Morgunblaðið - 05.09.1992, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992
11
Páll Pétursson
„Málflutningur forsæt-
isráðherrans verður
einfaldlega að flokkast
undir útúrsnúninga.“
Það er jafnframt tekið fram í
stjórnarskránni að alþingismenn
megi ekki fara eftir neinum reglum
frá kjósendum sínum, þeir eigi að
fara eftir samvisku sinni. Það geta
þeir ekki lengur ef þeir verða að
fara eftir reglum frá Evrópubanda-
laginu. Þetta var um löggjafarvald-
ið sem ég tel að sé skert og þving-
að með EES-samningnum.
Varðandi framkvæmdavaldið er
sömu sögu að segja. Hluti fram-
kvæmdavaldsins er fluttur úr landi.
Alþingismenn skv. 47. gr. stjórnar-
skrárinnar vinna drengskaparheit
að því að halda hana og þeir sem
ætla að samþykkja EES-samning-
inn eru ábyggilega í talsverðum
vandræðum. Samkvæmt 10. gr.
stjórnarskrárinnar vinnur forseti
íslands eið eða drengskaparheit að
stjórnarskránni í hvert sinn er hann
tekur við störfum. Forseti íslands
vann þetta heit síðast 1. ágúst sl.
Dómsvald að hluta úr landi
Varðandi dómsvaldið, þá flyst
það að hluta til úr landi og ég vitrta
til 59. gr. stjórnarskrárinnar: „Skip-
an dómsvaldsins verður eigi ákveðin
nema með lögum.“
Eg vitna til 60. gr. stjórnarskrár-
innar: „Dómendur skera úr öllum
ágreiningi um embættismörk yfir-
valda.“
Ég vitna til 61. gr. stjórnarskrár-
innar: „Dómendur skulu í embættis-
verkum sínum fara einungis eftir
lögujium."
Allt er þetta fyrir bí meira og
minna ef þessi samningur verður
lögtekinn. Þá verðum við að lúta
erlendu dómsvaldi að hluta og ís-
lenskir dómarar verða að dæma
með hliðsjón af dómum Evrópudóm-
stólsins.
Það er nokkuð sama hvar þessi
blessaðri stjórnarskrá okkar er
flett. Spurningar vakna hvarvetna.
I 69. gr. segir: „engin bönd má
leggja á atvinnufrelsi manna nema
aimenningsheill krefji, enda þarf
lagaboð til“. Hæglega getur komið
til þess að 69. gr. samræmist ekki
að anda til þeim samningi sem lagt
er til að verði lögfestur.
í 67. gr. stjórnarskrárinnar seg-
ir: „Eignarrétturinn er friðlegur.
Engan má skylda til að láta af hendi
eign sína nema almenningsþörf
krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli
og komi fullt verð fyrir."
Ríkisstjórnin undirbýr nú að gera
upptækar bótalaust auðlindir í jörðu
sem eru eign landeigenda.
Hraðlestin til Brussel
Á Alþingi brunar nú hraðlestin
til Brussel. Þeim öflum sem vilja
sem nánust tengsl við Evrópu-
bandalagið og jafnvel inngöngu
þanga,ð hefur vaxið stórlega ásmeg-
in innan stjórnarflokkanna. Þeir sjá
í stjórnarskrárfrumvarpi þessu
hindrun á leið sinni. Þessvegna
reynir forsætisráðherrann að beita
haldlausum rökum og útúrsnúning-
um.
Verði stjórnarskrárbreytingar-
frumvarp okkar samþykkt verður
að ijúfa þing og efna til kosninga
og samþykkja frumvarpið óbreytt á
nýju þingi. Þær kosningar mundu
snúast um EES-samninginn en auk
þess legðu kjósendur dóm á stefnu
flokka og verk þeirra svo og
frammistöðu einstakra stjómmála-
leiðtoga. Til þeirra kosninga má
forsætisráðherra ekki hugsa.
Höfundur er formaður þingflokks
framsóknarmanna.
911 91 97A LÁRUS Þ' VALDIMARSSON framkvæmdastjori
L I lUU'tlO/U KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. loggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Skammt frá Menntaskólanum við Sund
vel byggt og vel með farið steinh. ein hæð um 165 fm. 5 svefnherb.
Bilsk. Glæsil. lóð. Skipti mögul. á 3ja-4ra herb. íb. m. bilsk.
í lyftuhúsi í gamla vesturbænum
ný og glæsil. „stúdíóíb.“ á 5. hæð um 90 fm. Svalir, sólskáli. í risi fylgja
2 góð herb. Frábært útsýni. Laus strax.
5 herb. hæðir í vesturbænum
v. Hávallagötu og Holtsgötu. Vinsaml. leitið nánari uppl. Teikn. á skrifst.
Skammt frá Verslunarskólanum
úrvatsib. 4ra herb. á 3. hæð í enda 104 fm. 3 góð svefnherb., sér-
þvhús, tvennar svalir. Góður bilsk. m. geymslurisi. Mikil og góð langt-
lán. Eign í sérfl.
í gamla, góða vesturbænum
ódýr lítil 2ja herb. kjíb. Samþykkt. Laus strax. Sérhiti. Sólrik íb. skammt
frá háskólanum.
Góð íbúð - góður bílskúr
miðsvæðis í borginni 3ja herb. íb. rúmir 80 fm á 3. hæð. Góð sam-
eign. Útsýni. Tilboð óskast.
Sérhæð í austurborginni - skipti
Til sölu 6 herb. efri sérhæð m. bílsk. í skiptum f. 3ja-4ra herb. íb. m.
bílsk. Nánari uppl. á skrifst.
Hafnarf. - Rvík - skipti möguleg
Steinhús ein hæð 130 fm. Nýendurbyggt og stækkað á útsýnisstað i
suðurbænum i Hafnarf. Bílsk. 36 fm. Skipti mögul., helst á íb. miðsv.
í borginni m. bílsk.
Þurfum að útvega m.a.:
Fossvogur - nágr. 2ja, 3ja og 4ra herb. íb. Margir með mjög miklar
og örar peningagreiðslur.
Einbýli, raðhús eða 1. hæð 100-120 fm. Skipti mögul. á góðum eignum
í vesturborginni. Nánari uppl. á skrifst.
Opiðídagkl. 10-16.
Fjöldi fjársterkra kaupenda.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlf 1944.
AIMENNA
fASTEIGNASAlAH
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
IttlAMD SPKIMO W\rtH
VINNUFfiT 06 VETTLINGAR