Morgunblaðið - 23.08.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.08.1992, Blaðsíða 10
10 c MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1992 Æsandi hávadi UM SIÐUSTU verslunarmannahelgi var staddur hér á landi útsendari breska poppblaðsins Melody Maker. Sá kom gagngert til að berja augum Síðan skein sól og Júpíters á Eldborgarhátíðinni og sá þar margt fleira. Fyrir stuttu birtist í Mel- ody Maker umsögn um Sólina og Júpíters, en blaða- maðurinn virðist einna helst hafa hrifist af Kolrössu krókríðandi, því stúlkumar fá bróðurpart umfjöllunar- innar. Blaðamaðurinn, Dave Jennings, segir að sé eitthvað réttlæti til eigi ungt fólk um allan heima eftir að leggja sig fram um að læra að bera fram Kolrassa krókríðandi, sem sé nafn táningsstúlkna- sveitar sem framleiði æsandi hávaða. Helst er Dave Jenn- ings hrifinn af Elísu söng- konu sveitarinnar, sem hann kallar reyndar Elenu (og Pressan reyndar Helenu), og segir hana hafa svo hlýja og kraftmikla rödd að hún hafi gert sig líklega til að bræða Snæfellsjökul. Júpíters fá einnig lofsam- lega umfjöllun I blaðinu og Stálhjörtu Með heiminn í hendi sér. Heims- yfirráð ÞAÐ eru margi kallaðir en fáir útvaldir í þunga- rokkinu; fyrir hverja sveit sem kemst á verðlauna- pall falla tugir í gleymsku jafnharðan. Steelheart er ein þeirra sveita sem tek- ist hefur að treysta sig í sessi fyrir hörku sveitar- manna. Sólin, sem heitir í Bretlandi Here comes the Sun, en helst líkir hann sveitinni við Pearl Jam. Því má svo bæta við þetta að Kolrassa léikur í kjallara Hlaðvarpans með Púff, Maunum og Tjaldz Gizur á laugardagskvöld, en annars eru þær stöllur að taka upp kynningarupptökur þessa dagana. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Kolrössur Snæfellsjökull bræddur í kjallara Hlaðvarpans. FÓLK ■ ÝMSIR muna sjálfsagt eftir söngkonunni Julee Cruise, sem söng inn á plötu fyrir tilstilli Davids Lynch, eftir að hafa komi fram í Tvin Peaks-þáttunum. Nú hefur heldur en ekki hlaupið á snærið hjá henni, því nýver- ið var hún ráðin til að syngja í B52’s á ferð sveitarinnar um Bandaríkin. MROKKIÐ er ekki samt við sig. Fyrir stuttu voru með- limir pönksveitarinnar aldur- hnignu, The Damned, á ferð í Sviss og hugðust haga sér eins og pönkurum sæmdi; að bijóta allt og bramla í hótel- herbegjum sveitarinnar. Hót- elstjórinn var þó ekki á því að láta þá Rat Scabies og félaga komast upp með það; starfsmenn hótelsins gripu þegar inn í, börðu sveitar- menn rækilega og vörpuðu þeim á dyr. Ekki nóg með það heldur var lögregla fljót á staðinn og flutti þá að næstu landamærum, þaðan sem þeir máttu sjá sjálfum sér fyrir flutningi til annars lands. DÆGURTONLIST Hvaó er aó íslenskum upptökustjórumf AlvömrokJi ÞUNGAROKK hefur sótt í sig veðrið undanfarin miss- eri og þá rokk af þyngstu og harkalegustu gerð. Þess sá stað þegar dauðarokksveitin Infusoria/Sor- oricide sigraði í Músíktilraunum Tónabæjar á síðasta ári og ruslrokksveitin In Memoriam varð í öðru sæti í tilraununum í ár. Strigaskór nr. 42, ein efnilegasta dauðarokksveitin, komust hins vegar ekki að þegar skráð var í tilraunirnar I vor, en þvi má halda fram að sveitarmenn hefðu hampað einhveijum verðlaun- um ef sveitin hefði tekið þátt. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Ruslrokk In Memoriam. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Efnileg Strigaskómir. Þó segja mætti að önnur hver bílskúrssveit hafi fengist við þungarokk undanfarið hefur þess ekki sé stað á útgáfusviðinu, ef frá er talin fyrsta breið- skífa Sor- oricide, sem út kom seint á síðasta ári. Síðan hefúr verið mikið talað um þungarokksafnplötu, sem nú loks er á leiðinni, því Skífan sendir frá sér innan skamms breiðskífu með eftir Árno Matthíosson þremur fremstu þungarokk- sveitum landsins, áð- umefndum Sororicide og In Memoriam og dauðarokk- sveitinni Strigaskór nr. 42. Allar leika sveitimar rokk í þyngri kantinum, Sororicide og Strigaskómir dauðarokk, In Memoriam ruslrokk, og era í fararbroddi slíkrar tón- listar hér. Reyndar hefði verið fróðlegt að fá fleiri sveitir til leiks, og jafnvel fleiri tónlistarstefnur, eins og t.a.m. grindcore eða spe- edrokk, en vissulega gefur það heillegri plötu að hafa þær ekki nema þtjár. Meðal þess sem hefur staðið íslensku þungarokki fyrir þrifum er að áhuga- Dauðarokk Sororicide. menn (les: plötukaupendur) hafa ekki lagt sig nægjan- lega eftir að kaupa þær plöt- ur sem út hafa komið og ræður þar sjálfsagt margt. Meðal annars hefur það löngum verið ljóður að ekki Ljósmynd/Björg SveinBdóttir virðist vera til á landinu upptökustjóri með nægjan- lega næmt eyra fyrir þunga- rokki. Þeir sem hafa fengist við slíka upptökur hafa margir ekki ráðið við við- fangið, eins og heyra mátti t.a.m. á síðustu breiðskífu Bootiegs. Jón „Skuggi" Stein- þórsson tók að sér að stýra upptökum á væntanlegri safnplötu og segir að hann hafi látið piltana í sveitun- um þremur ráða ferðinni; það hafi helst verið að hann aðstoðaði þá við að ná fram því sem þeir vildu. „Ég fékk fræðslu hjá pi!t- unum, sem hafa hrærst í þessar tónlist í mörg ár, í því hvað þeir vildu og hlustaði líka á mikið af erlendum plötum sem þeir bentu mér á til að komast almennilega inn í tónlist- ina.