Morgunblaðið - 05.09.1992, Síða 4

Morgunblaðið - 05.09.1992, Síða 4
’f ÍMMÍ'IT'TÍÍS M fl'ffíAfllIAD’JAJ (ílflAJfJVíUOjfOM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992 Morgunblaðið/Kristinn Fundað um aðgerðir í atvinnumáluni ATVINNUMÁLANEFND ríkisstjómarinnar, ASÍ, samtaka vinnuveitenda og sveitarfélaga, sem sett var á laggir í kjölfar kjarasamninganna til að treysta undirstöðu hagvaxtar og atvinnuöryggis, kom saman til fundar í gær. Að sögn Þórarins V. Þórarinssonar, framkvæmdastjóra VSÍ, liggja engar niðurstöður enn fyrir af störfum nefndarinnar. Samkvæmt upplýs- ingum Ólafs Davíðssonar, ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis og for- manns nefndarinnar mun nefndin koma saman á ný í næstu viku. Standa vonir til að þá verði lagðar fram tillögur til ríkisstjómarinnar. Á mynd- inni sjást talið frá vinstri Hjörtur Eiríksson framkvæmdastjóri Vinnumála- sambands samvinnufélaganna, Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmda- stjóri VSÍ, Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ, Gylfi Arnbjömsson hagfræð- ingur ASI og Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar, koma út af fundi atvinnumálanefndar um hádegisbilið í gær. Bandarísk flugfélög gera kröfu á hendur Flugmálastjórn Krefjast endurgreiðslu gjalds á flugvélabensín ÁTTA bandarísk flugfélög hafa gert kröfu á hendur Flugmálastjórn um að fá endurgreitt sérstakt álag á flugvélabensín sem innheimt hefur verið hérlendis samkvæmt lögum frá 1987. Bera flugfélögin við samningi milli íslands og Bandaríkjanna frá árinu 1967 um niður- fellingu gjalda á eldsneyti í millilandaflugi. Talið er að um sé að ræða samtals 20-30 milljónir króna. Nefnd fulltrúa þriggja ráðu- neyta aflar nú upplýsinga fyrir ríkisstjórnina um málið og segir Hreinn Loftsson formaður nefndarinnar að hún muni skila tillögum fyrir ríkissjórnarfund á þriðjudag. Að sögn Þórhalls Jósefssonar aðstoðarmanns samgönguráðherra gerir samkomulagið frá 1967 ráð fyrir að felld séu niður gjöld og skattar af bensíni þegar í hlut eiga flugvélar sem skráðar eru í öðru hvoru ríkjanna og eru í millilanda- flugi. Árið 1987 setti Alþingi síðan lög þar sem kveðið var á um að þeir sem seldu eldsneyti á íslensk- um flugvöllum skuli innheimta sér- stakt gjald, 1,30 krónur á hvern lítra af bensíni og 65 aura á hvern lítra af þotueldsneyti. Undanþágu VEÐUR IDAGkl. 12.00 f Heimifd: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 f gœr) VEÐURHORFUR I DAG, 5. SEPTEMBER YFIRLIT: Yfir Faxaflóa er 1.012 mb lægð sem hreyfist austnorðaustur, en yfir Norður-Grænlandi er 1.030 mb hæð. Langt suðsuðvestur í hafi er vaxandi lægð á hreyfingu norðaustur. SPÁ: Norðaustan stinningskaldi eða allhvass norðvestanlands, en held- ur hægari suðaustan- og austanátt í öðrum landshlutum. Skúrir eða rign- ing með köflum um mest allt land en styttir upp suðvestanlands annað kvöld. Fremur svalt áfram, hiti 3 til 9 stig aö deginum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á SUNNUDAG: Nokkuð hvöss suðaustan- og austanátt á land- inu. Rigning og súld á Suðurlandi og Austfjörðum, skýjað en þurrt að mestu á Norður- og Vesturlandi. Talsvert hlýnandi í bili. HORFUR Á MÁNUDAG: Norðan- og norðaustanátt, nokkuð stíf austan- lands