Morgunblaðið - 27.10.1992, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER1992
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
Yirk samkeppni í vöru-
flutningum er aðalatriði
HÆKKUN skipafelaganna á farmgjöldum var rædd utandagskrár 1
gær. Þingmenn átöldu mjög skipafélögin og þá sérstaklega Eimskipa-
félag íslands. Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra segir að skipafélög-
in eigi ýmsum spurningum ósvarað, t.d. hvað hafi skyndilega gerst
sem hafi valdið því að fyrirtækin söðla samtímis um og leggja sam-
keppni til hliðar. Viðskiptaráðherra mælir ekki með beinni íhlutun
nema önnur úrræði dugi ekki. Aðalatriðið sé að komið verði á heil-
brigðri samkeppni.
6% hækkun hefðu gefíð fyrir umræddum breyt-
Málshefjandi Svavar Gestsson
(Ab-Rv) rifjaði upp að fyrir nokkr-
um dögum hefði Eimskipafélag ís-
lands hf. tilkynnt um hækkun á
flutningsgjöldum fyrir stykkjavöru
allt á bilinu 4-11% Næmi hækkun-
in að meðaltali um 6% og tæki gildi
frá og með 2. nóvember. Nokkrum
dögum síðar hefði fyrirtækið Sam-
skip hf. tilkynnt að það myndi
hækka um jafnmikið og Eimskip.
Þar með væri ljóst að allir flutning-
ar á stykkjavöru yrðu 6% dýrari
frá 2. nóvember ef ekki yrði gripið
til sérstakra ráðstafanna og þessi
hækkun stöðvuð mej) samþykkt í
Verðlagsráði.
Svavar Gestsson minnti á að
Eimskipafélag íslands hefði um
65% af öllum flutningum til lands-
ins og Samskip hefðu nokkurn veg-
inn allt það sem á vantaði. Svavar
sagði að forstjóri Eimskips réttlæti
hækkun á fragtflutningunum með
því að fyrirtækið yrði að skila
10-11% hagnaði. Svavar fullyrti að
meirihluti þjóðarinnar teldi það
óeðlilegt að Eimskipafélagið næði
fram slikum hagnaði miðað við all-
ar aðstæður og það sem ræðumað-
ur nefndi „markaðsráðandi að-
stöðu“ fyrirtækisins. Þar að auki
hefði fyrirtækið komið sér upp
mjög skýrri einokunaraðstöðu á
öðrum sviðum með tengslum við
önnur stórfyrirtæki. Svavar innti
viðskiptaráðherra eftir því hvort
ráðherrann ætlaði sér að stöðva
þessa hækkun. í sínum huga væri
bersýnilegt að félögin hefðu haft
samráð sín á milli um þessa hækk-
un og þar af leiðandi gæti Verð-
lagsráð stöðvað þessa hækkun.
ingum á fragtgjöldum s.s. að mikil
samkeppni á þessu ári hefði leitt
til þess að meðalflutningsgjöld hjá
Eimskipi hefðu lækkað um 4,2
fyrstu 9 mánuði þessa árs miðað
við sama tíma í fyrra og sambæri-
leg lækkun hjá Samskipum væri
um 9%. Talsmenn fyrirtækjanna
teldu og að afkoma fyrirtækjanna
hefði verið óviðunandi á þessu ári.
Hagnaður Eimskips hefði verið 18
milljónir króna fyrstu 6 mánuði
ársins og á sama tíma hefðu Sam-
skip tapað 130 milljónum króna.
Einnfremur teldu talsmenn fyrir-
tækjanna það fram að samdráttur
hefði verið í flutningum á þessu
ári. Hjá Eimskipi næmi hann um
10% en heldur minna hjá Samskip-
um.
Viðskiptaráðherra taldi líklegt
að mönnum myndi sýnast sitt hvað
um þessar röksemdir. En það væri
Jón Sigurðsson Halidór Blöndal
ur verði kannaðar nánar. Það er í
raun ekki hin tilkynnta verðhækk-
un sem slik sem væri aðalefni þessa
máls heldur möguleiki fyrirtækisins
til að taka ákvörðun um verðlags-
breytingar á tillits til markaðar-
ins.“ Viðskiptaráðherra sagði að
Verðlagsráð hefði haft ofangreint
í huga á fundi sem haldinn var síð-
astliðinn föstudag. Viðskiptaráð-
herra greindi ennfremur frá því að
siglt í kjölfarið.
