Morgunblaðið - 27.10.1992, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992
53
^1% ...alltaf þegar
Við erum vandlát
•••
Jólum fagnað 1940 í bárujárnsbragg-a á Álafossi. Alan Gosling er þriðji frá vinstri.
Breskur her-
maður í
pílagrímsför
til Islands
ALAN Gosling, fyrrum liðsmaður
bresku hersveitanna sem námu hér
land í seinna stríðinu, er nú í nokk-
urs konar pílagrímsför hingað til
lands hálfri öld seinna. Er það í
tilefni gullbrúðkaups þeirra hjóna
en hingað hefur ekki komið eftir
stríð fyrr en nú.
Alan Gosling var tvítugur er
hann kom hingað 7. júlí 1940.
Fyrst um sinn var hann staðsettur
í Reykjavik en síðar í Mosfellssveit
og loks í Keflavík þar sem hann
kom við sögu flugvallarfram-
kvæmda þar. Hér var Gosling í tvö
ár en tók síðar þátt í innrás banda-
manna í Normandí 6. júní 1944.
Var hann í verkfræðideildum hers-
ins, svonefndri 294 vallardeild (294
Field Company Royal Engineers).
Fyrstu verkefni Goslings í
Reykjavík voru að búa til eftirlík-
ingar af loftvamarbyssum til að
villa um fyrir óvininum. Voru
grafnar stórar holur og símastaur-
um komið fyrir í miðjunni og leit
sköpunarverkið því út sem loft-
vamarbyssa úr lofti.
Næsta verkefni Goslings of fé-
laga hans var flugvallargerð í
Reykjavík svo Spitfire-flugvélar
hersveitanna gætu athafnað sig
þar. „Ég hefði gaman af því að
hitta einhvem íslendinganna sem
LEIÐRÉTTING
Þú ræður engii um greind þína, en
þú ræður öllu öðru um getu þína til náms. Margfaldaðu lestrar-
hraða þinn og bættu námstæknina og árangur þinn í námi mun
batna stórkostlega... með minni fyrirhöfn en áður!
Ánægja af lestri góðra bóka vexeinnig með auknum lestrarhraða.
Viljlr þú vera með á síðasta námskeiði ársins, sem hefst mið-
vikudaginn 28. október, skaltu skrá þig strax f síma 641091.
Ath.: Sérstakur námsmannaafsláttur á þetta eina námskeið.
HRAÐLESTRARSKOLINN
...við ábyrgjumst að þú nærð árangri!
ZZ 1978-1992 E
Alan Gosling (t.v.) með samstarfsmanni við vegargerð í nágrenni
Álafoss.
unnu með okkur við að hlaða Ford-
vörubílana sem óku hrauni og
gijóti í undirstöður flugbrautarinn-
ar,“ sagði hann í samtali við
Morgunblaðið.
„Einnig hefði ég gaman af því
að hitta menn sem unnu með okk-
ur við vegagerð að Álafossi," sagði
Gosling. Hann var um tíma í kampi
að Álafossi og átti mikil samskipti
við verkstjóra íslendinganna sem
tóku þátt í vegagerðinni en hann
segir þá hafa komið á vörubílum
sínum úr nágrenninu á hveijum
morgni.
„Mikið hefði ég gaman af að
hitta manninn sem seldi mér egg
öðru hveiju eða vörubílstjórana
sem leyfðu mér að standa uppi á
palli á dansleiki og aðrar samkom-
ur. Því miður man ég ekki nöfnin
lengur en kannski muna menn eft-
ir mér þar sem ég var með ísbjöm
á einkennisklæðum mínum,“ sagði
Gosling sem dvelst á Hótel Loft-
leiðum fram á föstudag.
Vinningstöiui laugardaginr (T)ö
' 24. okt. 1992
; VINNINGAR fjOldi VINNJNGSHAFA UPPHÆÐÁHVERN VINNWGSHAFA
1. 5a(5 L 0 6.450.614
2.4SM B? 7 100.027
i 3. 4aJ5 147 8.216
í 4. 3af5 5.412 52ð
11.172.795 kr.