í fyrstu, annars hægari. Skúrir norðan- og austanlands, en léttir til sunnanlands. Hiti 3. til 12 stig, hlýjast sunnanlands. Svarsfmi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. O tik Heiðskírt r r r r r r r r Rigning Léttskýjað * r * * r r * r Slydda -B Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma •ó Skýjað V Ý Alskýjað * V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og Ijaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka stig-. FÆRÐA VEGUM: 1n.17.30M Allir aðalþjóðvegir landsins eru nú greiðfærir, en hins vegar eru nokkrir fjallvegir orðnir ófærir vegna snjóa, eins og Sprengisandsleið í Bárðar- dal, Eyjafjörð og SkagafjÖrð. Þá er KverkfjallaleiÖ ófær og sömuleiðis Dyngjufjallaleið. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og á grænni línu 99-6315. Vegagerðin. xm VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 5 skýjað Reykjav/k 6 rigning Bergen 13 skýjað Helsinki 16 skýjað Kaupmannahöfn 14 skúr Narssarssuaq 5 skýjað Nuuk 4 alskýjað Ósló 11 rigning Stokkhólmur 16 skýjað Þórshöfn 10 rigning Algarve 29 heiðskirt Amsterdam 12 skúr Barcelona 26 léttskýjað Berlín 14 skúr Chicago 11 heiðskírt Feneyjar vantar Frankfurt 12 skúr Glasgow 14 léttskýjað Hamborg 14 skýjað London 15 skýjað Los Angeles 16 heiðskírt Lúxemborg 10 skúr Madríd 28 iéttskýjað Malaga 24 mistur Mallorca 27 léttskýjað Montreal 14 þokumóða NewYork 23 þokumóða Orlando 24 alskýjað París 15 léttskýjað Madeira 24 hálfskýjað Róm 27 léttskýjað Vin 14 rigning Washington 22 þokumóða Winnipeg 13 skýjað frá þessu njóti þó aðilar sem stundi áætlunarflug milli íslands og Norð- ur-Ameríku. Gjaldi þessu var ætlað að fjármagna flugvallagerð. Þegar flugfélagið Flying Tiger Line hóf áætlunarferðir hingað til lands fyrir nokkrum árum keypti það eldsneyti af Skeljungi hf. sam- kvæmt samningi. Skeljungur fékk þá staðfest hjá samgönguráðuneyti að ekki ætti að innheimta gjaldið af eldsneytinu til flugfélagsins. Fly- ing Tiger Line sneri viðskiptum sín- um síðar til OLÍS sem lagði þetta gjald á eldsneyti til flugfélagsins. Þórhallur sagði að þetta hefði uppgötvast nokkru síðar og Flying Tiger krafist endurgreiðslu á gjald- inu til Flugmálastjórnar. Annað bandarískt flugfélag, Arrow Air, lagði fram samskonar kröfu og er vitnað til samkomulagsins frá 1967. Þetta gerðist fýrir um ári. í sumar komu fram kröfur frá sex flugfélögum til viðbótar, Am- erican Airlines, Delta, United Air- lines, Burlington Air Express, Trans World Airlines og Evergreen International Airlines. Var íslensk- ur lögmaður fenginn til að reka málið fyrir þeirra hönd. Einnig skrifaði Sig Rogich, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi, sam- gönguráðherra bréf þar sem þess- um kröfum er fylgt eftir. Samkvæmt lagatextanum er umrætt gjald skattur á olíufélögin og því gætu flugfélögin átt kröfu á olíufélögin, sem síðan gætu átt endurkröfurétt á Flugmálastjóm. Samgönguráðherra leitaði álits rík- islögmanns, sem telur að hafna eigi kröfum bandarísku flugfélaganna og lagagreinin eigi að gilda. Hins vegar hefur samgönguráðherra fengið andstæð álit frá öðrum lög- fræðingum. Samgönguráðherra hefur lagt til við ríkisstjórnina að nefnd fulltrúa þriggja ráðuneyta, undir stjórn Hreins Loftssonar