Morgunblaðið - 27.10.1992, Síða 51

Morgunblaðið - 27.10.1992, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992 TILBOÐÁ POPPIOGKÓKI ATHUGIÐ: 350 króna miðaverð á 5 og 7 sýningar íAog C-sal. Ivy fannst besta vinkona sín eiga fullkomið heimili, fullkomna fjölskyldu og fullkomið líf, þess vegna sló hún eign sinni á allt saman. ERÓTÍSKUR TRYLUR SEM LÆTUR ENGAN ÓSNORTINN Drew Barrymore (E.T., Firestarter o.fl.) er hér í hlutverki Ivy, sem er mjög óræð manneskja. Enginn veit hver hún er, hvaðan hún kom eða hvert hún fer næst. SÝND Á RISATJALDI í mi oolbysteríöI Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11 í A-sal. - Bönnuð innan 14 ára. LYGAKVENDIÐ GOLDIE HAWN og STEVE MARTIN fara hér á kostum í sinni nýjustu mynd. SýndíB-salkl. 5,7,9 og 11. FERÐINTIL VESTURHEIMS FASF& FUR/OUS ■ <4 V**; M Mh^.M CRUISE > .. KÍDMAN Frábær mynd með Tom Cruise og Nicole Kidman. Sýnd í C-sal kl. 5 og 9. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ KR. 350 A ALLAR MYNDIR TILBOÐ A POPPI OG COCA COLA 51 * * * * S V MBL. *** BÍÓLlNAN Sýnd kl. S, 7,9 og 11. Bönnuð innan 14 ára. VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA HENRY nærmynd af fjöldamorðingja Myndin sem hefur verið bönnuð á myndbandi og fæst ekki sýnd víða um heim. Sýnd kl. 9og11. Strangl. bönnuð innan. 16ára. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. REGNBOGINN SÍMI: 19000 Fyrirlestra- röð um kenn- ingar sál- greiningar ÞERAPEIA HF. gengst fyr- ir fyrirlestraröð um kenn- ingar sálgreiningar og notkun þeirra í meðferð. Fyrirlestrarnir eru ætlaðir fagfólki sem stefnir að því að vinna eftir þessum kenn- ingum eða hefur áhuga á að kynna sér þær. í fjórðu og síðustu lotu verður sérstaklega fjallað um sálsýkiseinkenni (psychopat- hologíu) og verður fyrsti fyrir- lesturinn mánudaginn 2. nóv- ember og fjallar um skilning sálgreiningar á sjúklegum fyrirbærum. Aðrir fyrirlestrar munu fjalla um taugaveiklun (9. nóv.), narcissima (16. nóv.), borderline-fyrirbæri (23. nóv.), þunglyndi og geð- hvörf (30. nóv.) og loks geð- klofa og með því lýkur erind- unum mánudaginn 7. desem- ber. Þau verða haldin í Odda stofu 201 kl. 21-21.30 og fyrirlesarar verða Halldóra Olafsdóttir, Hulda Guð- mundsdóttir, Högni Óskars- son, Ingvar Kristjánsson, Magnús Skúlason, Oddur Bjamason og Sigurjón Björnsson. Þerapeia hf., Suð- urgötu 12, veitir nánari upp- lýsingar og tekur við þátt- tökutilkynningum. (Fréttatilkynning) ------» ♦ ♦------- I HIÐ .hálfsmánaðarlega rabb um rannsóknir og kvennafræði á vegum Rann- sóknastofu í kvennafræðum við Háskóla íslands verður miðvikudaginn 28. október og ber það yfirskriftina Hlut- lægni í sögu eðlisfræðinnar. Þar talar Sigríður Lilly Baldursdóttir eðlisfræðingur og lektor við Tækniskóla ís- lands um athuganir sínar á hugmyndum um hlutlægni í sögu eðlisfræðinnar og veltir fyrir sér spurningunni um kvenlega hlutlægni. Að venju fer rabbið fram í stofu 202 í Odda kl. 12-13. Morgunblaðiö/bilh Hjónin Sigurður Gunnarsson og Guðrún Karlsdóttir. Guðrún Karlsdóttir við upphlutinn sem hún gaf Bókasafni Suður-Þingey- inga og er staðsettur í byggðasafninu. Húsavík Bókagjöf og upphlutur Húsavík. SÖFNUNUM á Húsavík hafa borist veglegar gjafir frá hjónunum Guðrúnu Karlsdóttir og Sigurði Gunnars- syni, fyrrverandi skólastjóra. Þau hafa gefið Bókasafni Suður-Þingeyinga einkabókasafn sitt, sem hefur að geyma tæp 4.000 bindi, og íslenska kvenbúninginn — upphlut — með stokkabelti og viðeigandi víravirki, úr silfri og gulli, smíðað af Kristjáni Benediktssyni, gull- smiði. Bókasafnið hefur að geyma mjög mikilsvert safn tímarita og árbóka og er safnið allt í fallegu og vel unnu bandi. Meirihluti þess er handbundið af Sigurði sjálfum, en hann sagði við afhendingu þess, að kalla mætti safnið tómstundaverk sitt. Hann hefði fjármagnað það að miklu leyti með því fé sem sumir aðrir nota til áfengis- og tóbakskaupa, og hluti af tómstundum hans hefðu farið í bókbandið, sem hann hefði ungur lært. Sigurður er Þingeyingur, fæddur að Skógum í Öxar- firði 10. október 1912, svo hann stendur nú á áttræðu. Lífsstarf hans hefur verið kennsla og skólastjóm, var skólastjóri Barnaskóla Húsavíkur í 20 ár og síðar kennari við Kennaraháskóla íslands. Hann er þjóðþekkt- ur maður fyrir ritstörf sín, þýðingar erlendra bóka og þá