Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1992 B 19 Helgfi Kristjánsson Arnór Ragnarsson Róbert Schmidt störf þó atvinnuleysi sé víða um land. Til stendur að reyna að fá fleira fólk til starfa hjá Fiskvinnslustöð KEA, til dæmis frá Akureyri, til að færa vinnsluna meira yfir á dag- vinnutímann og draga úr yfirvinnu. Jákvæðar fréttir af atvinnu- ástandi í Hrísey draga þó ekki úr óhugnaði manns vegna atvinnuleys- isins sem sífellt eykst á landinu og virðist geta orðið landlægt ef ekki verður spyrnt fast við fótum. Af einstökum atburðum í Hrísey má geta þess að settur hefur verið upp heitur pottur við sundlaugina og verður hann tekinn í notkun á nýja árinu. Þá hefur verið unnið af fullum krafti við íbúðir fyrir aldr- aða sem eru að verða fullbúnar. Þá er nokkur óvissa í samgöngu- málum vegna hugsanlegra breyt- inga á feijurekstri í kjölfar yfirtöku Vegagerðarinnar á rekstrinum um áramót. Forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum og hörmungarástandið í Sómalíu og Júgóslavíu eru minnis- stæðustu atburðir erlendis á þessu ári. Að lokum má minnast á tíðarfar- ið nú í desember. Eftir norðanstór- hríð var hér kominn meiri snjór en venjulega á þessum árstíma. Sam- göngur tepptust með tilheyrandi erfiðleikum. Síðan sneri hann sér í sunnanrok og hláku en lítið sást þó á þriggja metra skaflinum hér sunnan við hús. Benedikt Jóhannsson Magnús Jóhann Mikaelsson RÓBERT SCHMIDT, BÍLDUDAL Frábær árangur fatl- aða íþrótta- fólksins Af innlendum vettvangi eru það atvinnumálin sem hæst ber, svo og skerðing kaupmáttar láglaunafólks. Það er að mínu mati hneyksli að efnahagur þjóðarinnar skuli vera kominn í rúst. Sífellt er verið að skattleggja þá sem lægstu launin hafa en þeir efnuðu sleppa vel frá aðgerðunum. Ég get ekki litið fram hjá þessari staðreynd þegar ég rifja upp atburði ársins. Af öðrum innlendum atburðum mætti nefna stór fíkniefnamál og aðra alvarlega glæpi í þjóðfélaginu, þrasið um Evrópska efnahagssvæð- ið á Alþingi, tíð óhöpp smábáta, vegalaus börn og heiftarlegan sparnað í heilbrigðisgeiranum. Svo má líka nefna kaupæði íslendinga *{ útlöndum og nýtt frumvarp til laga um veiðar og skotvopn. Það er fátt jákvætt í þessari upp- talningu. Það sem mér fínnst standa upp úr af hinu góða og gleðilega er frábær árangur íslendinga á heimsleikum fatlaðra íþróttamanna í sumar. Þá er komið að heimabyggð minni. Þar er skemmst að minnast gjaldþrots Fiskvinnslunnar á Bíldu- dal hf. Það hefur haft slæmar af- leiðingar fyrir það fólk sem enga aðra vinnu hafði. Samdráttur er á öllum sviðum og hann bitnar auðvit- að mest á því fólki sem verst er sett. í sumar var lagður ljósleiðari um Vestfirðina og er það bylting í ljarskiptamálum. Síðan má nefna vegaframkvæmdir yfir Hálfdán, mikla smábátaútgerð á Tálknafirði og stækkun íþróttahússins þar. Margt fleira mætti nefna en þetta læt ég duga. Af erlendum vettvangi minnist ég helst breytinganna í Sovétríkjun- um og hörmunarástandsins í Só- malíu og nærliggjandi svæðum, stríðsins í Króatíu, skákeinvígis Fischers og Spasskís í Júgóslavíu og hrun efnahagsins í Færeyjum. Ekki má gleyma forsetakosningun- um í Bandaríkjunum og skilnaði Karls Bretaprins og Díönu. BÍLALEIGA Úrval 4x4 fólksbíla og station bfla. Pajero jeppar o.fl. teg. Pickup-bílar með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og 12 sæta Van bílar. Farslmar, kerrur f. búslóðir og farangur og hestakerrur. Reykjavík 686915 interRent Europcar BÍLALEIGA AKUREYRAR Fáðu gott tilboð! Wterkurog kj hagkvæmur auglýsingamióill! STEINAR WAAGE SKÓVERSLUN Kœru viðskiptavinir! Guð gefi ykkur blessunarríkt dr, Þökkum viðskiptin d liðnu dri. VIKATIL AÐ VELJA RETT! Pallapuö«Teygjur og þrek ♦ Magi, rass og læri ♦ Þrekhringur ♦ Aerobic ‘Teygjuleikfi mi Dansstúdíó Sóleyjar er með þjónustuna í lagi. Vikuna ll.-18.jan. getur þú komið og valið þér tíma og kennara sem þér hentar. Við bjóðum upp á hressa morguntíma frá kl.07, hádegistíma, eftirmiðdagstímá og kvöldtíma. Allt þetta er þér að kostnaðarlausu vikuna 11.-18. jan. Notaðu tækifærið og komdu þér í form, eins og þér hentar! Hringið og fáið senda stundaskrá. Innritun hefst 4. janúar. Upplýsingar og innritun í símum 687701 og 687801. DANSS TÚDÍÓ SÓLEYJABÍ^_ *ATH. Byrjum ll.jatt. Starfsfólkið óskar ykkur alls hins besta á nýju ári með þökk fyrir ánægjuleg samskipti á því gamla, sjáumst hress! - ttáíu fr-amfm éwCa/ Kennarar: Jón Egill Bragason, Bryndís Einarsdóttir, Ásta Sigurðardóttir, Ásta Ólafsdóttir, Ásdís Sigurðardóttir, Sóley Jóhannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.