Morgunblaðið - 05.09.1992, Síða 5

Morgunblaðið - 05.09.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992 5 Tap ISALs ekki meira en ann- arra álbræðslna Alusuisse Dregið verður úr framleiðslu annarra álvera áður en niðurskurður kemur til greina hjá IS AL Ziirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttarit- ara Morgunblaðsins. HALLAREKSTUR álversins í Straumsvík er ekki meiri en ann- arra sambærilegra álvera í Evr- ópu um þessar mundir. Stjórn- endur Alusuisse-Lonza (A-L), móðurfyrirtækis ISALs í Sviss, sætta sig því við hann. Edward A. Notter, framkvæmdastjóri hráefnasviðs A-L, sagði að end- urbætur sem hafa verið gerðar á álverinu, ákveðin stjórn Christ- ians Roths forstjóra og hagstætt raforkuverð yllu því að það yrði dregið úr álbræðslu annarra ál- vera A-L áður en niðurskuröur kemur til greina hjá ISAL. Dr. Theodor M. Tschopp, for- stjóri A-L, kenndi ríkisafskiptum í Evrópu um offramboðið á áli og lágt heimsmarkaðsverð sem því fylgir á blaðamannafundi í Zúrich í gær. Hann sagði ríkisstjórnir landa eins og Frakklands, Ítalíu og Spánar koma í veg fyrir eðlilega samkeppni í áliðnaði með því að styrkja álframleiðslu í sínum lönd- um beint eða óbeint og styðja þann- ig óarðbæra framleiðslu og stuðla Kindakjötsframleiðsla Útflutn- ingsbætur 350 til 400 millj. fram úr áætlun Utflutningsbætur á kinda- kjöt í ár eru taldar geta orðið á bilinu 350-400 milljónir króna umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir. Þar af eru um 250 milljónir vegna 400-500 tonna sölusamdráttar á innanlandsmarkaði undan- farna 12 mánuði. Samkvæmt upplýsingum frá landbúnaðarráðuneytinu var í fyrrahaust áætlað að selja 800 tonn af ársgömlu kindakjöti til Mexíkó eh þá tókst ekki að ná nema 500 tonnum í útflutnings- hæfu ástandi og fór afgangurinn til vinnslu innanlands. Mismun- urinn hefur síðan verið fluttur út á þessu ári, eða 300 tonn, og fluttist kostnaðurinn af því yfir á þetta ár. Að lokinni birgðataln- ingu nú í haust kemur í ljós hve mikið magn er til af ársgömlu kjöti en áætlað er að það sé á bilinu 400-500 tonn. Umframút- flutningurinn á þessu ári gæti því samtals orðið 700-800 tonn, sem þýðir 350-400 milljónir í útflutningsbætur. að offramboði. Forstjórinn sagði að eðlilegri samkeppni ríkti í við- skiptum með báxít og unnið ál. A-L myndi því leggja meiri áherslu á slíka starfsemi í framtíðinni og aðeins stunda álframleiðslu eins og þörf krefði. A-L og bandaríska fyrirtækið ALCOA hættu nýlega við hugsan- legt samstarf í Wallis í Sviss. Hug- myndin var að heija framleiðslu á álplötum fyrir flugvélaiðnaðinn í Evrópu en nauðsynleg ijárfesting þótti of há og framtíð flugvélaiðn- aðarins of ótryggtil að af samstarf- inu yrði. Áhugi A-L á hugmyndinni sýnir þó að fyrirtækið hyggst stunda álframléiðslu áfram og er reiðubúið að auka hana ef það borg- ar sig fyrir fyrirtækið í heild. Rekstur A-L hefur gengið þokkalega það sem af er þessu ári vegna velgengni á efna- og pakkn- ingasviði. Álsviðið skipar ekki jafn stóran sess hjá fyrirtækinu og áður svo að kreppan á álmörkuðum hef- ur ekki komið eins illa niður á því og vænta mætti. Velta álsviðs fyrri hluta þessa árs var þó aðeins 60% af því sem hún var á sama tíma í fyrra. Víghólasamtökin Lögbanns- beiðni frestað LÖGBANNSBEIÐNI á bygging- arframkvæmdir á Víghóli var ekki lögð fram í gær af hálfu Víghólasamtakanna. Aðalsteinn Pétursson, formaður samtak- anna, sagði að ákveðið hefði ver- ið að ræða ákveðnar tillögur sem borist hefðu frá Biskupsstofu til lausnar deilunni. Aðalsteinn vildi ekki upplýsa í hverju tillögurnar væru fólgnar en sagði að ef engin lausn fyndist á deilumálinu yrði lögbannsbeiðni lögð fram eftir helgi. 01»Ii> LAUIiAUlLHi FHÁ KL. 10-10 y\Ww - AFSLÁTTUR DD^• PARKET• K0RKUR0G Fl °G FL' GOLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S - 91 681950

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.