Morgunblaðið - 05.09.1992, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 05.09.1992, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992 - ■ - - , - g - fgs.^ -ive-3 ■«?-'»-? * x **r(«7; MÖRGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992 L.í" í - r ' -;V' *.r - ' ' - . • ____________________m Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Arvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Sóknarfæri til uppbyggiiigar Ásgeir Daníelsson hagfræðingur Atvinnuleysi rýr- ir ekki hagkvæmni sjófrystmgarínnar ÁSGEIR Daníelsson hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun segir að út- reikningar sýni að sjófrysting geti verið hagkvæmari en landvinnsla jafnvel þótt hún hafi í för með sér atvinnuleysi í landi og lokun vinnsluhúsa. Meiri tekjur af sjófrystingu gera kleift að borga þeim sem atvinnulausir yrðu við landvinnsluna jafnvirði launa þeirra en borga þeim sem fengju vinnu á frystiskipum þó hærri laun en þeir höfðu við vinnsluna í landi. Morgunblaðið/Kristinn Hér má sjá 12 manna hóp Litháanna ásamt forsvarsmönnum Lions hvoru megin. Kristján Kristjánsson til vinstri og Ólafur Briem til hægri. Námsferð 12 Litháa á vegum ríkisstjórnarinnar Dvölin héma hefur verið okkur ómetanleg reynsla Valdas Dambrava til vinstri og Rasa Bityte Sú efnahagslega lægð, sem ís- lendingar hafa búið við síð- ustu 4-5 árin, á enn eftir að dýpka verulega á næsta ári vegna afla- niðurskurðarins. Það er eðlilegt, að það hrikti í undirstöðum þjóð- arbúsins þegar þorskaflinn er skorinn niður úr 320 þúsund tonn- um í 205 þúsund tonn á tveimur árum. Afleiðingin verður rýmandi kjör og vaxandi atvinnuleysi. Það, sem hefur komið í veg fyrir alvar- legri kreppu, er sigurinn á verð- bólgunni. Hvorki atvinnufyrir- tækin né heimilin hefðu þolað óðaverðbólgu í því árferði sem nú er, t.d. það vaxtastig, sem henni fylgir, verkföll, kjararýrnun og upplausn. Við blasir nú, að grípa verður til allra tiltækra ráða til að auka tekjur þjóðarbúsins og vinna gegn atvinnuleysinu. Annars vegar þarf að hefja uppbyggingarstarf með langtímasjónarmið í huga, en hins vegar þarf að gera ráð- stafanir, sem auka atvinnu og hagvöxt næstu mánuði og miss- eri. Beðið er með nokkurri eftir- væntingu eftir tillögum atvinnu- málanefndarinnar, sem skipuð var í kjölfar kjarasamninganna sl. vor, og aðgerða ríkisstjómar- innar. Þær munu þó Varla gera meira en að draga úr mesta at- vinnuleysinu og eðli sínu sam- kvæmt geta þær ekki verið nema til skamms tíma. Líklegt er, að nefndin leggi til erlendar lántök- ur, m.a. til að ráðast í auknar vegaframkvæmdir og viðhald op- inberra mannvirkja, ef marka má ummæli forseta ASÍ. Þjóðarbúið er mjög skuldsett og verður því að fara með mikilli gát í að auka erlendar lántökur og algert skilyrði er, að þær verði aðeins notaðar til arðbærra fram- kvæmda. En lán verður að greiða upp að lokum, að viðbættum vöxtum og kostnaði, og því er brýn nauð- syn, að íslendingar nýti þá mögu- leika sem við blasa til aukningar þjóðartekna í bráð og lengd. Til sjávarins má benda á vannýtta fiskistofna og aðrar tegundir úr lífríkinu og þegar eru merki auk- ins