Morgunblaðið - 05.09.1992, Síða 39
39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER-1992
KNATTSPYRNA / ÍSLANDSMÓTIÐ
toóm
FOLK
■ RÚNAR Kristinsson, fyrirliði
KR, heldur upp á 23. afmælisdag
sinn í dag, með því að leika gegn Þór.
■ LANGT viðtal er við Rúnar í
nýjasta tölublaði íþróttablaðsins. Þar
segist hann telja Salih Porca hjá
Val og Akumesinginn Arnar Gunn-
laugsson bestu menn íslandsmótsins
í sumar.
H RÚNAR var, í ofannefndu við-
tali, beðinn að benda á tvo leikmenn
axtharra liða sem hann vildi að lékju
með KR. „Ég held að það séu fáir,
sem myndu sleppa inn í KR-liðið, og
við þurfum ekki á neinum utan-
aðkomandi að halda sem stendur,"
er haft eftir Rúnari. En „ætli ég
myndi ekki velja Porca úr Val og
Kristján Jónsson úr Fram, fyrst ég
kemst ekki hjá því að nefna einhver
nöfn!" segir hann.
■ ÞJÁLFARAR nýliðanna tveggja
sem berjast á toppi 1. deildarinnar í
sumar, Guðjón Þórðarson og Sig-
urður Lárusson, léku saman í vöm
ÍA í átta ár, 1979-1986. Guðjón
þjálfaði síðan Sigurð og félaga í
Skagaliðinu 1987.
ÚTILEIKIR SAMTALS
u J T Mörk Mörk stl*r
5 2 1 14:5 35:16 36
6 1 1 13:2 27:9 34
3 2 3 10:10 29:15 31
4 3 1 16:5 29^17 28
2 1 5 12:15 23:23 22
3 1 4 12:13 21:26 18
2 “3 3 8:13 21:30 16
1 2 5 6:14 11:25 15
1 2 5 7:15 16:28 13
2 0 6 12:28 18:41 10
Botnbaráttan
Baráttan á botninum er ekki.
síður spennandi en á toppi deild-
arinnar. Fjögur lið eru enn .í fall-
hættu fyrir síðustu tvær umferð-
irnar, og nánast allt getur gerst.
Tapi ÍBV stigi í dag er liðið fall-
ið, en með sigri heldur það enn
í vonina um að halda sæti sínu.
Víkingi nægir eitt stig gegn Fram
á morgun til að vera ömggt um
áframhaldandi veru í deildinni,
þar sem ÍBV og KA mætast í
síðustu umferðinni. KA mætir
Val í dag, en mætir svo ÍBV í
Eyjum í síðustu umferðinni. Stað-
an er því í raun mjög óljós, og
allt eins líklegt að það ráðist ekki
fyrr en í síðustu umferðinni hlut-
skipti hverra það verður að falla
í 2. deild að þessu sinni.
Morgunblaðið/Ástvaldur
Arnar Gunnlaugsson, sem hér leikur á Víkinginn Þorstein Þorsteinsson, er markahæstur í deildinni með 13 mörk.
Hann varð íslandsmeistari í 2. flokki í fyrradag — fagnar hann öðrum meistaratitli'í dag?
HEIMALEIKIR
Leikir U J T Mörk
ÍA
ÞÓR
KR
VALUR
FRAM
FH
VÍKINGUR
UBK
KA
IBV
21:11
14:7
19:5
13:12
11:8
9:13
13:17
5:11
9:13
6:13
FH-ingar sterkari á pappímum
Lárus Sigurðsson, markvörður Þórs, hefur staðið sig mjög vel á fyrsta
keppnistímabili sem aðalmarkvörður 1. deildarliðs — hefur aðeins fengið á sig
9 mörk í leikjunum sextán, fæst allra.
