Morgunblaðið - 23.10.1992, Síða 2
8 seei naaörao .es huoaoutböh QiöAjawjOHOM
2 ' ' MÖRGÚNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992
Flutningaskipið ms. Valur sökk í höfninni í Vyborg í Rússlandi
Áhöfnin bjarg-
aðist heil á húfi
Flutningaskipið ms. Valur,
sem er { eigu skipafélagsins
Ness hf., sökk í höfninni í Vy-
borg í Rússlandi í gær. Sex
manna áhöfn bjargaðist heil á
húfi. Skipið hafði tekið timbur-
farm í Lappeenranta í Finnlandi
og siglt um skipaskurð áleiðis
út á Finnska flóa. Á Vyborgar-
flóa fékk það á sig slagsíðu og
var dregið til hafnar. Tilraunir
til að rétta skipið af báru ekki
árangur.
Að sögn Pálma Pálssonar, fram-
kvæmdastjóra Ness, lestaði Valur
timburfarm I Lappeenranta á
þriðjudag og lagði upp þaðan síðar
um daginn. Lappeenranta tengist
Finnska flóa með Saimaan-skipa-
skurðinum, sem liggur inn í land
frá rússnesku hafnarborginni Vy-
borg. Hún tilheyrði áður Finnlandi
og hét Viipuri. Er skipið var kom-
ið framhjá Vyborg og út á flóann,
sem kenndur er við borgina, kom
"~i-
MS Valur fór frá Lappeenranta á
þríðjudag, fékk á sig slagsíðu á
Vyborgarflóa og var dreginn til
s1 Vyborgar þar sem hann sökk í gær.
skyndilega slagsíða á það. Óskað
var aðstoðar og var skipið dregið
til Vyborgar.
í gær var reynt að losa timbur-
Ms. Valur var 1.350 lesta skip, smíðað áríð 1973.
farminn og rétta skipið af, en ekki
tókst betur til en svo að skipið
sökk í höfninni um hádegisbil í
gær. „Það lá þarna með þessa
slagsíðu og smátt og smátt hefur
komizt sjór niður í lestarnar. Svo
fór að taka inn í íbúðirnar og um
hádegið lagðist skipið á hliðina og
sökk í höfninni,“ sagði Pálmi.
Áhöfn Vals, þrír Isleridingar og
þrír Pólveijar, var komin í land er
skipið sökk. Mjög erfiðlega hefur
gengið að ná sambandi við áhöfn-
ina og sagði Pálmi að skipstjóran-
um hefði tekizt að koma boðum
til íslands með því að fara um
borð í hollenzkt skip og ná tal-
stöðvarsambandi í gegn um
strandstöð i Hollandi. Símakerfið
á þessum slóðum í Rússlandi er
lélegt og erfitt um fjarskipti.
Pálmi sagði að reynt yrði að ná
skipinu upp aftur, en hann gæti
ekki sagt hvað yrði um það, heldur
væri það mál tryggingafélaga.
Valur var 1.350 tonna skip, skráð
í Noregi. Skipið var smíðað þar í
landi árið 1973.
Viðskiptaráðherra um lokun verðbréfasjóða Fjárfestingarfélagsins Skandia
Skiptir miklu máli að leysa
málið með samningum
JÓN Sigurðsson, viðskiptaráðherra, segir að það skipti miklu máli
að lokun verðbréfasjóða Fjárfestingarfélagsins Skandia, áður Fjár-
festingarfélags íslands, verði leyst með samningum milli aðila þann-
ig að hagsmunir sparifjáreigenda sem eigi hlutdeildarskírteini séu
tryggðir. Það sé nýög ákveðið lagt að viðkomandi aðilum að leysa
málið en hann geti ekki spáð um það hvenær lausn finnist.
að þama ráði fagleg sjónarmið ein-
göngu, sjónarmið varðandi verð-
bréfaviðskipti, en ekki tengslin við
neinn annan rekstur. Ég held að
það sé líka mjög mikilvægt fyrir
Skandia að þetta takist vel því þeir
hafa haslað sér hér völl sem nýr
aðili á sviði trygginga og fésýslu
og eru að mínu áliti mjög velkomin
viðbót við íslenska markaðinn."
sagði Jón Sigurðsson ennfremur.
