Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 11

Morgunblaðið - 24.10.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGÚR 24. OKTÓBER 1992 .........11 VALD KVENNA Nemendaleikhúsið frumsýnir Clöru S. eftir Elfriede Jelinek CLARA Schumann er flutt inn til ítalska skáldsins Gabriele d’Ann- unzio ásamt dóttur sinni Marie. Hneyksli? Nei, tæpast, því Clara S. var rúmlega fertug þegar ítalinn fæddist árið 1863 og lést 1896, áður en Gabriel hafði gert af sér umtalsverðan óskunda. En leikpersónur yfirstíga hindranir tíma og staðreynda án þess að blása úr nös og því er Clara S. flutt inn til d’Annunzios og er heimili hans risið undir þaki Lindabæjar, leikarar Nemenda- leikhússins klæða texta austurrísku skáldkonunnar Elfriede Jel- inek holdi. f viðtali segir hún „ég hef fengist við fagurfræðileg- ar spurningar í áraraðir og ætið með hina kúguðu í huga. Kon- an sem kúguð stétt eða öreigi.“ Tilvitnunin ætti að gefa ein- hveija vísbendingu um efni „músíkalska harmleiksins“ Clöru S. sem frumsýndur var í gærkvöldi. Morgunblaðið/Kristinn Clara S. (Vigdís Gunnarsdóttir) fer yfir fingraæfingar dóttur sinn- ar Marie (Kristina Sundar Hansen). Clara Wieck var frægur píanó- leikari og hafði fengist við tón- smíðar þegar hún hitti tónskáldið Robert Schumann, sem þá var áratug eldri en hún. Schumann unni Clöru hugástum og gengu þau í hjónaband 1840. Þau eign- uðust átta börn. Hann tileinkaði henni fyrstu píanósónötu sína og átta árum síðar sat hún við nótna- borðið og frumflutti píanókonsert í a-dúr, sem af mörgum er talinn ein fegursta rósin í hnappagati Schumanns. Tónskáldið fékk taugaáfall 1854, reyndi að svipta sig lífí og andaðist tveimur árum síðar á hæli fyrir geðsjúka. Þang- að hafði hann verið fluttur að eigin ósk. Clara lést rúmum fjöru- tíu árum síðar. Elfriede Jelinek túlkar ævi Clöru sem harmsögu- lega; að hún hafí orðið „þjónusta mannsins síns í listsköpun hans. Sjálf samdi hún aldrei framar." Elfriede Jelinek ólst upp í Vín- arborg. Hún nam leiklistarfræði, listasögu og tónlist og lauk ein- leikaraprófí í orgelleik 1970, en fyrsta bók hennar hafði verið gefín út nokkrum árum áður. Hún hefur sent frá sér ljóðabækur, skáldsögur, leikrit, ritgerðir og kvikmyndahandrit. Leikritið Clara S. var frumsýnt 1982 og byggist á sögu Schumann-hjón- anna og alræmdum lífsháttum Gabrieles d’Annunzios. Hann var öfgasinnaður ítalskur þjóðernis- sinni og tilfínningasamur rithöf- undur er skrifaði bækur með titl- um eins og Sælan, Eldurinn og Hljóð himinsins, hafsins, jarðar- innar og hetjunnar. Hann skráði sig í ítalska flugflotann 1915 og barðist vasklega. Árið 1919 hert- ók hann bæinn Fiume í Króatíu ásamt fylgismönnum sínum og ríkti þar sem einræðisherra til 1921. Þá sneri hann heim og hélt uppteknum hætti, í minna mæli þó, er hann settist að í húsi fiðluleikarans Herthu Thode, sem var nýorðin ekkja eftir listsagn- fræðinginn Henry Thode. Húsið hét Villa Carnacco