Morgunblaðið - 05.09.1992, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992
25
Minning
Þórunn Jónsdóttir
frá Einarsnesi
Fædd 20. september 1894
Dáin 28. ágúst 1992
Hún amma mín, Þórunn Jónsdótt-
ir frá Einarsnesi, andaðist í Reykja-
vík í hárri elli föstudaginn 28. ágúst
sl. og verður í dag flutt í átthaga
sína til hinstu hvíldar. Úr héraðssög-
um Borgarfj'arðar er talað um ætta-
róðul og ættarþrótt. Ömmu var það
meðfætt að unna bernskustöðvum
sínum og una þar. Að ömmu í móður-
ætt stóðu merkar ættir. Eru það
Lundaættin frá Ólafi lögréttumanni
og Ásbjarnarstaðaættin frá Halldóri
fróða. Þessar tvær ættir tengdust
með giftingu og sameinaðar nefnast
þær Helgavatnsætt. í föðurætt var
amma af Stephensen-, Ottsen-,
Scheving, Galtarholts- og Stórafjalls-
ætt. Margar framangreindra ætta
má rekja til hinnar fornu Einarsnes-
ættar þeirra feðga Sigurðar Jónsson-
ar sýslumanns í Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu, lögmanns að austan og
sunnan og Jóns Sigurðssonar sýslu-
manns.
Þórunn amma mín var fædd í
Galtarhalti í Borgarhreppi 20. sept-
ember 1894. Foreldrar hennar voru
hin nafnkunnu og mikilsvirtu sæmd-
arhjón Jón Jónsson landpóstur og
kona hasn, Sigríður Guðmundsdóttir.
Bernskuheimili nmmu í Galtarholti
var stórt og umfangsmikið. Auk
fjölda vinnufólks var oft húsfyllir af
aðkomufólki og var allt heimilisfólkið
samhent í þvf að gera heimilið rausn-
arlegt og skemmtilegt. Það þurfti
því mikinn skörungsskap og dugnað
til hússtjórnar og fór amma mín
ekki varhluta af því. Ferðalangar
voru oft langt að komnir, hraktir og
blautir af vondum vetrarveðrum. Þá
voru búin upp rúm, jafnt að nóttu
sem degi, ferðafötin þurrkuð og beini
veittur af velþeginni umhyggju og
velvild. Eins komu ættingjar og vinir
til skemmri og lengri dvalar. Fáir
spiluðu og sungu jafn vel og bræð-
urnir hennar ömmu í Galtarholti og
var oft glatt á hjalla.
Amma stundaði nám við Hús-
stjórnarskólann í Reykjavík og var
þar síðan aðstoðarkennari einn vet-
ur. Amma áttrmarga hesta en þó
var Jarpur henni minnisstæðastur. Á
honum fór hún ríðandi í söðli til
Reykjavíkur á leið til Gullfoss og
Geysis með frænkum sínum þeim
Andersensystrum og öðrum vinum.
Mynd var tekin af henni á Jarpi fyr-
ir framan Aðalstræti 6 í Reykjavík
og var sú mynd birt í Tímanum í
greinarflokknum Byggt og búið í
Reykjavík. Hann var eins og hugur
manns sagði amma. Engan hest hef
ég þekkt betri.
Afa mínum, Guðmundi Jónssyni
frá Valbjarnarvöllum, f. 13 maí 1889,
d. 2. janúar 1959, giftist amma 19.
febrúar 1916. Þau bjuggu á Val-
bjarnarvöllum í Borgarhreppi þar
sem afi var hreppsnefndaroddviti
1931-38 og hreppstjóri 1932-1958.
Afi lærði orgelleik hjá Runólfi Þórð-
arsyni í Síðumúla. Hann var í ungl-
ingaskóla Sigurðar Þórólfssonar og
Hvítárbakkaskóla 1905-6. Hann
L
kenndi jafnframt söng við skólann.
Barnakennari var hann í Borgar-
hreppi 1909-10. Auk þess kenndi
hann orgelleik á heimili sínu á Val-
bjarnarvöllum. Upp úr svokallaðri
spönsku veiki veiktist afi alvarlega
af asma og varð ekki samur eftir
það. Því reyndi meir á stjórnsemi,
hagsýni og verkhyggni ömmu og
hvað þurfti að segja fyrir um. Afi
var hins vegar bókhneigður og rit-
elskur trúmaður.
Hjónaband afa og ömmu var með
afbrigðum gott og má þar sérstak-
lega nefna samlyndi þeirra hjóna.
Heimili þeirra var yfirlætislaust en
gestrisni mikil. Afi var eftirsóttasti
hljómlistarmaður nálægra sveita
hvort sem var við orgelleik í kirkjum
eða við sérstök tilefni svo sem eins
og hreppsmót, jólagleði og önnur
mannamót. Afi spilaði við messur í
mörgum kirkjum í Borgarfirðinum,
en við Stafholtskirkju spilaði afi frá
10 ára aldri tii dauðadags. Sem bam
fylgdi ég afa og ömmu oft til kirkju.
