Morgunblaðið - 23.10.1992, Page 47
ÚRSLIT
ÍBV - Egyptaland 20:22
íþróttamiðstöðin f Vestmannaeyjum, æfinga-
leikur í handknattleik fimmtudaginn 22.
október 1992.
Gangnr leiksins: 2:2, 3:4, 4:7, 6:9, 7:12
8:16, 11:17, 14:17, 17:19, 19:21 20:22.
Mörk ÍBV: Zoltan Belany 7/4, Björgvin Þór
Rúnarsson 7/3, Guðfinnur Kristmannsson
2, Gunnar Már Gfslason 2, Haraldur Hannes-
son 1, Davíð Hallgrímsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson fO/2
(þar þijú þannig að knötturinn fór aftur til
mótheija).
Utan vallan 4 mínútur.
Mörk Egyptalands: Hussam Gharib 6/1,
Saméh A Waress 6, Adel E1 Sharkawy 3,
Yasser Labib 3, Shmed E1 Attor 2, Aser
E1 Kasaby 1, Mobsen Sollman 1.
Varin skot: Ayman Salah 6, Khaled E1
Kordy 1.
Utan vallar. 2 mínútur.
Dómarar: Kristján Gaukur Kristjánsson og
Birgir Ottósson.
Áhorfendur. Um 200.
■í fyrri hálfleik gerðu Eyjamenn tvö fyrstu
mörkin og síðan var leikurinn eign Egypta,
þeir juku forskopt sitt jafnt og þétt og þeg-
ar flautað var til ieikhlés höfðu þeir náð
átta marka forskoti, 16:8. ÍBV liðið lék
vægast sagt illa f fyrri hálfleiknum. Sigurð-
ur Gunnarsson þjálfari, sem lék reyndar
ekkert sjálfur, hefur væntanlega messað vel
yfir mönnum sínum f leikhléinu og það hafði
góð áhrif þvf Eyjamenn sýndu mun betri
leik eftir hlé, náðu oft að minnka muninn í
eitt mark en þegar upp var staðið sigruðu
Egyptamir með tveggja marka mun. í liði
ÍBV voru Zoltan Belany lang atkvæðamest-
ir og undir lokin hrökk Sigmar Þröstur f
gang og varði þá meðat annars tvö vfta-
köst. Hjá Egyptum var Hussam Garib skást-
ur.
Sigfús Gunnar Guðmundsson.
2. deOd karla í gærkvöldi: '
Ógri - Breiðablik................9:23
Bemharð Guðmundsson 5, Rúnar Vilhjálms-
son 1, Marek Wolanczyk 1, Tadeuzs J. Bar-
an 1, Georg B. Einarsson 1 — Sigurbjöm
Narfason 5, Ingi Þór Guðmundsson 4, Aðal-
steinn Jónsson 3, Ámi Stefánsson 2, Ingólf-
ur Sigurðsson 2, Bjöm Jónsson 2, Elvar
Erlingsson 1, Eyjólfur Einarsson 1, Jón Þórð-
arson 1, Jón Þór Einarsson 1, Guðjón Hauks-
son 1.
Knattspyrna
EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA
Moskvu:
Spartak - Liverpool (Englandi)...4:2
Pesarev (10.), Karpin 2 (67., 83. vsp.), Ledw-
hnakov (89.) - Mark Wright (65.), Steve
McManaman (79.).
UEFA-KEPPNIN
Kaupmannahöfn:
Frem - Real Zaragossa............0:1
Tórinö, Ítalíu:
Tórinó - Dynamo Moskvu...........1:2
Timofiev (sjálfsm. 55.) - Kasumov (45.),
Simutenkov (68.). Áhorfendur: 30.000.
UMFN - Haukar 95:111
Njarðvík, úrvalsdeildin f körfuknattleik,
fimmtudaginn 22. október 1992.
Gangur leiksins: 0:9, 2:9, 4:15, 15:17,
25:39, 42:40, 50:51, 57:63, 63:76, 72:82,
79:100, 95:111.
Stig UMFN: Jóhannes Kristþjömsson 23,
Teitur Örlygsson 21, Sturla Örlygsson 21,
Ástþór Ingason 15, Átli Ámason 6, Gunnar
Örlygsson 3, Brynjar Sigurðsson 2, Agnar
Olsen 2, Eysteinn Skarphéðinsson 2.
Stig Hauka: Pétur Ingvarsson 31, Jón Am-
ar Ingvarsson 30, John Rhodes 30, Sigfús
Gissurarson 7, Jón Öm Guðmundsson 5,
Tryggvi Jónsson 4, Bragi Magnússon 2,
Einar Einarsson 2.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og Jón
Otti Ólafsson dæmdu ágætlega.
Áhorfendur: Um 200.
KR-UMSK 92:98
íþróttahúsið Seltjamamesi.
Gangur leiksins: 0:3, 6:9, 10:9, 12:12,
16:16, 24:19, 26:29, 37:33, 37:42, 41:49,
46:56, 60:56, 67:66, 67:74, 74:85, 80:90,
86:93, 87:99, 92:99.
Stig KR: Birgir Mikaelsson 23, Alexander
Ermolinskis 20, Henning Henningsson 15,
Skúli Skúlason 15, Sigurður Elvar Þórólfsson
11, Eggert Jónsson 9, Þórður Helgason 6.
Stig UMSK: Harold Thompkins 19, Her-
mann Hauksson 16, Lárus Ámason 14,
Hrafn Kristjánsson 12, Guðni Ó. Guðnason
11, Sigurður Jónsson 6, Óskar Knstjánsson
5, Mattfas Einarsson 4, Þórhallur Flosason
4, Benedikt Sigurðsson 2.
