Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1993
-H—I—: 1 •, ] '• ] I j f ■; ■ ; {•.) i!) M^r-b
[Bo3
skólamir erlendis eru alltaf þeir sem
standa framarlega í vísindum. Er-
lendis er yfirleitt gerður greinarmun-
ur á „Undergraduate College“ og
„University", þar sem í þeim fyrr-
nefnu er boðið upp á fyrrihlutanám,
eða þriggja ára nám. Ef við erum
raunsæ, er Háskóli íslands að mörgu
leyti ekkert annað en slíkur skóli.
Það sem háskólinn vill verða og er
á leiðinni að verða er vísindastofnun,
með rannsóknatengt framhaldsnám.
Flestir munu áfram halda til útlanda
í framhaldsnám, en þeir sem af ýms-
um ástæðum vilja vera hér eiga hik-
laust að nýta sér þessa nýju val-
kosti.“
Andstaða gegn
menntamönnum?
Einhver lét þau orð falla að það
væri ríkjandi andstaða gegn mennta-
mönnum á íslandi. Að ástandið væri
svipað og var í Kína hjá kommunum
sem borguðu hálærðum vísinda-
mönnum sömu laun og ólærðum
verkamönnum?
„Sömu laun? segir Hafliði, „miklu
verri!
Ég hef kynnst mörgum kínversk-
um vísindamönnum og þeir hafa sagt
mér að áður en þeir voru sendir út
á akrana, kannski hámenntaðir
kjarneðlisfræðingar og lengi eftir að
þeir voru teknir í sátt, hefði ástandið
verið algjörlega óþolandi. Þeir hefðu
verið háðir starfsliðinu, vinnustaða-
nefndum og verkalýðsforkólfum sem
höfðu ekki hundsvit á rannsóknum
og sögðu þeim meira og minna fyrir
verkum. Þetta var kerfi sem virti
ekki menntamenn og niðurlægði þá.
Þetta hefur nú aldrei verið svona
slæmt á íslandi þótt maður heyri að
vísu ótrúlega hluti og fái kannski
gusur frá Grímsey og Isafirði. En
ég vil ekki gera mikið úr því, þetta
er í versta lagi vanhugsun. Sjómenn
fyrir vestan og annars staðar taka
því fegins hendi þegar landeyðurnar
á Melunum mennta börnin þeirra.
Það er jafn hallærislegt að vera með
menntafyrirlitningu og það er bjána-
legt að vera með menntahroka.
íslenskt þjóðfélag er dálítið skaff-
araþjóðfélag. Menntamenn skaffa
kannski ekki of mikið, eða ekki eins
og braskarinn eða sjómaðurinn sem
þénar miklu meira. Ég held því að
það sé ekki djúp hugsun að baki
svona núnings, en ef svo er, þarf að
uppræta hana.“
„Glaður amatör“
Prófessorinn rannsakar ekki ein-
ungis ljóseiginleika í föstum efnum,
mannslíkaminn fær einnig sinn skerf,
það er að segja útlínur hans og yndis-
þokki, því í mörg ár hefur Hafliði
lært módel- og olíumálun og stundar
nú nám í Myndlistarskóla Reykjavík-
ur í frítíma sínum. Ég spyr hvort það
sé algengt að eðlisfræðingar leggi
stund á listir.
„Ætli það, en ég geri þetta nú
mest að gamni mínu. Ég hef alltaf
haft talsverðan áhuga á teiknun. Á
háskólaárunum snerti ég ekki á
þessu, ekki fyrr en ég hafði lokið
doktorsprófi, en þá gerði ég mér
grein fyrir því að væri vont að van-
rækja hæfíleika eða eitthvað sem
maður hefur gaman af. Ég skráði
mig því í námskeið í módelteiknun
og olíumálun við Háskólann í Lundi
og hef verið á myndlistanámskeiðum
síðan.
Þetta byijaði allt með áhugasöm-
um teiknikennara í Hagaskóla, Guð-
mundi Magnússyni, sem hvatti menn
og stóð fyrir myndlistanámskeiðum
á kvöldin. Það voru nokkrir þama
úr hópnum sem nú eru alvörulista-
menn og trúðu á sjálfa sig í listinni.
