Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 10
' Í0a B MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESÉMBER 1992 Vaxandi skilning- ur á gildi verslunar eftir Birgi Rafn Jónsson Yfírstandandi ár hefur að mörgu leyti verið óvenju viðburðaríkt í verslun. Ný viðhorf hafa rutt sér til rúms í kjölfar aðlögunar að stærra viðskiptaumhverfi og sjón- deildarhringurinn víkkað. Hvort tveggja hefur hleypt krafti í um- ræðu um hlutverk og möguleika verslunar og hvað hún geti lagt af mörkum til aukinnar hagsældar íslendinga. Nýir straumar í félagsuppbyggingu Stofnun samtakanna íslenskrar verslunar 23. janúar 1992 var merkur áfangi í sögu verslunar hér á landi. Þar hófu samstarf Bfl- greinasamband íslands, Félag ís- lenskra stórkaupmanna og Kaup- mannasamtök Islands og lofar árangur af fyrsta starfsári góðu um framhaldið. Stofnun samtakanna er í fullu samræmi við þá þróun er verið hefur í nágrannalöndum okk- ar þar sem sífellt eru dregnar skýr- ari línur um hreina hagsmuni at- vinnugreina. Er ánægjulegt að sjá að svipaðar hugmyndir eru að koma upp á yfirborðið meðal fleiri at- vinnugreina hér á landi. Má vænta frekari þróunar á þessum nótum á næstu árum. Úr fjötrum í frelsi Aðild íslands að GATT-viðræð- unum og umræður um hið Evrópska efnahagssvæði hafa opnað augu okkar fyrir stöðu atvinnulífsins hér á landi, ekki hvað síst verslunar. Allir þeir viðskiptasamningar sem gerðir eru milli þjóða heims í dag miða að því að auka frelsi í viðskipt- um og þá einkum verslun og vöru- dreifingu. Hér á landi héldu margir að verslun væri frjáls. Hið gagn- stæða hefur hins vegar verið að koma æ betur fram í dagsljósið. Stór hluti útflutningsverslunar hef- ur verið hnepptur í fjötra leyfisveit- inga, innflutningur landbúnaðar- afurða hefur að mestu verið bann- aður og innanlandsverslun með t.d. áfengi og tóbak hefur verið bundin við einkasölu. Hér má vænta mik- illa breytinga á næstunni. Breytingar til bóta Á árinu 1992 hefur samkeppnis- staða og starfsaðstaða íslenskrar verslunar verið mjög til umræðu, bæði samanburður við hliðstæð fyr- irtæki í nágrannalöndum, svo og aðrar atvinnugreinar hér á landi. Við slíkan samanburð kemur í ljós að verslunin innheimtir ekki aðeins bróðurpartinn af öllum veltuskött- um landsins, heldur greiðir hún einnig með beinum sköttum hærra framlag til samneyslu þjóðarinnar en nokkur önnur atvinnugrein. Af þessum sökum hlýtur verslunin að fagna ýmsum hugmyndum um skattabreytingar sem fram hafa komið á árinu. Afnám aðstöðugjalds er stórt skref í þá átt að jafna samkeppnis- stöðu okkar gagnvart erlendri versl- un og einnig öðrum atvinnugreinum hér á landi. Tveggja þrepa virðis- Viltu auka þekkingu þína? Öldungadeild Verzlunarskóla íslands býður hagnýtt nám í fjölmörgum greinum, íýrir alla þá sem náð hafa 20 ára aldri. Innritun á vorönn fer fram dagana 4.-7. jan. kl. 8.30-18.00. í boði verða eftirfarandi áfangar: Bókfærsla Saga Danska Skattabókhald Enska Stærðfræði Franska Tollskjöl Fyrirtækið, stofhun og rekstur Tölvubókhald íslenska Tölvufræði Landafræði og saga íslands Tölvunotkun Lífíræði Vélritun Markaðsfræði Þjóðhagfræði Ritun Þýðingar Ritvinnsla Þýska Áföngum ofangreindra námsgreina er hægt að safha saman og láta mynda eftirtalin prófstig: • Próf af bókhaldsbraut • Próf af ferðamálabraut • Próf af skrifstofubraut v • Verslunarpróf • Stúdentspróf Umsóknareyðublöð, námslýsingar og allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans, Ofanleiti 1. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS Birgir Rafn Jónsson „Verslun er í mörgu til- liti stærsta atvinnu- grein landsins. Hún greiðir hæstu skattana, hefur mesta veltu og veitir flestum atvinnu, ef frá er talið hið opin- bera.