Dómaran Kristján Óskarsson og Knstinn
Albertsson vom nyög góðir.
Áhorfendur: 355.
SKÍÐI
B-liðsmennimir
líkaá jöklinum
Landsliðið á skíðum er nú við
æfingar á Snæfellsjökli eins
og fram kom í blaðinu í gær. A
fréttinni í gær mátti skilja að ein-
unps A-landsliðsmennimir þrír,
Kristinn Bjömsson, Amór Gunnars-
son og Ásta B. Halldórsdóttir, væm
þar en B-landsliðsmennirnir tveir
úr Ármanni, Haukur Amórsson og
Ásþór Sigurðsson em einnig á jökl-
inum við æfingar.
k6GI JI38ÓT5IO .8S fflJöAGÍÍT3Ö3 Slíl • QKJAJHVIUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILDIN
KRréð
ekki við
Skalla-
grím
KR-INGUM tókst ekki að hemja
Borgnesinga á Seltjarnarnesinu
í gærkvöldi og töpuðu 92:99
þegar úrvalsdeildin í körfu-
knattleik hófst á ný eftir stutt
hlé. „Við börðumst betur og
hittum en þeir klikkuðu of mik-
ið. Eftir hlé vorum við of bráðir,
hnoðuðum of mikið og skutum
of snemma en tókum þá leikhlé,
ræddum málin, náðum okkur á
strik og kipptum leik okkar í lið-
inn,“ sagði Henning Hennings-
son hjá Skallagrími.
Vesturbæingamir beittu stífri
pressuvöm en það gekk ekki
upp og Borgnesingar komust hægt
__ og örugglega yfir
með yfirveguðu spili
sfetánsson °S dugnaði undir
skrifar korfunm. KR-ingar
náðu samt að kom-
ast fimm stigum yfir um miðjan
hálfleik en mótspyma átti ekki við
þá og Skallagrímur hafði tíu stiga
forskot í leikhléi.
KR-ingar komust uppá tæmar
strax eftir hlé og náðu að skora 14
stig á móti tveimur stigum gest-
anna. Birgir Mikaelsson reif sig upp
á nýjanleik og Borgnesingar fundu
aftur fjölina sína og náðu ömggu
forskoti. Undir lokin reyndu KR-ing-
ar að vinna upp forskotið með stans-
lausum brotum til að stoppa klukk-
una en það gekk ekki upp.
Heimamenn náðu ekki tökum á
leiknum þrátt fyrir mikla baráttu,
það vantaði ekki viljann, en neistan
vantaði. Þeir náðu aðeins átta sókn-
arfráköstum og nýtingin 1 fyrri hálf-
leik var 36% en 46% eftir hlé. Her-
mann Hauksson var bestur þeirra.
Skallagrímur sigraði á örygginu
og jöfiiu spili. Leikmenn notuðu
sóknimar og leituðu færa sem þeir
nýttu. Birgir átti frábæran leik fyrir
utan hrikalegan kafla íbyrjun síðari
hálfleiks. Alexander Ermolinskis var
mjög góður, hirti mörg fráköst og
deildi boltanum vel í sókninni. Skúli
Skúlason gerði 12 stig af 15 úr
þriggja stiga skotum.
íkvöld
Körfuknattleikur
Úrvalsdeildin
Njarðvlk: UMFN-Haukar....kl. 20
Handknattleikur
2. deild karla:
Austurberg: Fjölnir - Grótta ...kl. 20
Strandgata: ÍH-Fylkir...kl. 20
Keflavík: HKN-UMFA......kl. 20
Haukar betri
Unnu Njarðvíkinga í „Ljónagryfjunni“
s= corclata
HAUKAR sigruðu UMFN
111:95 í Njarðvík í gærkvöldi.
Hafnf irðingar voru mun spræk-
ari og betri að þessu sinni og
áttu heimamenn ekkert svar
við góðum leik bræðranna Jóns
Arnars og Péturs.
Haukamir byijuðu mun betur
og virtust ætla að gera út um
leikinn strax í fyrri hálfleik. Þeir
komust í 25:39 en
Bjöm þá hófu heimamenn
Blöndal að leika pressuvöm
skrifar með þeim árangri
að þeir komust yfir
um tíma en Haukar höfðu einu stigi
betur í leikhléi.
Haukar tóku upp þráðinn í síðari
hálfleik, léku góða vöm og sigmðu
nokkuð ömgglega. Þeir vom ein-
faldelga betri að þessu sinni og
áttu bræðumir Pétur og Jón Amar
Ingvarssynir mjög góðan leik, svo
og John Rhodes.
Njarðvíkingar létu mótlætið fara
í taugamar á sér og fengu dæmdar
á sig þijár tæknivillur á mikilvæg-
um augnablikum, þegar þeir þurftu
á öllu öðra að halda.
„Við eram alsælir með sigurinn.
Þetta var flögurra stiga leikur því
sigur á útivelli gegn liði sem er
með okkur í riðli er mikilvægur.
Það er ekki á hveijum degi sem
menn vinna Njarðvík þrisvar í röð,
en það höfum við gert í haust,"
sagði Ingvar Jónsson þjálfari
Hauka eftir sigurinn.
Nýja DX2 tölvan frá Cordata
er besti kosturinn þegar þú
þarft öflugan netstjóra eða
vinnustöö tyrir CAD- og um-
brotsverkefni. Áralöng reynsla
framleiðanda og innflytjanda
tryggja þér bestu þjónustu og
gott verð.
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 - Sími 688944 - Fax 679976