Baráttan á toppnum
Sigri Akurnesingar FH-inga í dag eru þeir öruggir með Evrópusæti næsta
keppnistímabil og jafnvel sigur í deildinni, tapi Þór stigi í dag. Sigri bæði ÍA
og Þór, geri bæði jafntefli eða tapi bæði verður munurinn auðvitað óbreytt-
ur og þá verður viðureign liðanna á Akureyri um næstu helgi hreinn úrslita-
leikur. Tapi ÍA og Þór vinni fer Þór á toppinn, einu stigi upp fyrir ÍA. Tapi
bæði fer KR upp að hlið Þórs í annað sæti, en markatala ræður röðinni.
Þór hefur nú 18 mörk í plús en KR 14, þannig að KR þarf að vinna með
þriggja marka mun í dag til að ná öðru sætinu. KR á því enn fræðilega
möguleika á að verða meistari; tapi bæði ÍA og Þór í dag, leikur þeirra fari
svo jafntefli í síðustu sumferðinni og KR vinni Val verður KR með 37 stig
eins og ÍA, og þá ræður markatalan því hvort liðið verður meistari. ÍA hefur
nú 19 mörk í plús.
- segirGuðjón Þórðarson, þjálfari ÍAsem
haft hefurforystu síðan í 8. umferð og
gæti orðið meistari í dag með sigri á FH
SAUTJÁNDA og næst síðasta
umferð 1. deildar karla íknatt-
spyrnu, Samskipadeildarinnar,
fer fram um helgina. Fjórir leik-
ir í dag, og einn á morgun (við-
ureign Fram og Víkings) og er
staðan þannig að Skagamenn
gætu tryggt sér íslandsmeist-
aratitilinn í dag. Til þess að svo
verði þurfa þeir að sigra FH á
Akranesi og Þór að tapa stigi
gegn KR í Reykjavík.
ijú félög eiga möguleika á að
ná Evrópusætunum tveimur;
ÍA sem fær FH í heimsókn og stend-
ur best að vígi í keppninni um
meistaratitilinn og KR og Þór, sem
einmitt mætast á KR-vellinum.
Sallarólegir
Það var gott hljóð í fulltrúum
toppliðanna þriggja, sem Morgun-
blaðið ræddi við í gær. „Ég velti
mér ekkert upp úr stöðu annarra —
við einbeitum okkur að eigin verk-
efni. Ef það á fyrir okkur að liggja
að verða meistarar á morgun [í
dag], þá það. Ef það á að verða
tólfta september, þá það,“_ sagði
Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, og
bætti við: „Við erum sallarólegir."
Hann sagði alla leikmenn sína
ómeidda og tilbúna í slaginn, nema
Sigurð Jónsson sem hefur verið
meiddur undanfarið og er enn.
Þínir menn hijóta að vera mun
sigurstranglegri i leiknum í dag,
ekki satt?
„Nei — ekki miðað við landsliðs-
menn. FH-ingar hafa verið með
þrjá til fjóra menn í landsliði að
undanfömu en við engan. Andri
[Marteinsson], Óli [Ólafur Krist-
jánsson] og Höddi [Hörður Magnús-
son] hafa verið í landsliðshópnum
og Grétar [Einarsson] viðloðandi.
Hann verður reyndar í banni á
móti okkur, en samkvæmt þessu
em FH-ingar sterkari á pappím-
um,“ sagði þjálfarinn.
Guðjón sagðist ekki hafa átt von
á því í vor að LA yrði í þessari stöðu
nú, „að minnsta kosti ekki því að
við myndum leiða deildina mest allt
mótið. En á morgun [í dag] gætum
við tryggt okkur það* sem okkur
dreymdi kannski um, að ná Evrópu-
sæti,“ sagði hann. „En þetta er það
skemmtilega við fótboltann. Óviss-
an. Að vori er enginn möguleiki á
að segja til um það hvernig staðan
verður í september."
