Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 8
WteöÖSfóííMb yÍjttíTtíDÁÖÍÖW 3Í.' ÖftáÉMÉk' Íé92 8 1 Svarið hverri spurningu með því að merkja við einn möguleika af fjórum. Skrifið nafn og aðrar upplýsingar í þar til gerðan reit, klippið síðurnar út, setjið í umslag og skrifið utan á: Morgunblaðið „Áramótagetraun", Aðalstræti 6, Pósthólf 1555, 121 Reykjavík Úrlausnir þurfa að berast Morgunblaðinu fyrir 10. janúar. Dregið verður úr réttum lausnum 16. janúar. Nöfn yinningshafa verða birt í Morgunblaðinu sunnudaginn 17. janúar. Stytta Nínu Sæmundsdóttur af þekktum Islendingi fannst eftir mikla leit á haustdögum. Hver var fyrirsætan? □ a. Hannes Hafstein. □ b. Jón Þorláksson. □ e. Séra Jón Sveinsson. □ d. Séra Friðrik Friðriksson. Ráðning í stöðu þjóðminjavarð- ar vakti miklar deilur. Hver var settur tímabundið í embættið? □ a. Guðmundur Magnússon. □ b. Margrét Hailgrímsdóttir. □ c. Hannes Hólmsteinn Gissur- arson. □ d. Þór Magnússon. Tilraun til „Tyrkjaráns“ var gerð fyrr á árinu. Hvað ásæld- ust Tyrkir? □ a. Sæti fyrir bókstafi sína í stafatöflum í tölvur. □ b. íslenska loðnukvóta. □ c. Ungmeyjar frá Vestmanna- eyjum. □ d. íslenskt tölvuforrit. Fischer kom fram í dagsljósið á ný -og tefldi einvígi við Spasskí. Hvar fór það fram? □ a. Belgrad og Dubrovnik. □ b. Belgrad og Vukovar. □ c. Belgrad og Sveti Stefan. □ d. Belgrad og Zagreb. Skömmu fyrir opnun Ráðhúss Reykvíkinga kom í ljós galli á húsinu, sem lagaður var snar- lega. Hvað var að? □ a. Gleymst hafði að gera ráð fyrir dyrum að skrifstofu borgarstjóra. □ b. Vegna hönnunargalla gætti áhrifa sjávarfalla í kaffistof- unni og Tjarnarsalnum, sem bar þar með nafn með rentu. □ c. Stafsetningarvilla var í ljóði, sem sandblásið var í eina rúðu ráðhússins. □ d. Gleymst hafði að gylla klósett- setur borgarstarfsmanna. Danir ollu uppnámi í Evrópu- bandalaginu er þeir feildu frægt samkomulag í þjóðaratkvæða- greiðslu. Við hvaða þéttbýlisstað er samkomulagið kennt? □ a. Madrid. □ b. Munchen. □ c. Maastricht. □ d. Mílanó. Samband íslenskra samvinnufé- laga átti í miklum rekstrarerfið- leikum á árinu og eignir félags- ins skiptu um eigendur. Hver er nú stærsti eignaraðili Samskipa hf.? a. Sambandið. □ b.- Eignarhaldsfélagið Hömlur hf. □ c. Búnaðarbankinn. □ d. Burðarás hf. Heimsþekktur hnefaleikakappi var dæmdur í sex ára fangelsi fyrir nauðgun á árinu. Hvað heitir hann? □ a. Mohammed Ali. □ b. Spike Johnson. □ c. Mike Tyson. □ d. Rudi Völler. Hart hefur verið barist á land- svæði því sem áður hét Júgóslav- ía. Hvað heitir höfuðborg Bosníu- Herzegóvínu, sem hefur verið umsetin mánuðum saman? □ a. Zagreb. □ b. Belgrad. □ c. Sarajevo. □ d. Búdapest. Tvær ferðaskrifstofur urðu gjaldþrota á árinu. Hverjar voru þær? □ a. Úrval-Útsýn og Veröld. □ b. Veröld og Samvinnuferðir- Landsýn. □ c. Samvinnuferðir-Landsýn og Sólarflug. □ d. Sólarflug og Veröld. Halldór Laxriess hélt upp á stór- afmæli sitt á árinu. Hvað varð hann gamall? □ a. 75 ára. □ b. 80 ára. □ c. 85 ára. □ d. 90 ára. Talsmaður Wiesenthal-stofnun- arinnar hefur oft komið fram í íslenskum fjölmiðlum á árinu. Hvað heitir hann? □ a. Efraim Zuroff. □ b. Yitzhak Rabin. □ c. Jón Pétursson. □ d. Ignatz Beroff. Hagkaup keypti helmingshlut í stórmarkaði og samkeppnisaðila á árinu. Hver er stórmarkaður- inn? □ a. Mikligarður. □ b. Kaupstaður. □ c. Fjarðarkaup. □ d. Bónus. Hvaða íþróttamaður fékk níu gullverðlaun og tvenn silfurverð- laun á Ólympíumóti þroska- heftra í Madríd í sumar? □ a. Guðrún Ólafsdóttir. □ b. Ólafur Eiriksson. □ c. Sigrún Huld Hrafnsdóttir. □ d. Geir Sverrisson. Hvaða myndbönd fyrir börn vöktu mesta athygli á árinu og fyrir hvað? □ a. Rauðhetta, vegna þess að úlf- urinn var góður. □ b. Strumparnir, vegna brota úr klámmyndum á spólunni. □ c. Andrés önd, vegna mótmæla sænskra yfírvalda. □ d. Stjáni blái, vegna mikilla tæknibrellna. NAFN....... HEIMILI.... ALDUR.........SÍMI. STAÐUR. FULLORPINS CETRAUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.