Morgunblaðið - 27.10.1992, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1992
Tveir meistarar féllu út
Skák_______________
Margeir Pétursson
ÚRSLIT urðu afar óvænt í
undankeppni atskákmóts
Reykjavíkur um helgina. Tóm-
as Björnsson sigraði á mótinu
með sjö vinninga af níu mögu-
legum og komst í úrslitakeppn-
ina ásamt níu öðrum skák-
mönnum, þeim Róberti Harðar-
syni, Hauki Angantýssyni, Jóni
Garðari Viðarssyni, Þresti
Arnasyrii, Agústi S. Karlssyni,
Ingvari Asmundssyni, Sigurði
Daða Sigfússyni, Sveini Krist-
inssyni og Áskeli Erni Kára-
syni. Alþjóðlegu meistaramir
Þröstur Þórhallsson og Sævar
Bjarnason urðu hins vegar úr
leik.
Það kom sérlega mikið á óvart
að Þröstur Þórhallsson skyldi ekki
komast í úrslitin því hann varð
íslandsmeistari í atskák í fyrra,
sigraði þá Jóhann Hjartarson í
sjónvarpseinvígi. Umhugsunar-
tíminn í atskákum er aðeins hálf
klukkustund og úrslit verða oft
miklu sveiflukenndari en í kapp-
skákum.
Það er nú ljóst hverjir mætast
innbyrðis í fyrstu umferð úrslita-
keppninnar á fimmtudaginn:
Jóhann Hjartarson 2.595—Hauk-
ur Angantýsson 2.285
Margeir Pétursson 2.565—Jón
Garðar Viðarsson 2.300
Helgi Ólafsson 2.495—Þröstur
Árnason 2.295
Friðrik Ólafsson 2.530—Ágúst
S. Karlsson 2.265
Karl Þorsteins 2.480—Ingvar
Ásmundsson 2.330
Helgi Áss Grétarsson 2.370—Sig-
urður D. Sigfússon 2.295
Tómas Björnsson 2.285—Sveinn
Kristinsson 2.045
Róbert Harðarson 2.345—Áskell
Örn Kárason 2.255
Tilgreind eru alþjóðleg stig
keppenda, nema hjá þeim Frið-
riki, Ingvari og Sveini. Þar sem
þeir eru ekki á alþjóðlega stiga-
listanum eru íslensk skákstig
þeirra tilgreind í staðinn.
Sigurvegarinn í einvígi Jóhanns
og Hauks mun tefla við þann sem
sigrar í viðureign. Karls og Ing-
vars. Fjórðungsúrslitin fara einnig
fram á fimmtudagskvöldið, en
undanúrslitin kvöldið eftir. Úrslit-
in eru svo í beinni sjónvarpsút-
sendingu á laugardaginn og sigur-
vegarinn teflir við Jan Timman á
sunnudag. ,
Úrslit í undankeppninni:
1. Tómas Bjömsson 7 v.
2. Róbert Harðason 6'A v.
3. Haukur Angantýsson 6V2 v.
4. Jón Garðar Viðarsson 6V2 v.
5. Þröstur Árnason 6‘/2 v.
6. Ágúst S. Karlsson 6'/2 v.
7. Ingvar Ásmundsson 6V2 v.
8. Sigurður Daði Sigfússon 6V2 v.
9. Sveinn Kristinsson 6‘/2 v.
10. Áskell Öm Kárason 6 v.
11. Daði Öm Jónsson 6 v.
12. -19. Þröstur Þórhallsson, Sæv-
ar Bjamason, Ásgeir Þór Ámason,
Friðrik Egilsson, Gunnar Gunnars-
son, Haraldur Baldursson, Arin-
bjöm Gunnarsson og Magnús Örn
Ulfarsson 5*/2V.
20.-29. Ólafur B. Þórsson, Halldór
G. Einarsson, Þorvaldur Logason,
Guðmundur Gíslason, Sölvi Jóns-
son, Kristján Eðvarðsson, Jón Vikt-
or Gunnarsson, Jóhann Þórir Jóns-
son, Sólmundur Kristjánsson og
Magnús Sólmundarson 5 v.
Þátttakendur voru alls 62 tals-
ins.
Tómas Bjömsson tapaði engri
skák á mótinu 0g gerði tvö jafn-
teflí í lokin til að tryggja sig.
