Morgunblaðið - 23.10.1992, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 23.10.1992, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDÁGUR 23. OKTÓBER 1992 HTOOTHO ?■<? .tmOAflTITFm ÞJOÐMAL Þrenginga- þrennan Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs, og erlendar lántökur og Mi||jarðar yfirdráttur í Seðlabankanum1989-1992 á verðlagi 1992 w™ Lánsfjárþörf ríkissjóðs —y • IO lU 0 Erlendar lántökur 198909 yfirdráttur 1990 V ’ 1991 1992 u J A J O J • i i i i I I I I I I i i i i i • i i i i i i i JAJOJJAJO* A J 0 J Taflan er byggð á tölum úr Þjóðhagsáætlun fyrir árið 1983, sem lögð var fram á Alþingi 6. október sl. Efnahagslægðin, sem grúflr yfir þjóðarbúskapnum, er í aðal- atriðum þríþætt: * Aflasamdráttur, sem rætur rekur til bágrar stöðu nytja- stofna sjávar, einkum þorsks. * Óáran í efnahagsmálum umheimsins, sem verið hefur ís- lenzkum útflutningsatvinnuveg- um þung í skauti. * Hallarekstur í ríkisbúskapn- um með tilheyrandi skuldasöfn- un og háum vöxtum heimafyrir. I Þjóðhagsáætlun fyrir árið 1993 gerir ráð fyrir að landsframleiðsla og þjóðartekjur minnki enn á kom- andi ári. Fallið verður þó minna en 1992. Á hinn bóginn er reiknað með að þjóðarútgjöld dragizt ívið meira saman en þjóðartekjur, þann veg, að viðskiptahallinn við um- heiminn verði nokkru minni 1993 en 1992. Sárasta atriði þjóðhagsspár 1993 varðar vinnumarkaðinn. Atvinnu- leysi óx úr 0,6% árið 1988 í um 3% 1992. Það jafngildir því að um 3.600 manns hafi ekki störf við hæfi. Spáð er 3,5% atvinnuleysi á næsta ári. Ljósið í efnahagsmyrkrinu og markverðasti árangur næstliðin misseri er hjöðnun verðbólgunnar. Verðbólga hér er minni en í helztu viðskiptalöndum okkar — og hefði einhvem tíma þótt saga til næsta bæjar. Þjóðhagsáætlun gerir ráð fyrir að framfærsluvísitala hækki um 2% frá 1992 til 1993. Til sam- anburðar gerir spá OECD ráð fyrir 3,5% verðbólgu að meðaltali í aðild- arríkjunum og að verðbólga í Evr- ópuríkjum OECD verði rúmlega 4%. II Fiskurinn er nánast eina náttúru- auðlind okkar sem nýtanleg er til útflutnings. Sjávarútvegurinn hef- ur og verið burðarás framfara og lífskjara þjóðarinnar það sem af er 20. öldinni. Það eru því engin gleðit- íðindi sem þannig eru orðuð í þjóð- hagsáætlun fyrir árið 1993: „Gert er ráð fyrir að botnfiskafl- inn í heild á föstu verði minnki um tæplega 5% frá árinu 1992, þar af dragizt þorskafli saman um rúm- lega 20%. Ofan í kaupið hefur sjávarvöru- verð farið lækkandi á þessu ári. Gengisþróun hefur og verið sjávar- útveginum óhagstæð. Verð á áli og kísiljámi hefur einnig verið mjög lágt. Þjóðhagsstofnun telur að við- skiptakjör okkar út á við verði nokkru, lakari 1993 en 1992. „Þetta stafar fyrst og fremst af því að gert er ráð fyrir að raunverð sjávar- afurða verði heldur lægra en á þessu ári, þótt hagstæð áhrif tolla- Iækkana vegna samningsins um Evrópskt efnahagssvæði vegi lækk- unina að hluta upp.“ Óróinn á gjald- eyrismörkuðum eykur síðan á óviss- una í spám um viðskiptastöðu okk- ar, en spár standa til 1,5% verri viðskiptakjara 1993 en í ár. Viðskiptajöfnuðurinn í heild verður neikvæður um 13,5 milljarða króna eða 3,5% af landsframleiðslu 1992, ef fer sem horfir. Spár standa til þess að hallinn verði lítið eitt minni eða 12,9 milljarðar króna, 3,3% af landsframleiðslu, 1993. Erlendar skuldir aukast enn með áætluðum viðskipta- og ríkissjóðs- halla 1993. Að óbreyttu stefnir í að greiðslubyrði erlendra lána verði 28,6% af útflutningstekjum kom- andi árs, en þá verður að hafa í huga skerðingu útflutningstekn- anna.