Morgunblaðið - 23.10.1992, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992
BBSSS
Dr. Filipowiak og Jómsborg
UOÍIOM
Pavarotti hefur
ætið haft góða
matarlyst og á
ferðalögum hef-
ur hann fullar
töskur af ítölsk-
um mat með sér
til að koma í veg
fyrir að verða
hungurmorða.
Ævagamlir munir úr eigu nor-
rænna manna voru meðal
þess sem Dr. Filipowiak, forstöðu-
maður Þjóðminjasafnsins í Stettin,
var að taka upp úr kössum ásamt
aðstoðarmanni sínum W. Garcz-
ynskí þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins leit inn í Þjóðminjasafn
ísiands fyrir skömmu. Á borðum
lágu trélistar með íslenskum áletr-
unum sem þeir félagar höfðu komið
með frá Póllandi og upp við veggi
stóðu myndir og uppdrættir frá
uppgreftri þeim sem gerður hefur
verið í bænum Wolin, þar sem
Filipowiak og fleiri halda fram að
hin forna víkingaborg Jómsborg
hafí staðið.
„Eg er þeirrar skoðunar að Wol-
in sé sama og hin foma Jómsborg,
því í fornum heimildum m.a. ís-
lenskum, er hún nefnd að Jóme en
ekki Jómsborg. Jóm þýðir í balt-
neskum málum sama og sandrif eða
sandey. Þess vegna er það mín
skoðun að Jóm sé upphaflega balt-
neska nafnið á þessari borg. En
Wolin er pólska nafnið á henni. Jóe
er nafnið sem norrænir menn hafa
þekkt, segir dr. Filipowiak þegar
hann er spurður hvort hann trúi
því fullt og fast að munimir sem
hann var þama að taka upp séu
úr hinni fomu Jómsborg, sem m.a.
Btlamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kópavogi, sími
671800
Toyota Corolla XL '81, 5 dyra, rauöur,
5 g., ek. 25 þ. Fallegur bíll. V. 850 þús.
Cherokee Laredo '91, sjálfsk., ek. 16 þ.
mílur, m/öllu. Sem nýr. V. 2.4 millj., sk. á
ód.
Citroen CX 2.2 TRS '87, rauöur 5 g., ek.
aðeins 49 þ., rafm. i rúöum o.fl. V. 790
þús.
Toyota Corolla XL '92, 5 dyra, ek. 6 þ.
V. 920 þús.
MMC Colt GLX '90, ek. 44 þ„ 5 g. V. 790
þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLX '90, ek. 80 þ„ 5 g„
ýmsir aukahl. V. 780 þús.
MMC Lancer GLXI 4x4 '90, 5 g„ ek. 21
þ„ ým8ir aukahl. V. 1050 þús„ sk. á ód.
Mazda 323 GLX 4 x 4 '91, ek. 33 þ„ bein
innsp., rafm. i öllu o.fl. V, 1100 þús.
Jagúar XJ X '81, ek. 160 þ„ mjög gott
eintak. Einn m/öllu. V. 970 þús„ sk. á ód.
Lada Sport '88, ek. 39 þ. Góöur jeppi.
V. 340 þús.
Susuki Samurai '88, ek. 60 þ. Mikið
breyttur jeppi. V. 690 þús.
Susuki Sidokick '91, ek. 17 þ„ 5 dyra,
31" dekk. Einn m/öllu. V. 1500 þús.
Toyota Landcr. langur diesel '86, ek. 100
þ„ 35“ dekk, álfelgur o.fl. Toppeintak. V.
1580 þús„ sk. á ód.
Nlssan Vanette '91, ek. 29 þ„ 5 dyra
m/gluggum. „VSK-bfir. V. 900 þús.
M. Benz 190 '87, rauöur, 5 g„ ek. 53 þ.
Dekurbill. V. 1550 þús.
Honda Civic DX '90, rauöur, 5 g„ ek. 50
þ. Fallegur blll. V. 730 þús„ sk. á ód.
Cherokee Laredo 4.0L '88, rauður,
sjálfsk., ek. 57 þ. milur. Mikiö af aukahl.
Topp eintak. V- '650 þús„ sk. á ód.