áhuga á þessu sviði. Veiðar á úthafskarfa færast í vöxt, byijað er að nýta gulllax, og horfur eru á auknum veiðum á búra, sem er tvöfalt til þrefalt verðmeiri en þorskur. Auka þarf veiðar á nýj- um tegundum með skipulegum hætti og ástunda kraftmikla markaðssókn. Vinnsla þeirra get- ur skapað atvinnu og því eðlilegt, að stjómvöld styðji veiðitilraunir í því skyni. Ný sóknarfæri blasa við fisk- iðnaðinum um næstu áramót með aðild landsins að evrópsku efna- hagssvæði. Það er ekki aðeins, að tollar muni lækka eða falla niður á hefðbundnum útflutnings- vörum okkar heldur verður hægt að flytja unnar afurðir tolllausar á markað 380 milljóna manna. Tækifæri skapast til vinnslu og sölu á afurðum í neytendapakkn- ingum, sem margfalda verðmætið og atvinnu við framleiðsluna, nokkuð, sem íslendingar hafa rætt um í marga áratugi. En slík framleiðsla kostar mikinn undir- búning, mikla vinnu við breyting- ar á frystihúsum og öðrum vinnslustöðvum, að ekki sé talað um markaðssetningu matvæl- anna. Þama fást Iíka tækifæri til að ráða bót á þeim atvinnumissi í landi, sem fylgir. fjölgun frysti- togaranna. Afurðir þeirra má vinna í neytendapakkningar og stórauka útflutningsverðmætið í leiðinni. Hin höfuðatvinnugrein lands- manna, sem á við samdrátt að stríða, er landbúnaðurinn. Með auknu fijálsræði bænda til að ráða framleiðslu sinni sjálfir skap- ast örugglega miklir möguleikar í framtíðinni. Gæði íslenzkrar búvöru eru mikil og þær eru ómengaðar. Neytendur um allan heim gera sívaxandi kröfur í þeim efnum. Dæmi um það, hvað getur gerzt, þegar bændur taka málin í eigin hendur, er útflutningur á hrossakjöti til Japans. Þar hefur kröfum markaðarins verið sinnt og svo gott verð hefur fengizt, að ekki hefur þurft neinar útflutn- ingsbætur. Nú er svo komið, að útflytjendur skortir kjöt til að fullnægja eftirspurn. í þessu sam- bandi má einnig benda á, að yl- rækt er talin eiga mikla mögu- leika á útflutningi í framtíðinni vegna kosta jarðhitans og nýjustu lýsingartækni til að vinna gegn myrkri skammdegisins. Hér hefur fyrst og fremst verið minnst á möguleika höfuðat- vinnugreinanna gömlu, því þar kreppir skórinn mest, en aðrar greinar eiga ekki síður mikla möguleika til vaxtar og nýsköp- unar. Tækifæri iðnaðarins eru nánast óendanleg, þegar sam- keppnisaðstaða hans hefur verið tryggð, og það sama má segja um ferðaþjónustu og nýja at- vinnugreinar eins og t.d. fjár- málaþjónustu og iðnað á sviði líf- tækni og hugbúnaðar. Síðast en ekki sízt má nefna nýtingu jarð- hita og orku fallvatna til stóriðju til að skjóta nýjum stoðum undir íslenzkt atvinnu- og efnahagslíf. Aðgerðir til að draga úr at- vinnuleysinu, sem er fyrir dyrum, eru nauðsynlegar, en mikilvægast er, að ríkisstjórnin og atvinnufyr- irtækin, með stuðningi verkalýðs- hreyfingarinnar, hefjist þegar handa um að nýta þau sóknar- færi, sem eru fyrir hendi, til ný- sköpunar og uppbyggingar at- vinnulífsins. Morgunblaðið lagði þá spumingu fyrir Asgeir hvert hann teldi vera hagkvæmasta fiskvinnslukerfið ef miðað væri við að starfsfólk frystihús- anna í landi fengi ekki vinnu vegna aukinnar sjófrystingar og fiskverkun- arhúsin