Morgunblaðið - 27.10.1992, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992
MÁLASKÓLINN MÍMIR - MÁLASKÓLINN MÍMIR - MÁLASKÓLINN MÍMIR
HRAÐNÁMSTÆKNI i TUNGUMÁLUM
afköst
ÁNA?JA
A
sloppun
Viltu veróa mörgum sinnum
fíiótari og skemmta þér
við það?
Þú aetur lært t.d. ensku,
þýsku, frönsku, ítölsku,
spænsku, dönsku, sænsku,
japönsku, hebresku, íslensku
fyrir útlendinga og íslenska
réttritun með hraonámstækni,
- aðeins hjá Mlml.
HRAÐNAMSTÆKNI I TUNGUMALUM
uarfl
orfl
1.000
200 Fjöldl kennslustunda
Þerro línurir byggir ó ronnsóknum Dr Robcsok í Dudopesr 1979 og S.N. Smirnovo
í AAoskvu 1973. Seinni ronnsóknir bendo ril oö hroðnómstaeknin ouki nómshroöo
ollr oð 2 ril 10 sinnum. Engm rönnsókn bendir hl minni órongurs en rvötöldunor
fró heföbundnu mólonómi
Skráning stendur yfir núna - Síminn er
10004
Námskeiðin hefjast
2. nóvember
MÁLASKÓLINN MÍMIR ER Í EIGU STJÓRNUNARFÉLAGS ÍSLANDS
______ ■ m ■
Halldór M. Sigur-
geirsson, Hafnar-
firði — Níutíu ára
★ Verðkr. 10.998,-
naust
Borgartúnl 26
Sími: (91) 62 22 62
Mynds.:(9I) 62 22 03
Níræður er í dag, 27. október,
Halldór M. Sigurgeirsson, bókhald-
ari, en hann er einn af elstu núlif-
andi íbúum Hafnarfjarðar, sem þar
eru fæddir. Vil ég mega minnast
hans á þessum merku tímamótum
með þakklæti fyrir góð og farsæl
störf að bindindismálum í okkar
heimabæ og ágæt kynni, sem mér
hafa verið svo lærdómsrík.
Halldór fæddist í litlu húsi við
Merkurgötuna, sem kallað var
Mörk. Foreldrar hans voru hjónin
Marín Jónsdóttir, f. í Unnarholti,
Hrunamannahreppi, og Sigurgeir.
Gíslason, f. í Kálfholti í Rangár-
vallasýslu, lengi sparisjóðsgjald-
keri, en áður verkstjóri. Kom hann
mikið við sögu félagsmála í Hafn-
arfirði, sat m.a. í fyrstu bæjar-
stjóminni og hafði um langt skeið
afskipti af málefnum Hafnarfjarð-
arkirkju sem safnaðarfulltrúi.
Þykist ég vita, að Halldór telji
það eina sína mestu giftu í lífinu
að hafa átt foreldra, sem höfðu
bindindi og aðrar kristilegar
dyggðir að leiðarljósi, enda hefur
hann ekki látið sinn hlut eftir liggja
í baráttunni gegn bölvaldinum
mesta, áfenginu. Frá unglingsár-
um hefur Halldór verið virkur í
starfi innan bindindishreyfmgar-
innar og gegnt þar ýmsum trúnað-
arstörfum.
En það var ekki síður ómetanleg
hamingja hans að eignast góðan
og traustan lífsförunaut, Margréti
Siguijónsdóttur. Þau gengu í hjú-
skap 12. október 1929. Hún er
dóttir Jófríðar Halldórsdóttur og
Siguijóns Gunnarssonar, sem lengi
áttu heima á Hverfisgötu 45 í
Hafnarfirði. Halldór og Márgrét
eignuðust fjögur börn. Soninn Þor-
leik misstu þau á níunda aldurs-
-ári, en á lífi eru dætur þijár, Hrafn-
hildur, Jónfríður og Margrét.
Þau hjónin hafa ekki aðeins ver-
ið samhent um að vilja efla fagurt
Ný gerð bamabílstóla
* Fyrir böm frá fæðingu
til 5 ára aldurs.
* Þægilegar 5 punkta fest-
ingar með axlapúðum.
* Stillanlegur.