Fiskmark-
aður Suður-
nesja opn-
ar útibú í
Hafnarfírði
FISKMARKAÐUR Suðurnesja
hefur opnað útíbú í Hafnar-
firði þar sem að sögn Ólafs
Þórs Jóhannssonar, fram-
kvæmdastjóra fiskmarkaðar-
ins, verður boðinn upp fiskur
sem Fiskmarkaðurinn hf. í
Hafnarfirði annaðist áður upp-
boð á fyrir Fiskmarkað Suður-
nesja. „Þetta er ekki sett upp
til að vera í samkeppni við fisk-
markaðinn í Hafnarfirði, en
ef einhveijir vilja frekar selja
þjá okkur vegna þess að þessi
þjónusta er komin þá er það
gott og vel,“ sagði hann.
Ólafur Þór sagði að Fiskmark-
aðurinn hf. í Hafnarfirði hefði
annast þá þjónustu fyrir Fisk-
markað Suðumesja að kaupendur
í Hafnarfirði og Reykjavík hefðu
getað komið á markaðinn þar og
boðið í það sem Fiskmarkaður
Suðumesja hefði á boðstólum.
„Við höfum um nokkurt skeið
verið að leita okkur að aðstöðu á
þessu svæði meðal annars til að
taka við fiski frá fiskmörkuðum
úti á landi. Þessi fiskur hefur ver-
ið keyrður til Njarðvíkur og það
af honum síðan til baka sem keypt
er af kaupendum í Hafnarfírði og
í Reykjavík. Þetta útibú okkar er
fýrst og fremst sett upp til að
afferma þann físk í Hafnarfírði
sem keyptur er þangað og til
Reykjavíkur, en um leið verðum
við með uppboðið á okkar físki
þar. Það em verktakar sem taka
þetta að sér fyrir okkur, en það
er Faxalón hf. Þetta hefur mælst
mjög vel fyrir af kaupendum á
þessu svæði, enda leikurinn til
þess gerður að efla þjónustu við
þá,“ sagði Ólafur Þór.
Klofningur um fiskveiðistj órnun í nefnd Fiskiþings
Helmingur vill sóknar-
stýringn í stað kvóta
„Bankaeftirlitið og viðskipta-
ráðuneytið hafa fylgst mjög vel með
þessu og hafa átt viðræður við að-
ila málsins. Ég tel að þetta sé mál
sem skipti mjög miklu að leyst verði
með samningum milli aðila og að
þeir sem þama eiga hlut að máli,
bæði þeir sem höfðu. áður umsjá
þessara sjóða, þeir sem hafa tekið
við henni og hugsanlegir nýir aðil-
ar, reyni sameiginlega að fínna á
þessu lausn sem tryggi hagsmuni
þeirra sparifjáreigenda sem hafa
keypt hlutdeildarskírteini í sjóðun-
um eins vel og kostur er,“ sagði
Jón í samtali við blaðið.
Hann sagði að auðvitað væri
aldrei hægt að firra þá sem keypt
hefðu hlutdeild í áhætturekstri í
gegnum svona sjóði breytingum á
gengi bréfanna sem hlyti að ráðast
af hvemig fýrirtælqunum sem
byggju á bak við vegnaði. Það væri
mikilvægt að halda aðskildu við-
skiptunum með umsjá sjóðanna
annars vegar og verðgildi bréfanna
hins vegar.