yrðu ekki tekin til annara nota. „Ef vinnuafl og fjármagn eru full- nýtt, atvinnugreinum ekki mismunað og markaðir í jafnvægi þannig að verð og laun endurspegla réttilegar kostnað og ábata af rekstri er arðsem- in rétti mælikvarðinn á hagkvæmni," segir Ásgeir. „Við þessi skilyrði er enginn munur á rekstrarlegri og þjóð- hagslegri hagkvæmni. Ef atvinnuleysi er til staðar gildir þetta ekki. Þjóðhagslegur kostnaður við notkun á vinnuafli sem verður atvinnulaust ef ákveðinni starfsemi er hætt er ekki jafn launum þess heldur eitthvað lægri. Ef vinnuaflið verður varanlega atvinnulaust þá má segja að þjóðhagslegur kostnaður við notkun þess sé enginn. Uttektir og áætlanir Þjóðhags- stofnunar undanfarin ár á rekstrar- afkomu sjávarútvegsfyrirtækja sýna að frystiskip eru arðsömustu rekstr- areiningarnar. Þessi niðurstaða mundi ekki breytast þótt tekið væri tillit til viss aðstöðumunar á milli sjó- vinnslu og landvinnslu eins og sjó- mannafrádráttar, aðstöðugjalds og fleira en yfirburðir sjóvinnslu mundu þó _minnka.“ Ásgeir segir að þegar leggja skal mat á núverandi atvinnuástand komi mörg álitamál upp við mat á áhrifum þess á arðsemi/hagkvæmni einstakra kosta. „Er þjóðhagslegur kostnaður við notkun á vinnuafli 5%, 10% eða 20% lægri en greidd laun?,“ segir Ásgeir. „Svarið ræðst af því hvaða möguleika við teljum að hagkerfið hafi. Ég tel að það sé fullmikil svart- sýni á möguleika íslensks hagkerfis að meta þjóðhagslegan kostnað við nýtingu vinnuafls og fjármagns jafn- an á núlli vegna þess að það sé eng- inn annar möguleiki á nýtingu þess. En ef við gefum okkur að svo sé er rétt að líta á hagnaðinn eftir að búið er að leiðrétta reikninga fyrirtækj- anna og setja laun og fjármagns- kostnað fyrirtækjanna jafnan núlli sem mælikvarða á þjóðhagslega hag- kvæmni. Þessi hagnaður er jafn svo kölluðu vinnsluvirði." Ásgeir bendir á að í lauslegri áætl- Davíð sagði að aflokinni skoðun á rekstri allra eininga eftir sumarið væri ljóst að draga þyrfti nokkuð saman seinni hluta ársins til þess að ná fram sparnaðaráformum. Þannig hefði komið upp sú hugmynd að loka Fæðingarheimilinu síðustu mánuði ársins til þess að að rekstur un sem Þjóðhagsstofnun gerði fyrir Aflamiðlun snemma á þessu ári og greint var frá í Morgunblaðinu í gær- dag er vinnsluvirði á hvert kg. af fiski upp úr sjó hæst í sjófrystingu sem bendir til að sjófrysting sé einnig hagkvæmust á þennan mælikvarða. „Vegna þess að vinnsluvirðið er hærra í sjófrystingu en annarri vinnslu er hægt að auka þau verð- mæti sem unnin verða úr þeim fiski sem leyft er að veiða á næsta fisk- veiðaári með því að auka sjófryst- ingu,“ segir Ásgeir. „En með því er auðvitað ekki sagt að verðmætasköp- unin yrði mest ef allur fiskur væri sjófrystur. Þetta þýðir að með meiri tekjum af sjófrystingu væri hægt að greiða þeim sem yrðu atvinnulausir við að landvinnslan flyttist út á sjó jafnvirði þeirra launa sem þeir höfðu en borga þeim sem fengju vinnu á frystiskipum þó hærri laun en þeir höfðu við vinnsluna í landi. í raun- veruleikanum er slíkt millifærslukerfi ekki til. Flutningur á fiskvinnslu út á sjó leiðir til þess að til verða störf sem gefa mjög há laun á sama tíma og einhveijir verða atvinnulausir. Sumir hagfræðingar telja að ekki sé hægt að gefa einhlítt svar við því hvað sé best ef sumir hagnast en aðrir tapa. Velferð sé svo persónuleg að ekki sé hægt að bera saman vel- ferðarábata þeirra sem bæta stöðu sína og velferðartap þeirra sem koma verr út. Aðrir telja að ef þeir sem bæta stöðu sína gætu bætt þeim sem tapa upp skaðann sé breytingin rétt- lætanleg, jafnvel þótt þessi milli- færsla sé ekki framkvæmd." Ásgeir segir að þessar vangaveltur gætu bent til þess að ástæða væri til að telja launakostnað í landvinnslu ofmetinn vegna þess að það fólk sem vinnur í fiskvinnslu í landi eigi erfið- ara um vik að fá aðra vinnu en til dæmis þeir sem vinna á frystiskipum. „Útreikningar þar sem gengið væri út frá slíkri forsendu mundu sýna þjóðhagslega hagkvæmni landvinnsl- unnar meiri en ella,“ segir Ásgeir. „En á hitt er að líta að mikil ásókn er í pláss á frystiskipum sem bendir til að laun þar séu í hærra lagi en aftur á móti er erfítt að fá fólk í fiskvinnslu í landi sem bendir til að laun þar séu frekar of lág. Útreikningar sem tækju tillit til þessara atriða mundu sýna meiri þjóðhagslega hagkvæmni sjó- frystingar." kvennalækningasviðs Landspítala væri innan fjárlaga. „Síðan hefur alltaf staðið til að gera fjárlaganefnd grein fyrir þeim kostum sem fyrir hendi eru við framtíðarrekstur Fæð- ingarheimilisins. Kemur þá í ljós hver vilji Alþingis er fyrir því að reka Fæðingarheimilið og með hvaða - segja þau Vald- as Dambrava og Rasa Bityte UNDANFARNAR fimm vikur hefur hér á landi dvalist 12 manna hópur Litháa. Þeir eru hingað komnir í boði ríkisstjórn- arinnar og tóku þátt í umfangs- miklu stjérnunarnámskeiði hjá Stjórnunarfélagi íslands. Hópur- inn á allur að baki háskólanám og starfar nær allur við stjórnun fyrirtækja í Litháen. Á námskeið- inu var farið yfir alla þætti stjórnunar fyrirtækja svo sem markaðssetningu, áætlanagerð og gæðastjórnun. Þar að auki kynntist hópurinn íslenskum fyr- irtækjum og fékk hjá þeim nokkra starfsþjálfun. Hópurinn kynntist einnig íslensku þjóðfé- lagi því allir gistu á vegum Lions og JC-hreyfinganna hjá íslensk- um fjölskyldum. Litháarnir 12 eru flestir búsettir í höfuðborg ríkisins, Vilnius. Þeir hafa allir stundað nám í þarlendum háskólum og hafa menntað sig í fjölbreyttum greinum en eiga það sameiginlegt að starfa að verslun og viðskiptum. Það kom fram í máli þeirra að eftirsótt hefði verið að komast til íslands á þetta nám- skeið og þurftu þau meðal annars að gangast undir próf. Að því loknu voru 12 valin til fararinnar. Morgunblaðið ræddi við tvo ein- staklinga úr hópnum, þau Valdas Dambrava, en hann hefur lært verslunarhagfræði, og Rasa Bityte hætti," sagði Davíð. Hann sagði að rekstur Fæðingar- heimilisins í framtíðinni væri auðvit- að það sem mestu máli skipti og nokkrar hugmyndir hefðu komið fram um hann. „Einn af þeim kostum sem við höfum verið að skoða í því sambandi er að semja við ljósmæður um að þær tækju að sér rekstur Fæðingarheimilisins, og þá jafnvel sem verktakar. Væri þá miðað við að þar færu fram áhættulitlar