Morgunblaðið - 27.10.1992, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 27. OKTÓBER 1992
íslenska hljómsveitin
Ellefta starfsárið hafíð
Ellefta starfsár íslensku hljómsveitarinnar hófst 20. september
síðastliðinn, með tónleikum til heiðurs Jóni Þórarinssyni, tón-
skáldi og tónlistarfrðmuði. Á sjöunda tug hljóðfæraleikara, ein-
söngvara og tónskálda eru nú félagar í samtökum um hljóm-
sveitina og stjórnendur hennar eru þeir Hákon Leifsson, Guð-
mundur Oli Gunnarsson, Öm Óskarsson og Guðmundur Emils-
son.
Sigrún Eðvaldsdóttir, fyrsti konsertmeistari íslensku hljómsveit-
arinnar, lék einleik með henni á starfsárinu 1982-83. Myndin er
tekin á æfingu í íslensku óperunni.
Hljómsveitin hefur ætíð skipað
innlendri tónlist og tónlistar-
mönnum í öndvegi. Svo verður
einnig á ellefta starfsári.
Laugardaginn 31. október, á
íslenskum tónlistardegi, lýkur ári
söngsins, en daginn eftir hefst
Tónlistarár æskufólks með íjöl-
skylduhátíð í Perlunni. Af því
tilefni frumflytja félagar úr
hljómsveitinni tónverk eftir Atla
Heimi Sveinsson við setningarat-
höfn tónlistardagsins. Atli nefnir
verkið „Forleik fyrir böm“, enda
gerir hann ráð fyrir að böm á
öllum aldri taki undir með hljóð-
færaleikurunum með leikrænum
tilburðum og söng. Stjómandi
tónleikanna verður Hákon Leifs-
son.
Sunnudaginn 8. nóvember
verður á ný leikin innlend tónlist
sérstaklega samin fyrir böm,
enda tónlistarár æskufólks hafíð.
Hljómsveitin efnir til fjölskyldu-
tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur-
borgar klukkan 15.00. Öllum er
heimill ókeypis aðgangur á með-
an húsrúm leyfír. Þijú af þekkt-
ustu tónskáldum þjóðarinnar,
Atli Heimir Sveinsson, Leifur
Þórarinsson og Þorkell Sigur-
bjömsson, kynna ungum hlust-
endum verk sín. Atli kynnir
„Svítu úr Dimmalimm", bamale-
ikritinu sígilda, Leifur kynnir
„Bamalagaflokk" og Þorkell
segir ævintýrið um „Rottufang-
arann“, en það verk hans hefur
ekki áður verið flutt. Auk fjölda-
söngs tónleikagesta koma við
sögu dansarar undir stjóm Auð-
ar Bjamadóttur.
Þriðjudaginn 1. desember
verða haldnir fullveldistónleikar
í Þjóðminjasafni íslands, helgað-
ir aldarafmæli Inga T. Lárusson-
ar, hins merka sönglagahöfund-
ar. Hljóðfæraleikarar og ein-
söngvarar úr röðum íslensku
hljómsveitarinnar, með Elínu
Ósk Óskarsdóttur fremsta í
flokki, flytja þar mörg þekktustu
laga tónskáldsins, auk annars
efnis er sjaldnar heyrist. Á milli
tónverka Qallar Jón Þórarinsson
um æviatriði Inga. Hljómsveitin
stóð fyrir tónleikum með svipuðu
sniði 1. desember í fyrra er til-
einkaðir vora Sveinbimi Svein-
bjömssyni, tónskáldi og þóttu
takast afar vel. Var þá ákveðið
að gera fullveldistónleikana að
árlegum viðburði í Þjóðminja-
safninu og hljómsveitinni falið
að sjá um þá.
Síðdegis fímmtudaginn 31.
desember, á gamlársdag, verður
flutt í Bessastaðakirkju sérstök
áramótadagskrá í tónum og tali.
Hljóðfæraleikarar leika þá inn-
lend verk er tengjast hugblæ
áramótanna, jafnt verk yngri og
eldri höfunda. Vakin er sérstök
athygli á flutningi strengjakvart-
etts eftir Helga Helgason, enn
eins brautryðjandans í tónlist
þjóðarinnar, en þetta fagra verk
Helga var vakið af löngum svefni
fyrir skömmu. John Speight leið-
ir að lokum fyöldasöng við undir-
leik hljóðfæraleikara.
Sunnudaginn 24. janúar tekur
íslenska hljómsveitin þátt í nýrri
tónleikaröð Félags íslenskra
hljómlistarmanna í sal félagsins
við Rauðagerði. Á tónleikum
hljómsveitarinnar verður ýmissa
forvígismanna íslensk hljóðfæra-
leiks getið og minnst og leikin
tónverk er tengjast lífsstarfí
þeirra. Hrafn Pálsson kynnir
verkin.
