Morgunblaðið - 27.10.1992, Síða 37
seei aaaorao .ts auoAauiaww aiaAjgviuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992
37
Einmenningsmeistaratit-
illinn fór til Húsavíkur
Brids
GuðmundurSv. Hermannsson
MAGNÚS Magnússon varð ís-
landsmeistari í einmenningi um
helgina en það mót var haldið
aftur eftir langt hlé. Þetta er
fyrsti íslandsmeistaratitill
Magnúsar, sem er tvítugur
Húsvíkingur.
Einmenningsmót hafa notið
aukinna vinsælda víða um heim
upp á síðkastið. Þá er gjarnan
völdum hópi spilara boðið að taka
þátt og keppa um álitlega pen-
ingaupphæð. í því formi var til
dæmis fyrsta Evrópumótið í eirw
menningi sem haldið var í vetur
en þar stóðu íslenskir spilarar sig
með ágætum. Hér á landi hefur
ekki verið keppt í einmermingi á
annan áratug en áður fór reglu-
lega fram íslandsmeistaramót.
Að þessu sinni tóku 112 spilar-
ar þátt í íslandsmótinu í einmenn-
ingi. Allir urðu að spila sama
sagnkerfíð sem sniðið var eftir
frönsku eðlilegu kerfí. Þama
mættust spilarar úr öllum styrk-
leikaflokkum og sumir hverjir
voru jafnvel að spila sín fyrstu
spil í keppnisbrids. Eins og gefur
að skilja þarf talsverð heppni að
vera með í förinni til að ná góðum
árangri og þær voru ófáar lífs-
reynslusögumar sem sterkari spil-
aramir sögðu hver öðram milli
umferða.
Eftir fyrstu lotu af þremur
hafði Kjartan Ingvarsson forastu
með 129 stig, undirritaður var í
Morgunblaðið/Amór RaCTiarsson
Magnús Magnússon Islands-
meistari i einmenningi í þung-
um þönkum.
2. sæti með 115 og Hjálmar S.
Pálsson og Gissur Ingólfsson í
3-4. sæti 110 stig. Eftir aðra lotu
höfðum við Kjartan skipt um sæti,
ég var efstur með 217 stig, og
Kjartan var í 2. sæti með 215
stig. Sveinn R. Eiríksson var þriðji
með 214 og Magnús Magnússon
í 4. sæti með 213.
í þriðju og síðustu lotunni var
32 efstu spiluranum raðað í tvo
riðla og sigurvegarinn gat einung-
is komið úr þeim hópi. í þessari
síðustu lotu var hart barist og
fimm spilarar skiptust á um að
hafa forastuna í mótinu en Magn-
ús var sterkastur á endasprettin-
um þótt litlu munaði í mótslok.
Lokaröðin varð þessi:
1. Magnús Magnússon 319
2. Gissur Ingólfsson 314
3. Sveinn R. Eiríksson 313
4. Guðm. Sv. Hermannsson 312
5-6. Jón Þorvarðarson 308
5-6. Kjartan Ingvarsson 308
7. Anton Haraldsson 307
8-9. Guðmundur Sveinsson 304
8-9. Gylfí Baldursson 304
10. Sverrir Ármannsson 302
Spilin í mótinu voru mörg hver
býsna iífleg. í síðustu lotunni tóku
spilararnir í vestur til dæmis upp
13 rauð spil en fæstir náðu að
nýta sér þau til fullnustu:
V/Enginn
Norður
♦ 10542
¥6
♦ 976
♦ Á10954
Vestur Austur
♦ - ♦kds?
♦ ÁDG10953 ♦ 874
♦ KG8542 '♦ Á3
♦ - ♦KG63
Suður
♦ ÁG963
*K2
♦ D10
♦ D872
Tveir gamalreyndir spilarar, Hallur Símonarson og Jón Hjalta-
son, með ný andlit á móti sér.
Þótt tvo ása og hjartakónginn
vanti má vinna 7 hjörtu og 7 tígla
í AV. Hins vegar létu AV sér oft
nægja að spila 4 hjörtu og aðeins
örfáir spii£u*ar fengu alla 13 siag-
ina. Algengasta útspilið var spaði
og við nokkur borð lögðu sagnhaf-
ar einfaldlega niður hjartaás í
öðram slag til að tryggja 12 slagi.
Við önnur borð trompaði vestur
spaðaásinn og spilaði tígli á ás í
borði með það fyrir augum að
svína hjarta. En víða notaði suður
tækifærið og henti tíguldrottning-
unni undir ásinn. Nú var skyndi-
lega orðið veralega áhættusamt
fyrir sagnhafa að svína hjarta þvi
tígulstunguhætta vofði yfír ef
norður átti hjartakóng ogtígullinn
lá 4-1 Sagnhafar spiluðu því
margir hjarta á ás og suður fékk
óvæntan slag á hjartakóng. í ein-
um riðli vora spiluð 4 hjörtu við
öll borðin fjögur, þar af fengust
13 slagir aðeins við eitt borðið.