“ m „Það er máski að bera í bakka- fullan lækinn að víkja hér að hall- anum á ríkisbúskapnum og opin- berri skuldasöfnun. En opinber lánsfjárþörf, m.a. til að brúa bilið milli eyðslu og tekna í rikisbúskapn- um, er talin ein meginskýring hárra vaxta, sem hvíla þungt á atvinnulíf- inu. Atvinnuvegunum hafa ekki verið sköpuð skilyrði til að mynda nægjanlegt eigið fé í fyrirtækjun- um. Samkvæmt úttekt Þjóðhags- stofnunar er eigið fé í atvinnu- rekstri hér á landi 17% á heildina litið en þyrfti að vera á bilinu 25-30% til að atvinnulífíð hafi við- unandi styrk. Samkvæmt greinargerð með frumvarpi til fjárlaga 1993 voru gjöld ríkissjóðs umfram tekjur 1990 4.446 m.kr., 1991 12.534 m.kr., 1992 9.100 m.kr. (áætlun) og spáð er 6.200 m.kr. halla 1993. í vissum skilningi er ríkissjóðshalli úttekt hins opinbera á krítarkort skatt- greiðandans og þann veg „dulin skattheimta." Erfiðleikar í atvinnu- og efna- hagslífmu setja mark sitt á tekju- áætlun ríkissjóðs 1993, sem byggist á tekjum og umsvifum fólks og fyrirtækja, og virka sem fyrirstöður á vegferðinni að jöfnuði í ríkisbú- skapnum. Lánsfjárþörf A-hluta ríkissjóðs 1989-1992, sem m.a. rekur rætur til ríkissjóðshallans, er tíunduð á meðfylgjandi skýringarmynd, en hún hefur verið á bilinu 8 til 16 milljarðar króna á ári á verðlagi ársins 1992. Misvel hefur tekizt að fjármagna þá þörf innanlands svo sem myndin sýnir. Lánsfjárþörf opinberra aðila í heild hefur hins vegar verið mun meiri en A-hluta ríkissjóðs. Á árinu 1991 var lánsfjárþörf opinberra aðila (en þar vegur húsnæðiskerfið lang þyngst) rúmlega 40 milljarðar króna eða 10,5% af landsfram- leiðslu. Lánsfjárþörfín 1992 verður mun minni, eða undir 30 milljörðum króna (en áætlaður nýsparnaður er rúmir 30 milljarðar), og spár um opinbera lánsfjárþörf (hreina láns- fjárþörf) 1993 er 25 milljarðar króna. IV Þrátt fyrir það að syrt hafí í ál- inn hvað hallarekstur ríkissjóðs og opinbera skuldasöfnun varðar síð- ustu árin stöndum við þó skár að vígi í þessum efnum en ýmis önnur Evrópuríki. „ísland er í hópi þeirra landa þar sem skuldir ríkissjóðs eru STEFÁN FRIÐBJARNARSON undir meðaltali EB,“ segir í bók Guðmundar Magnússonar prófess- ors (Peningar og gengi/greinasafn um hagstjóm og peningamál á ís- landi/1992). Á hinn bóginn á hrikaleg staða Færeyinga í atvinnu-, efnahags- og fjármálum að vera okkur víti til varnaðar. Efnahagslífí þessara tveggja eyþjóða, sem byggja lífsaf- komu sína að stærstum hluta á sjávarútvegi, svipar um margt sam- an. Þar sem efnahagslegt fullveldi riðar til falls er öðrum fullveldis- þáttum hætt. V Annað af tveimur meginmark- miðum okkar næstu misserin á að vera að draga úr hallarekstri ríkis- sjóðs og opinberri lánsfjárþörf, eft- ir því sem erfíð staða í þjóðarbú- skapnum frekast leyfir. En höfuð- markmiðið er og verður að styrkja stöðu atvinnuvega og verðmæta- sköpunar. í atvinnulífínu ræðst ekki ein- ungis hvert atvinnuöryggi fólks er eða verður. Þar er lífskjörum lands- manna stakkur skorinn. Þar eru rætur efnahagslegs fullveldis okk- ar. Og síðast en ekki sízt er atvinnu- lífið sú lind sem allir tekjupóstar ríkis og sveitarfélaga eiga upptök sín í! Fitubrennsla Síðasta 8 vikna námskeið ársins hefst 28. okt. í boði eru fitubrennslutímar I og II I fyrir byrjendur. II fyrir þá, sem eru í einhverri þjálfun og vilja taka vel á (pallar notaðir). • Fitumæling og vigtun • Matarlistar og ráðleggingar • Fyrirlestrar um megrun og mataræði Sá sem missir 8 kíló eða fleiri fær frítt mánaðarkort hjá Ræktinni. Látið skrá ykkur strax. Takmarkaður fjöldi kemst að. Upplýsingar í síma 12815 og 12355. ræhtin FROSTASKJÓL 6 • SlMAR 12355 & 12815 SÓLBAÐSTOFA . AEROBIK . LÍKAMSRÆKT Metsölublað á hverjum degi! Velheppnað myndband um bríds Guðmundur Páll