Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.10.1992, Blaðsíða 29
: ;MÖÉidtjÍÍÉlíDá)ÍEi i!ÁítíéA!É$Á(ÉÍ5á-^.'ÍM5ÍSIS£^2- «& Húsið á Eyrarbakka. Ríkið kaupir Húsið á Eyrarbakka Byggðasafn Amesinga flyst í Húsið eftir endurbætur á því Sclfossi. SAMNINGUR um kaup ríkisins á Húsinu á Eyrarbakka var undir- ritaður á mánudag. í kjölfar þess undirrituðu fulltrúar héraðs- nefndar Árnesinga, fjármálaráðuneytis, menntamálaráðuneytis, Þjóðminjasafns Islands og Eyrarbakkahrepps samkomulag um framtiðarskipan, umsjón og rekstur Hússins. Samkomulagið kveð- ur meðal annars á um að þegar fullnaðarendurbótum á Husinu er lokið að mati Þjóðminjasafns íslands munu Eyrarbakkahrepp- ur og héraðsnefnd Árnesinga taka við rekstri og viðhaldi eignar- innar. Áformað er að flytja Byggðasafn Árnesinga frá Selfossi í Húsið fyrir mitt ár 1994 og er heimilt að hefja flutning á meðan á viðhaldi stendur. Ríkissjóður kaupir Húsið með mánuðum. Þjóðminjasafn fslands viðbyggingu og útihúsum og legg- tekur við umsjón eignarinnar fyrir ur rúmar 11,2 milljónir til við- hönd ríkisins og mun ráðstafa, í gerða og endurbóta á næstu tólf samráði við héraðsnefnd Ámes- mga og r,yrarDaKKanrepp, ijar- framlagi ríkisins til viðgerða og endurbóta. Að loknum endurbótum á hús- næðinu munu Eyrarbakkahreppur og héráðsnefnd taka við rekstri og viðhaldi eignarinnar í samráði við Þjóðminjasafn íslands. Loks er ákvæði um það í samn- ingnum að Eyrarbakkahreppur fellir niður öll gjöld af eigninni til sveitarsjóðs frá afhendingardegi og tekur við allri umsjón með Ióð og lóðarframkvæmdum. - Sig. Jóns. Rekstur Kísiliðjunnar og lífríki Mývatns fara saman segir Friðrik Signrðsson framkvæmdastjóri FRIÐRIK Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Kisiliðjunnar við Mývatn, segir að grundvallar- misskilnings gæti hjá Þorgrími Hrossum slátrað á Japans- markað Á VEGUM Goða hf. stendur nú yfir slátrun hrossa fyrir Japans- markað. Hrossakjötið er flutt út kælt með flugi og fara vikulega 2,5 til 3 tonn af fitusprengdu kjötu af afturparti, svokölluðum pístólum. Á miðvikudag verður næst slátr- að í sláturhúsi kaupfélagsins á Hvammstanga og leitar Goði eftir hrossum til afgreiðslu á næstu vik- um. Kjötið á að vera af fullorðnum hrossum, helst yfir fjögurra vetra gömlum og þau þurfa að vera stór og vel feit, samkvæmt upplýsingum Jóhanns Steinssonar forstöðu- manns erlendra viðskipta hjá Goða hf. Goði hefur staðið fyrir útflutnigi hrossakjöts til Japans frá árinu 1984 og síðustu árin hefur þessi útflutningur sífellt aukist. Hafa far- ið 60 til 80 tonn á ári, að mestu pístólur en einnig hefur Goði flutt út úrbeinað hrossakjöt á þennan markað. Starra Björgvinssyni, bónda í Garði, sem segir í samtali við Morgunblaðið í gær að velja verði á milli verksmiðjunnar annars vegar og lífríkis vatnsins og Laxár hins vegar og það val sé auðvelt. „Rekstur Kisiliðjunn- ar og viðhald lífríkis Mývatns fara saman. Það þarf ekki að velja þar á mUli,“ sagði Friðrik í samtali við Morgunblaðið. „Það er búið að rannsaka hugs- anleg áhrif Kísiliðjunnar á lífríki Mývatns undanfarin ár. Þessar rannsóknir hafa kostað 60 milljón- ir króna og í skýrslu sérfræðinga- nefndar um Mývatnsrannsóknir sem kom út í fyrra segir að ekki hafi tekizt að tengja sveiflur