Ég trúði aldrei á sjálfan mig í list-
inni og ákvað á fá mér „heiðarlegt"
starf! En auðvitað er það lúxus að
starfa við það sem er skapandi eins
og eðlisfræðin er, og hafa jafnframt
áhugamál sem einnig er skapandi.
Ég tek það skýrt fram að ég er
aðeins „glaður amatör". Ég ver þó
nokkrum tíma í þetta, lunganum úr
frístundum mínum með þeirri full-
vissu að ég er í þessu til að þjálfa
hug og hönd, og ætla mér ekki
lengra. Er glaður ef einhver þiggur
af mér mynd.
Vísindamenn segja að maður
hugsi með mismunandi heilahvelum.
Það kann vel að vera, að maður noti
til dæmis ekki sama heilahvel við
myndsköpun og við eðlisfræði. Ef svo
er hlýt ég að vera að nýta ónotaða
auðlind! Hins vegar eru aðferðimar
svo skemmtilega líkar og ólíkar. Lík-
ar að því leyti að þetta er stöðug
vinna. Það verður enginn góður nema
með endalausri vinnu og þjálfun.
Síðan kemur hitt eins og ijóminn á
tertuna, hvort menn búi yfír ein-
hverri gáfu í eðlisfræði eða eru lista-
menn.
Menn eru að fárast yfír þessum
myndum hérna af módelunum, spyija
hvenær ég ætli að taka þær niður.
Heima hjá mér hangir mynd af einu
besta módeli sem ég hef málað, góð-
kunnum pönkara, og hneykslar alla!“
— Hefurðu ekki líka lagt stund á
tónlist, mér var sagt það?
„Það er misskilningur. Ég hlusta
mikið á tónlist, en ég hætti ungur
að læra á klarinett. Þetta var nú
spurning um að dreifa sér ekki allt
of mikið, nóg er það samt. Ég sótti
mikið tónleika eftir að ég kom heim,
en hætti því þegar ég fór í myndlist-
arnámið aftur.“
— Segðu mér, fara prófessorar á
dansleiki?
„Hefurðu heyrt eitthvað?! Jú mér
finnst gaman að dansa, en geri það
nú aðallega á árshátíðum og á starfs-
mannaböllum. Annars er ég lítið í
skemmtanalífínu. Síðan Kjallarinn
hálfgufaði upp finnst mér fátt um
góða staði.“
Nýir straumar
Hafliði segist heldur kjósa að viðra
skoðanir sínar um þjóðfélagsmál við
vini sína og samstarfmenn fremur
en á opinberum vettvangi. „Héma
geta menn þó rætt um pólitík, í Sví-
þjóð var það vonlaust. Það var helst
ef maður sífraði aðeins út í kerfíð
að menn tóku kurteislega undir. En
að tala um pólitísk málefni þar, var
eins og að bölva í kirkju. í Bandaríkj-
unum var ég svo heppinn að lenda
í hópi gamalla Harwardkarla sem
höfðu miklar skoðanir á þjóðfélags-
málum, allt frá forsetapólitík niður
í vísindastefnu. Hér ræðum við þessi
mál kannski ekki á þjóðarsálarplan-
inu, en það er næsta trappa við! Hins
végar ræðum við aldrei fagið yfír
kjötbollunum.
Hér eru margir frábærir eðlisfræð-
ingar, auðvitað ræðir maður við þá
um fagið og allt því skylt. Nú emm
við Viðar Guðmundsson dósent að
leggja drög að 150 manna ráðstefnu
1994 um eðlisfræðihálfleiðara.
Pólitík, fískveiðimál, hagstjórnun
og annað ræðum við gömlu skólafé-
lagarnir þegar við hittumst vikulega
á veitingastaðnum Við Tjörnina. En
að öðru leyti rekst ég ekki mjög vel
í flokki."
— Nú virðist ’68 kynslóðin vera
að taka völdin úti í hinum stóra
heimi, hefur þú orðið var við ein-
hveija nýja strauma hér?