í íslenska búningnum íklæddist
amma mín uppruna sínum og varð
prýði ættar sinnar allrar, einnig
sveitar og héraðs. Og þegar mildur,
blæbrigðaríkur orgeltónninn hans
afa í kirkjunni fyllti hugann ró í tón->
verkinu Áve Maria þá var notalegt
að 'stinga lítilii hendi i mjúka hlýja
hönd ömmu. Það var hlýja bæði utan
og innan.
Börn afa og ömmu voru móðir
mín, Sigríður, f. 11. desember 1916,
gift Sigþóri föður mínum bónda og
hreppstjóra í Einarsnesi, f. 28. janú-
ar 1918, d. 23. janúar 1981, og Jón
Agnar, f. 9. janúar 1920, d. 7 apríl
1944. Eftir að afi og amma hættu
búskap fluttu þau sem heimilisfólk
til föður míns og móður. Amma fór
ekki varhluta af erfiði og örðugleik-
um lífsins. Auk langvarandi heilsu-
leysis og andláts einkasonarins, Jóns
Agnars, og asmaveiki afa míns var
heilsa ömmu minnar tæp um nokk-
urt skeið. Á árinu 1934 lá hún sumar-
langt á sjúkrahúsi eftir þunga skurð-
aðgerð. Á því tímabili brann íbúðar-
húsið á Valbjarnarvöllum og misstu
amma og afi mestallt innbú sitt og
fatnað. Ibúðarhúsið var gjörónýtt.
Smiður var fenginn frá Borgamesi
og var húsið endurbyggt að mestu
áður en vetur gekk í garð. Síðari
húsbruni á heimili ömmu var í Ein-
arsnesi 3 júní 1988 en þá bjó móðir
mín þar eftir lát föður míns ásamt
ömmu. Húsið gjöreyðilagðist og var
ekki endurbyggjanlegt. Þá fór amma
í sína síðustu Reykjavíkurferð. Eftir
þriggja ára dvöl slasaðist hún alvar-
lega á sjúkrahúsi. Hún gekkst undir
stóra skurðaðgerð síðastliðið haust
og hafði ekki fótaferð eftir það.
Sem endranær féll ekki æðruorð
af vörum ömmu þrátt fyrir níutíu og
sjö ára aldur og aldrei kom það fyr-
ir að minni hennar biygðist og fylgd-
ist hún með atburðum líðandi stund-
ar hjá öllum sínum afkomendum til
dauðadags. Þegar kemur að síðustu
kveðjustundinni og engin orð geta
borist á milli leita einungis tilfinning-
Haustsýning í Klausturhólum
Urval gamalla meistara
HIN ÁRLEGA haustsýning
Klausturhóla, listmunahúss á
Laugavegi 25, opnar í dag, laugar-
dag.
Á þessari sýningu er dregið fram
úrval íslenskrar listar þessarar ald-
ar, 1900-1970: Húsafellsmynd eft-
ir Ásgrím Jónsson, hin fræga mynd
sama málara, Hjaltastaðabláinn frá
1926, myndir Jóns Stefánssonar frá
bestu árum málarans: Eiríksjökull
og úr Mosfellssveit, mildar og skýr-
dregnar olíumyndir, stórbrotnar
myndir meistara Kjarvals, Þing-
vallamyndir, m.a. ein frá 1937, en
alls eru á þessari haustsýningu 17
málverk og myndir, litlar og stórar,
eftir Kjarval.
Málverk Kristínar Jónsdóttur eru
ekki oft á boðstólum, en á þessari
sýningu eru m.a. uppstillingar
blóma frá fimmta áratugnum, sem
margir álíta eitt besta tímabil lista-
kortunnar.
Nokkrar myndir eru eftir Jóhann
Briem, mannamyndir og uppstill-
ingar, einnig eftir Gunnlaug Blön-
dal; síldarsöltun, vatnslitamynd og
fleiri myndir, einnig málverk eftir
Jón Engilberts, Jóhannes Geir,
sterkar og lithlaðnar myndir úr
Skagafirði og víðar og nokkrar
myndir eftir Snorra Arinbjarnar og
Gunnlaug Scheving. Einnig eru
nokkrar gamlar myndir eftir Alfreð
Flóka, sem alltaf vekur jafnmikla
athygli.
Sýningin verður opin um þessa
helgi kl. 14-18 báða dagana.
ar á hugann og minningamar birt-
ast. Minningar um ógleymanlega
mannkosti, ástúð, trygglyndi og
umfram allt umburðarlyndi. Þórunn
amma mín tók á móti mér við fæð-
ingu og hélt mér fyrst allra í örmum
sínum. Hún hafði hlýjar, mjúkar og
gefandi hendur sem aldrei breyttust.