Eftir fyrri daginn virtist sem
Þröstur Þórhallsson myndi kom-
ast auðveldlega áfram en þá tap-
aði hann fyrir Hauki Angantýs-
syni í sjöttu umferð. Hann vann
síðan kollega sinn Sævar Bjama-
son og gerði út um möguleika
hans. En það sem gerði útslagið
fyrir Þröst var óvænt tap fyrir
Gunnari Gunnarssyni í næsts-
íðustu umferð. Sveinn Kristins-
son, 67 ára, var langstigalægsti
keppandinn sem komst áfram.
Hann byrjaði illa en vann fimm
síðustu skákimar. í síðustu um-
ferð vann hann Gunnar Gunnars-
son eftir æsispennandi tímahrak.
Adams og Gelfand í úrslitin
Undanúrslit á Interpolis
útsláttarmótinu í Tilburg í
Hollandi fóru fram um helgina.
Michael Adams, 21 árs
Englendingur, sigraði Ilya Smirin
frá ísrael IV2—V2, en í viðureign
hinna stigaháu Boris Gelfands,
Hvíta Rússlandi og Gata
Kamskys, Bandaríkjunum,
fengust ekki úrslit. Báðum
kappskákum þeirra lauk með
jafntefli. Á sunnudaginn þurftu
þeir því að tefla áfram og lauk
fyrst báðum atskákunum með
jafntefli. Tíminn var þá styttur í
15 mínútur. Lauk fyrri’skákinni
með jafntefli en Gelfand vann þá
seinni með svörtu í 53 leikjum.
Verðlaunasjóðurinn í úrslitun-
um samsvarar 5 milljónum ísl.
króna og fær sigurvegarinn þar
af 3,4 millj. Adams hefur verið
geysilega sterkur í útsláttar-
keppnum, hefur góðar taugar og
kann það að vega upp á móti því
að Gelfand er mun stigahærri og
lærðari skákmaður. Einnig kann
það að hafa áhrif að Adams fékk
frí á sunnudaginn á meðan Gelf-
and var í barningnum við Kam-
sky. Þegar þetta er allt vegið virð-
ist Gelfand síst sigurstranglegri.
Spasskí lagstur í flensu
Boris Spasskí hefur á undanfar-
inni viku frestað tveimur skákum
í einvíginu við Bobby Fischer í
Belgrad vegna inflúensuveikinda.
24. skákin var samt tefld á
laugardaginn og lauk henni með
jafntefli í 39. leikjum eftir nokkuð
athyglisverða viðureign. Sam-
kvæmt einvígissamningnum á
Spasskí ekki rétt á að fresta fleiri
skákum, en Fischer hefur ekki
fresta einni einustu. Batni Spasskí
ekki verður fróðlegt að sjá hvort
Fischer beiti sama drengskapar-
bragði og Vlastimil Hort hér í
Reykjavík 1977 þegar hann tefldi
áskorendaeinvígi við Spasskí.
Þá fékk Spasskí botnlangakast
en þegar frestanir hans runnu út
þá frestaði Hort skákum fyrir
hann svo veikindin hefðu ekki
áhrif á úrslitin.
Spasskí virtist sáttur við jafn-
tefli í 24. skákinni. Fischer fann
í byrjuninni veilu í leikjaröð hans
og náði strax hagstæðum biskup-
auppskiptum í 11. leik. í miðtafl-
inu tefldi Spasskí hins vegar af
nákvæmni og með 20. leik sínum
tryggði hann jafnvægið í stöð-
unni. í 24. leik tók Fischer síðan
athyglisverða ákvörðun er hann
kaus fremur að veikja stöðu sína
en bíða átekta. Afar dæmigert
fyrir Bandaríkjamanninn sem er
mjög illa við að þæfa skákir held-
ur kýs ávallt að tefla virkt ef
hann getur. Staða hans virtist þá
nokkuð losaraleg, en hann hafði
reiknað dæmið rétt.
1. e4 - c5 2. Re2 - Rf6 3. Rbc3
- d6 4. g3 - g6 5. Bg2 - Rc6
6. 0-0 - Bg7 7. d4 - cxd4 8.
Rxd4 - Bg4 9. Rde2 - Dc8! 10.
f3 - Bh3 11. Bxh3 - Dxh3 12.