og stóð við Garda-vatnið í norðurhluta Ítalíu, troðfullt af ómetanlegum lista- verkum og sögumenjum sem Henry Thode hafði safnað á löng- um ferli. Þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir ekkjunnar sat d’Annunzio sem fastast í herfangi sínu og ræktaði svallsamt líferni sitt og hirðar aðdáenda og sníkjudýrá af elju þess sem telur sig hafínn yfir allt. Listrænt getuleysi karla... í leikriti Jelinek er Clara (Vig- dís Gunnarsdóttir) og dóttir henn- ar Marie (Kristina Sundar Han- sen) meðal þessarar hirðar, því Schumann-fjölskyldan er blá- snauð og andlegt ástand Roberts (Gunnar Gunnsteinsson) er bág- borið. Reynir Clara að framfleyta sér og sínum með því að minna Gabriele (Hinrik Ólafsson) á að Schumann þurfi fé til að geta samið og biðlar til ástar hans á fögrum listum. Gabriele hefur meiri áhuga á fögrum stúlkum og piltum og holdsins lystisemd- um. Hann er jafnvel reiðubúinn til þess að styrkja tónskáldið, fái hann að liggja konu hans og barn- unga dóttur. Clara reynir hins vegar að vemda siðsemi beggja, og viðhalda vinsemd hans um leið. Hún fær lítinn stuðning frá öðr- um, því tvær lagskonur d’Ann- unzios greifa, þær Luisa Baccara (Jóna Guðrún Jónsdóttir) og Elísa Mazuyer (Björk Jakobsdóttir), draga taum hans á kynferðislega sviðinu eins og annars staðar. Misheppnaður ballettdansari (ballerína í upprunalegu útgáfu verksins) er heitir Carl Barra (Dofri Hermannsson) bjargar henni þó stundum fyrir hom óáf- vitandi, þegar hann stöðvar at- burðarásina til að sýna „listir“ sínar. „„Ægilegasti ótti .karlmannsins er ótti hans við náttúruna og ótti hans við eigin líkama. Enn skelfi- legri er þó ótti hans við konuna. ... Eiginkona listamannsins borg- ar. Og ef hún er sjálf listamaður, rotnar hún undir listframleiðslu eiginmannsins“ (Jórann Sigurð- ardóttir þýddi). Ballettdansarinn bregst eins og hinir karlmennirn- ir tveir við listræna getuleysinu með flótta. í leikgerð og leik- stjórn Óskars Jónassonar tekur hann til bragðs að flýja inn í gervi konu sem hann veit að umhverfíð gerir litlar kröfur til. Hann þarf að klæðast kjól til að drepa í sér listhneigðina. SFr 35 manna sjónlista- spuni á Mokka-kaffi Dagana 26. október til 7. desember fer fram myndlistartilraun á Mokka-kaffi. Verður u.þ.b. 16 metra langur og 50 sentimetra breiður segldúkur strengdur eftir endilöngum veggjum Mokka-kaffis og munu 35 listamenn sjá um að skreyta hann á staðnum. Listamennirnir eru á öllum aldri og aðhyllast mismunandi strauma og stefnur. A hveijum degi, klukkan tíu um morguninn (nema á sunnudögum), mun einn af leynigestum dagsins mæta á Mokka og mála, teikna, sauma eða vinna með einhveijum öðrum hætti um 45 fersentimetra af dúknum. Þátttakendur í þessum sjónlistarspuna: Magnús Tómasson, Jóhannes Jóhannesson, Harpa Bjömsdóttir, Sveinn Bjömsson, Kristján Guðmundsson, Daði Guð- bjömsson, Guðmunda Andrésdóttir, Þorvaldur Þorsteinsson, Magnús Kjartansson, Ingileif