Eftir því sem ég veit best, vora
7 hjörtu aðeins spiluð við eitt borð
og meira að segja redobluð eftir
þessar sagnir:
Vestur Norður
1 hjarta pass
3 tíglar pass
4 lauf pass
5 lauf pass
7 työrtu pass
redobl///
Austur Suður
1 spaði pass
3 h|jörtu pass
4 tíglar pass
6 työrtu pass
pass dobl
Guðjón Bragason sat með vest-
urspilin og sló- hvergi af. Frá
bæjardyram austurs virtist sem
vestur væri með sögnum sínum
að leita að spaðafyrirstöðu og því
stökk hann í 6 hjörtu með spaða-
hjónin. Guðjón taldi hins vegar
víst að austur ætti hjartakóng og
tígulás og bæði hækkaði í 7 hjörtu
og redoblaði snarlega þegar suður
doblaði til að benda á spaðaút-
spil. Guðjón vann síðan alslem-
muna með því að svína fyrir hjar-
takóng og fékk auðvitað hreinan
topp í sínum riðli.
skólar/náms keið
■ Tölvuskóli í fararbroddi ■ Byrjendanámskeið í táknmáli Námskeið sem henta öllum PC notend- veröur haldið í Samskiptamiðstöð heym- um. Einnig námskeið fyrir Machintosh arlausra 2.-19. nóvember
handavinna starfsmenntun | tölvur
■ Ódýr saumanámskeið
Aöeins 5 nemendur í hóp. Faglærður
kennari. Upplýsingar í síma 17356.
■ Námskeið
Laerið að mála á silki! Það er mjög spenn-
andi viðfangsefni. Einnig að gera mynd-
verk úr efnisbútum. Ný saumanámskeið
að hefjast. Nú er tíminn fyrir jólafatnað-
inn.
Upplýsingar f síma 611614.
Björg ísaksdóttir.
heilsurækt
■ Að hlusta á líkamann f spennu
og slökun. 8 vikna námskeið fyrir alla á
þriðjudögum kl. 17-19. Sémámskeið fyr-
ir bakveika, einkatímar og slökunamudd.
Upplýsingar í s. 616125.
Björg Ó., slökunarkennari.
■ Sálrækt
- styrking líkama og sálar
„Body-therapy“ - „Gestalt" - Lífefli -
Líföndun - Dáleiðsla - Slökun m.m.
Námskeið að hefjast.
Sálfræðiþjónusta
Gunnars
Gunnarssonar,
S: 12077,641803.
stjórnun
■ Breyttu áhyggjum
í uppbyggjandi orkul
Félagsmálaskóli - ITC-námskeið.
- Markviss málflutningur.
- Áhrifarík fundarstjóm.
- Aðlögum námskeið fyrir hópa/félög.
Símar: Guðrún 46751, Kristín
34159 og Vilhjálmur 78996.
■ Réttritunamámskeið
Við kennum allar stafsetningarreglur og
þjálfum notkun þeirra. Námskeið hentar
öllum aldurshópum. Lengd 20 stundir.
Verð 5.500 kr. Reyndir kennarar.
Innritun og uppl. í sfma 675564 þri.
kl. 20-21, mið. og fim. kl. 19-20.
■ Námskeið til 30 rúmlesta réttinda
hefst mánudaginn 2. nóv. Kennt er eftir
námskrá menntamálaráðuneytisins.
Námsgreinar eru: Siglingafraeði, sigl-
ingareglur, stöðugleiki skipa, siglinga-
tæki, eldvamir og öryggisbúnaður, vélin,
skyndihjálp, veður og fjarskipti.
Innritun og upplýsingar í símum
91-689885 og 31092.
Siglingaskólinn,
Lágmúla 7.
VÉLRITU NARSKÓLIN N
ANANAUSTUM 15
101 REYKJAVÍK
SÍMI 2 80 40
■ Kanntu að vélrita? Vélritun er
undirstaða tölvuvinnslu. Kennum blind-
skrift og almennar uppsetningar.
Morgun- og kvðldtímar.
Innritun í símum 28040 og 36112.
Ath.: V.R. og B.S.R.B. styrkja félaga
sína á námskeið skólans.
1 tungumál [
Enska málstofan
■ Enskukennsla:
Við bjóðum tíma í ensku í samræðuformi.
Einkatfmar:
Enska, viðskiptaenska, stærðfræði
(á öllum skólastigum).