Sunnudaginn 28. febrúar
kemur íslenska hljómsveitin
fram á tónleikum ísMús-hátíðar-
innar og kynnir þar innlenda og
erlenda samtímatónlist. Hljóm-
sveitin framflytur m.a. verk eftir
argentíska tónskáldið Aliciu
Terzian, sem hún samdi að eigin
framkvæði nú í haust, eftir dvöl
sina hér á landi í fyrra. Verkið
er tileinkað hljómsveitinni og
samið fyrir strengjasveit hennar
og Sigurður Bragason, barítón-
söngvara. Alicia er varaforseti
alþjóða tónlistarráðsins.
Sunnudaginn 21. mars verða
haldnir djasstónleikar í FÍH-
salnum við Rauðagerði. Sigurður
Flosason, saxófónleikari og fé-
lagi í íslensku hljómsveitinni,
auk Áma Schevings, Bjöms
Thoroddsens, Einars Vals Sche-
vings og fleiri, leika íslenskan
kammerdjass eftir Gunnar Reyni
Sveinsson. Tónleikamir eru helg-
aðir minningu Gunnars Ormslevs
sem hefði orðið 65 ára á næsta
ári. Flutt verða tvö verk, fyrst
„Samstæður" Gunnars Reynis,
en það verk hefur ekki verið leik-
ið á tónleikum um langa hríð,
og síðan verkið „Að leikslokum",
sem Gunnar Reynir tileinkaði
einleikaramum Sigurði Flosa-
syni.
Föstudaginn 9. apríl, föstu-
daginn langa, verður framhald á
„Námum“ Islensku hljómsveitar-
innar, menningarátaki sem hófst
með tónleikum í Hallgrímskirkju
haustið 1988 er bára yfírskrift-
ina„„Námur I“. Þá framflutti
Kristján Jóhannsson söngdráp-
una „Landnámsljóð", eftir Þorkel
Sigurbjömsson við samnefnt ljóð
Sigurðar Pálssonar en Gunnar
Öm Gunnarsson gerði málverkið
„Sjáðu jökulinn maður“. Efnt var
til tónleikaraðarinnar „Náma“ til
að minnast þess að senn eru
1000 ár liðin frá kristnitöku á
íslandi. „Námur V“, sem frum-
fluttar verða á föstudaginn langa
1993, byggja á ljóði Illuga Jök-
ulssonar um aftöku Jóns Arason-
ar, síðasta bískups kaþólskra á
íslandi fyrir siðaskipti.
Mist Þórkelsdóttir vinnur nú
að tónverki við ljóð Illuga. „Nám-
ur VT“ verða einnig framfluttar
á þessum tónleikum. Þar yrkir
Njörður P. Njarðvík um dauð-
daga Jónasar Hallgrímssonar í
ljóðinu „Enginn grætur".
Hróðmar I. Sigurbjörnsson sem-
ur tónverkið. Tveir myndlistar-
menn koma einnig við sögu
þennan dag og verða nöfn þeirra
birt síðar. Að þessum tónleikum
loknum er tónleikaröðin „Nám-
ur“ hálfnuð, 18 listaverk af 36
hafa þá verið í smíðum.
Sunnudaginn 9. maí kynnir
Þorkell Sigurbjömsson þau tón-
verk innlendra tónskálda er síðla
vetrar verða valin til þátttöku á
Tónskáldaþinginu í París í maí
1993. Eins verða kynnt nokkur
þeirra innlendu verka er áður
hafa komið við sögu þingsins og
athygli vakið. Á tónleikunum
verður einnig flutt tónverkið sem
hlaut æðstu viðurkenningu tón-
skáldaþingsins í ár, en það er
eftir finnska tónskáldið og hljóm-
sveitarstjórann Esa Pekka Salon-
en.
Sunnudaginn 17. júní lýkur
ellefta starfsári íslensku hljóm-
sveitarinnar með sérstökum
heiðurstónleikum í tilefni aldar-
afmælis Páls ísólfssonar tónlist-
arfrömuðar, dómorganista og
tónskálds. Efnisskráin verður
kynnt síðar.
Ástríðumar í dag-
legu lífi og í listínni
Íslensk-ítalskir
söngtónleikar
Á Selfossi og Húsavík og í Mývatnssveit
KÁRI Friðriksson tenórsöngvari og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanó-
leikarí halda söngtónleika um þessar mundir.
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Pascal Quignard: Allir heimsins
morgnar. Skáldsaga. Friðrik
Rafnsson þýddi. Mál og menning
1992.
Þessi 80 bls. skáldsaga vakti
gífurlega athygli í Frakklandi í
fyrra og það er þakkarvert að hún
skuli komin svo fljótt út í íslenskri
þýðingu. Friðrik Rafnsson hefur
lagt sig eftir að kynna vandaða
Evrópuhöfunda og fer það vel úr
hendi, einnig að þessu sinni.