Getur allt gerst
Sigurður Lámsson, þjálfari Þórs-
ara, sem hafa komið mjög á óvart
í sumar, er ekki óvanur velgengni
því hann lék um áraraðir með liði
Skagamanna er það var upp á sitt
besta á síðasta áratug og var fyrir-
liði þess í nokkur ár. „Við förum
bara í þetta eins og venjulega —
reynum að hafa gaman af þessu,“
sagði Sigurður í gær er blaðið ræddi
við hann um leikinn í dag. „Fyrsti
leikur okkur í vor var úrslitaleikur,
og svo allir hinir líka!“ Sigurður
taldi liðin þijú, ÍA, Þór og KR öll
standa vel að vígi, en Akurnesingar
þó sýnu best. „Það getur allt gerst.,
Ég held þó að við eigum erfíðasta
prógrammið eftir, en það er ekkert
gaman að fótboltanum nema þetta
sé erfitt!" sagði Sigurður.
Erfiðasti leikur sumarsins
Atli Eðvaldsson, aðstoðarþjálfari
og leikmaður KR, sagði lið sitt eiga
möguleika á að ná Evrópusæti, sem
yrði frábær árangur, „en Þórsar-
arnir eru rosalega sterkir núna og
ætla sér í úrslitaleik gegn IA í síð-
ustu umferðinni. Ég held því að
þetta verði erfiðasti leikur okkar í
sumar,“ sagði hann um viðureign-
ina á KR-vellinum í dag. Atli sagð-
ist sannfærður um að Akumesingar
vinni FH í dag. „Skagamenn em
með rosalega sterkt lið. Em með
unga stráka sem eru lygilega góð-
ur. Þeir em með besta liðið og eiga
skilið að vera þarna uppi. Þeir fengu
eldskírn í 2. deildinni í fyrra og ég
er á því að ekki sé allt komið út
úr liðinu ennþá sem í því býr.“
Atli sagðist telja lið KR og Þórs
hafa komið mest allra á óvart í
sumar. „Þórsararnir vegna þess að
þeir komu upp úr 2. deild, en héldu
þó að mestu sínum mannskap og
bættu nýjum mönnum við, en við
vegna þess misstum tíu menn úr
átján manna hópi! Og það munar
.um minna.“ En Atli sagðist KR-
inga ekki sætta sig við neitt annað
en Evrópusæti.
Rúnar Kristinsson, fyrirliði KR,
heldur upp á 23ja ára afmæli sitt í dag.
Knattspyrna
LAUGARDAGUR
1. deild karla:
Akranes: ÍA-FH...................kl. 14
KR-völlur: KR-Þór ...............kl. 14
Akureyri: KA-Valur...............kl. 14
Kópavogur: UBK-ÍBV...............kl. 14
2. deild karla:
Selfoss: Selfoss-BÍ..............kl. 14
Þróttarv.: Þróttur - Ffylkir.....kl. 14
Keflavík: ÍBK-V(ðir..............kl. 14
ÍR-völlur: ÍR-Stjarnan...........kl. 14
Ólafsfjörður: Leiftur-UMFG.......kl. 15
3. deild:
Grenivík: Magni-Ægir...........,..ki. 14
Valhúsavöllur: Grótta - Þróttur N.kl. 14
Siglufjörður: KS - Tindastóll...kl. 14
Hvaleyri: Haukar-Völsungur......kl. 14
Borgarnes: Skallagr. - Dalvík...kl. 14
4. deild, úrslitakeppni:
Sandgerði: Reynir-Hvöt........kl. 17.30
Kópavogur: HK-Höttur..........kl. 17.3#-
SUNNUDAGUR
1. deild karla:
Laugardalsv. Fram - Vikingur....kl. 16
1. deild kvenna:
Þórsvöllur: Þór-Stjarnan........kl. 14
KR-völlur: KR-ÍA................kl. 14
Valsvöllur: Valur-ÞrótturN......kl. 13
Kópavogsvöllur: UBK-Höttur......kl. 14
Frjálsíþróttir
Brúarhlaupið fer fram á Selfossi f dag
14:00. Um 600 þátttakendur eru skráðir í
hlaupið.
UM HELGINA