Allir kennarar eru sérmenntaðir í ensku-
kennslu.
Upplýsingar og skráning í síma
620699 milli kl. 10 og 16 virka daga.
■ Námskeið frá tæknideild
Tæknivals
1. TCP/IP 9.-10. nóv. ’92
Fjallað um TCP/IP samskiptaregluna
og komið inn á ýmsa þjónustu s.s. FTP,
TFTP, DNS, SMTP, SNMP og NFS.
Skýrð verður uppbygging IP-vistfanga
og hlutverk einstakra samskiptareglna
t.d. ARP og RARP.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Leiðbeinandi: Tim Davis.
Lengd: 2 dagar.
2. Advanced System Manager
11.-13. nóv. '92
Námskeiðió er einungis ætlað þeim er
hafa sótt námskeiðið Net Ware 3.11
System Manager. Á þessu námskeiði
verður farið ýtarlega í hvemig hægt er
að auka afkastagetu netsins (perform-
ance features) og fylgjast með minnis-
þörf og notkun.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Leiðbeinandi: Tim Davis.
Lengd: 3 dagar.
3. NetWare 3.11 System Manager
16-18. nóv. ’92
Tilgangur námskeiðsins er aö gera
stjómendum tölvunetkerfa hæfari til
þess að viðhalda netkerfinu þannig að
það nýtist notendum þess sem best.
Mikill hluti námskeiðisins er verklegur
og er reynt að tengja efni námskeiðsins
raunverulegu netumhverfi. Tími gefst
til fyrirspuma varðandi vandamál í net-
kerfum, sem verið er að vinna við.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Leiðbeinandi: óákv.
Lengd: 3 dagar.
4. Advanced System Manager
7.-9. des. '92
Námskeiðið er einungis ætlað þeim, er
hafa sótt námskeiðið NetWare 3.11
System Manager. Á þessu námskeiði
verður farið ýtarlega í hvernig hægt er
að auka afkastagetu netsins (perform-
ance features) og fylgjast með minnis-
þörf og notkun.
Námskeiðið fer fram á ensku.
Leiðbeinandi: óákv.
Lengd: 3 dagar.
notendur. Gott verð. Góð kennsluað-
staða. Reyndir leiðbeinendur.
Fáðu senda námsskrá.
Tölvuskóli Stjórnunarfélags
íslands og Nýherja.
Símar 621066 og 697768.
myndmennt
ýmislegt
Upplýsingar og innritun f síma
627702.
NÁMSAÐSTŒ)
■ Námsaðstoð við grunn-, framhalds-
og háskólanema. Flestar námsgreinar.
Einkatímar - hópar.
Reyndir réttindakennarar.
Innritun ísíma 79233 kl. 14.30-18.30.
Nemeraíajijónustan sf.
■ Bréfaskólanámskeið:
Teikning, litameðferð, listmálun með
myndbandi, bamanámskeið, skraut-
slaift, hýbýlafræði, innanhússarkitektúr,
garðhúsagerð og hæfileikapróf.
Nýtt námskeið: Húsasótt.
Fáðu sendar upplýsingar um skól-
ann með því að hringja ■ sfma
627644 allan sólarhringinn.
■ Að rekja ættir sínar
er auðvelt með góðri tilsögn.
Ný námskeið með frábærri aðstöðu til
ættarrannsókna.
Ættfræðiþjónustan,
s. 27100 og 22275.
■ Ný ættfræðinámskeið,
sem standa ýmist í 4 vikur eða um 2
helgar, hefjast bráðlega (16 kennslust.,
stgrverð kr. 11.400).
Frábær aðstaða í nýjum húsakynnum.
Ættfræðiþjónustan,
Brautarholti 4, s. 27100,22275.
■ Tungumál - raungreinar
Kennsla fyrir þig.
Skóli sf«,
Hallveigarstíg 8,
sími 18520.
■ Frá Bréfaskólanum,
Nóatúni 17, sími: 91-629750
Starfsnám í boðí: Bókfærsla, ferða-
þjónusta, siglingafræði, vélavarðamám,
landbúnaðarhagfræði, sauðfjárrækt,
ýmiss konar reikningur, s.s. víxlareikn-
ingur, núvirðisreikningur, skuldabréf
o.m.fl.
Nám á framhaldskólastigi: Tungu-
mál, stærðfræði o.fl.
íslensk stafsetning, stærðfræði fyr-
ir samræmt próf.
íslenska fyrir útlendinga, leiðbein-
ingar á þýsku eða ensku.
Japanska, námsefni á ensku.
Erlend tungumál fyrir almenning.
Sendum upplýsingar ókeypis um
allt land og til útlanda.
sími 91-629750.