Morgunblaðið - 23.10.1992, Page 10

Morgunblaðið - 23.10.1992, Page 10
n 10 ■ s:eei aaaöTXO .sa fluoAauT.aö'í GiaAjanuoíio,M, ' MÖRGUNBEAETO TOSTUDSGIJR~"2X75Í{TðBER T992 Kammersveit Reykjavíkur _________Tónlist_____________ Jón Ásgeirsson Fyrstu tónleikar Kammarsveit- ar Reykjavíkur á þessu starfsári voru haldnir í ráðhúsi Reykjavíkur sl. þriðjudag. Á efnisskránni voru verk eftir Handel og Mozart. Ein- leikari var Nína Margrét Gríms- dóttir og stjómandi Gunnsteinn Ólafsson. Salurinn í ráðhúsinu er greinilega ekki hugsaður til tón- listarflutnings, því þar er of lágt undir loft. Fyrir þá sök verður öll tónun ákaflega mött og blöndun hljóða mjög lítil. Að hafa tónleik- ana í ráðhúsinu var forvitnileg tilraun af hálfu Kammersveitar- innar en hitt er þó meira vert, að á þessum tónleikum komu fram tveir ungir listamenn, Nína Mar- grét Grímsdóttir, sem einleikari í píanókonsert eftir Mozart, og ungur hljómsveitarstjóri, Gunn- steinn Ólafsson, er stýrði íslenskri hljómsveit í fyrsta sinn á tónleik- um með atvinnumönnum. Tónleikamir hófust á millispili (sinfóníu) úr óratoriunni Salomon eftir Handel, þar sem koma drottningarinnar af Saba er dreg- in upp í tónum. Þetta er ekki stór- brotin tónlist, enda stolin og stæld. í heild var þessi stutta en ekki óskemmilega sinfónía vel flutt, þó sellóin væru á stundum óhrein, einkum þegar leikið var sterkt. Píanókonsertinn í C-dúr, K. 467, eftir Mozart var ágætlega fluttur af hljómsveitinni, þrátt fyr- ir að strengimir væru helst til of fáir og mött óman salarins hjálp- aði ekki til. Nína Margrét Gríms- dóttir lék konsertinn í heild mjög vel, af öryggi og nokkurri festu og var túlkun hennar persónuieg en hún hafði sjálf samið ágætar „kadensur" fyrir fyrsta og þriðja þátt. Hinn frægi milliþáttur varf fallega flutturt bæði af einleikara og hljómsveit, svo og fjörugur og leikandi léttur lokaþátturinn. Fyrsti kaflinn, sem er meginhluti tónsmíðarinnar, var nokkuð misjafn í hljóman hljómsveitarinn- ar, en Nína Margrét lék kaflann af festu og öryggi. í tveimur síðustu verkunum, Eina kleine Nachtmusik eftir Moz- art og sex þáttum úr Vatnasvít- unni eftir Handel, reyndi á Gunn- stein Ólafsson sem stjórnanda og verður ekki annað sagt en að hann sé efnilegur tónlistarmaður. Mót- un hans á þessum vinsælu verkum var vel grunduð og margt mjög smekklega unnið. Það helsta sem mætti finna að var hversu margir kaflanna voru hraðir, sérstaklega menúettinn í Næturljóðinu, sem vantaði fyrir bragðið þann sett- leika, sem einkennir menúettinn sem dans. Tríóið var hins vegar rpjög fallega flutt og sömuleiðis Rómansan. Hvort Vatnasvítan var leikin eftir útfærslu sir Hamilton Harty var ekki tekið fram í efnisskrá, en þó er það hugsanlegt, því sama kaflaskipan (6 kaflar) er á svítu Harty og þeirri sem leikin var að þessu sinni. Lítið er vitað um hljóð- færaskipanina hjá Handel, en næsta víst þykir að flestir þeir 50 hljóðfæraleikarar, sem fylgdu Ge- org I. niður Thames, hafí leikið á blásturshljóðfæri, svo sem venja var um tónverk, sem flutt voru „úti undir berum himni“. Flutning- urinn í heild var lifandi. Arían hefði mátt vera ögn hægari, sömu- leiðis Lentemente kaflinn, sem leiðir yfír í lokaþátt verksins, er var sérlega hressilega leikinn. Gunnsteinn Ólafsson hefur haslað sér völl sem hljómsveitar- stjóri og þar með er hafin hólm- ganga hans við þann andstæðing, sem er tíminn og listin, andstæð- ing, sem aldrei mun gefa honum grið né sjálfráður undan ganga. Það að halda velli í þeirri baráttu er mikill sigur og það hefur Gunn- steinn gert að sinni, svo að vel má búast við að honum takist, er tímar líða, að vinna eitthvert það gott verk er mönnum mun þykja nokkurs um vert og geyma sér í minni. PHILCO PHILCO SPARAR TÍMA AR500 ÞURRKARI • Snýr í báðar áttir, fer sérlega vel með þvottinn. • 3 mismunandi hitastig. • Allt að 120 mín. hitastilling. • Öryggisstýring á hitastigi. • Tveir möguleikar á tengingu útblástursbarka. • Ryðfrítt stál í belg. • Auðvelt að hreinsa lógsigti. RETT VERÐ 40.540,- Heimilistækí hf SÆTÚNI8 SÍMI691515 ■ KRINGLUNNISÍMI6915 20 ÞURRKARI SEM GÆLIR VIÐ ÞVOTTINN Þvottavélarnar frá Philco taka inn á sig heitt og kalt vatn, styttri þvottatími og minna rafmagn. \ L85 ÞVOTTAVÉL • Fullkomin rafeindastýring. • Val á vinduhraða: 500/800 snúninga. • Vökva höggdeyfir. • Ryðfrítt stál i tromlu og ytri belg. RÉTT VERÐ 57.800,- 40875,- ^^KR.STGR. ÞÚ SPARAR 