Morgunblaðið - 27.10.1992, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 27.10.1992, Qupperneq 44
11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992 rr-tt- manni á Eyrarbakka, þar dvaldi hann um eitt ár. Þegar hann var ellefu og hálfs árs var beðið fyrir hann eitt sumar að Haga í Gnúp- verjahreppi, það sumar varð að rúmum 72 árum. Þar bjuggu þá hjónin Margrét Eiríksdóttir og Stef- án Sigurðsson. Stefán missti ungur heilsuna og setti snemma traust sitt á þennan unga dreng, svo hann óx upp við dugnað og skyldur, enda sagði Haraldur mér að verkkunn- átta, snyrtimennska og árvekni væri það sem Stefán hefði kennt sér og snemma var honum falin sú mikla ábyrgð að gegna lömbum úti í Hagaey, var þá Þjórsá oft var- hugaverð að vetri til í skammdegis- myrkrinu. 2. júní 1935 kvæntist Haraldur Guðrúnu Stefánsdóttur, f. 19. mars 1914, dóttur Hagahjón- anna, þá nýútskrifuð sem kennari. Tóku þau þá við búinu úr hendi móður hennar Margrétar, sem þá bjó ekkja. Vorið 1933 keypti Haraldur sinn fyrsta bíl með skrásetningamúmeri AR-16, þá vörubíll með sex manna farþegahúsi. Hóf hann þá þegar flutninga með vörur og farþega milli Reykjavíkur og Þjórsárdals. Haustið 1933 tók Haraldur að sér fyrstu mjólkurflutningana frá Mjólkurbúi Flóamanna til Mjólkur- stöðvarinnar í Reykjavík, þá var farin ein ferð á dag. Flutningamir vom erfiðir á þeim tíma eftir gömlu vegunum og snjómðningstæki óþekkt, aðeins handmokstur, en oft var hægt að aka á harðfenni, eða utan vegar. Vorið 1934 keypti hann sér nýjan Fordson sem var fyrir 10 farþega ásamt vömpalli og á þann bfl fékk hann úthlutað sérleyfínu Reykjavík-Gnúpveijahreppur- Þjórsárdalur og var hann þar með einn af fyrstu sérleyfishöfunum. Það rak hann til vorsins 1947. 1937 keypti hann fyrsta áætl- unarbflinn, Ford, árgerð 1937, og var yfírbyggingin smíðuð í Reykja- vík af Kristni Jónssyni vagnasmið. Of langt væri að rekja bflaeign Haraldar því hún stækkaði ört og vélvæðing var mikil. Flutningar á hans vegum vom um margra ára Minning Haraldur Georgsson, Haga, Gnúpveijahreppi Fæddur 14. janúar 1909 Dáinn 19. október 1992 Hann afí í Haga er dáinn. Okkur setur hjóð og minningamar sækja á okkur. Hann var stór maður og stórhuga og vildi að við væmm það líka. Hann kenndi okkur að vinna og lagði þá áherslu á vandvirkni. Hlut- imir áttu að ganga fjótt og vel og við áttum að geta staðið kinnroða- laust við okkar verk. „Ef þú getur ekki sinnt því almennilega er betra að sleppa því,“ sagði hann gjaman og vildi ekkert hálfkák. Þegar við vomm lítil spilaði hann stundum við okkur Marías og sagði okkur sögur. Við sem í bænum búum nutum hans líka því að flest- ar helgar og í flestum fríum var farið austur. Hann vildi fylgjast með því hvað við tókum okkur fyrir hendur, bæði í námi og starfí, og spurði alltaf hvemig gengi. Hann gladdist með okkur þegar vel gekk, þó að hann segði ekki mikið um það, og vildi hag okkar sem bestan. Alltaf var hann tilbúinn til að ræða við okkur við öll tækifæri og þótti gaman að segja okkur sögur. Af þeim sökum urðu kveðjustundimar oft nokkuð langar því alltaf komu nýjar sögur. Hann hafði gaman af vísum og kvæðum og fór sá áhugi hans síst minnkandi með aldrinum. Var hann þá oft að fara með eitthvað fyrir okkur og benda okkur á kjammikið innihaldið. Á skilnaðarstundu er okkur efst í huga þakklæti fyrir það sem hann var okkur og það sem hann kenndi okkur. Við kveðjum afa með erindi eftir Einar Benediktsson sem honum var einkar hugleikið: Hvað bindur vom hug við heimsins glaum, sem himnaarf skulum taka? Oss dreymir í leiðslu lífsins draum, en látumst þð allir vaka, og hiyllir við dauðans dðkkum straum, þó dauðinn oss megi’ ei saka. Barnabörn. Að heilsast og kveðjast er lífsins saga. Ég kvaddi vin minn Harald Georgsson eftir að hafa borðað sunnudagskvöldmat á heimili hans, eins og svo oft áður, en þessi kveðja varð einhvem veginn enn þá inni- legri en vant var, einnig bað ég Guð að vera með honum. Snemma á mánudagsmorgni áður en ég fór til vinnu hringdi síminn, það var dóttir hans sem sagði: „Guðbjörg, hann pabbi er dáinn, hann dó snemma í morgun svo hann kemur ekki með áætlunarbflnum um há- degið í dag, hann þarf ekki lengur bfla.