Morgunblaðið - 23.08.1992, Síða 21
C 21
Varíst
eitraða
sveppi
Frá Berit Thors:
MEÐ nýjum tijágerðum fjölgar
sveppategundum á Islandi. Nú þeg-
ar fólk sætir lagi og leitar sveppa
til að kæta bragðlaukana langar
mig að minna á þetta og vara við
eitruðum tegundum.
Ég hef haldið sveppanámskeið
hér á landi síðan 1983 og er nú
nýkomin frá því síðasta sem haldið
var á ísafirði á vegum Byggðastofn-
unar.
Sveppir mynda rót með rótum
tijánna. Með aukinni tijárækt í
landinu og nýjum tegundum stinga
sér niður sveppir sem hér hafa ekki
vaxið til þessa. Margir halda að
eini sveppurinn sem þurfi að varast
sé berserkjasveppur. Þetta stenst
ekki, fólk ætti aldrei að tína sveppi
sem það ekki þekkir, vel er hugsan-
legt að aðrar gerðir eitraðra sveppa
vaxi hér nú. Astæða er til að hafa
sérstakan vara á gagnvart sveppum
af svonefndri kögursveppaætt. Þá
er nauðsynlegt að hafa með sér
sveppakver þegar farið er að tína
og ekki skemmir að sækja nám-
skeið í fræðunum þegar færi gefst.
BERIT THORS
leiðbeinandi.
Kvalræði
Frá Sveini Ólafssyni:
NÚ um sinn, hefur umræða um
veggöng undir Hvalfjörð legið
að mestu leyti niðri. Ég hef
alla tíð efast mjög um að þeir
sem íjármagna þessa vegagerð
fái nokkurn tíma nokkuð í sinn
hlut í besta falli, af þeirri ein-
földu ástæðu að þessi vegur
liggur neðansjávar í landi mik-
illa jarðskjálfta. Ansi er ég
hræddur um að margur vegfar-
andi hugsi sig tvisvar um áður
en hann ekur farartæki sínu
niður í þessi göng.
Annar kostur er til sem kem-
ur fyllilega til greina. Það er
brú yfir fjörðinn. Sú lausn á
þessu máli er mun líklegri til
að skila hagnaði til fram-
kvæmdaaðila verksins, af þeirri
einföldu ástæðu að um brúna
færu flestir vegfarendur sem
um Hvalfjörðinn fara vegna
meira öryggis og fallegra út-
sýnis.
SVEINN ÓLAFSSON,
Reykjavík
Pennavinir
Frá Póllandi skrifar karlmaður
sem getur ekki um aldur en safnar
póstkortum, ferðamannabækling-
um, seðlum og mynt:
Henryk Hryniewics,
PI-56200 Gora-Slaska,
Skrytka-Pocztowa 33/11,
Ul. 1 Maja 46/1,
Woj. Leszno,
Poland.
Frá Austurríki skrifar 37 ára
koria sem vill eignast íslenska
pennavinkonu:
Waltraud Draxler,
Steineck 10,
A-4150 Rohrbach,
Austria.
Hollensk 2ja barna húsmóðir sem
safnar límmiðum:
Angelien Feenhra,
Paganinilaan 46,
9402 VK Assen DR.,
Netherlands.
Tvítug þýsk stúlka með áhuga á
íþróttum, tónlist og bréfaskriftum:
Ulrike Klein,
Wilhelmsbader Strasse 19,
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 23. ÁGÚST 1992
VELVAKANDI
MYNDAVÉL
FUJI myndavél af gerðinni
DL80 tapaðist í Skorradal í
sumarhúsi eða við heimili eig-
anda að Efstasundi 4. Finnandi
er vinsamlegast beðinn um að
hringja í Magnús í síma 37396.
GÓÐ
ÞJÓNUSTA
Jóna Hjálmarsdóttir:
UM DAGINN keypti ég buxur
og peysu hjá versluninni Apex.
Þessar flíkur hlupu í þvotti og
fór ég með þær og kvartaði.
Ég fékk strax önnur föt í stað-
inn og vil ég þakka fyrir sér-
staklega góða þjónustu sem
ekki er svo mikið um þessa
dagana.
BARNAGÆLAN
FUNDIN
tígrisröndum (ekki bröndóttir).
Nánari upplýsingar fást í síma
620394 eða 688086.
KETTLINGUR, 10 vikna gam-
all, fæst gefins. Hann er svart-
ur og hvítur á lit og kasavan-
inn. Upplýsingar í síma
667232.'
