Morgunblaðið - 05.09.1992, Page 2

Morgunblaðið - 05.09.1992, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992 Verðtrygging fjárskuldbindinga Stefnt að afnámi um næstu áramót Frjálst að nota verðtryggingu í viðskiptum RÍKISSTJÓRNIN stefnir að því að taka ákvæði Iaga um verð- tryggingu fjárskuldbindinga til endurskoðunar og verðtrygging verði afnumin úr lögum um næstu áramót þótt áfram verði frjálst að nota verðtryggingu í viðskipt- um. Samkvæmt upplýsingum Björns Friðfinnssonar, ráðuneyt- isstjóra i viðskiptaráðuneytinu, er reiknað með að gerðar verði nauðsynlegar lagabreytingar í vetur til að hrinda þessu í fram- kvæmd. Rannsóknastofa háskólans Slarfsmenn komi til vinnu eða hætti ella HÓPI meinatækna og líffræðinga hjá Rannsóknastofu háskólans í veirufræði, sem lagði niður vinnu 1. september sl., hafa verið settir úrslitakostir um að mæta til vinnu næstkomandi mánudag ella verði svo litið á að þeir séu hættir. Deilan snýst um það að viðkom- andi starfsmenn telja að þeir hafi ekki fengið greidda óunna yfir- vinnu um síðustu mánaðamót, sem þeir telja sig hafa samið um. Að sögn Margrétar Guðnadóttur, forstöðumanns rannsóknastofunnar, halda starfsmennirnir því fram að þeir hafí samið við hana ufn þessi kjör, en hún vísar því alfarið á bug og segir að fjármálastjórn rann- sóknastofunnar sé alfarið í höndum skrifstofu Ríkisspítalanna. Hún hafi aðeins bent fólki á er það réðst til starfa á rannsóknastofuna að yfir- vinna sem væri í boði yrði aldrei undir 30 tímum á mánuði. Um síð- ustu áramót samþykkti stjórn Rík- ispítala að dregið yrði úr yfirvinnu eins og hægt væri. Ræddi Margrét við starfsfólkið um að dregið yrði úr yfirvinnu yfir sumarmánuðina. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins fengu starfsmennirnir greidda 30 óunna yfirvinnutíma um mánaðamótin júní-júlí og júlí-ágúst, en ekki um síðustu mánaðamót. Þá hófust aðgerðir þeirra, sem fólust í því að þeir komu ekki til vinnu en höfðust við á skrifstofu Ríkisspítal- anna. Ríkisspítalarnir hafa fengið álit lögfræðings á aðgerðum starfs- mannanna og samkvæmt því eru þær ólöglegar. Það álit var í gær kynnt fyrir starfsmönnunum. Jóhannes Nordal, seðlabanka- stjóri, segir að bankinn hafi gengið út frá að af þessari breytingu verði um næstu áramót um leið og reglur um fjármagnsflutninga á milli landa verða fijálsari. Sagðist hann vænta þess að fljótlega hæfist undirbúning- ur að breytingunum sem gera þarf. Jóhannes sagði að fyrirhugað af- nám verðtryggingar hefði engin áhrif á möguleika þess að nota vexti sem stjórntæki. Afnám verðtrygg- ingar gerði það meðai annars að verkum að takmarkanir á tímalengd verðtryggðra lána hyrfu og mönnum yrði gert ftjálsara að nota þá viðmið- un sem þeir kjósa. Jóhannes sagði að reglur um vexti yrðu væntanlega svipaðar og gilda í dag en þó væri tímabært að endur- skoða vaxtalögin samhliða þessari breytingu og tiltók að gera þyrfti viðmiðanir sem notaðar væru vegna breytilegra vaxta fijálsari en í dag. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Lokið við B-álmu Borgarspítala Þeir unnu störf sín léttir á brún þessir starfsmenn ístaks þegar ljósmyndari Morgunblaðsins hitti þá fyrir í gær. Mennirnar eru að leggja síðustu hönd á þak B-álmu Borgarspítalans en áður hafði að- eins verið steypt þakplata á álmunni. Áætlað er að verkinu ljúki um miðjan næsta mánuð að sögn Sævars Kristbjörnssonar yfirsmiðs. Sjö manns vinna að jafnaði við þakið. Von Geldern um hugsanleg kaup íslenskra aðila á Rostocker Fischfang Meiri líkur á að um semj- ist en nokkru sinni áður WOLFGANG von Geldern, fyrr- um sjávarútvegsráðherra í Vest- ur-Þýskalandi og stjómarfor- maður Deutsche Fischwirtsc- haft, eignarhaldsfélags næst- stærsta útgerðarfyrirtækis Þýskalands, Rostocker Fisc- hfang Rederei, RFFR, kom hing- að til lands í vikunni ásamt full- trúum RFFR. Hann hefur rætt við Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra og Þorstein Pálsson sjávarútvegsráðherra um kaup íslenskra fyrirtækja á meirihluta i RFFR. Von Geldern sagði í samtali við Morgunblaðið að meiri líkur væru fyrir því nú en nokkru sinni áður að samning- ar tækjust með þessum aðilum, og ef allt gengi eftir yrði skrifað undir samninga fyrir árslok. Von Geldern fundaði einnig með fulltrúum íslensku fyrirtækjanna. „Niðurstaða þessa fundar er að við hittumst aftur í Þýskalandi innan skamms og þar munu þýsk stjórn- völd og