“ Jón segir að það hafi sitthvað komið sér á óvart þegar hann fór að hlusta á tónlistina með eftirtekt, enda hafi hann átt það til að flokka dauða- og rusl- rokk sem hávaða sem hann nennti ekki að hlusta á. „Ég heyrði þó fljótt að það var mjög mikið I tón- listina spunnið og miklu meiri alvara á bak við hana en mig hafði granað. Það var líka gaman að kynnast þessum drengjum sem era að fást við tónlistina, því þeir eru geysi efnilegir.“ Rokkópera Þróun Testament. Á sigurbraut Steelheart er með langlíf- ari rokksveitum, því ellefu ár eru síðan sveitar- menn lögðu granninn að heimsyfírráðum. Það gekk þó hvorki né rak fyrstu ár- in, en eftir að sveitarmenn náðu eyram útgefenda hófst um þá mikill slagur. Fyrsta breiðskífan, sem kom út fyrir tveimur áram, vakti á sveitinni gríðarlega athygli, en minnugir þess að það gengur yfírleitt hraðar nið- ur en upp í poppheiminum, tóku Steelheartfélagar sér drjúgan tíma til að gera næstu skífu. Það tókst og bærilega, því platan hefur selst í bflförmum beggja vegna Atlantsála. Ræður mestu um vinsældir sveitar- innar gríðarlegt raddsvið leiðtoga hennar, Mikés Matijevics, sem semur að auki flest laganna og gerir það vel. Steelheart er með þétt- ustu sveitum sem völ er á í rokkinu, því sveitarmenn æfðu níu tíma á dag í marga mánuði áður en þeir slógu í gegn, og fregnir herma að það sé lítið slegið af til að halda mönnum við efnið. Mike er og borabrattur þeg- ar við hann er talað, enda ekki annað að sjá en þeir félagar hafí heiminn í hendi sér. ÞAÐ þykir ekki ýkja merkilegt í dag að ganga fram af fólki í ógeði og ókræsilegheitum. Það var þó annað upp á teningn- um þegar Blackie Lawless setti á stofn sveit sína WASP. Ekki eru menn á eitt sáttir um hvað WASP tákni, því Blackie hefur þann hátt- inn á að leggja út af skammstöf- uninni eftir því sem honum þykir viðeigandi í hvert sinn. Menn hafa þó átt auðveld- ara með að greina tónlistina, því þar hefur Blackie róið á léttþungarokks- mið með ókræsi- legum textum. Hann hneykslaði snemma með því að birta af sér myndir þar sem hann drakk blóð úr höfuðkúpum eða ámóta og til að mynda var honum mein- að að halda tónleika á ír- landi fyrir nokkram árum, af ótta við að hann myndi trylla írsk ungmenni. Blackie kunni reyndar að fara yfir strikið, því hann var áður í New York Dolls, sem gekk á undan með slæmu fordæmi í lok átt- unda áratugarins. Með tímanum hefur Blackie róast og tónlist og textar orðið íburðarmeiri. Hápunkturinn er síðasta plata sveitarinnar, The Crimson Idol, rokkópera sem var þijú ár í smíðum og segir sögu af Jonathan, sem lendir í klóm djöfullegra afla. Ekki verður söguþráðurinn rakinn hér, en þess má geta að Blackie leikur á flest hljóðfæri á plötunni, þó hann hafí sér til halds og trausts nokkra forðum samheija. Áheyrendur hafa yfírleitt tekið óperunni vel, enda þykir tónlistin sérlega vel heppnuð, og eftirminnilegt ku vera að sjá hana á sviði. TESTAMENT er ein þeirra sveita sem fetað hafa í fótspor Metallicu, án þess þó að vera hermi- sveit. Testament hefur vakið allmikla athygli fyrir plötur sem jafnan hafa þótt jaðra við afbragð, þar til sú síðasta kom út að gagnrýnendur fást ekki orða bundist. Eins og margur hefur tek- ið eftir hafa ýmsar þungarokksveitir, sem leika hratt hrátt rokk, lent í vand- ræðum þegar þær hafa verið búnar að mála sig inn í horn og því ekki annars úrkosta en þróast eða deyja. Testa- ment leysir þann vanda á einkar smekklegan og áhrifamikinn hátt á nýút- kominni plötu þar sem sveit- armenn létta tónlistina en halda þó í hörkuna. Testamentmenn hafa löngum verið mótfallnir því að vera settir á bás með öðr- um sveitum og hafa haldið fast í það að fara eigin leiðir í tónlist og textum. Glöggir hafa og bent á að það sem fleytt hafi sveitinni hyað lengst er að í henni er einn fremsti gítarleikari rokksins af yngri kynslóðinni, Alex Scolnic, sem sífellt er að leita nýrra leiða í gítarfímleikum. Á meðan hann heldur áfram á sömu braut, er ekki hægt annað en segja Testament á sigurbraut. Rokkópera Blackie Lawléss.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.