Morgunblaðið - 05.09.1992, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992
17
Mismunandi uppgjörsaðferðir við ríkisreikninga
Olafur Ragnar segir að
pólitík ráði aðferðunum
Fjármálaráðherra segir Olaf Ragnar fara með ósannindi
ÓLAFUR Ragnar Grímsson alþingismaður telur að Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra noti mismunandi framsetningu á afkomu rikissjóðs
í pólitískum tilgangi. Ólafur Ragnar segir að fjármálaráðherra hafi
notað uppgjörsaðferðir Ríkisendurskoðunar til að sýna fram á meiri
halla á ríkissjóði árið 1991, þegar Ólafur Ragnar var fjármálaráðherra
fyrstu mánuðina, og jafnframt minnkað útgjöldin á ár. Nú sé fjármála-
ráðherra hins vegar búinn að snúa við blaðinu og sé á móti aðferðum
Ríkisendurskoðunar, í því skyni að lækka hallatölur þessa árs. Friðrik
Sophusson segir Ólaf Ragnar fara með hrein ósanninndi.
Ólafur Ragnar Grímsson boðaði
til blaðamannafundar í gær vegna
blaðamannafundar sem fjármálaráð-
herra hélt í fyrradag þar sem ráð-
herra gagnrýndi m.a. þær uppgjörs-
aðferðir Ríkisendurskoðunar að telja
langtímaskuldbindingar til útgjalda
á því ári sém stofnað er til þeirra,
þrátt fyrir að engar greiðslur eigi
sér_ stað.
Ólafur Ragnar sagði að blaða-
mannafundur íjármálaráðherrans
hefði beint athyglinni að furðulegum
mótsögnum í málflutningi og upp-
gjörsaðferðum fjármálaráðuneytisins
sjálfs í fjármálaráðherratíð Friðriks.
Sér væri farinn að ofbjóða hringland-
inn í uppgjörsaðferðunum og þar
gæti ekki verið annað en pólitík á
bakvið.
Ólafur Ragnar sagði það fagnað-
arefni ef Friðrik Sophusson og Sjálf-
stæðisflokkurinn væru nú orðnir sér
sammála um að ekki væri rétt að
nota aðferðir Ríkisendurskoðunar en
lét þó í ljós efa um að þar fylgdi
hugur máli. Hann benti m.a. á, að
fjármálaráðherra og þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins hefðu 24. febrúar
greitt atkvæði á Alþingi með tillögu
fjárlaganefndar um að færa skuld-
bindingar vegna Verðjöfnunarsjóðs
fiskiðnaðarins, að upphæð 1,4 millj-
arðar króna, inn í fjáraukalög í sam-
ræmi við kenningar Ríkisendurskoð-
unar. Þannig hefði fjármálaráðherra
samþykkt uppgjörsaðferðir Ríkisend-
urskoðunar á Alþingi og Ólafur
Ragnar hefði verið eini þingmaðurinn
sem greiddi atkvæði gegn tillögunni.
Friðrik Sophusson sendi í gær frá
sér orðsendingu vegna þessa þar sem
kemur fram, að fjármálaráðuneytið
hefði gert fjárlaganefnd Alþingis
grein fyrir þeirri afstöðu sinni, að
það teldi að ekki ætti að færa skuld-
bindingar vegna Verðjöfnunarsjóðs
til gjalda á árinu 1990. Fjármálaráð-
herra segist ekki hafa verið á um-
ræddum þingfundi þar sem málið var
afgreitt, og þar af leiðandi ekki get-
að tekið þátt í atkvæðagi-eiðslunni.
Þessu til sönnunar fylgir tölvuút-
skrift af atkvæðagreiðslunni en þar
kemur fram að Friðrik Sophusson
er fjarverandi. „Að halda því þrisvar
sinnum fram í einni fréttatilkynningu
að fjarstaddur maður greiði atkvæði
með tilteknum hætti og nota það
síðan ranglega gegn honum, segir
svo sína sögu um virðingu Ólafs
Ragnars Grímssonar fyrir sannleik-
anum,“ segir í orðsendingu Friðriks,
en fréttatilkynninguna sem vísað er
til lagði Ólafur Ragnar fram á blaða-
mannafundinum í gær.