í dýra- stofnum í vatninu til starfsemi Kísiliðjunnar," sagði Friðrik. Hann sagði að það væri jafn- framt rangt hjá Þorgrími Starra að „geypilegar" köfnunarefnis- Þetta er í fyrsta sinn sem slík keppni er haldin hér á landi og er hún haldin undir kjörorðinu Eflum íslenskan iðnað. Þessi keppni er sérstaklega til að koma íslensku tísku og fatagerðarfólki á framfæri hér heima og erlendis. Keppt er í fjórum flokkum: Sportklæðnaði, dagfatnaði, kvöld- og samkvæmis- fatnaði og frjálsum stíl. breytingar hefðu orðið í lindarvatni af völdum Kísiliðjunnar. „Þvert á móti segir í skýrslu sérfræðinga- nefndarinnar að heildaraukning þessara efna sé svo lítil að þeirra gæti ekki í mælanlegum styrk í vatninu," sagði Friðrik. „Þorgrímur Starri hefur frá fyrstu tíð verið andsnúinn starf- semi Kísiliðjunnar. Hann og aðrir andstæðingar kísilgúrvinnslunnar telja Kísiliðjuna allsheijarskaðvald í Mývatni,“ sagði Friðrik. „En áður en Kísiliðjan kom til sögunnar hafði Þorgrímur Starri aðrar skýr- ingar á sveiflum í lífríki vatnsins." Friðrik vitnaði í viðtal Þjóðvilj- ans við Þorgrím Starra 1959, þar sem hann hefði sagt „að veiði í vatninu hefði alltaf gengið í öldum og byggðist það vafalaust á tíðarf- arinu hve vel seiðum gengi að kom- ast upp. Þá mætti einnig kenna ofveiði um veiðileysi." Keppnin sjálf hefst kl. 22 og stendur yfir í um hálfa klukku- stund. Eftir keppnina verður ljós- myndun fyrir tímaritið Hár & feg- urð og aðra fjölmiðla og mun gest- um gefast kostur á að fylgjast með. Úrslitin í keppninni verða svo birt rétt eftir miðnætti. (Úr fréttatilkynningu) Keppni í tískuhönn- un og fatagerð KEPPNI í tískuhönnun og fatagerð verður haldin á veitingahúsinu L.A. Café sunnudaginn 25. október. Að keppninni standa Félag meistara og sveina í fataiðn og tímaritið Hár & fegurð. Námskeið um per- sónuleika fíkla Craig Nakken, sálfræðingur frá Bandaríkjunum, heldur námskeið hér á landi dagana 6. og 7. nóvember. Námskeiði, sem ber heitið „The Addictive Personality," eða Persónuleiki fíkilsins, verður hald- ið á Hótel Lipd við Rauðarárstíg hefst klukkan 8.30 báða dagana og stendur til klukkan 16.30. í fréttatilkynningu segir: Áætlað er að á íslandi séu um það bil 19000 alkohólistar (svolítið mismunandi eftir skilgreiningum), 28000 böm alkohólista, fyrir utan spilafíkla, átfíkla, kynlífsfíkla og aðra þá sem hafa ánetjast einhverri fíkn. Allir þessir einstaklingar skaðast af fíkn sinni og allir þeir sem búa með þessum einstaklingum verða fyrir barðinu á fíkninni og bera þess merki lengi á eftir. Stór hluti skjól- stæðinga félagsráðgjafa, sálfræð- inga, geðlækna og annarra ráðgjafa (sumir- segja 60 til 80%) eru fíklar og/eða hafa búið við fíkn á sínu heimili. Þau mál sem drepið verður á, á námskeiðinu eru, meðal annars: Persónugerð fíkilsins og skipting hans í sjálf/fíkill, hugsunarháttur hans, reglur og samskiptamunstur, þróunarstig sjúkdómsins og ein- kenni. Einnig verður rætt um skömm og sektarkennd, hvemig endurhæfíng hjálpar til við þroska persónuleikans, „Fall“ og hvemig hægt er að hindra það, aðlögun að breyttum lífsstíl og afskipti af fíkl- um. Lögbannsbeiðni tannlækna samþykkt Tannsmið bannað að máta gervigóma í sjúklingum sínum Kallar á lagabreytingar, segir for- maður tryggingaráðs SÝSLUMAÐURINN