Arnarson og Kristján Hauksson spá í spilin á mynd- bandinu Landsleikur í brids. ___________Brids______________ GuðmundurSv. Hermannsson Komið er á markað fyrsta ís- lenska myndbandið um brids. Það ber nafnið Landsleikur í bridge - Frá leikmanni til meistara og seg- ir i kynningu á hulstrinu að til- gangurinn sé að búa til efni sem hðfði jafnt til leikmanna og reyndra spilara. Kvikmyndafélagið Nýja bíó fram- Ieiðir myndböndin, sem eru raunar tvö og taka hátt um þrjá tíma í sýn- ingu. Það er byggt upp á þann hátt, að valinn hefur verið einn leikur ís- lenska landsliðsins í heimsmeistara- mótinu í Yokohama síðastliðið haust. Fjórir nýliðar spila á spilin úr leiknum og á eftir er farið yfir það sem gerð- ist í Yokohama. Með þessu móti sést vel munurinn á því hvernig byijendur og reyndir spilarar meðhöndla spilin. Og áhorfendur eiga auðveldara með að setja sig inn í þankagang meistar- anna þegar þeir sjá þá sneiða hjá mistökum í sögnum eða spila- mennsku sem nýliðunum hafði áður orðið á. Þetta er nokkuð góð hugmynd og útfærsla hennar hefur að mínu viti einnig heppnast nokkuð vel. Leið- sögumenn áhorfenda eru Guðmund- ur Páll Amarson, einn íslensku heimsmeistaranna, og Kristján Hauksson. Guðmundur hefur kennt brids í áraraðir og veitist létt að út- skýra það sem gerist á skjánum. Kristján er í hlutverki almenna spil- arans og spyr þeirra spuminga sem hljóta að vakna hjá þeim við að horfa á myndbandið. Þá er tölvugrafíkin einhver sú besta sem ég hef séð af þessu tagi, stöðumyndimar em mjög greinilegar og auðvelt að fylgjast með sögnum og spilamennsku. Efniviðurinn, spilin, er einnig góð- ur. Leikurinn sem varð fyrir valinu er fyrsti leikur íslendinga í undan- keppninni í Yokohama gegn A-liði Bandaríkjamanna. Farið er í gegn um öll 20 spil leiksins og þar kennir margra grasa, allt frá þurrum búta- spilum upp í æsileg skiptingarspil þar sem sagnbaráttan er háð upp á sjöunda sagnstig. Og áhorfendur fá að sjá íslensku heimsmeistarana sýna á sér allar sínar bestu hliðar, hvort sem er í sögnum, úrspili eða vöm. Þótt andstæðingar þeirra í þessum leik væru sumir margfaldir heims- meistarar áttu þeir enga möguleika. Það leiðir hins vegar af sjálfu sér, að þar sem verið er að rekja atburði í bridsleik milli tveggja af sterkustu landsliðum heims hljóta spilaskýring- amar að markast nokkuð af því. Þess vegna eru þessi myndbönd varla við hæfí algerra byijenda í brids en miðast frekar við þá sem ætla að leggja stund á keppnisbrids. Og þeir sem lengra eru komnir í fræðunum geta einnig lært heilmikið af að horfa á handbragð spilaranna í Yokohama. Það virðist til dæmis upplagt fyrir spilafélaga eða sveitir að skoða myndböndin saman og ræða um hvemig þeir ætli að bregðast við stöðum á borð við þær sem koma þar upp. Það ætti einnig að auka venjuleg- um spilumm sjálfstraust að heyra heimsmeistarann lýsa því yfír, að hann hafi ekki þorað að sektardobla andstæðingana vegna þess að spilið var í upphafí leiksins og einnig að hann passaði út síðasta spilið í leikn- um vegna þess að hann hlakkaði svo til að hitta sveitarfélagana og reikna út. Menn breytast því greinilega ekki í neinar tölvur þótt þeir séu orðnir þaulreyndir keppnisspilarar að keppa á heimsmeistaramóti. Myndböndin em ekki gallalaus. Stærsti gallinn er raunar hátt verð á þeim, tæpar átta þúsund krónur á almennum markaði. Þá er sviðs- myndin full einhæf og á stundum gæti reyndari spilurum fundist út- skýringamar of ýtarlegar og langdregnar. En þrátt fyrir þetta er fengur að myndböndunum og það er óskandi að framhald verði á þessari útgáfu hjá Nýja bíós- mönnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.