BARNASKÓR
ÍÞRÓTTASKÓR í barnastærð
tapaðist á Laugavegi mánuaag-
inn 10. ágúst. Finnandi er vin-
samlegast beðinn um að hafa
samband í síma 688017.
GLERAUGU
GLERAUGU fundust í Álf-
heimum föstudagsmorguninn
21. ágúst. Gleraugun eru bogin
aftur fyrir eyru með svörtu
plasti utan um glerin. Eigandi
þeirra er beðinn um að hafa
samband í síma 35728.
- staöur fagurkerans - stabur scelkerans
- staöur allra viö öll tœkifœri
SEX-BAUJAN
VEITINGASTAÐUR v/EIÐISTORG
Boröapantanir og uppl. í síma 611414 & 611070 • Fax 611475
Þóra Guðmundsdóttir:
BARNAGÆLAN sem Sigríður
spurðist fyrir um er úr ljóðabók
frá 1946 sem heitir Kvæðabók-
in okkar - 33 sönglög fyrir
börn. Höfundur gælunnar er
Steindór Sigurðsson og það var
bókaútgáfa Pálma H. Jónsson-
ar sem gaf út kvæðabókina.
Vegna þess hve barnagælan er
löng er hún ekki birt hér en
hægt verður að nálgast ljósrit
af henni hjá Velvakanda.
KETTLINGAR
FIMM kassavanir kettlingar
fást gefíns. Þeir eru sjö vikna
gamlir og eru þrír þeirra svart-
ir en hinir tveir eru hvítir á
bringu en að öðru leyti gráir
og svartir með svo kölluðum
LEÐURJAKKI
AKAFLEGA verðmætur leður-
jakki var tekinn í misgripum
úr fatahengi skemmtistaðarins
Fellabæjar á Eigilsstöðum um
síðustu helgi. Eigandi hans
saknar hans sáran þar sem
hann er hluti af snjósleðasam-
festingi. Viðkomandi er vin-
samlegast beðinn um að hafa
samband í síma 72640.
ARMBAND
SILFURARMBAND með nafn-
inu „Fróði“ tapaðist í Fossvogs-
dal, annað hvort Reykjavíkur
eða Kópavogs megin, fimmtu-
daginn 20. ágúst. Finnandi er
vinsamlegast beðinn um að
hringja í síma 45748.
líkamann og gefa fallegar
hreyfingar og börn temja
sér holla lifnaðarhœtti
Vetrarstarfið er að fara í fullan gang og
í vetur verður KR með stúlknaflokka frá
5 ára aldri ásamt trompfimleikum.
Skráning fer fram í KR-heimilinu
mánudaginn 24. ágúst milli kl. 16-19 og
31. ágúst á sama tíma.
Upplýsingar í heimasímum
611247 (Sandra)
og 611001 (Kristjana).
Athugið sama verð og í fyrra!
Stjóm fimleikadeildar KR.
Kompudagur
í Kolaportinu!
í Kolaportinu viljum við sjá skemmtilega blöndu af nýju
og gömlu - og öllu milli himins og jarðar.
Eitt af því alvinsælasta, sem boðið er upp á í Kolaportinu, er
svokallað „kompudót", gamalt dót, sem fólk er hætt að nota,
en getur komið öðrum að góðu gagni; munir, sem sumum
finnst drasl en öðrum fjái^jóður.
Þúsundir fjölskyldna, saumaklúbba og vinahópa hafa selt
kompudót í Kolaportinu með frábærum árangri, og okkur
finnst stórkostlegt að sjá seljendur fara glaða heim með fulla
vasa af peningum og kaupendur, ennþá ánægðari, með fullt
fang góðra muna sem það hefurfengið á „spottprís".
Þetta köllum við hámark endumýtingar!
Næsta sunnudag, 30. ágúst, ætlum við að efna til sérstaks
kompudags í Kolaportinu og munum þá veita helmings
afslátt af leigugjaldi sölubása, sem eingöngu verða með
notað kompudót.
Lítill sölubás kostar þá aðeins 1.650 kr. og stór 2.150 kr.
Borð og fataslár er hægt að leigja á staðnum á 500 kr. en auðvitað er
hægt að koma með slíkt með sér.
Með þessu kostaboði erum við að hvetja fólk til að drífa í því
að taka til í kompunum og kynnast Kolaportsstemmningunni
af eigin raun.
Nú er ekki eftír neinu að bíða - brettið upp ermamar
og pantið Pjáss i síma 625030.
KOIAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
— nú líka á sunnudögum f