Nissan Micra LX '90, 5 dyra, blásans, 5
g„ ek. 4 þ. Sem nýr. V. 590 þús. stgr.
Honda Clvic GL Sedan '87, sjáifsk., rauð-
ur, ek. 67 þ. Gott eintak. V. 550 þús.
Toyota Corolla XL '90, 5 dyra, sjálfsk.,
ek 48 þ. Fallegur bill. V. 780 þús„ sk. á ód.
VANTAR A STAÐINN
ÁRG. '88 - '92.
MorgunDiaoio/ avemr
Prófessor Filipowiak og aðstoðarmaður hans sl. 37 ár, W. Garczynskí.
Jómsvíkingsaga segir frá.
„Blómatími umræddrar borgar
er frá seinni hluta 9. aldar og fram
á miðja 11. öld. Það er mjög svipað-
ur tími og landnámstími íslands.
Jómsvíkingasaga er hins vegar
skrifuð um 1200, eða 100 til 200
árum eftir blómatíma borgarinnar.
Jómsvíkingasaga er því skrifuð tals-
vert eftir umræddan blómatíma og
langt frá vettvangi og er að auki
að sumu leyti skáldskapur. Það
skýrir hvers vegna lýsingar á stað-
háttum í bókinni eru ekki alveg í
samræmi við það sem er í Wolin,“
sagði Filipowiak ennfremur.
Hann gat þess líka að á blóma-
tíma þessarar borgar hafí hún verið
sjálfstætt borgríki og griðastaður
fyrir pólitíska flóttamenn frá Norð-
urlöndum á þeim tíma. „Auk þess
voru tengsl milli konungasætta
Danmerkur og þessara slóða. Har-
aldur blátönn, Danakonungur dó í
Jómsborg, segir í fomum heimild-
um. Við fundum gripi frá Norður-
löndum og það kemur heim og sam-
an við ritaðar heimildir og fomleifa-
fundi. Adam úr Brimum segir að
Jómsborg sé stærsta borgin í þess-
um hluta Evrópu og fomleifaupp-
gröftur staðfestir að í Wolin (Jóms-
borg) hafa búið 8 til 10 þúsund
manns, sem var gríðarlega há íbúa-
tala á þeim tíma. Þýski sagnaritar-
inn Helmold segir að þama hafi
staðið stærsta borg Slava.“
Þýski sagnfræðingurinn Lutz
Mohr hefur aðra skoðun á hvar
Jómsborg hin foma hafí staðið.
Hann telur hana hafa verið við
Oder hinu megin, í nánd við
Greifswald í Þýskalandi, hvað skyldi
Filipowiak segja um það?
„Þetta er tilgáta, en enginn
byggð hefur fundist nálægt
Greifswald sem bendir til að hún
sé rétt. Það verður að fínna eihveij-
ar byggðarleifar til að hægt sé að
sanna þessa tilgátu Lutz Mohr,“
sagði Filipowiak. Hann gat þess að
sýningin í Þjóðminjasafninu kæmi
hingað frá Danmörku og Svíþjóð.
„I Hróarskeldu vakti sýningin svo
mikla athygli að menn vildu fá hana
strax á eftir til Esbjerg og Álaborg-
ar og síðan til Lundar í Svíþjóð,"
sagði Filipowiak að lokum.
Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Eigendur Óssins, Óðinn Eymundsson og Gísli Vilhjálmsson, viðra sig
í blíðunni á Höfn.
MATUR
Kínversk matseld á Höfn
Undanfamar helgar hefur veit-
ingastaðurinn Ósinn á Höfn
boðið uppá kínverskan mat svona
í tilbreytingarskyni. Það er Kínveij-
inn Zhao Shan Wen, sem annast
hefur matseldina og láta innfæddir
Homfírðingar sem aðrir gestir mjög
vel af góðgætinu.
En Wen hugar ekki einungis að
magamáli Hornfirðinga því hann
segir blakfólki hjá Ungmennafélag-
inu Sindra einnig til í þeirra íþrótta-
grein. Eins eins og menn vita standa
Kínveijar mjög framarlega í blakinu
og Wen mun ekki hafa verið eftir-
bátur annarra í greininni þar á bæ.