í Reykjavík lagði lögbann við hluta samnings Tryggingastofnunar ríkisins við Bryndísi Kristinsdóttur tannsmið í vikunni, gegn 10 miUjón kr. tryggingu frá lögbannsbeiðanda, Tann- læknafélagi íslands. Búist er við að staðfestingarmál verði höfðað í næstu viku. Samkvæmt lögbanninu er Bryndísi óheimilt að máta gervigóma í munni sjúklinga. Jón Sæmundur Siguijónsson, formað- ur tryggingaráðs, telur að breyta þurfi lögum í þá veru að tannsmið- um leyfist að máta þau hjálpartæki sem þeir smiða í munnholi þeirra sem á þeim þurfa að halda. Úrskurðurinn var kveðinn upp í ljósi þess að hluti af starfsemi Bryndísar bryti lögvemduðum hagsmunum tannlækna. Lögbann er lagt við beitingu samnings sem gerður var milli Trygginga- stofnunar ríkisins og Bryndísar Kristinsdóttur tannsmiðs 17. ág- úst sl. að því er tekur til tann- smíðavinnu Bryndísar í munnholi sjúklinga. Tannlæknafélag ís- lands fór fram á að lögbann yrði lagt við samningnum í heild. Bryndís vildi ekki tjá sig um málið er Morgunblaðið hafði sam- band við hana. Tannlæknafélag íslands mun væntanlega höfða mál til staðfest- ingar lögbanninu og fara þá fram frekari vitnaleiðslur. „Við getum gengið út frá því í samningnum að Bryndís láti annaðhvort tannlækni eða sjúkl- ingana sjálfa máta gervigóma í munnholi. Það er hins vegar ekk- ert óvenjulegt að samið sé við ein- hvem um greiðslur, hvemig svo sem hann fær það gert,“ sagði Jón Sæmundur Siguijónsson, formað- ur tryggingaráðs. „Er ekki réttara að fagmaður- inn máti hjálpartækin sem hann smíðar í munnholi sjúklingsins? Og er þá ekki rétt að breyta lögun- um á þann hátt? Ég tel svo vera,“ sagði Jón Sæmundur. Hann sagði að eftir nokkm væri að slægjast í þessu máli fyrir sjúklingana og Tryggingastofnun, því samkvæmt samningnum við Bryndísi væri kostnaðurinn 30-35% lægri en ef tannlæknar kæmu að málinu. „Að því leyti held ég að það hljóti að koma til lagabreytingar hvað þetta snertir." „Dagur rafmagns“ í dag RAFMAGNSVEITA Reykjavíkur heldur „dag rafmagns“ í dag, laugardaginn 24. október. Þá verður opið hús fajá Rafmagnsveit- unni á Suðurlandsbraut 34. Starfsmenn fyrirtækisins munu kynna starfsemina og upplýsingar verða veittar um hagkvæma nýt- ingu rafmagns á heimilum. Lögð verður áhersla á að kynna neyt- endum kostnað við rekstur ein- stakra heimilistækja. Hægt verður að fá upplýsingar um hvað kostar að baka, þvo eða þurrka með raf- magni o.s.frv. Starfsmenn munu einnig kynna þætti í starfseminni eins og t.d. „landupplýsingakerfið" en það er tölvuvænt kortakerfí. Þá verður gestum boðið upp á RR-kökur. Rafmagnsdagur Rafmagns- veitu Reykjavíkur hefst kl. 10 og lýkur kl. 17. Aætluii Borgarkringluvagns • STRÆTISVAGNINN sem hér er vegna Bretlandsveislu mun aka um götur Reykjavíkur samkvæmt ákveðinni áætlun miUi miðbæjar og Mjóddar og tekur hver ferð um hálfa klukkustund. Mánudag til föstudags hefjast ferðir klukkan 12.15 frá Arnarhóli og síðan verða ferðir þaðan á klukkutíma fresti 15 mínútur yfir heila tímann. Frá Borgarkringlunni verður farið 15 mínútur fyrir heila tímann og lýkur ferðunum þar klukkan 18. Á laugardögum hefjast ferðir frá Amarhóli klukkan 10.15 og lýkur í Borgarkringlunni kl. 18. Ókeypis er í vagninn fyrir alla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.