* Stólnum má snúa með
bakið fram (->9kg.) eða
aftur (9-18kg.).
* Má hafa frístandandi.
* Vasi á hlið, fyrir leikföng
eða annað.
* Auðvelt að taka áklæðið
af og þvo það.
* Viðurkenndur.
P O R
Öruggur og stöðugur ferðabíll
með aldrifi og læstum millikassa.
Fjallabíll á viðráðanlegu verði.
Verð frá: 739.000 m. vsk
593.574 án vsk
BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF.
Ármúla 13 108 Reykiavík Símar 681200 8 31236
'
og göfugt mannlíf, heldur hefur
þeirra eigin sambúð og allt heimil-
ishald verið til mikillar fyrirmynd-
ar. Frá 1931 hafa þau búið í fal-
lega timbgrhúsinu á Norðurbraut
13. Öll umhirða þar ber þeim fag-
urt vitni og innan veggja ríkir
sannur menningarbragur. Þangað
er alltaf gott að koma og njóta ljúf-
mennsku og einlægrar gestrisni
þessara ágætu vina minna.
Starfsævi Halldórs hófst á tí-
unda ári er hann var í vegavinnu
hjá föður sínum. Námi frá Flens-
borgarskólanum lauk hann 1921.
Síðan urðu verslunar- og skrif-
stofustörf hans aðalstörf. Hann var
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Hafn-
arfjarðar 1929-44, síðan við skrif-
stofustörf hjá Akurgerði hf. til
1950, en eftir það starfaði hann
óslitið til 1987 hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna.
Um 50 ára skeið hefur Halldór
verið gjaldkeri stjórnar Góðtempl-
arahússins í Hafnarfirði. Þar hefi
ég í mörg ár sem endurskoðandi
kynnst einstakri vandvirkni hans
og samviskusemi. Alltaf eru reikn-
ingar tilbúnir á réttum tíma og
þeir mjög vel og skipulega færðir
af snyrtimennsku méð fagurri rit-
hönd.
Og það er táknrænt, að einmitt
nú skuli nýlokið stórum hluta að-
kallandi endurbóta á gamlá Góð-
templarahúsinu, sem Halldór svo
lengi og ríkulega hefur borið fyrir
bijósti. Þau eru mörg handtökin
hans við málun og aðra hirðu húss-
ins fyrr á árum. En Góðtemplara-
húsið, sem var byggt fyrir 106
árum, er elsta samkomuhús Hafn-
arfjarðar og var lengi eina og
helsta athvarf félags- og menning-
arlífs í bænum. Ættu bæjaryfir-
völd að kappkosta að hlúa sem
best að þessu sögulega mannvirki,
en þar voru m.a. lengi haldnir
fundir bæjarstjórnar.
Sumir verða ekki gamlir, þótt
aldurinn færist yfir. Aðrir eldast
fljótt, þótt miklum árafjölda sé
ekki til að dreifa. Mér finnst Hall-
dór vera dæmigerður fulltrúi fyrr-
nefnda hópsins. Hann ber háan
aldur mjög vel, heldur skýrri hugs-
un, hefur reisn í fasi, les og skrif-
ar, fylgist vel með málefnum líð-
andi stundar og fær sér daglega
göngutúr.
Sagt hefur verið „að það að
verða gamall er guði að þakka, en
manninum sjálfum að halda sér
ungum“. En það hefur Halldóri vel
tekist. Þar hefur hjálpast að heil-
brijgt líferni, jákvæð hugsun, jafn-
aðargeð með léttri lund, trúar-
traust og velvilji til samferðafólks-
ins, en Halldór hefur áunnið sér
virðingu þess og vinsældir. Og
barnið í hjarta sínu í bestu merk-
ingu þess orðs hefur honum heppn-
ast að varðveita. Hann er alltaf
hreinn og beinn, einlægur og vand-
aður mannkostamaður.
Guð gefi, að sú verði gæfan þín,
kæri Halldór, að njóta friðar og
fegurðar elliára við góða heilsu.
Ég óska þér og Margréti alls vel-
farnaðar. Hugheilar þakkir fyrir
vináttu ykkar og alla velvild.
Að síðustu skal þess getið, að
þau hjónin^eru að heiman í dag.
Árni Gunnlaugsson.