“ aukaskattur og fækkun undan- þágna mun í framtíðinni gefa svig- rúm til lækkunar skatthlutfallsins til jafns við erlenda samkeppnisað- ila. Síðast en ekki síst er lækkun tekjuskatts á félög skref í rétta átt. Enn er þó of margt sem hallar á og nægir þar að nefna skatt á verslunar- og skrifstofuhúsnæði og álagningu vörugjalda í stað tolla, sem hvorugt getur samræmst við- teknum tekjuöflunarleiðum hins Evrópska efnahagssvæðis. Ein stærsta atvinnugreinin Verslunin hefur ekki farið var- hluta af þeim samdrætti sem nú stendur yfir. Vöruinnflutningur hef- A Aramóta- fagnaður í Kópavogi KNATTSPYRNUDEILD Breiða- bliks stendur fyrir áramótafagnaði á gamárskvöld í félagsheimili Kópa- vogs, 2. hæð. Húsið opnar klukkan 00,30. Diskótekið Dollý leikur fyrir dansi. ur dregist saman um leið og fram- kvæmdir hafa minnkað og of stór hluti smásöluverslunar ýefur færst til nágrannalandanna. í svo mann- margri starfsgrein hefur þetta ástand óhjákvæmilega komið fram í fækkun starfsmanna og auknu atvinnuleysi. Verslun er í mörgu tilliti stærsta atvinnugrein landsins. Hún greiðir hæstu skattana, hefur mesta veltu og veitir flestum atvinnu, ef frá er talið hið opinbera. Verslun er sam- keppnisgrein sem hvergi nýtur vild- arkjara eða opinberra styrkja. Þeir sem starfa við verslun hafa víðtæka reynslu sem tengiliður margra ólíkra framleiðslu- og þjónustu- greina við markaðinn. Reynslan úr hörðum skóla frjálsrar samkeppni er ómetanlegt framlag til frekari uppbyggingar atvinnulífsins. Uppspretta nýsköpunar Víða erlendis hafa menn veitt athygli þeirri sérstöðu verslunar að innan hennar er mikill fjöldi smáfyr- irtækja, þ.e. með 100 .starfsmenn eða færri. í Bandaríkjunum tilheyra þrjú af hveijum fímm fyrirtækjum þessum hópi. Þar er jafnframt talið að í smáu einingunum, með 5 starfsmenn eða færri, verði mest fjölgun á komandi árum og tölur staðfesta að fyrirtæki með 5-9 starfsmenn eru mörg meðal langlíf- ustu fyrirtækja þar í landi. Bæði austan hafs og vestan beinist vax- andi athygli að þessum smærri ein- ingum því þar er talin ein helsta uppspretta framfara og nýsköpun- ar. Þess vegna njóta slík fyrirtæki víða lægri skatta og skattaafsláttur vegna hlutaíjárkauþa í fyrirtækjum er oft bundinn við smáfyrirtæki, öfugt við það sem þekkist hér. Þannig felst í skattkerfinu hvati til að efla þessa starfsemi. íslendingar eiga af skiljanlegum ástæðum mörg smáfyrirtæki. Þar er víða samankomin mikil reynsla og þekking. Hér á landi hafa augu manna hins vegar um of beinst að stórum einingum. Of miklir fjár- munir og of mikill tími hefur farið í úrvinnslu hugmynda um mögu- leika stórfyrirtækja. Við uppbygg- ingu atvinnulífs á næstu árum þurf- um við að taka aukið mið af mögu- leikum smáfyrirtækjanna, rétt eins og aðrar þjóðir. Við þurfum að byggja inn í efnahagskerfi okkar hvata sem örva til dáða. Þannig mun okkur takast að snúa frá því óheillafari sem við nú sitjum í, efla fyrirtækin okkar, íjölga atvinnu- tækifærum og auka farsæld þjóðar- innar. Þar mun verslunin eiga mikil- vægu hlutverki að gegna. Islensk verslun sendir lands- mönnum öllum óskir um gleðilegt ár. Höfundur erformaður Íslcnskrar verslunar. Spariball á nýárs- kvöld í Tunglinu HIÐ árlega „Spariball“, sem undanfarin tvö ár hefur verið haldið á Borginni á milli jóla og nýárs, verður haldið í veit- inguhúsinu Tunglinu á nýárs- kvöld. Fjölbreytt dagskrá verð- ur á boðstólum og ber þar hæst söngdúett Bogomil Font og Bjarkar Guðmundsdóttur. ♦ Á Spariballinu munu Bogomil Fo’nt og hljómsveitin „Millarnir“ leika fyrir dansi auk þess sem Björk Guðmundsdóttir mun koma fram sem sérstakur gestur. Siða- meistari og siðgæðisvörður kvölds- ins verður Jakob Frímann Magn- ússon, menningarfulltrúi í Lund- únum. Boðið verður upp á sjávar- réttahlaðborð að hætti Úlfars á Þrem Frökkum. Hláturfélag Suð- urlands flytur gamanþátt og margt fleira verður á boðstólum fyrir gesti þetta kvöld. Forsvars- menn Sparikvöldsins vænta þess að gestir muni skarta sínum feg- Björk Guðmundsdóttir verður sérstakur gestur á Sparikvöldinu í Tunglinu á nýárskvöld. urstu flíkum nú sem endranær svo að ballið standi undir nafni. (Úr fréttatilkynning-u.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.