fæð- ingar,“ sagði Davíð en í samtalinu kom m.a. fram að ein af þeim hug- myndum sem hefðu komið upp væri að koma á fót sams konar aðstöðu á kvennadeildinni og verið hefði á Fæðingarheimilinu. f máli Davíðs líffræðing. Þau voru sammála um að dvölin hér hefði verið sérstaklega lærdómsrík, en bæði gengu þau í gegnum fimm vikna námskeið hjá Stjórnunarfélagi íslands. Þau telja íslendinga vinna mikið en elggja jafnframt áherslu á að hugarfar þeirra gagnvart vinnu sinni sé mun heilbrigðara en í heimalandi þeirra. „Þar kennir ennþá áhrifa Sovétríkj- anna sálugu," segir Valdas. Að mati beggja er ávinningur af námi þeirra og starfsþjálfun aug- Ijós. Þau muni miðla þekkingu sinni í fyrirtækjum sínum og kynna þar vestræna viðskiptahætti. Auk þess hafi þau leitast við að mynda sam- bönd við íslensk fyrirtæki, sem komið geti báðum aðilum vel. Það var samdóma álit þeirra að nauð- synlegt væri fyrir litháískt við- skiptalíf að tengjast fyrirtækjum á Vesturlöndum. Litháarnir kynntust ekki einasta íslensku viðskiptalífi heldur og ís- kom þó fram að sú hugmynd gæti orðið dýr í framkvæmd. „Hún stend- ur í okkur, a.m.k. núna, en er þó eitt af því sem við munum gera fjár- laganefnd grein fyrir hvað muni kosta,“ sagði hann. Davíð sagði að Ríkisspítalar hefðu fengið 20 milljónir til að reka Fæð- ingarheimilið á árinu 1992. „Við höfum síðan fengið 18 milljóna króna reikning frá Borgarspítalanum fyrir fyrstu þijá mánuðina sem þýðir að við hefðum tvær milljónir til að reka heimilið í níu mánuði ef við borguð- um þann reikning. Það segir töluvert um þann möguleika sem við eigum til að halda úti öflugri starfsemi á iFæðingarheimilinu," sagði hann. lensku þjóðlífi. Lions og JC hreyf- ingamar sáu um að útvega fólkinu gistingu en öll gistu þau hjá íslensk- um fjölskyldum. „Ég er svo hepp- in,“ segir Rasa, „að hvar sem ég hef komið þá hef ég aðeins kynnst indælu fólki sem ætíð var tilbúið að aðstoða mann. Ég mun því minn- ast Islendinga af góðu einu.“ Að lokum vildi Valdas fyrir hönd samferðamanna sinna þakka ís- lendingum og íslensku ríkisstjóm- inni fyrir það tækifæri, sem þeim hafí verið veitt með komu sinni hingað. Hér hafi þau kynnst vest- rænni menningu og nútíma við- skiptaháttum og með prófskírteini héðan ættu þau möguleika á betri störfum og hærri launum í heima- landi sínu. „Þið hafið verið einstak- lega þolinmóð og umhyggjusöm gagnvart okkur og þáð hefur verið ómetanleg reynsla að kynnast ís- lenskum lífsstíl og íslenskri menn- ingu,“ sagði Valdas að lokum. Aðspurður sagði Davíð að með hagræðingu gæti kvennadeild tekið við öllum fæðingum af Fæðingar- heimili í nokkra mánuði en hann vonaði að sú hugmynd að opna Fæð- ingarheimilið að nýju fengi náð fyrir augum Alþingis. Elínborg Jónsdóttir, forstöðukona Fæðingarheimilis, sagðist ekki sjá annað en að Ríkisspítalar yrðu í stöð- unni að loka Fæðingarheimilinu tímabundið. Hún kvaðst hins vegar fagna því að framtíðarrekstur heim- ilisins yrði loks ræddur. „Það er mjög erfitt að vera vandræðabarn mjög lengi eins og við höfum verið þegar stofnunin fær þessa sendingu án rekstrarfjár og heimilið verður einungis baggi. Því