Morgunblaðið - 23.08.1992, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1992
C 9
allir í borð um báta sína og siglt var
til Upemaviarssuk, en þar átti veisl-
an að fara fram.
Brúðkaupsveislan
Búið var að dúka stórt langborð
á túninu framan við rannsóknastof-
una og íbúð Kristjönu og þar var
búið að koma fyrir íslenskum mat
ásamt ýmsu meðlæti sem átti að
vera með sauðunum sem kraumuðu
á grillinu. Tóku nú allir hraustlega
til matar síns.
Margar ræður voru fluttar brúð-
hjónunum, bæði á grænlensku, og
voru þær jafnóðum túlkaðar á
dönsku, og á dönsku, sem voru þá
líka um leið túlkaðar yfir á græn-
lensku. Var brúðhjónunum óskað
gæfu og gengis en nokkurs saknaðar
gætti jafnframt í ræðum íslenskra
vina og félaga og kvaðst Ingvi Þor-
steinsson vinnuveitandi Kristjönu
Kveðjur
KRISTJANA og Jonathan
fengu margar hlýjar kveðj-
ur frá mörgum löndum, ein
sú fallegasta kom frá séra
Sigurbirni Einarssyni bisk-
up og með leyfi þeirra hjóna
er hún birt hér.
Séð hef ég skína
sðl í heiði
yfir allan
Einksfjörð.
Brosti hún við Brattahlíð,
og bló yfir Hvalsey
- og þar stóð hún kyrr -
Svo fannst mér þá -
ySr fomum
kirkjnkór,
og aldrei í öðru landi
var ísland mér nær
en þar.
Þar er minn hugur
á þessum degi
og heilsar sól
er á Hvalsey skín.
Standi hún kyrr
og stafi geislum
heilla og hamingju
á hverja stund
ykkar, sem bindið
ísland og Grænland
- heimskautalönd -
hlýjum böndum,
köld kostalönd
kærleiksböndum.
vera búinn að missa sína hægri hönd.
Vinir Kristjönu sömdu brúðkaupsvís-
ur til þeirra hjóna sem fluttar voru
með miklum glæsibrag, fyrst á ís-
lensku og síðan á dönsku. I lokin var
síðan stiginn dans við undirleik ís-
lenskra og grænlenskra hljóðfæra-
leikara fram á rauða nótt. Var það
mál manna að þetta væri skemmti-
legasta brúðkaup sem þeir hefðu
verið í.
Ferðalok
Mánudagurinn rann upp þungbú-
inn og fyrr en varði fór að hellirigna
en jafnframt var alltaf blankalogn
og hafði það verið þannig alla dag-
ana. Þessi dagur fór aðallega í af-
slöppun, nokkrir skruppu til Qaq-
ortoq, aðrir gengu um í Upemav-
iarssuk og voru sammála um að þeir
sem stjórnuðu veðrinu hlytu að vera
mjög hliðhollir þessari giftingu.
Kristjana tók upp brúðargjafir og las
skeyti og kveðjur. Jonathan fór til
Qaqortoq á lokadag umhverfísráð-
stefnunnar.
Brottfarardagurinn rann upp,
ferðalangarnir ætluðu að sigla til
Narssarssuaq með viðkomu í Narssaq
og Bröttuhlíð. Veðrið var ágætt,
milt og gott en engin sól. Kristjana
og Jónatan fylgdu okkur til Narssaq
á hraðbát sínum og kvöddu okkur
þar. Við komum í Bröttuhlíð og geng-
um um slóðir Eiríks rauða og loks
var siglt beint yfir fjörðinn á flugvöll-
inn og síðan flogið heim.
Ævintýraferð er lokið, þetta stór-
kostlega land kvatt, þetta land sem
er svo stórbrotið og hrikalegt að fyrst
skelfist maður það. En hið elskulega
og hlýlega fólk sem byggir þetta
hijóstruga land tekur gestum sínum
brosandi og opnum örmum. Maður
heillast undir eins og fínnur að um
leið og þetta land er yflrgefíð þá
togar það til baka og hugsun vakn-
ar: Hér á ég eftir að koma aftur.
ÁRNAÐ HEILLA
Ljósmynd: Stúdíó Magnús
HJÓNABAND. Gefin voru saman
hinn 11. júlí Kristinn Tryggvi Gunn-
arsson og Guðrún Högnadóttir af
sr. Jakobi Ágústssyni í Dómkirkju.
Þau eru til heimilis á Seilugranda
5, Rvík.
Ljósm. STUDIO 76
HJÓNABAND. 11. júlí voru gefrn
saman í Lágafellskirkju, af sr. Jóni
Þorsteinssyni, Steinunn Lárusdóttir
og Baldur Þórarinsson.
Ljósm. STUDIO 76
HJÓNABAND. 4. júlí voru gefín
saman í Háteigskirkju, af sr. Karli
Sigurbjömssyni, Guðbjörg Karls-
dóttir og Pétur Eyfeld.
Ljósmynd Heimir
HJÓNABAND. 30. maí vom gefín
saman í Árbæjarkirkju, af sr. Helgu
Soffíu Konráðsdóttur, Ingibjörg L.
Kristinsdóttir og Edvardo Vseda
Correa. Heimili þeirra er í Barcel-
ona, Spáni.
, V-1200 myndbandstæki
Verð áður 36.900,- kr. Útsöluverð: 29.900,- stgr.j
300 S ferðatæki
VK-1260 myndbandstækii
Verð áður 35.500,- kr. Útsöluverð: 27,900,- stgr.j
Verð áður 22.300,- kr, Útsöluverð: 17.900,- stgr.
Futura 63 ni<;. 25' stereosjonvarpstæki
Verð áður 133.300,- kr. Utsöluverð: 99.900,- stgr.j
§PI^^""’Taiaxy 36 P 14' sjónvarpstæki
ferð áður 33.300,- kr. Útsöluverð: 25.900,- stgr.
Color 6505 MC 25" stereosi
Verð áður 94.500,- kr. Útsöluverð: 74.900,- stgr.
F 673 2x150 W hljpmtækjasamstæða m/öllu
SCM 6500 hljómtækjasam^tæða m/geislaspilara o.fl.
Verð áður 32.900,- kr. Utsöluverö: 24.900,- stqr.
Prestige 72 AT nic. 2?" stereosj
Verð áður 99.100,- kr. Útsöluverð: 79.900,- stqr.
Verð áður 236.200,- kr. ÚtsöluverÓ: 199.900,- stgr.
úv /2 nic. 29" stereosjónvarpi
Verð áður 128.500,- kr, Útsöluverð: 109.900,- stqr.j
ER 654 28 lítra örbylgjuofn m/snúningsdiski
Verð áður 33.400,- kr. Utsoluverð: 26.700,- stgr.
MA 6515 20 lítra örbylgjuofn m/snúningsdiski
Verð áður 20.700,- kr. Útsöluverð: 16.900,- stgr.
leikjatölvan vinsæla ásamt 4? skemmtilégi
Verð áöur 15.900,- kr. Utsöluverð: 9.
TW 421 feröatæki m/työfaldri. kassettu o.m.fl.
Verð áður 9.900,- kr. Útsöluverð: 7,900,- stgr.
rægur sími með fjölda stillinga
kr. Útsöluverð: 26,900,- stgr.
Verö áður 34.901
eibslukjör
allra hæfi
Samkort
■■■■