Morgunblaðið - 05.09.1992, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 05.09.1992, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992 *► I ' STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) fP* Þú ert mjög hrifinn af nýju verkefni og vinirnir standa með þér. Málin þróast þér í hag, en ekki rasa um ráð fram. Naut (20. aprfl - 20. maí) Þú undirbýrð mikilvægt verkefni í vinnunni í dag, en ættir ekki að reikna með að það skili árangri samstundis. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 5» Þú ert fullur af fjöri í dag og ættir auðveldlega að geta hresst félaga þinn. Réttu fram hjálparhönd þegar með þarf. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þú nærð góðum árangri í dag og ert ánægður með afköstin. En lífið er ekki eintómt strit og kvöldið ber fleira í skauti sínu. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Ásta- eða vinafundir ættu að veita þér mikla ánægju í dag. Njóttu frístunda og skemmtu þér vel. Meyja (23. ágúst - 22. september) Allt snýst í dag um heimil- ið og þú hefur í mörgu að snúast. Einbeittu þér að málefnum fjölskyldunnar. Vog (23. sept. - 22. október) Smáátak og sjálfsagi er allt sem þarf til að koma hugmyndum þínum í fram- kvæmd. En reyndu einnig að sinna félaga þínum. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þú hefur góða yfirsýn í peningamálum í dag og ættir að fínna góða leið til að drýgja tekjurnar. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) m Hressandi gönguferð skerpir hugann. Þú virðist hafa góða stjórn á gangi mála og vita hvenær þér ber að grípa i taumana. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú virðist vera að gera upp fortíðina og undirbúa framtíðina. Rólegur dagur, en þú afkastar miklu. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Það er eins og allt snúist um þig í dag. Leiðtoga- hæfileikar þínir eru aug- ljósir og þér gæti verið falið eitthvert ábyrgðar- starf. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) 'SL Þú ert fullur lífsorku og framkvæmir það sem þú ætlar þér. Aðrir reiða sig á að þú standir þig. Stjörnuspána á aó lesa sem dœgradvöl. Spár af pessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staöreynda. DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI UÓSKA FERDINAND 885 —i—i c r v on/iÁrÁi i/ olVIAr-lJLK THE CLAIM CHECK. 15 BI66ERTHAM THE 6A66A6E HANPLER.. Er þetta flugið til Hollywood? Þú hlýtur að vera sá Fæ ég farangurskvittun? sem tekur á móti far- angrinum, ekki satt? Farangurskvittunin er stærri en umsjónar- maður farangursins. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Einn af spilafélögum Zia Mahmood í síðari tíð er Skotinn Michael Rosenberg. Sá síðar- nefndi hefur reyndar verið bú- settur í Bandaríkjunum í 10 ár og spilar nú í Olympíuliði þeirra á Ítalíu. í tímaritinu Bridge Today segir Zia skemmtilega sögu af því hvernig hann ákvað að forða „uppáhalds Skotanum" sínum frá því að spila út tígli gegn 3 gröndum. Zia átti þessi spil í suður: Norður ♦ G853 ¥ G98542 ♦ - ♦ KG5 Sagnir fóru þannig af stað: Vestur Norður Austur Suður 1 grand Pass 2 grönd ? Zia þoldi ekki tilhugsunina að fá út tígul gegn 3 gröndum, sem lágu í loftinu, og stakk sér inn á 3 hjörtum. Hvínandi dobl hjá opnara og Skotinn í norður breytir í 4 tígla! Ekki alveg eins og Zia vonaði. Fjórir tíglar voru auðvitað doblaðir og Zia flúði fram að ná sér í kaffi. Tíu mínút- um síðar kemur hann aftur, til- búinn með afsökunarræðuna. Vestur Norður ♦ 1076 ’ ¥ — ♦ ÁKD98765 ^ ^ Austur ♦ KD92 ¥Á4 ¥ ÁK106 ¥ D73 ♦ 32 ♦ G104 ♦ Á102 Suður +D8643 ♦ G853 ¥ G98542 ♦ - ♦ KG5 „Einn niður," segir Rosenberg og er í hinu besta skapi. Austur hafði komið út með spaðaás og vestur tók næstu tvo slagi á hjonin. En hann reyndi svo að taka slag á hjarta, þannig að Rosenberg gat trompað og gaf síðan aðeins á laufásinn. Hinu megin tóku sveitarfélagar þeirra sama samning tvo niður þegar vestur fann að spila fjórða spað- anum og tryggja makker slag á tígul. Zia græddi þá á spilinu, þrátt fyrir allt. „Meðan ég man,“ sagði Ros- enberg. „Þakka þér fyrir að benda mér á gott útspil.“ Umsjón Margeir Pétursson A 27. minningarmótinu um Capablanca í Havana á Kúbu í sumar kom þessi staða upp í skák unga mexíkóska alþjóðameistar- ans Gilberto Hernandcz (2.480), sem hafði hvítt og átti leik, og D. Adla (2.470), Argentínu, sem er líka alþjóðlegur meistari. Það má ekki á milli sjá hvor verður á undan í sókninni, en hvítur varð fyrri til að taka af skarið: 26. Hxg6+! - hxg6, 27. Hgl - Re5, 28. Bxg6 - Dc3 (Hótar máti og vonast eftir drottninga- kaupum). 29. Bd3+ — Kf7, 30. Hg7+! - Ke8 (Eftir 30. - Kxf6, 31. Bg5+ - Kxg7, 32. De5+ get- ur hvítur hirt svörtu drottning- una). 31. He7+ og svartur gafst upp. Hernandez sigraði í B-riðlin- um á mótinu með yfirburðum. I A-riðlinum, sem var sterkari, varð alþjóðlegi meistarinn Urday frá Perú óvænt efstur og náði áfanga að stórmeistaratitli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.