Á 2 » . wm 1
1 UPPLÝSJNGAR:SIMSVAR|91'68151 1lukkulIna991002
BRÆOURNIR
lORMSSCNHF
BOSCH
VERKSTÆÐI
Lágmúla 9 sími 3 88 20
• Vélastillingar
• Smurþjónusta
• Rafviðgerðir
• Ljósastillingar
• Díselverkstæði
Nafn féll niður
Vegna mistaka féll niður nafn
höfundar greinarinnar „Ég heyrði
litinn bláa“, sem birtist í Menning-
arblaði Morgunblaðsins s.l. laugar-
dag. Höfundur greinarinnar er
Franz Gíslason sagnfræðingur og
kennari. Blaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum.
Ekki tekin af-
staða til tann-
læknalaga
í frétt í Morgunblaðinu á laugar-
dag var sagt að úrskurðurinn í
máli tannsmiðs, sem mátaði gervi-
góma upp í sjúkling, hafi verið
kveðinn upp í ljósi þess að hluti af
starfsemi tannsmiðsins bryti gegn
lögvemduðum hagsmunum tann-
lækna.
Nú hefur lögmaður tannsmiðsins
komið að máli við blaðið og sagt
að hér væri ekki rétt með farið.
Ekki var tekin afstaða til þess,
hvort framferði tannsmiðsins bryti
gegn rétti tannlækna, heldur var
lögbannið sett á vinnu hennar til
bráðabirgða, ef svo kynni að fara,
að þetta bryti gegn tannlælmalög-
um. Því var lögbannsbeiðanda,
Tannlæknafélaginu gert að setja
10 milljón króna tryggingu. Fram-
haldið er svo, að tannlæknar verða
að höfða mál til þess að fá það stað-
fest, að vinna tannsmiðsins bijóti
gegn lögvemduðum rétti þeirra.
Fitubrennsla
Sídasta 8 vikna námskeið
ársins hefst 28. okt.
í boði eru fitubrennslutímar I og II
i fyrir byrjendur.
II fyrir þá, sem eru í einhverri þjálfun og vilja taka
vel á (pallar notaðir).
• Fitumæling og vigtun
• Matarlistar og ráðleggingar
• Fyrirlestrar um megrun og mataræði
Sá sem missir 8 kíló eða fleiri fær fritt
mánaðarkort hjá Ræktinni.
Látið skrá ykkur strax.
Takmarkaður fjöldi kemst að.
Upplýsingar í síma 12815 og 12355.
ræhtin
FROSTASKJÓL 6 • SÍMAR 12355 & 12815
SOLBAÐSTOFA • AEROBIK • LIKAMSRÆKT
Lærum skyndihjálp
- þaó getur bjargaó líffi
Um þessar mundir stendur RKÍ fyrir sérstöku átaki
í skyndihjálparfræðslu.
Reykjavíkurdeild RKÍ gefur almenningi kost á eftirtöld-
um námskeiðum, sem eru aðeins eitt skipti, dagana:
28., 29. okt. og 3. nóv. kl. 20-23.
29., 30. okt. og 5. nóv. kl. 17-20.
31. okt. og 7. nóv. (laugard.) kl. 14-17.
Hægt verður að lengja þessi námskeið í tveggja eða
fjögurra kvölda námskeið eftir óskum þátttakenda.
Þessi námskeið eru opin öllum 15 ára og eldri.
Námskeiðin eru haldin í Fákafeni 11,2. hæð.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 688 188 frá
kl. 8-16.
Athygli skal vakin á því, að Reykjavíkurdeild RKÍ útveg-
ar leiðbeinendur til að halda námskeið í skyndihjálp
fyrir skóla, fyrirtæki og aðra, sem þess óska, í Reykjavík.
Skráið ykkur strax. Geymið auglýsinguna.
Reykjavíkurdeild RKÍ +