Þetta nefndi
Össur m.a:
„óeðlilegt samr-
áð; siðlaust
samráð". Össur
gat ekki betur
séð en hækkun
skipafélaganna
væri „fullkomið
Svavar Gestsson *3rot °S v>ð Wjót-
um að gera þær
kröfur að þessi hækkun verði dreg-
in til baka“. Össur sagði hækkun
farmgjalda stafa einvörðungu af
því að þetta félag nyti einokunarað-
stöðu. Össuri var það huggun og
fagnaðarefni að fyrir þinginu lægju
frumvörp sem væntanlega gætu
skilið á milli þeirra tveggja þrepa
sem þetta félag hefði tangarhald
á. Það er bæði flutningsins og af-
fermingarinnar. Þannig og einung-
is þannig gætum við séð til þess
að ný félög kæmu og raunveruleg
samkeppni gæti orðið.
Guðni Agússtson (F-Sl) sagði ljóst
að „óskabarn þjóðarinnar" teldi
mikilvægt að hleypa af stað skriðu
verðhækkanna. Það yrði að fresta
þessum hækkunum. Eimskipafélag
Islands yrði að sætta sig við það
að bíða eftir tillögum og niðurstöð-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Samráð óheimilt
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra vildi að það kæmi fram að
Verðlagsráð hefði haldið sérstaka
fundi um tilkynningu skipafélag-
anna um þessa hækkun fragt-
gjalda. Verðlagsráð hefði ákveðið
14. febrúar síðastliðinn að gefa
verðlagningu á farmgjöldum skipa-
félaga fijálsa samkvæmt heimild í
lögum um verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta viðskipta-
hætti. Þessi ákvörðun hefði verið
tekin með hliðsjón af samkeppnis-
aðstæðum, til þess að efla virka
samkeppni og stuðla að lægra
verði. Þessi ákvörðun hefði tekið
gildi 1. apríl og í samþykkt Verð-
lagsráðs segði m.a: „Hvers kyns
samráð skipafélaga sem stunda
farmflutninga um verð, viðskipta-
kjör og markaðsskiptingu er óheim-
ilt.“
Viðskiptaráðherra taldi rétt að
fram kæmi hveijar ástæður for-
ráðamenn Eimskips og Samskipa
ástæða til að hugleiða þær og
skoða. Ekki hvað síst væri það
íhugunarefni að með beitingu ýmiss
konar afsláttar hefðu skipafélögin
í reynd lækkað farmgjöldin.
Viðskiptaráðherra dró enga dul
á það að sú farmgjaldahækkun sem
skipafélögin hefðu tilkynnt vekti
upp spurningar um hvort virk sam-
keppni ríkti á markaði áætlanasigl-
inga um þessar mundir. Viðskipta-
ráðherra sagði að svo yrði að líta
á að Eimskip væri markaðsráðandi
fyrirtæki; með 65% markaðshlut-
deild, aðeins einn stóran keppinaut
og verulegar hindranir væru á að-
gangi nýrra fyrirtækja að markað-
inum. Markaðsyfirráð væru í sjálfu
sér ekki bönnuð heldur misbeiting
þeirra. Það lægi ekkert fyrir um
það að Eimskip hefði með ákvörðun
sinni verið að misbeita stöðu sinni
á markaðinum. „Hins vegar gefur
staða fyrirtækisins og tildrög þeirr-
ar ákvörðunar sem tekin var, til-
efni til þess að samkeppnisaðstæð-
á fundi ráðsins hefðu menn verið
sammála um að nauðsynlegt væri
að afla frekari gagna frá skipafé-
lögunum og að ráðið myndi koma
saman síðar í vikunni til að ijjalla
nánar um þetta mál. Það yrði t.d.
hugað sérstaklega að því hvers
vegna skipafélögin hefðu ekki
dregið úr þeim afslætti sem þau
hefðu veitt fremur en að breyta
almennt gjaldskránni.
„Óskabarn" spillir samstöðu
Össur Skarphéðinsson (A-Rv)
þakkaði Svavari Gestsyni fyrir að
hafa vakið máls á þessu mikilvæga
máli. Og viðskiparáðherra fékk
þakkir fyrir svörin. Össur lét þá
skoðun í ljós að nú væri þjóðarsam-
staða um að vinna sig út úr þeim
vanda sem atvinnulíf landsmanna
væri í. En „svokallað óskabarn
þjóðarinnar, Eimskipafélagið hefur
forgöngu um að ijúfa samstöðuna
í fæðingu með því að hækka farm-
gjöld". Samskip hefðu svo síðan
um, þjóðarsátt sem aðilar vinnu-
markaðarins væru að reyna að ná.
Steingrímur J. Sigfússon (Ab-
Ne) sagði að „þessi dæmalausa
hækkun“ dragi athyglina að fá-
keppni og einokun á þessum mark-
aði. Sú spurning hlyti að vakna
hvort ekki væri um að ræða sam-
stilltar aðgerðir. Miðað við núver-
andi aðstæður í íslensku efnahags-
líf væri þessi „sjálftaka hagnaðar"
út í hött. Það væri ekki eðlilegt að
einn aðili hefði sjálfdæmi um gjald-
skrá í krafti markaðsráðandi að-
stöðu. Jóna Valgerður Kristjáns-
dóttir (SK-Vf) gagnrýndi „mark-
aðslausnir ríkisstjórnarinnar". Fyr-
irtækin ættu að spjara sig. Markað-
urinn ætti að ráða. Eimskip væri
með yfírburðastöðu á markaðinu.