er vonandi að framtíðarlausn í takt við tímann finnst. Það er geysileg þróun í gangi og maður vonar að sátt náist og vit- rænar áætlanir inn í framtíðina,“ sagði Elínborg en aðspurð sagði hún að ekki hefði verið kannað hvort verktakarekstur ljósmæðra væri raunhæfur kostur. Rætt er um að loka Fæðingar- heimilmu síðustu mánuði ársins DAVÍÐ Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítala, segir að rætt hafi verið um að loka Fæðingarheimilinu við Eiríksgötu síðustu mánuðu ársins til að ná endum saman. Hann segir að fjárlaganefnd Alþingis verði gerð grein fyrir því hvaða leiðir yrði hægt að fara varðandi framtíðar- rekstur heimilisins við fjárlagagerð. Meðal þess sem rætt hefur verið um er að ljósmæður reki heimilið sem verktakar. Elínborg Jónsdótt- ir, forstöðukona Fæðingarheimilisins, segir að ekki sé hægt taka af- stöðu til þessa kosts þar sem ekki hafi verið kannað hvort hann sé raunhæfur. Stúlkan er vann liug og hjarta Bobby Fischers Frá Margeiri Péturssyni, fréttaritara Morgunblaðsins í Sveti Stefan, SvartQallaiandi. HÚN VARÐ nitján ára á mánudaginn, er fremur þybbin með þykk gleraugu og minnir mest á dugnaðarlega menntaskólastúlku. Það er þó Zitu Rajcanji frá Búdapest sem skákunnendur eiga það fram- ar öðrum að þakka að bandariski skáksnillingurinn Bobby Fischer er sestur að tafli á nýjan leik eftir hvorki meira né minna en 20 ára fjarveru frá taflmennsku. Hann teflir nú æsispennandi einvígi við Boris Spasskí á sumardvalarstaðnum Sveti Stefan i Svartfjalla- landi. Samband þeiura Bobby og Zitu er náið. Þau hafa meira og minna verið samvistum frá því í apríl í vor og á opnunarhátíð einvígisins sátu þau saman við háborðið ásamt Boris og Marinu Spasskí og serbn- eska fjármálamanninum Jezdimir Vasiljevic og konu hans. Vasiljevic reiðir fram á að giska 10 milljónir Bandaríkjadala, eða jafnvirði 530 milljóna ísl. króna til að mæta öll- um kröfum Fischers og til að koma einvíginu á. Opnunarhátíðina bar upp á afmælisdag Zitu og það eru vafalaust fáar átján ára stúlkur sem eyða honum á svipaðan hátt. Borðbúnaðurinn fyrir pörin þrjú við háborðið var úr skíra gulli, gamalt góss úr hinu forna virki, -Sveti Ste- fan. Ég hitti Zitu að máli um hádegis- bilið, daginn eftir að Fischer vann glæstan sigur í fyrstu einvígisskák- inni gegn Spasskí. Zita talar mjög góða ensku, faðir hennar starfaði um tíma í New York og þegar Zita var ellefu ára bjó hún þar í eitt ár. Hún féllst fúslega á að upplýsa íslenska lesendur um sjálfa sig og samband sitt við skáksnillinginn. Ég byrjaði á að spyija hana hvort hún væri ekki stolt yfir því að hafa komið þessu öllu af stað með því sð setja Fischer í samband við ungverskumælandi Serbann Janos Kubat sem nú stjórnar ein- víginu. „Jú, ég er dálítið stolt, en Bobby var orðinn tilbúinn til að tefla. Það sem ég gerði var bara að flýta fyrir því.“ Hvernig kynntistu Fischer? „Ég hef lengi haft áhuga á skák og þegar ég var sextán ára skrif- aði ég honum bréf. Ég veit ekki af hverju, ég bara varð að gera það. Ég fékk ekkert svar, fyrr en að allt í einu ári seinna, þá hringdi hann í mig frá Þýskalandi og sagði að pósturinn bærist sér seint. Hann var líka búinn að skrifa mér bréf og það fékk ég daginn eftir. Svo héldum við sambandi en ég hitti Bobby ekki augliti til auglitis fyrr en í apríl í vor þegar ég fór til hans í Los Angeles. Þá var ég hjá honum í sex vikur.