Morgunblaðið

Dagfesting
  • fyrri mánaðurinoktober 1992næsti mánaðurin
    mifrlesu
    2829301234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678

Morgunblaðið - 04.10.1992, Síða 11

Morgunblaðið - 04.10.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. OKTÓBER 1992 B 11 Afmæliskveðja Þórður Olafsson frá Odda Tíminn æðir áfram. Mér fínnst eins og það hafí verið fyrir örfáum árum að ég sendi Þórði í Odda afmæliskveðju sjötíu og fímm ára. En staðreyndir tímatalsins sýna að liðin eru fímmtán ár - og Þjírð- ur þess vegna níutíu ára á mánu- daginn kemur, 5. október. Eg hefí verið að renna huganum yfír æskuslóðir mínar við Djúp vestur. Það virðist mega fullyrða að þeir sem þá réðu fyrir heimili um endilangan Ögurhrepp séu engir ofar moldu - nema hjónin í Odda í Ögurvík, Kristín og Þórður. Má mikið vera ef þetta á ekki við um gjörvallt Inndjúpið og skýzt mér varla í því. Bæði er að breytt- ir þjóðlífshættir fóru ómjúkum höndum um byggðimar við Djúp og eins hitt að Guð hefír gefíð þeim hjónum langt líf. Ekki veit ég betur en Þórður sé Djúpmaður í báðar ættir og í ætt- ir langt fram og þau hjón bæði. Jón Baldvin, sonur Solveigar, syst- ur Þórðar, sendi mér blaðaúr- klippu, þar sem ættir okkar Þórðar voru raktar saman og þótti mér ekki verra að vera frændi þessa vinar míns og fóstra. Ég rifja hér upp örfá æfíatriði Þórðar og styðst þar við afmælis- greinina í Mbl. 5. október 1977. Þórður fæddist á Strandseljum í Strandseljavík, bæjarleið innar frá Ögurvík, en Ögurhólmar skilja víkumar að. Foreldrar hans voro Ólafur bóndi á Strandseljum Þórð- arsonar frá Hestíjarðarkoti Gísla- sonar og kona hans Guðríður Hafl- iðadóttir, sem lengi bjó í Ögri, Jó- hannessonar frá Kleifum í Skötu- fírði. Standa að Þórði hinir traust- ustu ættstofnar vestfirzkir. Þórður ólst upp í hópi sex systkina, flest nafngreint fólk. Þórður fór komungur að vinna fyrir sér sem þá var títt, enda önnur sund þá ekki opin ungum mönnum. Þá var byggð þétt við Djúp. Þeir sem hugðu á búskap áttu ekki góðra eða margra kosta völ, því jarðnæði er lítið. En þeim mun gjöfulla var Djúpið sjálft. Þar var mikil fískigengd vor og haust og fískihlaup, sem kallað var, á stundum. Á sjóinn lá leið flestra ungra manna og svo var um Þórð. Fyrst 14 ára að heiman á bát föð- ur síns, Þorskinum, undir stjóm mágs síns, Helga í Dal, sem faðir minn segir að hafí verið mestur siglingamaður einhver við Djúp. 18 ára að aldri tók Þórður við for- mennsku á Ásu, skipi Hermanns Bjömssonar í Ögumesi. Sjálfs sín í útgerð verður Þórður um 25 ára aldur og allar götur þar til fokið var í skjólin í Ögurvík og hann fluttist á brott með fjölskyldu sína. Fyrsta skipið sem Þórður eignaðist var fjögurra manna far og nefndist Guðný. En 1930 festir hann kaup á 2 Vi tonna vélknúnum þilfarsbáti, sem nefndist Sleipnir og var smíðaður í Bolungarvík af hinum fræga bátasmið Fal Fals- syni. Sleipnir þótti þó ekki með beztu bátum í sjó að leggja af bátum Fals, en ekki kom það að sök meðan Þórður í Odda hélt um stjómvölinn. Honum famaðist alla tíð hið bezta og sigldi skipi sínu ávallt heilu úr höfn og í. Á vordegi 1943 brann húsið í Odda til kaldra kola. Fékk fjöl- skyldan þá inni í Ungmennafélags- húsinu, en flyzt alfarin til ísafjarð- ar vorið 1944 og þaðan áfram suð- ur til Reykjavíkur 1947, þar sem þau hjón hafa átt heimili