Morgunblaðið - 23.10.1992, Síða 18

Morgunblaðið - 23.10.1992, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992 í fyrsta sinn á íslandi yncpumn sokkar, sokkabuxur og „leggings“ t falleg- mUubll um faum 0g jjólbreyttu úrvali. ]MI TLT hnésokkar og sokkabuxur. Einstök gcedavara og verdid kemur þér þagilega á óvart. Dcemi: Hnésokkar frá kr. 150.- Sokkabuxur frá kr. 240.- Sokkabuxur m/Lycra kr. 560.- SIGURBOGINN Laugavegi 80, sími 611 330. m HEKLA FOSSHÁLSI 27 SÍMI 695560 674363 UMBOÐSMENN UM LAND ALLT GOODfYEAR VETRARHJÓLBARÐAR GOODfÝEAR 60 ÁR Á ÍSLANDI Haukur Morthens söngvari - Minning Fæddur 17. maí 1924 Dáinn 13. október 1992 í hálfa öld hefur hann sungið sig inn í hug og hjörtu íslendinga. Kynslóðir komu og fóru, en söngv- arinn á sviðinu náði eyrum þeirra allra. Nú er sviðið autt. Andvarans söngrödd er þögnuð. Og mál að gestimir þakki fyrir sig. Haukur steig fyrst upp á sviðið tvítugur að aldri, árið sem lýðveld- ið var stofnað. Þegar hann kvaddi hafði hann sungið í hálfa öld. Og fór allan tímann vaxandi sem söngvari. Hver er sá söngvari á byggðu bóli, innan lands eða utan, sem hefur leikið þetta eftir honum? Frank Sinatra? Eg held hann hafi ekki verið byrjaður í stríðinu. Alla- vega komust hinir yngri menn — Bubbi trúbador og frændi Morth- ens meðtalinn — að því fullkeyptu fyrir fáeinum misserum síðan, þeg- ar þeir leiddu saman hesta sína. Gamli maðurinn „stal senunni" eins og undirtektir ungra áheyr- enda staðfestu. Haukur hafði sinn eigin stíl. Sinn eiginn tón. Hann var ljóð- rænn, glaðvær, glettinn og hlýr. Hann laðaði að og lífgaði upp. Hann var fágaður í framkomu og „séntilmaður" fram í fingurgóma. Mér sýnist hinir yngri menn í bransanum vilja taka það upp eftir honum. Haukur var fyrst og_ fremst söngvari Reykjavíkur. „Ó borg, mín borg“ var hans stef. Og hann fór með það þannig að gömlum Austurstrætisdætrum hlýnaði um hjartarætur. Klúbburinn, Glaum- bær og Naustið — það var þama þar sem gleðin og Haukur réðu ríkjum. En hróður Hauks barst víðar. Útlendingar sem hingað komu og heyrðu þennan ljúfa náttgala Reykjavíkur hrifust af og buðu honum að sækja sig heim. Á löng- um söngferli hafði hann um það er lauk sungið í öllum höfuðborg- um Norðurlanda, á Bretlandseyj- um, í Bandaríkjunum og Kanada, í Austurríki og Lúxemborg — og síðast en ekki síst í sjálfu Rúss- landi kósakkatenóra og volgu- bassa. Og hafa ekki margir leikið það eftir honum heldur. Haukur var hugsjónakrati — jafnaðarmaður af lífi og sál. Hann var alltaf boðinn og búinn að lífga upp á mannfagnaði okkar með söng snum. Hann var okkar söngv- ari. Við vorum stolt af honum og okkur þótti vænt um hann. Hann syngur okkur ekki frámar. — En rödd hans hljómar í minningunni. Við kveðjum hann með trega og söknuði. Og biðjum konu hans, Ragnheiði Magnúsdóttur, og fjöl- skyldu allri guðsblessunar. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins - jafnaðarmannaflokks íslands. í dag verður til moldar borinn Haukur Morthens söngvari, en hann lést á heimili sínu í Reykja- vík 13. október sl. 68 ára að aldri. Ég kynntist Hauki fyrst fyrir flórum áratugum er hann vann sem prentari í Alþýðuprentsmiðj- unni en ég var þá blaðamaður á Alþýðublaðinu. Tókst strax með okkur traust vinátta sem hélst alla tíð. Haukur var skemmtilegur sam- starfsmaður, ætíð léttur í skapi og hafði góð áhrif á alla sem með honum unnu. Hann var samvisku- samur og vandvirkur við allt það sem hann tók sér fyrir hendur. Mér er það minnisstætt er hann skrapp niður á Ingólfscafé seint að kvöldi í kaffitíma í Alþýðuprent- smiðjunni til þess að syngja nokkur lög. Við blaðamennimir skutumst niður og hlýddum á söng Hauks. Hann skilaði hvoru tveggja vel, handverkinu í prentsmiðjunni og söngnum í veitingahúsinu. Síðar áttu leiðir okkar eftir að liggja víða saman, einkum í Al- þýðuflokknum, en Haukur var mikill Alþýðuflokksmaður, sannur jafnaðarmaður af gamla skólanum. Hann starfaði mikið í Alþýðu- flokknum, einkum fyrir kosningar. Haukur var ósérhlífinn maður, enda