Eimskip réði markaðinum. Hún
vakti athygli á því að Eimskip
væri ekki enn rekið með tapi og
hefði náð góðum hagnaði á undaf-
ömum árum.
Skipafélög til eftirbreytni
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra saknaði þess að það hefði
ekki komið fram í þessari umræðu
að farmgjöld skipafélaganna hefðu
lækkað verulega á undanfömum
árum, um 35% síðastliðnum fímm
árum. Samgönguráðherra vildi
einnig benda á það að Samskip
hefðu staðið mjög myndarlega að
strandflutningum eftir að hafa tek-
ið við hlutverki Ríkisskipa. Nú
treystu Samskip sér ekki til að
halda uppi þessu þjónustustigi.
Samgönguráðherra vildi benda á
að fyrirtækin yrðu að geta staðið
undir sér ef hugmyndin væri að
halda uppi sterkum og öruggum
samgöngum með félögum okkar
sjálfra. Halldóri þótti leiðilegt að -
heyra það frá Össuri Skarphéðin-
syni að sérstakt markmið væri að |
að setja hömlur við fákeppni og sjá
til þess að erlend félög kæmu hing-
að. Hann áminnti tilheyrendur um
að útgerðinni í nágrannalöndum
væri hyglað með skattaívilnunum.
Samgönguráðherra ítrekaði lof
sitt til skipafélaganna fyrir árangur
sem náðst hefði með 35% lækkun
farmgjalda. Slíkt væri lofsvert og
hann gaf sterklega til kynna að
verslunin, milliliðirnir mættu nú
reyna ná viðlíka árangri. „Og ég
er raunar þeirrar skoðunar að kaup-
mennirnir geti vel tekið á sig þá
hækkun þó einhver verði á farm-
gjöldum til landsins." Svavari
Gestssyni þótti ræða samgönguráð-
herra mjög sérkennileg. Ráðherr-
ann snerist öndverður gegn þeirri
samkeppni sem hann sjálfur væri
að gera tillögu um með aðild að
evrópsku efnahagssvæði, EES. Nú
væri krafíst fóma af öllum lands-
mönnum. En þá risi upp ráðherra
og „tæki upp hanskann fyrir sjálf-
tökuliðið og segði: „það má hækka
fragtirnar““. Ef ríkisstjómin og
stjómarliðið ætlaði að taka með
svona „loppnum hætti á þessu
gengi,“ þá myndi hún ekki ráða við
neinn vanda í þessu þjóðfélagi.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra ítrekaði að Verðlagsráð
myndi afla sér frekari gagna um
þróun farmgjalda, um þá lækkun
sem hefði orðið fyrr á árinu og til-
drög þessarar hækkunar sem hefði
nú verið tilkynnt. Skipafélögin yrðu
m.a. innt eftir eftir því hver hefði
verið aðdagandi þeirrar verðlækk-
unar sem hefði orðið á árinu?
Hvemig hefði verðlækkunin verið
framkvæmd í einstökum vömflokk-
um? Hvers vegna væri staðið með
öðmm hætti að verðhækkuninni nú,
en þeirri verðlækkun sem orðið
hefur jafnt og þétt það sem af er
árinu? Það sem þyrfti að leiða í ljós,
væri hvort Eimskip væri í þeirri
aðstöðu á markaðinum að geta
breytt farmgjöldum á þess að þurfa
að taka nokkurt tillit til umhverfís-
ins. „Sé það rétt að lækkanir á
árinu hafí orðið vegna samkeppni,
eins og félögin halda fram, hlýtur
sú spurning að vakna hvað hafí
skyndilega gerst sem hafði valdið
því að fyrirtækin söðla nú um sam-
tímis og leggja samkeppni til hlið-
ar. Það verða Verðlagsráð og Verð-
lagstofnun að upplýsa og gera við-
eigandi ráðstafanir í samræmi við
þau lög sem starfað er eftir.“ Við
lok sinnar ræðu sagði viðskiptaráð-
herra: „Ég ætla ekki að mæla með
beinni íhlutun nema önnur úrræði
dugi ekki. Aðalatriðið væri að hér
verði komið á heilbrigðri samkeppni
eins og tekist hefur í mörgum grein-
um og hefur reynst besta trygging-
in fyrir lækkuðu og stöðugu verð-
lagi á síðustu misserum."
^ AMBRA FYRIR KARLA