- JGG.
SONGVAGLEÐ?
Sonur bakarans
Illar tungur hafa sagt að tenór-
söngvari 'allra tíma, Luciano
Pavarotti, sé of gamall, of feitur,
of veikur og þar fram eftir götun-
um, en í ópemnni Tosca sem sýnd
var í London á dögunum
sýndi hann svo ekki er um
villst hver er bestur.
Eiginkona hans Adua
segir í viðtali við þýska
tímaritið Bunte, að hann
eigi ekki síst konum að
þakka velgengni sína. Hann
sé alinn upp af konum og
fjölskylda hans samanstandi
af konum sem styðja hann
og styrkja á alla lund. Pava-
rotti er svo ljónheppinn að
eiga þijár dætur sem dekra
við hann, en líklega er það
gagnkvæmt því Adua sem
hefur verið gift söngvaran-
um í 40 ár, segir að hann
elski allar konur, jafnt ung-
ar sem aldnar eins og ítala
er gjaman siður. Hins vegar
sé hann tryggur eiginmað-
ur, en hið sama verði ekki
sagt um landa hans.
Pavarotti er einkasonur
bakara og verkakonu, var dýrkaður
og elskaður frá fæðingu og er því
vanur að vera í hlutverki sigurveg-
arans eins og kona hans segir. Þau
hjónin kynntust í Modena árið 1953
í afmæli sameiginlegs vinar, hann
aðeins 17 ára gamall, hún 16 ára.
Hann bauð henni síðar í bíó og ári
síðar trúlofuðu þau sig. Sú trúlofun
stóð í sjö ár, því Pavarotti var í
söngnámi jafnhliða kennarastarfi
sínu og treysti sér því ekki til að
ala upp böm og sjá fyrir fjölskyldu.
Árangur hans á söngsviðinu var
enginn framanaf og reyndar hafði
hann ákveðið að stíga aldrei fæti
sínum meir á óperasviðið.
En örlögin höfðu ætlað honum
annað. Hann fékk hnúta á radd-
böndin sem hann þurfti að láta fjar-
lægja og brá svo við að eftir upp-
skurðinn var rödd hans orðin skær
og fögur. Árið 1961 vann hann í
söngkeppni og fékk smáaura fyrir,
en það dugði til að þau Adua létu
pússa sig saman og fóm á gamla
Fiatinum sínum til Flórens í brúð-
kaupsferð.
Árið 1965 stóð hann sigri hrós-
andi í garðinum og hrópaði á konu
sína sem kom strax út í glugga til
að sjá hvað um væri að vera. í
annarri hendi veifaði Pavarotti
samningi við Scalaóperuna í Mflanó,
og í hinni hélt hann á saftpressu.
Kvöldinu áður hafði hann lagt
áherslu á að nú þyrftu þau að spara
og hefðu því ekki efni á saftpress-
unni, en nú vom sem sagt breyttir
tímar.
Pavarotti dreymdi alltaf um að
eignast hús sem hýst gæti alla fjöl-
skylduna og hefur sá draumur ræst.
Þau hjónin eiga gamla villu í Mod-
ena og í stórri viðbyggingu em
íbúðir bæði fyrir systur hans og
fjölskyldu hennar, og systur Adua
og hennar fjölskyldu. Stórfjölskyld-
an matast því oft saman í garðinum
og em þau oft 25 samankomin þeg-
ar vinir em meðtaldir. í félagsskap
fjölskyldunnar líður honum best,
enda er stjanað við stjömuna, einn
réttir honum vínglas, annar leitar
að pennanum hans og sá þriðji rétt-
ir honum símann.
Adua segir að ástæðuna fyrir því
að þau berist lítið á sé sú, að vel-
gengni þeirra kom seint og þau viti
nákvæmlega hvað það sé að eiga
ekki neitt. Hún segir að sonur
bakarans hafí lítið breyst og að ást
hans til óperunnar, matarástin og
hjartahlýjan eigi rætur sínar í
Modena.
Umvafinn
kvenfólki allt
sitt líf. Hér með
konu sinni
Adua og dætr-
unum Lorenza,
Cristina og
Giuliana.