Morgunblaðið - 05.09.1992, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992
fclk í
fréttum
TÍSKA
Sonurinn
drifinn á sviðið
Einn af starfsmönnum fata-
framleiðandans heims-
þekkta Hugo Boss, er Atli Sæv-
arsson, sonur Sævars Karls Óla-
sonar, klæðskera og umboðs-
manns Boss á íslandi. Fyrir
skömmu hélt fyrirtækið sýningu
á vor- og sumartískunni fyrir
árið 1993 í þýsku borginni Meitz-
ingen og var það viðamikil sýn-
ing. Stóð hún allan daginn og
voru gestir fjölmargir, bæði
áhugamenn um tísku og inn-
kaupastjórar verslana' hvað-
anæva að. Það vantaði karlmann
í tískusýninguna og var Atli grip-
inn glóðvolgur.
„Hann virtist smella inn í
ímyndina og hlutverkið. Það
spurðist að hann hefði lítillega
fengist við slíkt, að vísu bara
aðeins fyrir mig og hann var því
drifinn á sviðið,“ sagði Sævar
Karl í samtali við Morgunblaðið.
Sævar sagði að sonurinn hefði
ekki verið í slæmum félagsskap
á sviðinu, þar hefðu verið þekkt-
ir menn úr tískuheiminum, m.a.
Michael Flynn, „Boss-maðurinn“,
„líklega hæst launaði karlmaður-
inn í bransanum,“ sagði Sævar.
Sævar sagði enn fremur að í
fullri vinnslu væri síðara tölublað
tískublaðs þess sem fyrirtæki
hans gefur út til kynningar á því
sem verslanir hans hafa upp á
að bjóða hveiju sinni. „Það er
haust- og vetrartískan 1992,“
sagði Sævar Karl að lokum.
Atli Sævarsson á fullri ferð.
Þarna eru þeir nokkrir og sýna Iitskrúðuga vor- og sumartísku.
Atli er annar f.h.
ISLANDSMOTIÐ
SAMSKIPADEILD
• •
KOPAVOGSVOLLU R
- AÐALLEIKVANGUR
Breiðablik - ÍBV
laugardaginn 5. sept.
Id. 14.00
BYKO
Mætum öll
og tryggjum Breiðabliki
óframhaldondi setu í l.deild
SÖNGUR
Streisand hyggur
á tónleikaferðalag
ví er nú fleygt í Bandaríkjunum
að söng- og leikkonan Barbara
Streisand hyggi nú á hljómleikaför
um gervöll Bandaríkin. Ef af verð-
ur, verður það í fyrsta skipti sem
hún syngur gegn gjaldi allar götur
síðan árið 1970 er hún tróð síðast
upp í Las Vegas. Streisand hefur
sungið á góðgerðarsamkundum og
fyrir vini og ættingja í eigin afmæli-
sveislum, en tvo síðustu áratugina
hefur hún einbeitt sér að kvik-
myndaleik og ekki með þeim hætti
að sitja og bíða eftir því að einhver
leikstjóri eða framleiðandi komi til
hennar með gott handrit, heldur
með þeim hætti, að velja sjálf hand-
rit og framleiða síðan kvikmyndina
sjálf með sjálfa sig í aðalhlutverk-
inu.
Marty Erlichman, sem lengi hef-
ur gegnt starfi talsmanns Barböru
staðfestir að leikkonan hafi rætt
þetta mál oftar en einu sinni í seinni
tíð, en ekkert sé ákveðið og því
fari fjarri að hann sé farinn að taka
á móti bókunum. Telur Erlichman
að Streisand gæti rakað saman 100
Söng- og leikkonan Barbara
Streisand.
milljón dollurum á slíkri tónleika-
för, tekjustofnar séu margir, að-
gangseyrir, minjagripasala, sjón-
varps- og myndbandsréttindi,
hljómplötuútgáfa samhliða ferða-
laginu.
KÓNGAPÓLK
Rúnar Þór
og hljómsveit
skemmta gestum
Rauða Ijónsins í kvöld
Snyrtilegur
klœðnaður
Leitað að lekanum
_ K VV'' RflRINN
P
BARiNN
vib grensAsveginn
Siffil 33311
Hljómsveitin
Hafrót
Aðgangseyrir kr. 500,-
Snyrtilegur klæðnaður
Opiðfrákl. 19-03
Munið
sunnudagskvöldin
og Hilmar Sverrls
Skipast menn enn í tvær deildir
allt eftir því hvort þeir telja Díönu
seka eða saklausa af þeim áburði
að eiga sér leyndan ástvin.
Sagt er að stórfelld rannsókn
sé í gangi innan hallarveggja
bresku krúnunnar og eigi að leiða
það til lykta einu sinni fyrir allt
hvort að upplýsingalekinn mikli
síðustu vikur hafi verið meðal
starfsfólks hallarinnar. Því er
haldið fram á mörgum vígstöðvum
og svo langt er gengið, að sumir
fullyrða að Karl prins standi sjálf-
ur að baki rógsherferðar á hendur
Díönu þar sem honum sámi vin-
sældir hennar sem hann túlki að
séu á sinn kostnað.
Hvað sem þessu öllu líður þá
bíður almenningur í Bretlandi og
víðar spenntur eftir næstu tíðind-
um. Svo mörg hneyksli hafa
hrokkið á'færibandið síðustu miss-
eri að fólk telur af og frá að öllu
hafi verið tjaldað.
Myndin sem þessum línum fylg-
ir er af James Gilbey, meint-
um ástmanni Díönu prinsessu af
Wales. Umtalið um hann og meint
ástarsamband hans við lafði Dí
virðist vera að hjaðna, en hann fer
engu að síður enn huldu höfði.
Glaumgosinn og kappaksturs-
kappinn James Gilbey.
Hefst kl. 13.30 __________ j
Aðalvinninqur að verðmæti________ si
:________100 bús. kr.1 ____________ li
Heildarverðmæti vinninqa um — TEMPLARAHOLLIN
300 >US. kr. Eiriksgötu 5 — S. 20010