Ólafur Ragnar nefndi einnig á
blaðamannafundinum í gær, að í
uppgjöri fjármálaráðuneytisins fyrir
árið 1991 hefði allt kaupverð fast-
eigna, 630 milljónir króna, verið
fært sem útgjöld á því ári, í sam-
ræmi við reglur Ríkisendurskoðunar,
þótt ekki þyrfti áð greiða þessar
skuldbindingar að fullu fyrr en á
næstu öld. Jafnframt hefði fjármála-
ráðherra ákveðið að færa ekki sem
tekjur á árinu 1991, staðgreiðslu
skatta opinberra starfsmanna sem
komið hefðu í ríkiskassann í byijun
desember 1991, heldur hafi þær ver-
ið bókfærðar á árinu 1992. Með
þessu móti hefði halli ársins 1991
verið aukinn sem þessum upphæðum
nam.
Friðrik Sophusson sagði í samtali
við Morgunblaðið, að kaupverð fast-
eigna hefði ávallt verið fært með
þessum hætti, jafnt í fjármálaráð-
herratíð Ólafs Ragnars Grímssonar
sem á þessu ári. Þá sagði Friðrik það
einnig rangt hjá Ólafi Ragnari að
umræddar skatttekjur hefðu verið
komnar inn í ríkissjóð í desember
1991. Það væri hins vegar rétt að
reglum um færslur hefði verið breytt.
Áður hefðu þessar tekjur verið færð-
ar áður en þær komu í ríkissjóð en
nú hefði verið ákveðið að færa þær
ekki fyrr en þær komu inn, sem
væri breyting í þá átt sem fjármála-
ráðuneytið teldi vera rétta. Þetta
hefði verið tekið skýrt fram af hálfu
ráðuneytisins þegar uppgjör á síðasta
ári fór fram.
Sigríður Ásgeirsdóttir við eitt verkanna á sýningunni.
Sigríður Asgeirsdóttir
sýnir í Listmunahúsinu
SIGRÍÐUR Ásgeirsdóttir opnar
í dag, laugardag, kl. 16 sýningu
á verkum sínum í Listmunahús-
inu í Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu í Reykjavík. Á sýningunni
eru verk unnin í gler.
Sigríður stundaði nám við Edin-
burgh College of Art 1979-1984 og
í Þýskalandi 1984. Þetta er sjöunda
einkasýning hennar og eru verk eft-
ir hana m.a. í Sparisjóði Reykjavíkur
og nágrennis, kapellu kvennafang-
elsisins í Cornton Vale í Stirling í
Skotlandi, íslandsbanka við Lækjar-
götu í Reykjavík og víðar.
Fimmtudaginn 10. september
verður afhjúpað nýtt verk úr steindu
gleri eftir Sigríði í Barnaskólanum
á Húsavík. Verkið er í tveimur hlut-
um, Garðar og Náttfari, og er þar
vísað til landnáms og legu lands við
Skjálfanda. Verkefnið var styrkt af
Listskreytingasjóði.
Sýning Sigríðar í Listmunahúsinu
við Tryggvagötu stendur til 20. sept-
ember.
----» ♦ ♦----
Biskup í
vígahug
frumsýnd
Stuttmyndin Biskup í Vígahug
verður frumsýnd í dag, 5. sept-
ember, í Regnboganum.
Með aðalhlutverk fara Gfsli Rún-
ar Jónsson, Kjartan Bjargmundsson
og Árni Pétur Guðjónsson. Enn-
fremur koma fram Baltasar Kor-
mákur, Magnús Jónsson, Þórir
Bergsson, Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir og Skúli Gautason.
Handritshöfundur og leikstjóri er
Steingrímur Dúi Másson.
Kvikmyndin er 35 mínútna löng.
VERÐLÆKKUN
Gerðu raunhæfan samanburð á verði og
gæðum. Accord er sérlega vandaður og vel
heppnaður bíll jafnt að utan sem innan.
Verð eftir lækkun:
? Accord EX með sjálfskiþtingu: 1.518.000,-
>
| Accord EXi með sjálfskiptingu: 1.615.000,-
verdi
Civic
3dyra
frá
899
000
Civic
4dy
veröi
78
000
ra
ra
Líttu við í Vatnagörðum 24 og kynntu þér
góða bíla og greiðslukjör við allra hæfi.
Tökum góða notaða bíla sem greiðslu upp í
nýjan.
Einkenni Civic eru fegurð og glæsileiki.
Þetta er bíll sem þú mátt ekki láta framhjá
þér fara. Nú býðst Civic á einstaklega
hagkvæmum kjörum. Verð eftir lækkun:
H)
HONDA
ÁRÉTTRI LÍN.U