Morgunblaðið - 27.10.1992, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992
Morgunblaðið/Sverrir
Fór fram af háum kanti
Það óhapp varð við verslunarmiðstöðina Grímsbæ í Fossvogshverfi
síðdegis í gær að bifreið fór fram af háum kanti og hafnaði niðri á
malbikuðu bílastæði. Að sögn lögreglunnar var eigandi bílsins að
stíga út úr honum þegar hann hrasaði í hálku, hrökk þá bíllinn í gír
og fór fram af kantinum í gegnum jámgrindverk. Eigandann sakaði
ekki en bíllinn er mikið skemmdur. Mikil mildi var að enginn skyldi
verða fyrir bflnum þegar hann fór fram af háum kantinum.
Stríðsgiæpanefnd brezka þingsins rannsakar mál Eðvalds Hinrikssonar
Munum grípa til aðgerða
teljum við það nauðsynlegt
- segir John Mendelson, ritari nefndarinnar
Stríðsglæpanefnd brezka þingsins hefur tekið til rannsóknar þær
ásakanir um stríðsglæpi, sem settar hafa verið fram á hendur Eðvald
Hinrikssyni (sem áður hét Evald Mikson). John Mendelson, rítarí nefnd-
arinnar, segir að málið hafi komið til kasta nefndarinnar vegna þess
að Eðvald hafi dvalizt í Skotlandi fyrir skömmu. Nefndin lætur mál
meintra stríðsglæpamanna til sín taka og hefur meðal annars lagzt
gegn því að menn, sem ásakaðir eru um stríðsglæpi, fái dvalarleyfi
f Bretlandi.
„Við höfum áhuga á þessu máli
af tveimur ástæðum. Annars vegar
vegna þess að það varðar stefnu
brezkra stjómvalda um það að ekki
beri að Ieyfa erlendum ríkisborgur-
um, sem eru grunaðir eða sakaðir
um stríðsglæpi, að dvelja í landinu.
Þetta er spuming um hina almennu
stefnu og ekki bundið við hr. Mik-
son,“ sagði Mendelson í samtali við
Morgunblaðið. „Hins vegar hafa
okkur borizt skjöl, þar sem er að
finna ásakanir á hendur Evald Mik-
son. Við munum rannsaka þessi skjöl
og grípa til viðeigandi aðgerða, telj-
VEÐUR
—
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt é veðurepé kl. 16.15 (gaw)
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hitl +3 1 veður skýjað skýjað
Bergen 6 skýjaó
Helalnkl +1 léttskýjað
Kaupmannahöfn e skúr
Narssarsauaq +7 heiðskfrt
Nuuk +6 skýjað
Osló 3 súld
Stokkhólmur 4 skýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 23 léttskýjað
Amsterdam 11 léttskýjað
Barcelona 18 léttskýjað
Beriín 4 skúld
Chícago 12 léttskýjað
Feneyjar 14 þokumóöa
Frankfurt 8 skúr
Glasgow 6 mistur
Hamborg 6 alakýjað
London 8 skýjað
Los Angeles 16 heiðskirt
Lúxemborg 7 skýjað
Madrid 14 hálfskýjað
Malaga 22 léttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Montreal 0 léttskýjað
New York 4 neioBKin
Oriando 17 þoka
Paris 11 skýjað
Madeira 20 skýjað
Róm 20 háHskýjað
Vín 12 skúr
Washington e heiðskírt
Wlnnípeg +2 heiðskirt
um við það nauðsynlegt."
Mendelson sagði að sum þessara
skjala væm frá Wiesenthal-stofnun-
inni í Jerúsalem, sem upphaflega
setti fram ásakanir á hendur Eðvald
um stríðsglæpi í Eistlandi í seinni
heimsstyijöld. „Rannsókn okkar er
ekki lokið. Við höfum beðið um fleiri
gögn, sem geta gefið mynd af
ástandinu í Eistlandi á þessum tíma,
eða upplýsingar um einstök atvik.
Við höfum óskað eftir fleiri skjölum,
til að fá fyllri skilning á atvikum eða
athæfí, sem ásakanir hafa verið sett-
ar fram um. Athugun okkar er ekki
lokið, en við höfum mjög áhugaverð
skjöl í fórum okkar,“ sagði Mendel-
son.
Hann sagði að þingnefndin kvæði
ekki upp neinn dóm í þeim málum,
sem hún rannsakaði, og gæti ekki
kveðið á um sekt eða sakleysi
manna. „Slíkt kemur til kasta dóm-
stólanna. Við munum skoða einstök
atvik og dæma um hvort um sé að
ræða alvarlegar ásakanir, sem vísa
eigi til réttra yfirvalda til frekari
skoðunar," sagði Mendelson.
Ýmsar aðgerðir af hálfu þing-
nefndarinnar koma til greina að sögn
Mendelsons. Þar á meðal er að taka
mál Eðvalds upp í formi fyrirspurnar
þingmanns til innanríkisráðherra.
Einnig kæmi til greina að skrifa ís-
lenzka sendiherranum eða jafnvel
að kæra ákveðna ráðherra í brezku
ríkisstjóminni, sem talizt gætu
ábyrgir fyrir því að Eðvald fékk að
dvelja í landinu. Loks gæti svo far-
ið, að nefndin kæmist að þeirri nið.ur-
stöðu að ekkert bæri að aðhafast.