lögfræðings, verði skipuð til að úrskurða í mál- inu og svari meðal annars þeim spurningum hvort breyta eigi lög- unum til samræmis við samninginn við Bandaríkin og einnig hvort endurgreiða eigi gjaldið samkvæmt samningnum þrátt fyrir ákvæði laganna. Gert er ráð fyrir að nefnd- in skili tillögum fyrir ríkisstjórnar- fund á þriðjudag. Flugrekstrarleyfí Helga Jónssonar afturkallað Úrskurður um gjald- þrot og kært til RLR SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ fól fJugmálastjóra í gær að afturkalla flugrekstrarleyfi Helga Jónssonar eftir að hann var úrskurðaður gjald- þrota í héraðsdómi Reykjavíkur. fjarskipta- og siglingatækja úr tveimur flugvélanna eftir að lagt hafði verið hald á þær í júlímánuði sl. að beiðni þrotabús J.M. Aviation, eignarhaldsfélags Odin Air. Fyrirtækið J.M. Aviation í Dan- mörku í eigu Helga Jónssonar og Jytte Marcher Jónsson keypti flug- vélarnar sem Bikupen íjármagnaði. Þau hjón voru sjálfskuldarábyrgðar- menn á þessu láni og gjaldþrota- beiðni lögmannsins var tilkomin vegna þess. Lögmaður danska Bikupen-bank- ans hér á landi lagði inn beiðni um gjaldþrotaskiptin hjá hjónunum Helga Jónssyni og Jytte Marcher Jónsson vegna sjálfskuldarábyrgðar þeirra á láni að upphæð 14,5 milljón- ir DKR, um 140 milljónir ÍSK, sem þau fengu til að fjármagna kaup á þremur Jetstream-flugvélum Odin Air, flugfélagi þeirra hjóna. Jafnframt hefur lögmaðurinn lagt fram kæru til Rannsóknarlögreglu ríkisins vegna hvarfs log-bóka og Stefmr í verkfall í A-Húnavatnssýslu BOÐAÐ verkfall Verkalýðsfélags Austur-Húnavatnssýslu, sem frest- að var í sumar um tvo mánuði, tekur gildi 14. september næstkom- andi hafi ekki samist fyrir þann tíma. Samningarnir voru felldir í verkalýðsfélaginu síðastliðið sumar með miklum meirihluta atkvæða. Valdimar Guðmannsson, formaður verkalýðsfélagsins, sagði að ein- hveijar viðræður hefðu verið í gangi, en heildarsamningar hafa ekki enn verið gerðir. „Við mátum það svo í sumar að verkfallið myndi ekki bitna á réttum aðilum meðan unglingavinna stæði yfir.“ „Okkar hugmynd var að leysa málið með því að breyta eingreiðslu á desemberuppbót, en við höfum engin viðbrögð fengið við því. Ein- hveijir hafa alveg orðið af sumar- uppbótinni, en þó nokkuð er um það að vinnuveitendur hér hafi greitt eftir miðlunartillögunni," sagði Valdimar. „Það kemur ekki til álita að gera neina kjarasamninga aðra en þá sem búið er að gera og ef verkalýðs- félagið kýs að fara í verkfall er það bara þeirra mál. Félagsmennirnir hljóta að eiga það við forystu fé- lagsins," sagði Þórarinn V. Þórar- insson, framkvæmdastjóri VSÍ. Eldur í knattborðsstofu Grindavík. ( MIKLAR skemmdir urðu í knatt- borðsstofunni Stjörnunni í fyrri- nótt þegar eldur kom þar upp. Það var um þrjúleytið sem til- kynning barst um að eldur væri laus í Stjörnunni sem stendur við Víkurbraut í Grindavík. Þegar slökkviliðið kom að var mikill hiti og reykur í lokaðri knattborðsstofu sem er fyrir miðju húsi en lítill eld- ur. Greiðlega gekk að ráða niður- lögum eldsins. en nokkrar skemmd- ir urðu á knattborði, klæðningu og myndbandsspólum sem voru þar inni og áætlar eigandinn að tjón sé ekki undir tveimur milljónum króna. FÓ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.