Morgunblaðið - 27.10.1992, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992
43
Kveðja
Gústaf L Lárusson
fv. skólasijóri
Fæddur 17. október 1911
Dáinn 6. október 1992
Mágur minn Gústaf I. Lárusson,
fyrrverandi skólastjóri á ísafírði, er
nýlega látinn. Af ýmsum ástæðum
urðu ekki tök á því að koma að
nokkrum kveðjuorðum fýrir útfðr
hans. Okkur systkinum var hann
einkar kær og mátum við hann
mikils, enda var hann sómamaður
í hvívetna. Hann var kvæntur
yngstu systur okkar og var hjóna-
band þeirra afar farsælt. Það er ljúft
að minnast vináttu og tyggðar
venslafólks og verða vitni að sam-
heldni og ástríki þeirra sem næst
manni standa.
Það bregður svo iðulega bliku á
í sambúð hjóna á okkar tímum og
endar oft með ráðleysi og upplausn.
Slík sambúð hjóna, sem einkenndi
hjónaband þeirra Gústafs og Krist-
jönu þessi 53 ár sem þau áttu sam-
leið, verður eins og óhagganlegur
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
p E R L A N sími 620200
viti í þjóðlífínu og viðheldur þeirri
trú, að farsælt hjónaband og gott
fjölskyldulíf séu vissulega traustir
homsteinar þjóðfélagsins.
Við þökkum Gústaf, Gústa eins
og við ávallt kölluðum hann, fyrir
öll árin sem vi áttum samleið í flöl-
skyldunni og biðjum honum og Jönu
systur okkar, bömum og barnaböm-
um allrar blessunar vitandi það, að
þau verða um skeið að lifa hvort á
sínu tilvemsviði.
F.h. okkar systkina og bama
okkar.
Hrefna Samúelsdóttir Tynes.
'féCóctt,
Opid alla daga fra kl. 9-22.
friQodost
RIRYANl - INHVFRSKT-
HRÍSGRIÓN MEÐ GRÆNMETl, KJÚKLINGI OG KRYDDI.
TORTIGUONI - ÍTALSKT:
PASTASKRÚFUR MEÐ GRÆNMETl, NAUTAKJÖTI OG KRYDDI.
FARFALLE - ÍTALSKT:
PASTASLAUFUR MEÐ GRÆNMETI, SKINKU OG OSTI.
Ein msk. smjör á pönnuna,
innihaldið út í og allt tilbúið á 5 mín.
Skyndiréttir sem bragðast og líta út
sem bestu sérréttir!
Góðan daginn!
NOTUM GRÓFMYNSTRUÐ VETRARDEKK.
HÖGUM AKSTRI EFTIR AÐSTÆÐUM
GAT N AMÁLASTJ ÓRI