Allir heimsins morgnar er
óvenjuleg skáldsaga. Stuttir kafl-
amir bregða upp svipmyndum, oft
ljóðrænum, en hér er fyrst og
fremst um sögu að ræða. Kunnug-
ir segja að áhrif barokktónlistar á
höfundinn séu auðsæ, enda er hann
annálaður áhugamaður um tónlist.
Lesendur geta sjálfir skorið úr
um hvort skáldsagan fjalli um list-
ina eða ástina, en líklega væri sú
niðurstaða næst sanni að hún sé
um ástríður.
Tónskáldið Sainte Colombe
missir konu sína árið 1650. Þau
hjón eiga tvær dætur, Madeleine
og Toinette, sem búa hjá föður
sínum. Ungur maður, Marin Mara-
is, gerist lærisveinn Saint Colombe.
Saint Colombe er ekki mönnum
sinnandi vegna dauða konu sinnar.
í minningu hennar semur hann
tónverkið Tregagröfina. Síðan
kemur að því að hún birtist honum.
Fundur þeirra er rómantískur, en
dauðanum hefur þó ekki tekist að
þurrka burt hversdagsleikann.
Tilmælum konungs um að koma
að spila við hirðina vísar tónskáld-
ið á bug. Veraldlegur frami bíður
lærisveinsins.
Samskipti Marins Marais við
Madeleine og síðar Toinette era
af toga ástríðunnar. í frásögninni
af þeim vegur Pascal Quignard
salt milli rómantískrar lífssýnar og
raunsæis sem er á köflum hrana-
legt og afhjúpandi. Vera má að
töfrar sögunnar séu einkum fólgn-
ir í þessari aðferð.
Þegar Marais kveður ástvinu
sína eftir að ástríðan er kólnuð
segir hann:
„Tár yðar era ljúf og hjartnæm.
Ég fer frá yður vegna þess að
bijóst yðar vitja mín ekki lengur
í draumi. Ég hef séð önnur andlit.
Hjörtu okkar era hungrað. Andinn
er friðlaus. Lffíð er því fegurra sem
það er grimmilegra, rétt eins og
fómarlömb okkar.“
Svar hennar er ekki síður hrein-
skilið:
Pascal Quignard
„Hættu þessu tali og hypjaðu
þig!“
Sainte Colombe hefur ekki átt
auðvelt með að tjá konu sinni ást
sína með orðum. Orðin ná skammt.
Tónlistin er tungumál tónskáldsins
og með hana að vopni segir hann
það sem honum býr í bijósti. Loka-
kafli sögunnar er óður til tónlistar-
innar.
„Tónlistin er einfaldlega til svo
segja megi það sem ekki verður
orðað“, segir hið aldraða tónskáld
við yngra tónskáldið sem nýtur
hylli konungs. Frægðina og margt
fleira kryfja þeir.
Að raeða tónlist, skrifa um tón-
Iist er að sjálfsögðu að ræða um
lífið, ástríðurnar.
Tónleikamir verða í Safnaðar-
heimili Selfosskirkju þriðjudaginn
27. október kl. 20.30. í Samkomusal
Bamaskóla Húsavíkur laugardaginn
31. október kl. 16.00 og í Skjól-
brekkum Mývatnssveit sunnudaginn
1. nóvember kl. 15.00.
Tónleikamir verða eingöngu með
íslensku og ítölsku efni, meðal ann-
ars má nefna Maístjömu Jóns Ás-
geirssonar, Hamraborg Sigvalda
Kaldalóns, Verdi aríuna La donna
e’mobile og L’ultima canzone eftir
Tosti.
Kári Friðriksson útskrifaðist sem
tónmenntakennari 1988 og lauk 8.
stigi í söng frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík ári síðar. Síðan lá leiðin
til Ítalíu þar sem hann stundaði
framhaldsnám hjá tenórunum Pier
Miranda Ferraro og Franco Ghitti.
Undanfarin tvö ár hefur hann haldið
nokkra tónleika og sungið í útvarpi,
auk þess sem hann stundar kennslu
og kórstjóm í Reykjavík.
Þóra Fríða Sæmundsdóttir lauk
píanókennaraprófi frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík og stundaði síðan
framhaldsnám í tónlistarskólum í
Þýskalandi. Hún hefur mikla reynslu
af að vinna með söngvurum og starf-
ar nú sem píanóleikari og kennari í
Reykjavík.
Nýhöfn
Lokadag-
ur Eddu
VEGNA þátttöku Eddu Jónsdótt-
ur í samnorrænni menningarhá-
tíð í Lundúnum nú i nóvember,
lýkur sýningu hennar í listasaln-
um Nýhöfn einum degi fyrr en
áætlað var eða í dag 27. október.
í Nýhöfn hefur Edda sýnt akrýl-
málverk og grafíkmyndir sem einn-
ig munu verða á sýningunni í Butl-
ers Wharf í Lundúnum. En sýning-
in er hluti af íslenskri listahátíð í
borginni. Listasalurinn Nýhöfn er
opin alla virka daga nema mánu-
daga frá kl. 12-18. Um helgar kl.
14-18.