Morgunblaðið - 27.10.1992, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 27.10.1992, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992 23 ECU, hvernig fer þá með samning milli fyrirtækja annars vegar með 250 milljónir ECU og hins vegar 50 milljónir ECU í heildarveltu? Minni- háttarreglan getur aldrei átt við ef einn aðili samningsins er nógu stór og skiptir smæð annars aðila þá engu máli, ef samningurinn hefur viss áhrif á markaðinn. — En hvernig fer með samning milli fyrirtækja sem bæði hafa 100 milljónir ECU í heild- arveltu, — þ.e.a.s. er hægt að túlka regluna þannig að átt sé við saman- lagða heildarveltu? í raun er eðli- legra að túlka hana þannig, enda er það í samræmi við túlkun á hugtak- inu „markaðshlutdeild", en ekkert afgerandi kemur fram um það í greinargerð með reglunni í Stj.tíð. EB, danska fræðiritinu EF-Karnov eða annars staðar þar sem um þetta er ijallað. Þetta er þó ekki algjört lykilatriði fyrir smærri fyrirtæki, því minniháttarreglan er viðmiðunar- regla eins og áður segir og því gætu samningar fyrirtækja með lága heild- arveltu hæglega átt við 53. grein samningsins ef þeir hefðu einhver áhrif á markaðinn sem máli skiptir. Af því sem að ofan er ritað sést að íslensk fyrirtæki þurfa ekki endi- lega að vera svo stór til að flokkast undir 53. grein samningsins. En það er einnig staðreynd, að mörg íslensk fyrirtæki velta árlega milljörðum ís- lenskra króna, eða allt að 23 milljörð- um, sbr. yfirlit í 9. tbl. Ftjálsrar versl- unar 1991. Niðurstöður Þær órökstuddu fullyrðingar manna að minniháttarreglan komi í veg fyrir (eða ólíklegt sé) að 53. grein taki til íslenskra fýrirtækja vegna smæðar þeirra eru settar fram af miklu ábyrgðarleysi. Sé hvorugt eða annað tveggja skilyrða minni- háttarreglunar fyrir hendi geta ís- lensk fyrirtæki flokkast undir 53. grein EES-samningsins. Málum er því ekki þannig háttað, eins og svo oft hefur verið haldið fram, að fyrir- tæki þurfí bæði að hafa yfir 5% markaðshlutdeild og yfir 200 milljón- ir ECU í heildarveltu til að 53. grein taki til þeirra. Af ofanrituðu má auð- veldlega sjá að íslensk fyrirtæki á hinum ýmsu sviðum geta hæglega flokkast undir samkeppnisreglur EES, sérstaklega þar sem vörumark- aðurinn er túlkaður svo þröngt sem raun ber vitni. Við mat á landfræði- lega markaðinum kemur í Ijós að smæstu markaðir skipta máli svo framarlega sem þeir hafa áhrif á viðskipti milli aðildarlanda EES. Eftirlitsstofnun EFTA og dómstól- ar EFTA koma til með að fara með mál íslenskra fyrirtækja, sem vænd verða um að bijóta gegn samkeppnis- reglum EES-samningsins. Sérstaklega ber að athuga það, að þar sem minniháttarreglan er ein- ungis viðmiðunarregla þá eru eftir- litsstofnun og dómstóll EFTA alls ekki bundin við skilyrði greinarinnar. Það væri því hægt að fella íslensk fyrirtæki undir samkeppnisreglur EES hvort sem þau næðu áður- nefndri stærðargráðu reglunnar eða ekki. Einnig er mikilvægt að EB hefur túlkað sambærilegar sam- keppnisreglur Rómarsáttmála þann- ig, að reglur sáttmálans eru frekar Hallgrímskirkja 318. ártíð Hallgríms Péturssonar í dag, 27. október, er dánardagur Passíusálmaskáldsins, Hallgríms Péturssonar, en hann lést á Ferstiklu á Hvalíjarðarströnd árið 1674. í Hallgrímssöfnuði héfir þessa dags ætíð verið minnst með guðs- þjónustu sem líkastri því, sem sungin var á tímum hans. í kvöld kl. 20.30 hefst guðsþjón- ustan að þessu sinni. Nýstofnaður barnakór kirkjunnar syngur þar í fyrsta sinn lítið tónverk undir stjórn Kristínar Sigfúsdóttur. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur að öðru leyti við messuna undir stjórn Harðar Áskelssonar. Séra Karl Sigurbjöms- son prédikar, en að öðru leyti þjónum við, prestar safnaðarins, við guðs- þjónustuna. Ég vil hvetja sóknarbörn Hall- grímssafnaðar og aðra velunnara kirkjunnar að koma til þessarar messu og flytja Drottni lof og dýrð, og færa þakkir fyrir líf og starf hins ástsæla skálds, ég minnist orða séra Matthíasar: Hér er guðlegt skáld er svo vel söng að sólin skein í gegnum dauðans göng. Ragnar Fjalar Lárusson. látnar gilda en ekki þegar um vafa- M atriði er að ræða. Hvernig samkeppnisreglur EES hafa verið rangtúlkaðar svo sem raun ber vitni veit ég ekki. En það er ljóst að eyða verður þeim alvarlega mis- skilningi að samkeppnisreglur EES komi ekki til með að hafa teljandi áhrif á íslensk fyrirtæki. Sérstaklega er brýnt að gera sér þetta ljóst í umræðunni um stjórnarskrána og EES-samninginn. 820 FERMETRAR Til sölu er nýtt, vandað iðnaðarhúsnæði. Húsnæðið er nú tilbúið til afhendingar. Áhvílandi eru hagstæð langtímalán til 15 ára, afborgunarlaus í 2 ár. Söluverð 26,9 millj. Útborgun 4,9 millj. Nánari upplýsingar í síma 812300. Höfundur er að fjúka laganámi. EKKI AÐEINS HEITT, HELDUR LIKA NYBAKAÐ HATTING brauðið er fryst áður en það er fullbakað . Þú setur frosið brauðið í bökunarpokanum í ofninn og lýkur bakstrinum á fimmtán mínútum. Afraksturinn er nýbakað, mjúkt og ilmandi hvítlauksbrauð. H«tS BAGERi Kno blauchbutter d hvíd,ogssmor ÖRKIN1012-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.