“ Mig setti hljóða, mikið geta vistaskiptin á milli heima verið fljótfarin, örfáir tímar síðan við kvöddumst. Haraldur var fæddur 14. janúar 1909 að Strórahrauni í Kolbeins- staðahreppi þar sem móðir hans, Halldóra Stefanía Guðmundsdóttir, var í vinnumennsku og snemma þurfti Haraldur að halda áætlun sinni, því ekki gafst tími til að ljós- móðir kæmi á staðinn, var það þá húsbóndinn á heimilinu, séra Ámi Þórarinsson (tengda-afí minn) sem brá sér í hlutverk ljósmóður og tók á móti drengnum. Faðirinn var Georg Finnsson, kaupmaður í Reykjavík. Haraldur fluttist síðar með móður sinni til Reykjavíkur en þar sem heilsa hennar brást var hann sendur rúmlega 10 ára í vinnu, þá sem „hestastrákur", hjá kaup- skeið með vikur til Reykjavíkur, þá aðallega til Jóns Loftssonar. í þá flutninga keypti hann sér fyrsta Scania-vörubflinn sem fluttur var til landsins, það var árgerð 1954 og er sá bíli enn í eigu fjölskyldunn- ar. Haraldur og Guðrún eignuðust §órar dætur. Þær eru: Jóhanna Margrét, f. 27. apríl 1937, maki hennar er Reynir Guðmundsson skipstjóri, þau eru búsett í Garðabæ; Áslaug, f. 13. janúar 1939, maki hennar er Ásbjöm Guð- mundsson verkamaður, búsett í Reykjavík; Ragnheiður, f. 13. jan- úar 1939, maki hennar er Guðlaug- ur Ólafsson bflstjóri, þau byggðu heimilið Melhaga í túni Haga; Guð- rún Stefanía, f. 25. febrúar 1943, maki hennar var Jón Þór Jónsson, þau slitu samvistir, Guðrún býr í Reykjavík. Guðrún fyrri kona Har- aldar andaðist 25. febrúar 1943. Haraldur kvæntist seinni konu sinni 9. júní 1945, Jóhönnu Jó- hannsdóttur, f. 13. nóvember 1914, frá Hamarsheiði I Gnúpveijahreppi, sem lifír mann sinn. Þau eignuðust eina dóttur, Jóhönnu, f. 24. janúar t Mófiir okkar, ’ VALNÝ TÓMASDÓTTIR, Kvisthaga 21, lést í Borgarspftalanum 23. október si. Nina Hjaltadóttir, Þorsteinn Hjaltason. t Eiginmaður minn, DANÍEL ÞÓRARINSSON kaupmafiur, Gnoðarvogi 76, lést sunnudaginn 25. október. Guðriin Þorgeirsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN LOVÍSA HANNESDÓTTIR, Heiðmörk 9, Hveragerði, andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands aö kvöldi laugardagsins 24. október. Hannes Sigurgeirsson, Guðrún Magnúsdóttir, Valgerður Magnúsdóttir, Guðmundur Kr. Jónsson, Emma Magnúsdóttir, Hörður Diego Arnórsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Maðurinn minn og faðir okkar, ÓLAFUR ÓLAFSSON járnsmiður, Miövangi 65, Hafnarfirði, lést é Sauðárkróki 25. október. Dagbjört Guðjónsdóttir, Hrefna Ólafsdóttir, Bjami Þráinsson, Lilja Ólafsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Guðjón Ólafsson, Sigurlaug Hauksdóttir, María Gréta Ólafsdóttir, Viðar Sverrisson, Gísli Ólafsson, Katrín Sigurðardóttir. t Eiginkona mín, móðir okkar og tengamóðir, HELGA GUDMUNDSDÓTTIR, Bólstað, Garðabæ, lést á heimili sínu aðfaranótt 25. október. Ólafur Vilhjálmsson, börn og tengdabörn. t Föðursystir okkar, ÞÓREY JÓNSDÓTTIR, Moldnúpi, andaöist í sjúkrahúsinu á Selfossi 23. þ.m. Guðjón Einarsson, Sigrfður Einarsdóttir, Eyþór Einarsson, Baldvin Einarsson, Guðrún Einarsdóttir, Sigurjón Einarsson. t Elskulegi maðurinn minn og bróðir okkar, STEFÁN B. HLÍÐBERG, Garðaflöt 11, Garðabæ, andaðist í Borgarspítalanum sunnudaginn 25. október. Þóra Jónsdóttir, Dóra Hlíðberg, Bragi Hlíðberg. t THEÓDÓRA GUÐLAUGSDÓTTIR frá Hóli f Hvammssveit, Dalasýslu, Snorrabraut 40, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 29. október kl. 13.30. Hulda J. Óskarsdóttir, Marinó Óskarsson, Gréta Óskarsdóttir, Agnar B. Kristjánsson, Marfa Kristjánsdóttir. 