Bg5 - 0-0 13. Dd2 - h6 14. Be3
- Kh7 15. Hacl - Dd7 16. Rd5
- Rxd5 17. exd5 - Re5 18. b3
- b5 19. Bd4 - Hac8 20. f4! -
Rg4 21. Bxg7 - Kxg7 22. Rd4 -
Rf6 23. c4 — bxc4 24. bxc4
24. - e6!? 25. dxe6 - fxe6 26.
Hfel - Hfe8 27. Rb3 - a6 28.
Dd4 - Hc6 29. Hedl - e5 30.
fxe5 — Hxe5 31. Dxe5 — dxe5
32. Hxd7+ - Rxd7 33. Hdl -
Rf6 34. c5 - Kf7 35. Hcl - Rd7
36. Kf2 - Ke6 37. Ke3 - Kd5
38. Hdl+ - Ke6 39. Hcl Jafntefli.
Þriðja deild, C riðill
Staðan í þessum riðli deilda-
keppninnar var ekki rétt hér í
Morgunblaðinu sl. þriðjudag. Hún
er þannig:
1. Taflfélag Kópavogs, B sveit 12ÍA
v.
2. Taflfélag Reykjavíkur, G sv. 11
v.
3. Taflfélag Seltjamamess 10 v.
4. Taflfélagið Hellir, B sv. 9V2 v.
5. -6. Taflfélag Kópavogs, C sv.
5 '/1 v.
5.-6. Taflfélag Reykjavíkur, E sv.
4 '/1 v.
Keppni í riðlinum lýkur í vor.
Sigursveitin mun tefla um sæti í
2. deild við Taflfélag Vestmanna-
eyja sem sigraði í A riðli og F-
sveit Taflfélags Reykjavíkur sem
sigraði ÍB.
Rúmlega
200 tilboð á
3 dögum
VERSLANIR Í Kringlunni munu
á næstu þremur dögum, þ.e. dag-
ana 27. til 29. október verða með {
rúmlega 200 tilboð á nýjum vör-
um í tilefni svokallaðs Kringlu-
kasts. (
Lögð er áhersla á að vera einung-
is með nýjar vörur á tilboðsverði
og er ekki um útsölu eða rýmingar-
sölu að ræða. Þessir sérstöku mark-
aðsdagar hafa hlotið nafnið
Kringlukast. Þetta er annað
Kringlukastið, sem verslanirnar
efna til en hið fyrra var í júní. Til-
boðin ná frá vítamínum og allt til
bfla.
--------------
Námstefna
fyrir aldraða
HALDIN verður námstefna á
Hótel Holiday Inn miðvikudag-
inn 28. október nk. á vegum í
Öldrunarfræðafélags íslands.
Efni námsstefnunnar er um slys (
sem aldraðir hljóta við að detta.
Framsögumenn verða Pálmi V.
Jónsson, læknir, Matthildur Val-
fells, hjúkrunarfræðingur, og
Unnur Jóhannesdóttir, iðjuþjálfí.
Námstefnan hefst kl. 13.15.
Skráning er frá kl. 12.50. Nám-
stefnan er öllum opin.
-----♦--»-♦---
Elli- og hjúkr-
unarheimilið
Grund 70 ára
Sjálfseignarstofnunin, Elli-
og hjúkrunarheimilið Grund,
verður 70 ára fimmtudaginn 29. t:
október nk.
í tilefni afmælisins verður tekið (
á móti gestum í hátíðasal Grundar
þann sama dag kl. 16.30 til kl.
18.30. Gengið verður inn að
norðanverðu um eystridyr, Brával-
lagötumegin.
Nýtt tilbob í ríkisbréf
mibvikudaginn 28. október
Um er að ræða 6. fl. 1992 í eftirfarandi verðgildum:
Kr. 2.000.000
Kr. 10.000.000
Kr. 50.000.000
Ríkisbréfin eru til 6 mánaða, með gjalddaga
30. apríl 1993. Þessi flokkur verður skráður á
Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands
viðskiptavaki ríkisbréfanna.
Sala nýrra ríkisbréfa fer fram með þeim hætti
að löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
miðluruni, bönkum og sparisjóðum gefst
kostur á að gera tilboð í bréfin samkvæmt
tilteknu tilboðsverði. Lágmarkstilboð er
kr. 2.000.000 að nafnvirði.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisbréf eru
hvattir til að hafa samband við framangreinda
aðila sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og
veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim
heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra
tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisbréfin þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins miðvikudaginn 28. október fyrir
kl. 14. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar
eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins / Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40,
<
(
(