I kjöltunni hennar ömmu var auðvelt
að ferðast langa vegu. Til póstferða
hans langafa míns, þar sem þreyttir
og hraktir ferðalangar lentu í margri
svaðilförinni, í sleðaferðir með hon-
um afa mínum um sveitir, í kvenna-
skólann þar sem hún fröken Ingi-
björg kenndi hinar ströngu siðaregl-
ur borðsiða og fágun í framgöngu
og önnur óskyld ævintýri. Allar frá-
sagnir ömmu voru dulrænar, seið-
andi og rómantískar. Þær voru mér
sem lifandi reynsla sem vörpuðu ljósi
á persónur jafnvel gagnvart því fólki
sem ég hafði engan persónulegan
kunnugleika við. Nafninu mínu,
Helga, réð hún amma mín. Hana
dreymdi frænku sína, Helgu Anders-
en eldri, sem leiddi hana á grænt
gras. Helga bað ömmu: Láttu litlu
telpuna hennar Siggu dóttur þinnar
heita nafninu mínu, Helga, og henni
mun þá vel famast. Ég var skírð
Helga eftir draumnum.
Sterkasti þáttur í lífi og eðli ömmu
var móðurhlutverkið. Son sinn, Jón
Agnar, missti amma eftir Ianga og
þunga sjúkdómslegu aðeins tuttugu
og ijögurra ára gamlan. Það var
mikil raun góðrar móður að sjá á
bak eina syninum. Jón Agnar var
fríður sýnum og glæsilegur maður,
vel viti borinn, vinsæll af öllum sem
þekktu hann og listrænn líkt og forf-
eður hans þeir Guðmundur Stefáns-
son bóndi og silfursmiður á Kvíum
í Þverárhlíð, Þorbjöm Ólafsson
„ríki“, gullsmiður á Lundum, og
Ólafur Jónsson „himnasmiður", faðir
hans.
Samband móður minnar og ömmu
varði í 75 ár. Allan þann tíma ein-
kenndist hver samvistarstund af ást,
virðingu og umburðarlyndi sem þær
bám hvor til annarrar. Engan
skugga bar á samlyndi þeirra og
man ég ekki til að þeim hafði nokk-
um tímann orðið sundurorða. Það
þarf dugnað og skömngsskap til að
stjóma mannmörgu sveitaheimili
sem í Einarsnesi þannig að hver og
einn fjölskyldumeðlimur hafí sitt
hlutverk samkvæmt eigin getu.
Amma studdi móður mína dyggilega.
Á meðan móðir mín saumaði og
pijónaði á pijónavél pijónaði amma
alla þá sokka og allar peysur sem
heimilið þarfnaðist. Með álíka verk-
skiptingu úti og inni, nýtni og spar-
semi, risu upp ný útihús í Einars-
nesi, tún vom ræktuð, bústofni fjölg-
aði og glænýr lax fyllti netin. Einars-
nes varð að stórbýli. Ömmu var sér-
staklega umhugað um góða mennt-
un. Hún taldi ekki eftir sér að kenna.
Hún kenndi ekki aðeins mér lestur,
skrift, reikning og kvæði heldur einn-
ig syni mínum, Sigþóri Emi. Dóttir
mín, Þómnn Helga, sjö ára, kynnist
aðeins langömmu sinni níræðri og
verða því minningar mínar og ann-
arra að flytja henni sögu ömmu.
Eftir að samvistum í þessu lífi
lýkur er mikils virði að geta litið til
aftanskins minninganna og þakkað
fyrir að hafa kynnst jafn flekklausri
mannkostakonu.
Guð blessi ömmu mína.
Helga Sigþórsdóttir.
SAFIR
Ódýr, rúmgóður fjölskyldubíll
á góðu verði. Eins og aðrir
Lada bílar hefur Lada Safir
reynst afbragðsvel hérá
landi, enda kraftmikill og
sterkur.
Veldu þann kost,
sem kostar minna!
Opið 9-18,
laugard. 10-14
Bífreiðarog
landbúnaðarvótar hf,
Ármúla 13,
Suðurlaod8breut 14,
Sfmi681200.
Wterkurog
KJ hagkvæmur
auglýsmganiiöill!
NÚ GETUR ÞÚ EIGNAST
GLÆSILEGT HJÓLHÝSI
Á TILBOÐSVERÐI
Á næstu dögum seljum við nokkur ný Hobby
hjólhýsi og örfó notuð hjólhýsi með töluverðum
afslætti.
Aðeins er um að ræða fó hús og því um einstakt
tækifæri að ræða. Munið góð afborgunarkjör
okkar7 25% útborgun og eftirstöðvar til þriggja
óra.
Umboðsmenn okkar ero: BSA á Akureyri, Bílakringlan í
Keflavík og Bílasalan Fell á Egilsstöðum.
Gisli Jónsson & Co
Bíldshöfði 14 Sími 91-686644