1949, maki Rúnar Andrésson, þau byggðu heimilið Haga II. Bama- bömin eru ellefu og bamabama- bömin em orðin fjögur. Ég kynntist Hagaheimilinu fyrir tæpum 30 ámm eftir að ég og Guðrún dóttir hans höfðum lært að elda graut saman, og að námi loknu lentum við báðar í skrifstofustörf- um og var þá tilbreyting fyrir inn- fæddu Reykjavíkurstúlkuna að skreppa með vinkonu sinni í sveit- ina. Margar helgarferðir fómm við með Hrepparútunni austur I sveit og slóst þriðja vinkonan, Bára, einn- ig í hóp okkar. Haraldi fannst við vera uppátektasamar svona þijár saman og gaf okkur gælunafnið „Bakkabræður", sem í vissum hópi hefur enn haldist. Frá því í fyrsta sinn tóku þessi yndislegu rausnar- hjón einstaklega vel á móti mér, þótt ég væri hálfgerður bjáni á öll sveitastörf, enda fædd og uppalin í Reykjavík. Þegar ég gifti mig Sig- urði L. Einarssjmi var hann boðinn velkominn í sveitina mína. Bömin okkar hafa alltaf átt ömmu og afa í sveitinni og Hannes Þór, sá yngsti, var síðasti kúrekinn hjá þeim. Haraldur og Jóhanna hættu bú- skap síðastliðið ár. Þá tóku við bú- inu Sigrún Guðlaugsdóttir frá Mel- haga og maður hennar, Kristmund- ur Sigurðsson frá Kotlaugum í Hmnamannahreppi. Dætur Harald- ar sem búa hér á mölinni mældu sér þá út lönd undir sumarhús og gróðurreiti. Urðum við hjónin þess aðnjótandi að fá að vera í þeirra hópi, til að byggja upp unaðsreit fyrir efri árin, já, þau munaði ekk- ert um að bæta við einni „stelp- unni“ enn. Þökk sé þeim og þeirra fólki. Haraldur hefur frá fyrstu tíð búið rausnarbúi og rekið það með reisn, enda hafði hann sér við hiið duglega eiginkonu, mikinn bónda, sem var áhugasöm um sveitastörf. Ekki verður henni fullþakkað hvað hún tók dætram hans frá fyrra hjónabandi vel. Haraldur hafði vinnumenn við sveitastörfin, en var svo heppinn að fá ungan mann Knút (Hansen) Jóhannesson frá Danmörku sem ætlaði að athuga hvemig væri að vera eitt sumar á íslandi, það er orðið að 36 ámm. Haraldur bar móðurmálið fyrir bijósti sér, og leiðrétti gjaman böm þegar þau sögðu einhveija skekkju, eða slettu úr erlendu tungumáli. Hann unni íslenskri Ijóð- og söng- list og hafði miklar mætur á Einari Ben. Mikið vildi ég kunna þó ekki væri nema brot af þeim ljóðum og sálmum sem hann kunni. Ekki vomm við alltaf sammála, en ekki skyggði það á vináttuna. Hann flíkaði ekki tilfínningum sin- um, en alltaf sýndi hann mér og mínum sömu hlýjuna. Ég sendi Jóhönnu og fjölskyldu samúðarkveðjur mínar og megi Haraldur hvíla í Guðs friði. Guðbjörg Friðriksdóttir. Ef við lítum yfir farinn veg em árin fljót að líða. Ég var ungur maður í Danmörku, þegar mér datt í hug að leita að tilbreytingu í lífinu og réði mig í gegnum Búnaðarfélag- ið til íslands í 6 mánuði. Ég kom til íslands með m/s Gullfossi 17. maí 1956 og sama dag að kvöldi til var ég kominn að Haga. Ég var kominn hálfa leiðina milli landanna, Ögar ég vissi hvað bóndabærinn á andi, þar sem ég átti að vera, héti. Strax þetta sama kvöld, þreytt- um eftir sjóvolkið, var mér tekið eins og einum af ijölskyldunni. Hér ríkti enginn stéttarmunur, hús- bændumir Haraldur og Jóhanna kona hans ásamt fimm dætmm þeirra umgengust og borðuðu með vinnumönnunum og bflstjóranum, þetta var nýtt fyrir mér, þetta tíðk- aðist ekki hjá dönsku vinnufólki. Margs er að minnast í þessi 36 ár sem ég hef verið hér sem vinnu- maður. A mínu fyrstu ámm hér í Haga var oft glatt á hjalla og mikið af ungu fólki á heimilinu og margar ferðir vom famar, jafnt akandi sem ríðandi og allar jafn ánægjulegar. Haraldur var traustur maður og áreiðanlegur, hann var vandvirkur og verklaginn og margt kenndi hann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.