“ En er Fischer ekki erfiður í umgengni? Zita brosti við þessari spurn- ingu: „Hann er ekki auðveldur, en þetta gengur einhvern veginn. Mér líkar mjög vel við hann. Bobby er frábær! Hann er líka heiðarlegasti maður sem ég hef kynnst. Hann trúir 100% á það sem hann segir og grínast ekki.“ Þarna átti Zita greinilega við umdeildar yfirlýsing- ar Fischers á blaðamannafundinum fyrir einvígið. „Margt fólk reynir að leika einhvers konar hlutverk og segja það sem ætlast er til af því, en Bobby kemur til dyranna nákvæmlega eins og hann er klæddur." En hvað segja foreldar Zitu um samband hennar við Fischer, sem er 30 árum eldri? „Þau eru hæstánægð. Bobby hefur heimsótt þau með mér í Búdapest og það gekk allt mjög vel.“ Zita teflir sjálf og er með 2.110 ELO-skákstig. Á afmælisdaginn kom hún frá Búdapest þar sem hún sigraði í stúlknameistaramóti Ung- veijalands. í næsta mánuði fer hún til Argentínu og teflir á heims- meistaramóti stúlkna 20 ára og yngri og í desember keppir hún á Kvennameistaramóti Úngveija- lands. í fyrra tefldi hún á heims- móti stúlkna 18 ára og yngri í Zita Rajcanji Brasilíu, en var óánægð með ár- angurinn. Eg spurði hvort Fischer hefði kennt henni. „Nei, hann hefur aldrei tekið mig í tíma, en ég er oft með hönum þegar hann er að rannsaka skákir. Ég kem stundum með uppástung- ur, en oft eru þær fáránlegar. Hann er samt alltaf mjög þolinmóð- ur við mig. Mér finnst ég læra mikið, bara af því að horfa á hann fara yfir skákir og athuga nýja möguleika.“ En hvað skyldu 19 ára stúlka og miðaldra skáksnillingur eiga sameiginlegt fyrir utan skákina? „Við höfum bæði áhuga á tónlist en alls ekki samskonar. Ég hlusta mest á þungarokk." 1 þann mund kom einn skák- stjóranna og tilkynnti að hann gæti útvegað Fischer spólu með Tom Jones. „Þarna sérðu, hann er mest í gamla tímanum í tónlist. Ég hef líka áhuga á bóklestri og „rugluðu fólki“,“ bætti Zita við án þess að útskýra það nánar. „Mig langaði líka einu sinni til að læra sálfræði eða eitthvað um starfsemi mannsheilans. Svo kann ég vel við mig úti í náttúrunni og ég elska dýr.“ Hún og Fischer hafa fengið sér sundsprett í volgu og notalegu Adríahafinu. „Hér er gott að vera, ég verð hér á einvíginu þangað til ég fer til Argentínu," sagði Zita. En hver eru framtíðaráfórmin? „Ég er búin að ljúka mennta- skólanámi, en hef engin áform að fara í háskóla. Nú er það skákin sem á hug minn allan.“ Er Fischer mjög iðinn við æfing- ar? „Bobby hugsar eiginlega bara um skák. Hann er alltaf að velta fyrir sér nýjum möguleikum. Það er alveg sama hvar hann er, í veislu eins og á opnunarhátíðinni, við matarborðið, það gengur allt út á eitt. Hann getur líka setið við og æft sig tímunum saman." En þessi 20 ár sem hann var frá keppni? „Ég held að þá hafi gegnt sama máli. Skákin hefur alltaf verið líf hans.