„Eg tel að háskólar þurfi yfírleitt
ekki neina nýja strauma sem mætti
kenna við ’68 kynslóðina. Góður og
vandaður háskóli er hefð sem við
byggjum á, framfarir fáum við í arf
frá eldri kynslóðum. Flestar bestu
hugmyndir um Háskólann sem vís-
indastofnun komu frá Sigmundi Guð-
bjarnarsyni, Sveinbirni Björnssyni og
öðrum góðum mönnum sem varla eru
af ’68 kynslóðinni.
Kynslóðaskiptin sé ég helst á því
að nýrri menn tileinka sér einmitt
betur þessar hugmyndir. Ég vil ekki
þakka kynslóð minni neitt enn þá,
nema að vera hér þegar þessir menn
komu með nýja strauma hér inn í
Háskólann. Jarðvegurinn fyrir þessa
nýju strauma í Háskólanum er góður
því yngra fólkið sem er hér núna
hefur alit verið í rannsóknarnámi
erlendis.
Eldri menn sem hafa verið við
Háskólann við misjafnar aðstæður
áratugum saman hafa stundum átt
erfitt með að tileinka sér þessar nýju
hugmyndir um rannsóknir, vegna
þess að þeir voru búnir að venja sig
af þessum hugsunarhætti af illri
nauðsyn. Það þarf stundum að benda
yngri mönnum á að svona hafi þetta
ekki alltaf verið.
Það er ekki hægt að vippa upp
stemmningu í háskóla eins og á
stjórnmálafundi. Ég man ég fór á
fund með Hannibal í gamla daga
þegar hann „vann salinn“. Guð forði
Háskólanum frá slíku!
Við erum háðir stjórnmálamönn-
um, en við megum aldrei vera háðir
duttlungum þeirra. Hins vegar er
skylda okkar að upplýsa og skýra
sjónarmið okkar, það er vopn okkar
gegn duttlungum. Við þökkum
kannski ekki þjóðinni nægilega fyrir
að lofa okkur að leggja stund á vís-
indi sem kunna virðast óþörf í þeim
venjulega skilningi sem við leggjum
á þurftir. Háskólar hafa sinn við-
bragðstíma og það má ekki þvinga
þá inn í eitthvað jafn stutt og kjör-
tímabil."
RAÐSTEFNA
STÓRTÖLVUR
OG UMHVERFI ÞEIRRA
í NÚTÍÐ OG FRAMTÍÐ
NÝHERJI hf. mun gangast fyrir ráðstefnu fimmtudaginn 18. febrúar n.k. um
"Stórtölvur og umhverfi jaeirm í nútíð og framtíð". Bæði innlendir og
edendir fyridesarar verða með erindi. Edendu fyHdesaramir verða
Poul Bo ChrísKensen og Paul O'Neill, báðir sérfræðingar hjá IBM.
AA
,8
-1*. A
^tunO'
Dr. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri SKÝRR, Þórður B. Sigurðsson,
forstjóri RB og Jakob Sigurðsson, forstöðumaður tölvudeildar
Flugleiða munu flytja stutt erindi um sín tölvuumhverfi.
Á dagskrá ver&ur m.a. eftirfarandi:
Kl. 13:15-16:30
- Stórtölvuumhverfið í nútíð og framtíð
- Hagkvæmnisútreikningar mismunandi tölvuumhverfa
- Helstu ákvörðunarjaættir við val ó uppfysingakerfum fyrirtækja
- Nýjungar í "biðlari/miðlari" umhverfi og "opnum kerfum".
- "Þróun stórtöfvunnar í mínu umhverfi" (innlend erindi).
- Umræður
Ráðstefnan verður haldin í A-Sal á Hótel Sögu og verða fyrirlestramir á ensku. Hér er kjörið
tækifæri til að kynnast því helsta sem er að gerast m.a. á sviði stórtölva og hlutverki f>eirra í
framttðinni.
Aðgangur er ókeypis en tilkynna Jxirf jtótttöku tíl Magneu Ragnarsdóttur hjá
Nýheqa I síma 69 77 48 fyrir 15. febrúar n.k.
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 - SÍMI 68 77 00
AUtaf skrefi á undan