síðan, eða þar til þau fengu inni í íbúðum aldraðra við Hrafnistu í Hafnar- fírði fyrirnokkrom árum, þar sem þau hafa búið búi sínu sjálfbjarga og unað hag sínum hið bezta. Á Reykjavíkuráronum var Þórð- ur iðnverkamaður í aldarfjórðung, en gekk síðan að störfum sem gáfust enda undi hann sér lítt nema hafa eitthvað fyrir stafni. Hinn 15. september 1928 kvæntist Þórður Kristínu Helga- dóttur, f. 9. janúar 1904. Kristín er Helgadóttir bónda á Skarði í Skötufirði, Einarssonar á Hvíta- nesi, Hálfdánarsonar prests á Eyri í Skutulsfirði. Kona Helga og móð- ir Kristínar var Karitas Daðadótt- ir, Borg í Skötufirði. Þau Þórður og Kristin byggðu bæ sinn í Ögurvík 1928 og nefndu Odda. Hann stóð hið næsta æsku- heimili mínu, sem hét Svalbarð. Nú fínnast ekki lengur mörg merki um það mannlíf sem þama var. Gronnar húsanna ero nú undir- staða þjóðvegarins, sem þar liggur um, en varimar, þar sem bátum var ráðið til hlunns, má þó enn greina. Lítill lækur-rann milli bæj- anna þangað sem vatn var sótt og sér hans að vísu enn stað. Sam- gangur var auðvitað mjög mikill milli þessara heimila og áttum við Helgi í Odda oft mikilvæg erindi hvor við annan. Þeim Kristínu og Þórði varð fjögurra bama auðið: Elztur Helgi Guðjón, verkfræðingur, kvæntur Þorgerði Mortensen, ættaðri úr Færeyjum og eiga þau fjögur börn; Guðrún, látin, kennari og átti hún tvö börn; Cecilía, látin, skrifstofu- maður, og átti hún son, og yngst Þóronn, ekkja Hjálmtýs Pétursson- ar, og á hún tvö böm. Auk þess ólu þau Kristín og Þórður upp frá unga aldri Sigurð Guðmundsson, ættaðan úr Bolung- arvík. Sigurður er giftur Kristínu Einarsdóttur og eiga þau 5 böm. Þetta er í stórom dráttum ævi- hlaup Þórðar Ólafssonar frá Odda. Það verður þeim jafnan, sem lengi lifa, að sjá á bak ástvinum sínum. Það hafa þau hjón mátt sárlega reyna, en borið þann missi af stakri hugprýði og án æðro. Níræður getur Þórður horft með stolti yfir farinn æviveg. Hann hefir stýrt lífsfleyi sínu heilu um lífsins ólgusjó og farsællega svo af ber. Ég færi þeim hjónum inni- legustu hamingjuóskir frá mér og öllum mínum með þakklæti fyrir það sem þau hafa verið fólkinu frá Svalbarði, hinir nákomnustu og trýggustu vinir alla tíð. Ég bið Guð að geyma þau á fögru ævikvöldi. Sverrir Hermannsson. ^r'MARKAÐSHORN Opnunartilboð 4 Heilsutöflur ★ Hvítir/svartir £ Stærðir 35-46 £ Leður £ Korksóli £ Punktanudd í sóla Tilboðsverð aðeins kr. 1.490,- Póstsendum samdægurs Skóverslun Kópavogs Skór og sportvörur Hamraborg 3 sími 41754 Hmrrímlu ATLAS G £ R Ð R F 1 8 \J 8 0 Kælir 180 lt'r. Frystir 80 Itr. að neðan Sjálfvirk afþíðing Mál: 145 x 58 x 60 cm HAUST-TILBOÐ GERÐ RF181/80 - STGR. KR. 42900 KR. 44990 - MEÐ AFBORGUNUM RÖNNING SUNDABORG 15 SÍMJ 68 58 68 DANSSTUD/O SÓLEYJAR Nytt 10 vikna flamenconamskeið fyrir byrjendur hefst 12. okt. Það er Cecile Romero sem mun kenna þessa fögru spænsku danstækni Cecile er atvinnudansari frá Spánf og hefur starfað þar með mörgum þekktum flamencokompaníum. Innritun hefst mánudaginn 5. okt i símum 687701 og 687801 Málverkanppboðið ei í dag kl. 15.00 é Hótel Sögu, Súlnasal Klausturhólar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar: Morgunblaðið B - Sunnudagur (04.10.1992)
https://timarit.is/issue/125072

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

Morgunblaðið B - Sunnudagur (04.10.1992)

Gongd: