágrenni Kringlunnar í Reykjavík er til leigu
gott, nýlegt raðhús, frá 1. júlí 1992 til 1. júlí
1993. Húsið er nýlegt og í góðu ástandi.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl. fyr-
ir föstudaginn 19. júní, merkt:
„XYZ - 3497“.
KFUM-KFUK-SIK
Kristniboðssalurinn,
Háaleitisbraut 58.
Samkoma i kvöld kl. 20.30.
Ræðumaöur: Guðni Gunnars-
son. Upphafsorð og bæn: Anna
J. Hilmarsdóttir. Allir velkomnir.
ÚTIVIST
Hallveigarstíg 1, sími 614330.
Skrífstofan er opin kl. 9.-17.
Sumarleyfisferðir. 28. júní
skfðadagar á Fimmvörðuhálsi.
Gist í Fimmvörðuskála. Göngu-
skíðaferðir á Mýrdals- og Eyja-
fjallajökul. Hægt að dvelja allt
að viku. Fararstjóri óli Þór Hilm-
arsson.
2. júlf - 9. júlf Hornvík.
Tjaldbækistöð i Hornvík, gengið
m.a. á Hornbjarg, Rekavík og
Hlöðuvik. örfá sæti laus, undir-
búningsfundur 25. júní kl. 20.
Fararstjórii Helga Jörgensen.
3. -12. júlf Kverkfjöll-Skaftafell.
Skíðaganga úr Kverkfjöllum yfir
Vatnajökul með viðkomu m.a. í
Grímsvötnum. Erfið ferð fyrir
vant skíðagöngufólk. Örfá sæti
laus. Undirbúningsfundur 18.
júnf kl. 20. Fararstjóri Reynir Sig-
uðrsson.
7.-12. júlf Landmannalaugar
- Básar. Fullbókað í ferðina,
pantanair óskast sóttar fyrir 1.
júlí. Undlrbúningsfundur 30. júní
kl. 20. Fararstjóri Sigurður Ein-
arsson.
9.-16. júl( Velðlleysufjörður -
Reykjafjörður. Fullbókað er í
ferðina, pantanir óskast sóttar
fyrir 2. júli. Undirbúningsfundur
I. júlí kl. 20. Fararstjóri Sigurður
Sigurðarson.
II. -16. júlf Þjórsárver - Þjórs-
árdalur. Bakpokaferð, gist í
tjöldum. Stuttai lagleiðir. Farar-
stjóri Kristinn Kr' itjánsson.
12. - 18. júlf skfðadagar á
Fimmvörðuhálsi. Sama fyri-
komulag og í fyrri ferð.
13. -19. júli Landmannalaugar
- Básar. Fullbókað er í ferðina,
pantanir óskast sóttar fyrir 2.
júlí. Undirbúningsfundur 2. júlí
kl. 20. Fararstjóri Margrét
Björnsdóttir.
Sjáumst í Útivistarferð!
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682533
Ferdir Ferðafélagsins:
19. - 21. júní - Þórsmörk
um sumarsólstöður.
Gengið yfir Fimmvörðuháls.
Gist í Skagfjörðsskála. Farmiðar
og upplýsingar á skrifstofu F.f.
Miðvikudagsferðir til Þórsmerk-
ur hefjast 24. júní. Það er ódýrt
að dvelja í sumarleyfinu hjá
Ferðafélaginu í Þórsmörk, til-
boðsverð á lengri dvöl. Kynnið
ykkur verð sem er ótrúlega hag-
stætt ef dvaliö er lengur en 4
daga.
19. - 21. júní - Langjökuls-
ferð.
Þetta m.a. æfingaferð fyrir
Vatnajökulsferðina 11.-19. júlí.
Gist aðra nóttina í Hvítárnesi
hina í tjaldi austan Geitlandsjö-
kuls. Á sunnudag verður haldið
með farangur vestur af jökli í
Þjófakrók. Spennandi ferð fyrir
vana ferðamenn.
Sumarleyfisferðir:
19. - 21. júní (ath. breytta dags.
frá áætlun). Sólstöðuferð til
Grímseyjar. 27. júní - 1. júlí
(5 dagar). Breiðafjarðareyjar -
Látrabjarg - Barðaströnd.
Nokkur sæti laus I þessar ferðir.
Miðsumarsferð um hálendið 18.
- 26. júlí (9 dagar). Takmarkaður
sætafjöldi. Upplýsingablað á
skrifstofu F.(.
Ferðafélagið skipuleggur
spennandl og ódýrar sumar-
leyfisferðir. Komlð eða hringið
tll okkar á skrífstofuna, Mörk-
innl 6, og leitið upplýsinga um
verð og tilhögun ferðanna.
Utanlandsferðlr fyrir félags-
menn: 26. júlf - 1. águst (8
dagar) Eystrlbyggð á Suður
Grænlandi. Verð afar hagstætt.
14. - 24. ágúst (11 dagar) Jöt-
unheimar f Noregi. Takmarkað-
ur fjöldi.
29. ágúst - 9. sept. (12 dagar).
Gönguferð kringum Mont
Blanc. Flogið til Lux, lest til
Genf og þaðan til Chamonix,
en þar hefst göngugerðin.
Ferðafélag (slands.
FERDAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 682533
Dagsferðir - kvöldferðir:
Sunnudagur 14. júnf:
kl. 10.30 Reynivallaháls/Þránd-
arstaðafjall. Gangan hefst á
Hálsnesi (hækkun um 200 m)
greið gönguleið, sléttlendi þegar
upp er komið. Komið niður í
Fossárdal.
Kl. 13.00 Búðasandur-
Hvammsvík. Gengið frá Búða-
sandi (yst á Hálsnesi í Kjós) að
Hvammsvík.
Verð í ferðirnar kr. 1.000,-.
Brottför frá Umferöarmiðstöð-
inni, austanmegin og Mörkinni 6.
Spurt er: Hvenær var Marfu-
höfn stærsti kaupstaður á
(slandi?
Kvöldferð - þriðjudaginn
16. júní-kl. 20.00:
Almenningar-Gjásel. Almenn-
ingar eru hraunspilda milli Kap-
elluhrauns og Afstapahrauns á
Vatnsleysuströnd, og í hrauninu
er gróðurvinin Gjásel.
Miðvikudaginn 17. júní verður
gönguferð frá Nesjavallavegi
að Lyklafelli, brottför kl. 13.00.
Ferðafélag (slands.
■ VEGURINN
Kristið samfélag
Smiðjuvegi 6, Kóp.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Allir velkomnir.
Miðvlkudagur ki. 18.00, Biblíu-
lestur með séra Halldóri S.
Gröndal.
„Hann veitir kraft hinum
þreytta og nógan styrk hinum
þróttlausa."
(SLENSKI
ALPAKLÚBBURINN
Jöklanámskeið í
Kerlingarfjöllum
Helgina 20.-21. júní verður hald-
ið námskeið f sprungubjörgun
og undirstöðuatriðum jökla-
ferða. Áhugasamir hafi sam-
band við Torfa f vinnusíma
668067 eða heimasíma 667094.
KR(DSS
INN
Tákn og undur
Samkoma með Þaul Hansen í
dag kl. 16.30.
Farin verður vinnuferð f Þórs-
mörk daganna 19.-24. júní.
Unnið að stígagerö.
Allir velkomnir. Nánari upplýs-
ingar og skráning hjá Erni f sfma
40270, Rannveigu í síma 43232
og Sigrúnu í síma 43960.
■fáfltontt ff'ri
fHÚTIVIST
Hallveigarstíg 1, sfmi 614330.
Skrifstofan er opin kl. 9-17
Dagsferð sunnud. 14. júnf
Kl. 9.30 Kirkjugangan,
lokaáfangi.
Dagsferð 17. júní
Kl. 10.30 Bláfjallaleiöin -
Heiðmörk.
Kl. 13.00 Árbær - Hljómskálinn.
Dagsferðir sunnud. 21. júnf.
Kl. 9.00 Fjallasyrpan Þrihymingur.
Kl. 9.00 Krappinn
Kl. 13.ÖÖ Þórsmerkurgangan -
upprifjun á raðgöngu 3.
Sjáumst I Útivistarferð!
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
símhj
ólp
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, I dag kl. 16.00.
Mikill söngur. Samhjálparkórinn
tekur lagið. Vitnisburðir. Barna-
gæsla. Ræðumaður Óli Ágústs-
son. Kaffi að lokinni samkomu.
Allir velkomnir.
Samhjálp.
Hvítasunnukirkjan
Ffladelfía
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður Hallgrímur Guð-
mannsson. Almenn samkoma
kl. 20.00. Ræðumaður Hafliði
Kristinsson. Barnagæsla. Allir
hjartanlega velkomnir.
Kaffi að samkomu lokinni.
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Vakningarsamkoma i kvöld
kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Fundur verður mánudaginn 15.
júní kl. 20.00 í safnaröarheimili
Laugarneskirkju. Gestur fundar-
ins verður Halla Backmann.
Hún mun segja frá starfi sínu í
israel I máli og myndum. Allir
sem áhuga hafa á málefnum
fsraels sérstaklega velkomnir.
Stjórnin.
Hjálpræðis-
írinn
Kirkjustræti 2
Útisamkoma á Lækjartorgi kl.
16. Hjálpræðissamkoma kl. 20.
Mæjor Daníel Óskarsson talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Við minnum á að Flóamarkaðs-
búðin, Garðastræti 2, er opin á
þriöjudag frá kl. 13-18.
Kaffisala í Hersalnum 17. júnf
kl. 14-18.
■Uf»tnt*fe+*
H ÚTIVIST
Hallveigarstíg 1, sfml 614330.
Skrifstofan er opin kl. 9-17
Helgarferðir 19.-21. júní
Snæfellsnes, sólstöðuganga á
jökulinn, tjaldgisting á Búðum.
Sameiginlegt grill á laugardags-
kvöldinu eftir sundferð.
Vestmannaeyjar - Úteyjar
19.-21. júníkl. 19.30.
Gist í svefnpokaplássi. Gengið
um Heimaey, silgt um Úteyjarn-
ar og farið í land á Elliðaey og
lundabyggðin skoöuð. Ógleym-
anleg ferð fyrir alla aldurshópa.
Sjáumst í Útivistarferð!
Frá Sálarrannsókna-
félagi íslands
Félagsmaður/kona óskast til
starfa á skrifstofu félagsins.
Skriflegar umsóknir með upplýs-
ingum um starfsreynslu sendist
til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
mánudaginn 22. júní nk. merkt-
ar: „S - 7985“.