Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 30
3^
Skautafélag Akureyrar
Samningur gerður
við bæinn um rekst-
ur skautasvæðisins
SAMNINGUR hefur verið gerður á milli Akureyrarbæjar og Skauta-
félags Akureyrar um að félagið taki að sér rekstur skautasvæðisins
fyrir hönd bæjarins á næsta ári. Þá hefur bærinn yfirtekið skuld
félagins við Rafveitu Akureyrar upp á 780 þúsund krónur.
Magnús Finnsson, gjaldkeri
Skautafélags Akureyrar, sagði
samninginn mikla bót á rekstrar-
vanda félagsins. „Ég hef trú á því
að við getum rekið svæðið á þennan
hátt,“ sagði Magnús.
Reiknað er með að starfsemi fé-
lagins fari af stað í næstu viku og
að æfingar hefjist innan skamms.
í vetur verður lífgað upp á starfið
með því að bjóða skólum og hópum
upp á að leigja svellið með kennara
og þess vænst að skólamir nýti sér
það.
Finnski þjálfarinn Pekka Santan-
en er væntanlegur til Akureyrar í
byijun nóvember, en hann þjálfaði
liðið í fyrra með ágætum árangri,
en Skautafélag Akureyrar varð ís-
landsmeistari í íshokkíi á liðnum
vetri.
Píanótónleik-
ar í safnað-
arheimili
HELGA Bryndís Magnúsdóttir
píanóleikari heldur tónleika í
safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju á mánudagskvöld, 26.
október, kl. 20.30.
Á efnisskránni eru verk eftir
Bach, Ravel, Debussy og Schu-
mann, en þessa efnisská hefur
Helga Bryndís flutt á tónleikum
nýlega á Húsavik, í Borgarfirði,
Vestmannaeyjum, Reykjavík og
Garðabæ og verða tónleikamir í
safnaðarheimilinu hinir síðustu í
röðinni með þessari efnisskrá, en
hvarvetna hefur hún hlotið lof
gagnrýnenda fyrir leik sinn.
Helga Bryndís lauk píanókenn-
ara- og einleikaraprófi frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík árið 1987,
Helga Bryndís Magnúsdóttir.
en síðan nam hún píanóleik í tvö ár
í Vín og loks önnur tvö ár við Síbel-
íusarakademíuna í Helsinki. Hún
kennir nú við Tónlistarskólann á
Akureyri.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Loðnuleiðangur gengur vel
Rannsóknarskipin Ámi Friðriksson RE og Bjami Sæ-
mundsson RE lágu við Torfunefsbryggju á Akureyri í gær,
en skipin hafa verið við loðnuleit að undanfömu. Leiðangur-
inn hófst 13. október síðastliðinn og gerðu leiðangursstjórar
þeir Hjálmar Vilhjálmsson og Sveinn Sveinbjömsson ráð fyr-
ir að koma í land um mánaðamótin og yrðu niðurstöður leið-
angursins tilbúnar fljótlega eftirþað. „Þetta hefur gengið
ágætlega og veðrið hefur verið einstaklega gott,“ sagði Hjálm-
ar. „Þetta er eitthvað annað en túrinn sem við fórum í ág-
úst, þá hrepptum við norðanbrælu í tuttugu daga,“ bætti
Sveinn við. Ámi Friðriksson kom inn vegna smávægilegrar
bilunar, en viðgerð fór fram í gær og var ráðgert að skipið
'héldi aftur út einhvem tíma í dag, laugardag. Bjarni Sæ-
mundsson fór um miðjan dag í gær og var förinni heitið á
svæðið austur af Rauðanúp. Ekki tókst að kanna svæði á
Grænlandssundi, norð-vestur af Vestfjörðum vegna hafíss,
en þess er vænst að hægt verði að skoða það svæði áður en
leiðangrinum lýkur. Á myndunum má sjá rannsóknarskipin
tvö við Torfunefsbryggju, en á minni myndinni eru leiðangurs-
stjóramir Hjálmar og Sveinn.
Verðdæmi:
Indy Lite GT, árgerð ’92,
kr. 367.718.
Indy Sport, árgerð ’92,
kr. 400.698.
Indy 500, árgerð ’92,
kr. 518.400.
Nýtt og betra húsnæði
í tilefni af flutningi okkar í nýtt
húsnæði í Undirhlíð 2, Akur-
eyri, bjóðum við 10% stað-
greiðsluaflátt af öllum gerð-
um Polaris sleða hjá söluaðil-
um um allt land.
Tilboðið gildir ffró
1. nóv.-15. des.
Verið velkomin!
Söluaðilar:
Einkaumboð á íslandi: Hjólbarðaþjónustan, Undirhlíð 2, Akureyri, s. 96-22840.
Suðurland: HK þjónustan, Smiðjuvegi 4b, Kópvogi, s. 91-676155.
Austurland: Sigurður Rögnvaldsson, Koltröð 22, Egilsstöðum, s. 97-11576.
Vestfirðir: Bílatangi, Suðurgötu 9, ísafirði, s. 94-3800.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Jógvan Purkhús, verslunarstjóri á Akureyri, Ami Jensen, verslunar-
stjóri í Færeyjum, og Sigurður Aðils, verslunarstjóri Rúmfatalagers-
ins í Kópavogi, í nýju versluninni við Norðurtanga.
Rúmfatalagerinn nýju húsnæði
Rúmfatalagermn opnar verslun
f nýju húsnæði við Norðurtanga
3, skammt norðan við Slippstöð-
ina, á mánudaginn, 26. október.
Rúmfatalagerinn hefur í rúm fjög-
ur ár verið til húsa á Óseyri, en í
vor keypti verslunin grunn við Norð-
urtanga af Jámtækni og var þá þeg-
ar hafist handa um byggingu hússins
og sá Jámtækni um framkvæmdir.
Gólfflötur verslunarinnar er 1.100
fermetrar.
Vöruúrval Rúmfatalagersins er
fjölbreytt, áhersla er lögð á rúmfatn-
að, rúm og dýnur, en auk þess er
þar smávara af ýmsu tagi. „Með
hagstæðum innkaupum hefur okkur
tekist að ná vöruverðinu niður og
við látum viðskiptavini okkar njóta
þess. Þegar kreppir að sækist fólk
eftir ódýrari vöru,“ sagði Jógvan
Purkhús verslunarstjóri.
Verslunin verður opin frá kl. 9 til
18 virka daga og frá 10 til 14 á laug-
ardögum.
Fundur um atvinnumál
FUNDUR um atvinnumál verður
haldinn í 1929 næstkomandi
þriðjudagskvöld, 27. október kl.
20.00 að frumkvæði Junior Cham-
ber á Akureyri.
Yfirskrift fundarins er atvinnu-
ástandið í dag, framtíðarhorfur og
ráð til úrbóta.
Frummælendur verða Ásgeir
Magnússon, framkvæmdastjóri Iðn-
þróunarfélags Eyjafjarðar, Magnús
Magnússon, útgerðarstjóri Útgerðar-
félags Akureyringa, Haukur Hall-
dórsson, formaður Stéttasambands
bænda, Jón Þór Gunnarsson, iðnað-
arverkfræðingur, Jón Gauti Jónsson,
atvinnumálafulltrúi Akureyrarbæjar,
Ármann Helgason, varaformaður
Iðju, og Sigurður J. Sigurðsson, for-
maður bæjarráðs.
Á eftir verða pallborðsumræður
þar sem frummælendur munu skipt-
ast á skoðunum og svara fyrirspum-
um sem fram koma.