Morgunblaðið - 23.10.1992, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992
9
HEIGAR
TIIBOÐ
Tryggvagötu 20, sími 6234561
Aspassupa
Sinnepsgljáður grísahryggur
með steiktum parísarkartöfl-
um, rauðkáli og sósu
Súkkulaðimús
Kr. 995,-
Aspassúpa
Mínútusteik með kryddsmjöri,
bakaðri kartöflu eða frönskum,
grænu káli og 1000 eyja sósu
Súkkulaðimús
Kr. 995.-
MUNIÐ 'S
Manor House Hotel
HÓTELREKSTUR ERLENDIS
Stofnun hlutafélags um hótelrekstur erlendis.
Þátttökueyðublöð og upplýsingar hjá
Gulli og Silfri hf., Laugavegi 35,
símar 22013 og 20620 og
Manor House hótel
í síma 90 44 803 605164.
Skoðanir á EES
Alþýðublaðið rekur í gær ummæli Svav-
ars Gestssonar, þingmanns Alþýðu-
bandalagsins, á fundi Sambands ungra
jafnaðarmanna. Þingmaðurinn segir að
kæmist hann í ríkisstjórn, myndi hann
ekki segja upp EES-samningnum nema
hafa tvíhliða samning við Evrópubanda-
lagið. Þá er í Staksteinum í dag gluggað
í samtöl Tímans við tvo fyrrverandi þing-
menn Sjálfstæðisflokksins, Pétur Sig-
urðsson og Guðmund H. Garðarsson,
sem báðir segjast óánægðir með EES-
samninginn og hlynntir þjóðaratkvæða-
greiðslu um hann.
Einhvem
samning við
EB verðum við
að hafa
I frétt Alþýðublaðsins
segir: „Svavar Gestsson,
þingmaður Alþýðubanda-
lagsins, tekur undir með
Ingibjörgu Sólrúnu Gísla-
dóttur, þingmanni
Kvennalistans, að það sé
skömminni skárra fyrir
ísland að vera í EB, að
vissum skilyrðum upp-
fylltum, en vera aðili að
EES. Svavar segir vafa-
atriði varðandi meint
stjómarskrárbrot ekki
ráða úrslitum um atkvæði
sitt gegn EES-samningn-
um.
Hann telur að um
valdaframsal og fyrsta
skrefið inn í EB sé að
ræða og þess vegna komi
ekki til greina að greiða
atkvæði með samningn-
um. Svavar lýsti því hins
vegar yfir að hann myndi
ekki segja upp EES-
samningnum, kæmist
hann einhvem tímann í
aðstöðu til þess sem aðili
í rikisstjórn, nema fyrir
lægi tvíhliða samningur
við Evrópubandalagið.
Einhvem samning yrðum
við jú að hafa.“
Ekki ánægður
með EES-
samninginn
í frétt Tímans er haft
eftir Pétri Sigurðs-
syni,fyrrverandi alþing-
ismanni Sjálfstæðis-
flokksins: „Ég er ekki
ánægður með EES-samn-
inginn. Ég hef verið að
skoða þetta mál allt og
reynt að gera upp við
mig hvort mér finnist
kostir sjimningsins meiri
heldur en gallamir. Það
er jjóst að það er ekki
hægt að búast við að
samningar, sem eig<i upp-
runa sinn erlendis og eiga
að gæta hags annarra en
okkar einna, séu okkur á
allan hátt hagstæðir."
í Tímafréttinni segir
einnig: „Pétur sagðist
ekki endanlega vera bú-
inn að gera upp hug sinn
til EES-samningsins.
Hann sagðist skoða þetta
mál með opnum augum.
„Við höfum óskaplega
mikið frá samtökum þess-
ara þjóða nú þegar og ég
vil ekki tapa neinu af
þvi.“
Pétur sagðist einnig sjá
kost og löst á því að bera
þetta mál undir þjóðarat-
kvæði. „Ef ráðamenn og
aðrir stuðningsmenn
samningsins álíta þetta
vera af hinu góða fyrir
þjóðina, þá finnst mér í
sjálfu sér ekkert vera að
því þó að þjóðin segi til
um málið,“ sagði Pétur.“
Þjóðarat-
kvæðagreiðsla
nauðsynleg og
óhjákvæmileg
í Tímanum í gær er
einnig rætt við Guðmund
H. Garðarsson, airnan
fyrrverandi þingmann
Sjálfstæðisflokksins: „Ég
er á móti þessum samn-
ingi eins og hann er í
dag. Ég var á sínum tima
fylgjandi tvíhliða samn-
ingum við Evrópubanda-
lagið og hef ekkert breytt
um skoðun i þeim efnum.
Ég er alfarið á móti því
að erlendir aðilar fái
veiðiheimildir i islenzkri
fiskveiðilögsögu. Þar
skiptir ekki máli hvort
menn eru að tala um þrjú
þúsund tonn eða eitt
tonn.“ •
Áfram segir í fréttinni:
,,„Ég tel nauðsynlegt og
óhjákvæmilegt að það
fari fram þjóðaratkvæða-
greiðsla um það hvort
Islendingar vilja gera
þennan samning eða
ekki,“ sagði Guðmundur.
Guðmundur sagði að
ef fram færi þjóðarat-
kvæðagreiðsla um EES-
samninginn, myndi fara
fram nauðsynleg upplýs-
andi umræða um samn-
inginn. Ráðamenn myndu
þá ekki geta komið sér
hjá þvi að skýra ýmsa
þætti samningsins, sem
fólk veit ekki í dag hvaða
þýðingu hafa.
Guðmundur sagðist
hafa farið í gegnum
samningsdrögin þegar
hann sat i Evrópustefnu-
nefnd Alþingis, og enn-
fremur hafi hann skoðað
vel uppkast að samningi,
sem fyrir liggi. Niður-
staða sín sé alveg skýr.
Þetta sé ekki góður samn-
ingur fyrir ísland.
DVELJIÐ Á EIGIN HÓTELUM ERLENDIS.
Skilafrestur er til 1. nóvember 1992.
Það nýjasta í gervihári í dag.
Hárkollur á hárböndum,
stuttar-síðar,
sléttar - krullaðar.
Einnig hártoppar, 60 cm.
í tilefni af bresku vikunni
í Borgarkringlunni bjóðum
við 30% afslátt dagana
22. okt. tiM.nóv.
Hár;x
(Ðpryði
V BOI
'Ifataprýði
BOMmiNGLllNNI,
I.HÆÐ.SÍMI 32347
i n ItcgunM
Metsölublað á hverjum degi!