“ Ég rifjaði það upp að snemma á sjöunda áratugnum sagðist Fisc- her geta gefíð hvaða konu sem væri riddara í forgjöf og samt ver- ið öruggur með sigur. Á blaða- mannafundinum umtalaða sagðist hann líka hafa efasemdir um Judit Polgar. „Hann átti nú bara við það að faðir Polgarsystranna hafði verið með miklar yfirlýsingar um það að Judit verði heimsmeistari karla. Bobby hefur efasemdir um það. Hvað mig varðar, þá þigg ég ekki forgjöf frá neinum. Ekki einu sinni frá Bobby. Við teflum stundum léttar skákir og þá leggur hann sig allan fram. Ég mundi heldur ekki líða annað, en auðvitað vinnur hann alltaf." Það var borin fram léttur há- degisverður og á meðan við snædd- um hann röbbuðum við Zita um heima og geima. Ég sagði henni frá heimsmeistaraeinvígi Fischers og Spasskís í Reykjavík árið 1972, sem haldið var árið áður en hún fæddist, og að ég og margir jafn- aldrar mínir hefðum þá fengið mikinn áhuga á skák. Hún spurði um taflmennsku íslenskra kvenna og ég varð því miður að svara því til að síðast hefðu íslendingar sent kvennasveit á Ólympíuskákmót árið 1984. Við hefðum átt hæfi- leikamiklar stúlkur eins og Guð- fríði Lilju Grétarsdóttur, nýbakað- an íslandsmeistara, sem náði al- þjóðlegum meistaratitli kvenna í fyrsta skipti sem hún fékk tæki- færi á því. Nú sé hún hins vegar að fara til náms við Harvard- háskóla í Bandaríkjunum og yrði að leggja taflið á hilluna í bili. Zita sagði að Fischer teldi sig aldrei hafa fengið gott tilboð um að snúa aftur fyrr en núna. Hún spurði af hveiju íslendingar hefðu ekki reynt að fá hann til að téfla og ég svaraði því til að ýmsir aðil- ar íslenskir hefðu verið viðriðnir slíkar tilraunir en að reiða fram jafnháar fúlgur og Vasiljevic væri ofviða íslenskum aðilum. Talið barst að harðorðum um- mælum Fischers á blaðamanna- fundinum um Kasparov og sögum um bellibrögð rússneskra skák- manna. Zita sagði m.a. þetta: „Bobby sá fyrir nokkrum árum myndbandsupptöku frá einvígi Kasparovs og Shorts í London. A meðan andstæðingurinn hugsaði handlék Kasparov riddára í sífellu sem Bobby segir að hlyti að hafa truflað Short. Við slíka hluti líkar Bobby ekki.“ Ég kvaddi að lokum þessa gæða- legu og rólyndu stúlku og bað hana að flytja kveðju íslenskra skák áhugamanna til Fischers og segja honum að grannt væri fylgst með í Reykjavík. Sú von fékk byr undir báða vængi að Zita verði til að milda ofsann sem stundum ríkir huga snillingsins og skapa honum aðstæður til að helga sig skáklist- inni óskiptur. Fischer fann ekki vinning BOBBY Fischer átti and- vökunótt eftir hina æsi- fengnu aðra einvígisskák við Spasskí. Fischer leitaði alla nóttina að vinningsleið en komst skv. áreiðanlegum heimildum að þeirri niður- stöðu að ekki hefði verið unnt að bijóta hatramma vörn Spasskís á bak aftur. í 50. leik gat Fischer knúið fram endatafl með hróki og peði gegn stökum biskupi and- stæðingsins, sem yfírleitt er unnið, en í þessu tilviki hefði það ekki dugað til. Janos Kubat mótsstjóri og Lothar Schmidt yfírdómari ít- rekuðu enn í dag þær óskir að Friðrik Ólafsson taki við yfir- dómarastöðunni. Ekki hefur fengist svar frá Friðriki sem staddur er í sumarleyfí á Ítalíu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.