Mendelson sagði að eitt þeirra
skjala, sem nefndin ætti eftir að
kynna sér, væri skýrsla lögfræðing-
anna Eiríks Tómassonar og Stefáns
M. Stefánssonar um mál Eðvalds.
„Samkvæmt þeim upplýsingum, sem
við höfum, er ekki víst að við séum
sammála þeirri aðferðafræði, sem
þar er viðhöfð. Hins végar er þetta
mjög mikilvægt skjal, þar sem ríkis-
stjóm íslands bað um það. Við mun-
um lesa það mjög vandlega," sagði
hann. Aðspurður hver skoðun nefnd-
arinnar væri á þeirri ákvörðun ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar að láta
ekki fara fram opinbera rannsókn á
máli Eðvalds, sagði Mendelson að
málið hefði ekki fengið slíka með-
ferð, hefði það komið upp í Bret-
landi. „Sérhver ásökun um stríðs-
glæpi er rannsökuð til fulls af viðeig-
andi lögregiuembætti í Skotlandi og
sé fótur fyrir slíku, leiðir það til
málsóknar,“ sagði Mendelson.
Stefnir í tvöföld-
un nýrra mála hjá
unglingaráðgj öf
Á SÍÐASTA árí komu 146 ný mál til úrvinnsiu hjá unglingaráðgjöf
Unglingaheimilis ríkisins í Síðumúla og var það um 20% aukning
frá árinu 1990. Á þessu ári höfðu 146 ný mál verið tekin til meðferðar
í júni síðastliðnum og stefnir í tvöföldu á þessu ári, að sögn Einars
Gylfa Jónssonar, forstjóra Unglingaheimilisins. Um 60% unglinga
sem leita aðstoðar eru frá heimilum þar sem foreldrar hafa slitið
samvistir.
Unglingaráðgjöfm veitir almenna
göngudeildarþjónustu fyrir ung-
linga í vanda og fjölskyldur þeirra.
Þjónustan er ætluð öllu landinu og
er þeim sem hana nota að kostnað-
arlausu. Einar Gylfi sagði að starf-
semin væri orðin það vel kynnt að
fólk leitaði til hennar í auknum
mæli. „Þá hefur það tíðkast undan-
farin misseri að tekin eru fýrir til-
tekin vandamál í samfélaginu, svo
sem ofbeldi, sjálfsvíg og lystarstol,
og við verðum vör við aukningu hjá
ráðgjöfinni í kjölfari slíkrar umíjöll-
unar,“ sagði hann. „Þá má ekki
gleyma að það er efnahagskreppa
í þjóðfélaginu, sem leiðir til aukins
álags á fjölskyldur og einstaklinga,
sem aftur eykur líkur á að upp
komi vandamál svo alvarlegs eðlis
að leita þurfi aðstoðar. Þetta gæti
verið skýring á auknu álagi hjá
unglingaráðgjöf."
Margrét Halldórsdóttir, deildar-
stjóri unglingaráðgjafar, sagði að
sér virtist sem vandamál ungling-
anna ættu ekki 'síður við um alla
flölskylduna. „Kynslóðabilið er orð-
ið mikið og fólk talar ekki lengur
saman," sagði hún. „Fyrst í stað
komu unglingar hingað beint inn
af götunni en núna eru það foreldr-
ar sem leita hingað vegna bam-
anna, eða í um 60% tilfella. Er svo
komið að langur biðlisti er eftir við-
talstfma. Fyrir ekki svo löngu
nægðu nokkrir viðtalstímar til að
leysa vandamálin en núna eru við-
fangsefnin flóknari og mun erfið-
ari.“
Unglingarnir sem leita aðstoðar
eru á aldrinum 13 til 18 ára og
sagði Margrét að sér virtist sem
skilnaður foreldra hefði ótrúlega
mikil áhrif á böm og unglinga.
„Vandamálin má oft rekja allt að
10 ár aftur í tímann þegar foreldr-
arnir skildu og hreint ótrúlegt að
bömin era enn að vonast eftir að
þeir taki saman á ný jafnvel þó að
slíkt sé óhugsandi," sagði hún.
„Ætli það séu ekki um 60% þeirra
sem til okkar leita sem eiga for-
eldra sem hafa slitið samvistir."
Hjá unglingaráðgjöfinni er lögð
rík áhersla á að foreldrar eða ung-
lingar leiti aðstoðar sem fyrst, áður
en vandamálið er orðið þeim Qötur
um fót.
Féllúr
stiga og
ástúlku
TVÆR stúlkur slösuðust um
helgina þegar önnur féll úr
stiga og lenti á hinni.
Slysið varð síðdegis á sunnu-
dag við fjölbýlishús í Álfheim-
um. Önnur stúlknanna hafði
læst sig úti og ætlaði hún að
fara inn um glugga. Hún náði
sér í stiga og fékk vinkonu sína
til að styðja við hann. Þegar
stúlkan var komin um þijá
metra upp stigann féll hún úr
honum. Hún lenti á vinkonu
sinni, sem meiddist á baki og
var flutt á slysadeild með
sjúkrabfl. Hin stúlkan kvartaði
undan eymslum í fæti og ók
lögreglan henni á slysadeildina.