Thorlacius, Kjartan Guðjónsson, Hannes Lárus- son, Ásgerður Búadóttir, Þorri Hringsson, Ragnheiður Jónsdóttir, Georg Guðni Hauksson, Magnús Pálsson, Ástríður Ólafsdóttir, Ragna Hermannsdóttir, Jón Axel Bjömsson, Sverrir Ólafsson, Ráðhildur Inga- dóttir, Sigurður Örlygsson, Jón Reykdal, Hallgrímur Helgason, Rúrí, Haukur Dór Sturluson, Sigrún Eld- jám, Bragi Ásgeirsson, Helgi Þorgils Friðjónsson, Jóhanna Bogadóttir, Leifur Breiðfjörð, Páll Guðmundsson, Þorlákur Kristinsson (Tolli) og Tumi Magnússon. Hugmyndasmiður og umsjónar- maður sýningarinnar er Hannes Sig- urðsson listfræðingur, sem býr og starfar í New York. 011 cn 01Q70 L^RUS Þ' VALDIMARSS0N framkvæmdastjori (m I I W\Jmrn I 0 I w KRISTINN SIGURJ0NSS0N, HRL. loggiltur fasteignasau Fjöldi eigna á skrá á góðu verði: Skammt frá Landspítalanum 4ra herb. neðri hæð tæpir 100 fm í þribhúsi. Mikið endurn. Góð lán. Laus fljótlega. Tilboð óskast. 3ja herb. íbúð á 2. hæð rúmir 70 fm. Ris fylgir. Góð geymsla I kj. Bíiskúr og góð sérbílastæði. Tilboð óskast. Embýllshús í Stekkjahverfi Steinhús, ein hæð 136 fm. Bílskúr 30 fm. 4-5 svefnherb. Stór ræktuð lóð. Nánari uppl. aðeins á skrifst. Á vinsælum stað í Hlíðunum 5 herb. efri hæð. Góður bílsk. Ræktuð lóð. 2ja herb. samþykkt risíb. Vel umgengin. íbúðirnar eru í sama húsi. Lausar strax. Tilboð óskast. Úrvals íbúð í nýja miðbænum Endaíb. á 3. hæð 103,7 fm. Sérþvhús. 3 stór svefnherb. Tvennar sval- ir. Sérþvotta- og geymsluherb. Langtímaián um kr. 6 millj. Bdskúr með geymslu í risi. Laus strax. Tilboð óskast. Með 3-4 svefnherb. Leitum að góðu húsnæði í nágr. Álftamýrarskóla m. 3-4 svefnherb., helst bílskúr eða bílskrétti. Fjársterkur kaupandi. • • • Almenna fasteignasalan sf. _____________________________ var stofnuð 12. júlí 1944. LAUGAVEGi 18 SÍMAR 21150 - 21370 Opiðídagfrá kl. 10-16. Ódýr íbúð í gamla bænum. ALMENNA FASTf IGNtSAt AH EKKIOF HÖRÐ, EKKIOFMJÚK, HELDUR FULLKOMIN AÐLÖGUN Á harðri dýnu liggur hryggjarsúlan í st>eig Þar sem þú eyðir u.þ.b. 8 tím- um á sólar- hring í rúm- inu, eða þriðjungi ævi þinnar, ætti góð dýna að vera eitt af þínum allra mikil- vægustu fjárfestingum. Árum saman hefur þvi verið haldið fram að stífar dýnur séu betri fyrir bakið. Sérfræðingar okkar hjá Dux í Svíþjóð A Dux-dýnu liggur bryggjarsúlan bein hafa sannað hið gagnstæða. Þeir hafa sannað að stíf dýna hamlar á móti, frekar en að lagast að eðlilegri lögun líkamans, þannig að í hvíld liggur hryggjarsúlan í sveig. Dux-dýnurnar eru hannaðar sérstaklega til þess að gefa eftir á réttum stöðum svo að hryggjarsúlan fær að hvílast í náttúru- legri stöðu. Þær koma í veg fyrir margan bakkvillann og gefa þér nauðsynlegan stuðning til þess að sofa djúpum endur- nærandi svefni. Er ekki kominn tími til að heimsækja Dux verslunina í Faxafeni og líta á okkar fjölbreytta úrval af Dux-rúmum? Faxafeni 7 (Epalhúsinu). Sími 689950 15 ÁRA ÁBYRGÐ Á DUX-DÝNUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.