forsvarsmenn Treuhand- anstalt staðfesta það sem við höfð- um fram að færa við fulltrúa ís- lensku fyrirtækjanna," sagði von Geldem. Treuhandanstalt er eignarhalds- félag sem stofnað var við samein- ingu Þýskalands og er ætlað að sjá um einkavæðingu 9.000 ríkisfyrir- tækja. Rostocker Fischfang Rederei er næststærsta sjávarútvegsfyrir- tæki Þýskalands og gerir út átta úthafsverksmiðjutogara. „Treuhandanstalt er eigandi Deutsche Fischwirtschaft og þáttur þýsku ríkisstjórnarinnar er mikil- vægur vegna sjónarmiða um kvóta og fleira. Við'þurfum einnig á upp- lýsingum frá henni að halda um hver þróunin gæti orðið í sjávarút- vegsstefnu Þýskalands og hvemig fjármögnun þessa fyrirtækis gæti verið háttað í framtíðinni. Ég býst við því að við hittum fulltrúa ís- lensku fyrirtækjanna í Þýskalandi í lok þessa mánaðar. Ég tel að lík- urnar fyrir því að þetta samstarf takist séu meiri en nokkru sinni áður,“ sagði von Geldern. Hann sagði að á fundi með full- trúum íslensku fyrirtækjanna hefðu farið fram mjög opnar og hrein- skilnar viðræður um alla helstu þætti málsins og menn hefðu ekki rekist á neitt það sem gæti komið í veg fyrir að samningar tækjust. Hann sagði allt benda til þess að íslensku fyrirtækin yrðu meirihluta- eigendur að hinu nýja félagi ef samningar tækjust. „Það er undir íslensku aðilunum komið hvenær úrslit þessa máls liggja fyrir. Þeir verða að gera upp við sig hvenær þeir vilja koma til Þýskalands. Við erum reiðubúnir að taka á móti þeim hvenær sem er. Kannski verður það í lok þessa mánaðar og ef svo verður býst ég við að fljótlega dragi til tíðinda og samningum verði lokið fyrir árs- lok,“ sagði von Geldern. Hugsanleg kaup íslenskra fyrir- tækja á meirihluta í RFFR er af- rakstur af vinnu ráðgjafarfyrirtæk- isins Ráðs hf. Með kaupunum væri íslensk útgerð búin að hasla sér völl innan Evrópubandalagsins. Jón Atli Kristjánsson, einn forsvars- manna fyrirtækisins, vildi ekki upp- lýsa hvaða íslensku fyrirtæki ættu þarna hlut að máli, en sagði að þessi hópur hefði verið valinn með sérstöku tilliti til þessa verkefnis. í dag Skeggrætt um prentkostað Leó Löve og Guðbrandur Magnús- son skrifa um stöðu íslensks prentiðnaðar vegna umræðunnar um Dönsk-íslensku orðabókina 12 Stúlkan í lífi Fischers_______ Margeir Pétursson, skákskýrandi Morgunblaðsins ræðir við Zitu Rajcanji, hina ungversku vinkonu Fischers 21 Sonurinn drifinn á sviðið Atli Sævarsson, sonur Sævars Karls, varð óvænt þátttakandi í tískusýningu Hugo Boss 30 Leiðari Sóknárfæri til uppbyggingar 20 JltocðitaUablb ji?=^T[ Q- f sr BLOÐUM FLEJX Fs) jH [11® IIIUI Lesbók ► Gylfi Þ. Gíslason segir frá Sovétríkjunum sálugu - Grein um slóðir Jóns Indíafara - Guðjón Friðriksson skrifar um Jón kis kis - Kafli úr nýju heimspekiriti. Menning/Listir ► Bresk bókverkasýning í Lista- safni Islands - Franska tónskáld- ið Gérard Grisey á Norrænu tón- Iistarhátíð ungmenna- Norskir listamenn í Hafnarborg. Tómas Tómasson veitingamaður kaupir Hótel Borg á 172 milljónir Kaupverðið greið- ist upp á 15 árum TÓMAS Tómasson veitinga- maður hefur skrifað undir samning um kaup á Hótel Borg í miðborg Reykjavíkur með þeim fyrirvara að borgar- ráð veiti samþykki sitt á þriðjudag. Söluverð hótelsins er 172 milljónir og greiðist það upp á 15 árum. Sam- kvæmt samningnum er gert ráð fyrir að nýr kaupandi taki við rekstrinum 1. október næstkomandi. Aðspurður sagði Tómas að hann myndi halda rekstrinum óbreyttum fyrst um sinn. Seinna myndi hann síðan ráðast í að endurgera hótelið og gera að stolti miðborgarinnar. Hann sagði að rekstur hótels- ins væri draumaverkefni sitt. „Fyrir mann, eins og mig, gagn- tekinn af fagi sínu og ekki við- ræðuhæfan um neitt annað en hótel og veitingar, er það para- dís á jörðu að komast í svona rekstur og gera vel,“ sagði Tóm- as og viðurkenndi að hafa haft augastað á húsinu í 8 ár. „En það er eins og sagt er að þolin- mæðin er lykillinn að paradís," bætti hann við. Tómas skrifaði undir kaup- samninginn 3. september. „Þann dag voru 25 ár síðan ég byijaði að læra að verða matreiðslumað- ur. Þannig má eiginlega segja að ég hafi haldið upp á 5 ára afmæli Hard Rock Cafe með því að stökkva í teygjunni og upp á 25 ára starfsafmæli með því að stökkva á Hótel Borg.“ Aðspurður sagði Tómas að ekki stæði til að segja upp núver- andi starfsmönnum hótelsins ef hann tæki við rekstri þess.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.