sérstaklega bamabóka, og eftirminnilegur útvarps- fýrirlesari og starfað mikið að félagsmálum og nú síð- ustu árin í þjónustu aldr- aðra. Hið mikla safn Sigurð- ar fýllir heila stofu í Safna- húsinu og hefur hún hlotið nafnið Sigurðarstofa. Hann sagði að fleiri staðir hefðu komið til greina en Húsavík við ráðstöfun safnsins, en hann hefði starfað hér sitt besta skeið ævi sinnar og þau hjónin hefðu reist sitt fyrsta heimili á Húsavík, svo þetta varð ákvörðunin, enda væri saga bóksafns S-Þin- geyinga merk og á það nú meira en 100 ár að baki. Gína hefur verið klædd hinum fagra búningi Guð- rúnar og komið fyrir í byggðasafninu og er hann einn eftirtektarverðasti munur safnsins. Safnverðirnir Hrefna Jónsdóttir bókavörður og Guðni Halldórssön byggða- safnsvörður þökkuðu gjaf- imar og buðu viðstöddum til veislu í Hótel Húsavík. Þar ávörpuðu heiðurs- gestina, formaður bóka- safnsnefndar, Regína Sig- urðardóttir, og Halldór Valdimarsson skólastjóri barnaskólans og færði þeim hjónum þakkir, fyrir stóra bókagjöf, sem þau hefðu fært núnefndum Borgar- hólsskóla, en kjarnabygging hans hefði verið reist í skóla- stjórnartíð Sigurðar af mik- illi elju og framsýni. Gjöfin var bamaskólabóksafn þeirra hjóna, safn erlendra bamabóka og ekki síst er að nefna safn kennslubóka liðins tíma, þar sem væri að finna margar mikils- metnar og fáfengar bækur. Aðrir ræðumenn voru Sig- uijón Jóhannesson fyrrv. skólastjóri, Finnur Kristins- son fv. safnvörður, Ingi- mundur Jónsson yfirkenari og Björg Friðriksdóttir. Bókvitið verður ekki sett í askana hefur oft verið sagt og verðmæti bóka verður ekki metið í kílóum, en til gamans má geta þess að bókagjöf Sigurðar og Guð- rúnar vó 4.300 kíló. - Fréttaritari. Sjóður til minningar um Jón Þórarinsson í erfðaskrá Önnu Jónsdóttur ljósmyndara í Hafnar- firði sem andaðist 4. júlí 1987, ákvað hún að mestur hluti eigna sinna skyldi renna í sjóð til minningar um föður hennar, Jón Þórarinssonar skólastjóra og síðar fræðslumálastjóra. Skal sjóðurinn notaður til að styrkja til framhaldsnáms efnilega nemendur sem lok- ið hafa brottafararprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði, en Jón Þórarinsson var fyrsti skólastjóri þess skóla. Ber sjóðurinn nafnið Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar. Af óviðráðanlegum ástæðum 'hefur dregist nokkuð að ganga formlega frá stofnun sjóðsins en nú hefur skólanefnd Flensborg- arskólans samþykkt stofn- skrá hans og hefur hún ver- ið send dómsmálaráðuneyt- inu til staðfestingar. Jafn- framt hefur skólanefndin, sem fer með hlutverk stjóm- ar sjóðsins, ákveðið að út- hluta úr sjóðnum í fyrsta skipti 16. desember nk. en þá verða liðin 100 ár frá fæðingu Önnu Jónsdóttur. Verður að þessu sinni úthlut- að 250 þúsund krónum. Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum. Umsækjendur þurfa að hafa lokið stúdents- prófi eða öðru lokaprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Umsóknunum þurfa einnig að fylgja stað- fest gögn um námsferil eftir að námi í Flensborgarskó- lanum lauk. (Fréttatilkynning) gfg BORGARLEIKHUSIÐ sími 680-680 ' LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra svið kl. 20: • DUNGANON eftir Björn Th. Björnsson Sýn. fim. 29. okt., fós. 6. nóv. Aðeins fjórar sýningar eftir. Stóra svió kl. 20: • HEIMA HJÁ ÖMMU eftir Neil Simon 5. sýn. mið. 28. okt. gul kort gilda. 6. sýn. fós. 30. okt. græn kort gilda, uppselt. 7. sýn. lau. 31. okt. hvft kort gilda, fáein sæti laus. 8. sýn. fim. 5. nóv. brún kort gilda. Litla svió: • SÖGUR ÚR SVEITINNI: PLATANOV eftir Anton Tsjékov Sýn. fim. 29. okt. kl. 20. Lau. 31. okt. kl. 17. Sun. 1. nóv kl. 17. VANJA FRÆNDI eftir Anton Tsjékov Sýn. fós. 30. okt. kl. 20. lau. 31. okt. kl. 20. Sun. 1. nóv kl. 20. Verð á báðar sýningarnar saman aðeins kr. 2.400. Kortagestir ath. að panta þarf miða á litla sviðið. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning er hafin. Miðasalan er opin alla daga frá kl. 14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17. Miðapantanir i síma 680680 alla virka daga frá kl. 10-12. Aðgöngumiðar óskast sóttir þrem dögum fyrir sýningu. Faxnúmer 680383. - Greiöslukortaþjónusta. LEIKHÚSLÍNAN sími 99 1015 Munið gjafakortin okkur - skemmtileg gjöf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.