5.200,- Menning um landið M-hátíðum verði haldið áfram Skólabúðum fyrir listgreinar komið upp Laugarvatni. Á RÁÐSTEFNUNNI „Menning um landið“ sem haldin var á Flúðum 16. og 17. okt. sl. var samþykkt að leggja til að haldið yrði áfram samvinnu ríkis og sveitarfélaga um M-hátíðir á landsbyggðinni. Ráðstefnan benti einnig á möguleika fyrir skólabúðir listgreina í einhverj- um af þeim heimavistarskólum sem standa frammi fyrir dvín- andi aðsókn. Starfshópur á ráðstefnu um menningu á iandsbyggðinni sem fjallaði um samskipti ríkis og sveit- arfélaga, lagði áherslu á áfram- haldandi samstarf þessarra aðila um framkvæmd M-hátíða. Hátíð- imar verði notaðar til eflingar á menningarflutningi og listuppeldi fólks á öllum aldri. Hópurinn skoraði á forráða- menn Þjóðleikhúss, Sinfóníuhljóm- sveitar og annarra menningar- stofnana á vegum ríkisins að haga svo rekstri þeirra að þjónusta við landsbyggðina verði eðlilegur hluti af starfseminni. Lögð var áhersla á að styrkja Menningarsjóð félagsheimila, kosningu menningarmálanefnda innan sveitarfélaga og samstarfí þeirra í milli á vettvangi lands- Sýna í Laugardal SAMSÝNING fimm myndlistar- manna verður opnuð í Listhúsinu í Laugardal á morgun, laugar- daginn 24. október. Sýningin verður í aðalsýningarsal Listgall- erísins og í aðalinngangi hússins. Þeir listamenn sem sýna verk sín eru Sverrir Ólafsson með skúlptúr, Þórður Hall með grafík, Magdalena Margrét með grafík, Valgerður Hauksdóttir með myndverk unnin með blandaðri tækni og Þorbjörg Þórðardóttir með vefnaðarverk. Sýningin stendur til 15. nóvem- ber. hlutasamtaka ‘ sveitarfélaga eða héraðsnefnda. Starfshópurinn tók eindregið undir hugmyndir menntamálaráð- herra sem hann kynnti í inngangs- orðum sínum á ráðstefnunni um skiptingu Menntamálaráðuneytis- ins í tvö ráðuneyti. Annarsvegar sem fjallaði um menntamál á hin- um ýmsu skólastigum og hinns- vegar ráðuneyti menningarmála. Starfshóþur ráðstefnunnar sem fjallaði um listuppeldi og listflutn- ing benti á möguleika skólanna að leysa upp almenna kennslu og setja upp einstaklingsbundna og almenna listkynningu og kennslu Tónlist Ragnar Björnsson Svokallaðir Háskólatónleikar, röð hádegistónieika í Norræna húsinu, hefur enn einu sinni göngu sína og virðist svo að tónleikar þessir, og einmitt á þessum tíma, séu orðnir vinsælir þótt stuttir séu, bæði áheyrendum og flytjend- um. Það er þó enginn leikur flytj- andanum að hafa aðeins 30 mínút- ur til að sýna ágæti sitt, margir æsktu þess að hafa fyrstu 30 mín. til þess að hita sig upp. Nokkuð óvenjulegt við tónleikana að þessu sinni var að erlendur tónlistarmað- ur sat við píanóið í 30 mínútur í stað þess að landinn hefur venju- lega setið að þessum tónleikum, en þetta hlýtur að hafa sína skýr- ingu. Brady Millican, bandarískur píanóleikari, settist á píanóbekk- inn og lék eitt verk, Handel-Bra- hms-tilbrigðin. Engum meðalgóð- í skólanum. Slík kynning stæði í eina viku og í vikulok yrði efnt til sýningar, tónleika eða skemmtun- ar sem tengist hverri listgrein. Einnig væri efnt til leikhúss- eða tónleikaferðar til næsta nágrennis eða höfuðstaðar landsins eða landshlutans. Þessi starfshópur benti einnig á möguleika þess að gera einn heimavistarskólanna sem standa frammi fyrir dvínandi aðsókn, í stakk búinn til að taka á móti hópum til skólabúðadvalar fyrir listgreinar. Þangað væri hægt að fá færustu listamenn til leiðsagn- ar. Á þessum stöðum er aðstaða og búsetumöguleikar góðir og því ekki mikill kostnaður að koma slíku í kring. um píanista væri ajtlandi að setj- ast við píanóið óupphitaður og leika þessi mjög svo erfíðu til- brigði, hnökralaust. Brady Millic- an er auðheyrilega mjög góður píanóleikari og áhugaverður, og hnökrarnir óverulegir, kannski heist í upphafi. Flutningur Millican verður að teljast dálítið rómantísk- ur, sem ekki þarf að vera nei- kvætt, en ekki fór hann alstaðar nákvæmlega eftir forskrift Brahms, sem e.t.v. veikti flutning- inn, en í mörgum tilbrigðunum sýndi hann mjög góða tækni og glæsibrag. Dálítið fannst mér heildin líða við of Iangar þagnir milli tilbrigða, hætta er á að slíkt komi út sem syrpa af smálögum. Lengi má deila um hraðaval og innri skilning og þrátt fyrir að fúgan væri í hraðara lagi, og vant- aði kannski á tærleika í spilið, var hér um mjög góðan listamann að ræða og of stuttar 30 mínútur. Handel-Brahms í Norræna húsinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.