„Ég ætla ekki að spá neinu um
það hvemig þessu máli lyktar, en
það er mjög ákveðið að þeim mönn-
um lagt og stofnunum sem við þetta
koma að reyna að leysa þetta mál
,á þennan hátt. Ég held það verði
aldrei hjá því komist að það verði
einhver lækkun á gengi bréfanna
um sinn, en það er náttúriega með
þetta eins og aðra slíka fjárfest-
ingu, menn hirða góðan hagnað
þegar vel árar og verða svo að taka
því sem að höndum ber þegar á
móti blæs. Ég vil ekkert segja um
það hjá hvaða aðila forræði sjóð-
anna endar eða hvort von sé á niður-
stöðu í því alveg á næstu dögum,
en ég vona það. Það er að sjálf-
sögðu fyrst og fremst viðskiptalegt
úrlausnarefni þeirra sem fara með
þessi fyrirtæki og ég vonast til þess
Á FISKIÞINGI í dag verða um-
ræður um fiskveiðistjómunina
en fyrir þinginu liggja tvær
ályktanir frá sjávarútvegsnefnd
sem klofnaði í afstöðu sinni til
málsins. Helmingur nefndarinn-
ar vill að tekin verði upp sóknar-
stýring á botnfiskveiðunum en
helmingur vill núverandi kvóta-
kerfi áfram. f nefndinni féllu
atkvæði þannig að 5 vom með-
mæltir sóknarstýringu, 5 með-
inæltir kvótanum og 2 sátu hjá.
í ályktun þess hluta sem vill
sóknarstýringu segir m.a.: „Fiski-
þing lýsir andstöðu sinni við núver-
andi kvótakerfi sem ekki hefur náð
þeim markmiðum að tryggja betri
nýtingu fískistofna, vemda at-
vinnurétt sjávarútvegsfólks né
treysta byggð og afkomu útgerð-
ar, sjómanna, fiskvinnslufólks eða
fískvinnslunnar. Fiskiþing telur að
stýring á sóknargetu flotans sé
réttlátari og heppilegri kostur en
kvótabinding sú og aflakvótasala
sem hér hefur verið við lýði síðan
1984.“
í greinargerð með álitinu segja
sóknarstýringarmenn m.a. að með
sóknarstýringu í almennum botn-
fískveiðum megi auðveldlega ná
fram þeim markmiðum að hvetja
til veiða á vannýttum tegundum
utan þeirra sóknartímabila eða
þess sóknardagafjöida sem leyfður
er.
í áliti þeirra í nefndinni sem vill
áfram núverandi kvótakerfí kemur
m.a. fram að það sé skásti kostur-
inn við þá fiskveiðistjómun sem
nauðsynleg er vegna takmarkaðs
þorsks og annarra botnfískteg-
unda. Síðan segir: „Einnig telur
Fiskiþing augljóst að veiðiheimildir
fyrir hvert veiðiskip hljóti að þurfa
að gilda enn um sinn þar sem sam-
keppnisveiði getur engan veginn
samrýmst takmörkunum á veiðum
úr aðal fískistofnum."
Sjá einnig fréttir af fiskiþingi
á bls. 24
-----»-♦ ♦----
Bókagerðar-
menn hafna
aðild að ASÍ
BÓKAGERÐARMENN höfnuðu
í almennri atkvæðagreiðslu að
óska eftir aðild stéttarfélags
þeirra að Alþýðusambandi Is-
lands. Er þetta í þriðja skiptið
frá því félög bókagerðarmanna
voru sameinuð 1980 að hafnað
er aðild.
Liðlega 1.000 vom á kjörskrá í
atkvæðagreiðslu Félags bókagerð-
armanna. 661 greiddi atkvæði. Já
sögðu 175 eða rúm 26% en nei
sögðu 418 eða 63% þeirra sem
þátt tóku. 64 skiluðu auðu og 4
seðlar voru ógildir.
í dag
Aðsent
Margt spennandi aðgerast í
sjávarútvegi. Grein eftirHarald
Sturlaugsson. 16
Messur
Fatlaðir greiða sérstaklega fyrir
prestþjónustu. 20
Göngudagur
Saumaklúbbar, kvenfélög, skólar,
dagvistarheimili, eldri borgarar,
fyrirtæki og (þróttafélög skipu-
lögðu göngu. 21
Leiðari
Skipasmíðaiðnaðurinn. 24
Fosteignir
► Skemmdum svölum breytt í
sólstofur - Bílskúrar - Imian-
stokks og utan - Sýningarsalur
fyrir ljósmyndir af sölueignum.
Daglegt líf
^ íslensk fiskbúð í Lúxemborg,
arðsemi menntunar, forræktaðir
jólalaukar, Rothenburg ob der
Tauber, óperur, djass og klassík
í New York, dýrir sportbílar.