þótt hann væri önnum kaf- inn. Hann var ætíð boðinn og bú- inn að taka að sér verk fyrir Al- þýðuflokkinn. Hann valdist til ýmissa trúnaðarstarfa í Alþýðu- flokknum, sat í stjóm Alþýðu- flokksfélags Reykjavíkur, svo og í skemmtinefnd félagsins og gegndi fleiri trúnaðarstörfum. Um tíma sat hann í nefnd á vegum Reykja- víkurborgar. Allt sem Haukur tók sér fyrir hendur vann hann af trú- mennsku. Aðalstarf Hauks Morthens var söngurinn. Hann vann hug og hjörtu landsmanna með söng sín- um og var vinsælasti dægurlaga- söngvari landsins um áratuga skeið. Var það með ólíkindum hve lengi Haukur hélst meðal bestu söngvara landsins, en það má m.a. þakka stakri reglusemi hans alla tíð og því hversu vandvirkur hann var. Með Hauki Morthens er fallinn í valinn góður drengur. Eftirlifandi eiginkona hans er Ragnheiður Magnúsdóttir. Við Dagrún sendum henni, bömum þeirra og ástvinum öllum innilegustu samúðarkveðjur. Drottinn blessi minningu Hauks Morthens. Björgvin Guðmundsson. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (V. Briem) Þegar maður heyrir andlát góðs vinar, sem hefur ræktað við mann vináttu í mörg ár, setur mann hljóðan. Já, Haukur Morthens er iátinn 68 ára að aldri og fer útför hans fram í dag frá Bústaðakirkju. Haukur átti við mikil veikindi TUUiuSlfa HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK, SÍMAR 634000/634050 CHEVROLET CORSICA er bfllinn. að stríða og í þeirri baráttu sýndi hann mikinn kjark og æðruleysi, dyggilega studdur af eiginkonu sinni og fjölskyldu. Með þessum fátæklegu orðum langar mig að þakka allar ánægju- stundimar sem við Jonna systir mín áttum í gegnum árin með þeim hjónum, Hauk og Ransý, á Smiðju- stígnum, Ránargötunni, Hjarðar- haganum, Heiðargerði og núna á ykkar fallega heimili í Garðhúsum 51. Það var afskaplega ánægjulegt að koma til Hauks og Ransýar, einstaklega gestrisin, hlýtt viðmót og mikið var oft spjallað og glatt á hjalla. Elsku Ransý mín, þú ert búin að standa þig eins og hetja við hlið manns þíns í hans erfiðu veik- indum og hafðir hann heima til hinstu stundar. Við Jonna og fjölskylda mín sendum þér og fjölskyldu þinni okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að vera með ykkur öllum. Blessuð sé minning Hauks Morthens. Fríða. Við systkinin viljum fyrir hönd okkar og foreldra okkar minnast Hauks frænda, sem við kveðjum í dag, með fáeinum orðum. Það var 13. október síðastliðinn sem Haukur kvaddi þennan heim eftir langvarandi veikindi. Ótrúlegt er hve stutt er á milli lífs og dauða og erfítt að gera sér grein fyrir að eiga aldrei eftir að sjá Hauk aftur í þessu lífi. Við minnumst þeirra góðu og skemmtilegu stunda sem við áttum með Hauki, hann var þessi trausti, hlýí og góði frændi sem alltaf var gott að heimsækja, enda voru þær ófáar heimsóknimar sem við fórum á heimili þeirra hjóna og alltaf var gaman að fá Hauk í heimsókn. Þessa stundir munu seint hverfa okkur úr minni. Söknuðurinn er mikill en minn- ingin mun lifa um ókomin ár, einn- ig í lögum hans og öðru sem mun minna á hann. Við viljum þakka góðum frænda fyrir alla vináttu og hlýhug í okkar garð. Elsku Rannsý, Omar, Heimir, Haukur og fjölskyldur. Megi góður Guð styrkja ykkur. Halldór, Sigga og Rósa. Hann var snemma litríkur. Lág- vaxinn, snaggaralegur með kol- svart hár og glettni í augum. Bros- mildur húmoristi í kunningjahópi. Hann var lika snemma ákveðinn í hvað hann ætlaði að taka sér fyrir hendur. Þó hann lærði prentiðn og stæði við umbrot á Alþýðublaðinu held ég að hugurinn hafí öllum stundum verið við sönginn. Hann fékk í vöggugjöf ljúfa og þýða rödd og meiri tilfinningu fyr- ir sviðsframkomu en títt var um fólk á íslenskum hljómsveitarpöll- um. Með þetta í veganesti lagði hann einna fyrstur, ef ekki fyrstur íslendinga, fyrir sig sem aðalstarf að skemmta fólki með söng léttra og ljúfra laga. Við hittumst ungir og áttum langar samverustundir á hljóm- sveitarpöllum, í hljómleikasölum og upptökusölum, við hljóðritun á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.