Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 26
il ÆSKUMYNDIN. . . ER AFÁRNA ÍSAKSSYNIVEIÐIMÁLASTJÓRA MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIP SUNNU1)AGUK 14. FEBRUAR 1993 ÚR MYNDASAFNINU. ÓLAFUR K. MAGNÚSSON Handóðasta bamið í bænum Æskumyndin að þessu sinni er af Árna ísaks- syni veiðimálastjóra. Hann er sonur hjónanna Ragnheiðar Árnadóttur og ísaks Sigurgeirs- sonar, fæddur 26. nóvember 1943 í Reykjavík. Árni er elstur fjögurra systkina, næstur er Jón, síðan systurnar Bryndís og Ragnheiður. Hógværð og hlédrægni eru rík í fari Árna í dag, en hann ber við hinu gagnstæða fyrstu ár þvinnar. „Eg var fremur ódæll fyrstu árin, en svo róaðist ég verulega." GuUfoss kenwr Island fagnaði nýjum Gullfossi af heilum hug þegar hann sigldi inn á Reykjavíkurhöfn í maí 1950. Tugþúsundir Reykvíkinga tóku arf- taka gamla Gullfoss fagnandi í blíðskapar- veðri og hafði fólk safn- ast saman frá Örfirisey og hafnarmynninu allt í kringum höfnina. Skipið, sem var tæp- ar 4.000 smálestir, rúmaði 210 farþega og 60 manna áhöfn og var hin glæsilegasta smíð. Gullfoss var beðið með eftirvæntingu og þegar hann nálgaðist landið tóku á móti honum fjórir „Fossar“ Eimskipafé- lagsins; Goðafoss, Brúarfoss, Fjall- foss o g Selfoss. Þá flaug skymaster- vél Flugfélags íslands, Gullfaxi, og fjöldi einkaflugvéla til móts við Gullfoss. Fyrstu myndina af Gullfossi tók Ólafur K. Magnússon ljósmyndari sem flaug ásamt blaðamanni til móts við skipið að morgni laugar- dagsins 20. maí. Myndaði hann skipið við Garðs- skaga þar sem það sigldi á hægri ferð enda hafði ferðin sóst svo vel að sýnt þótti að yrði keyrt á fullri ferð yrði skipið langt á undan áætlun. Sóluðu far- þegar frá Kaupmanna- höfn sig í blíðviðrinu á dekki. Þrátt fyrir að veður hafi ekki alltaf verið eins gott og í jómfr- úrferðinni eiga fjölmargir Islend- ingar góðar minningar um ferðir með Gullfossi, sem var í siglingum allt fram til ársins 1973 en þá höfðu farþegaflugvélar fyrir löngu tekið yfir farþegaflutninga á milli landa. Móðir hans, Ragnheiður, tekur í sama streng og segir helstu lesti drengsins fyrstu tvö til þijú árin hafa verið handæði og sprett- hraða, einkum þegar þetta tvennt fór saman. „Hann var svo snögg- ur, að maður mátti aldrei af honum líta, þá var hann horfinn fyrir hom og út á götu ef því var að skipta. Hann var einnig skæður heima við, átti það til að hrifsa í borðdúka og þeyta öllu á gólfið. Þannig fór fyrir mörgum krystals- skálum og fleiru. Það var svona á mörkunum að hægt væri að fara með hann í annarra hús á þessum tíma og kona ein sem við heimsótt- um stundum sagði það vart ofsög- um sagt að Árni væri handóðasta bam í bænum! -Þetta tók nú svolítið á, en strax og fyrsta systkin hans fæddist, róaðist hann mjög. Hann gerðist hiédrægur, jafnvei feiminn, en hann þurfti þó alltaf að hafa eitt- hvað fyrir stafni. Eitt af hans helstu áhugamálum var að sjálf- mennta sig á hljóðfæri. Fyrst á harmónikku, síðan á píanó. Hann var naskur að þessu og dundaði við þetta sér til hugarhægðar. Árni tekur undir þetta og bætir við að minnistætt frá þessum tíma Þegar Gullfoss kom til Kaupmannahafnar beið jafnan stór hópur komu hans, íslendingar sem áttu von á ættingjum og vinum, og þeir sem vildu halda í tengslin við heimalandið. Myndin er tekin við bryggju í Kaupmannahöfn, við komu eða brottför Gullfoss, síðla sumars 1950. Ami Isaksson ungur og eldri. hafi verið tíð skólaskipti. „Ég var víða í skóla án þess að um stans- lausa flutninga væri að ræða. Svona var þetta bara í þá daga. Lengst af bjuggum við þó í Bú- staðahverfinu. Eg var í Víkingi, en það varð ekkert úr knattspu- ymuframa því ég var í sveit að Skörðum í Reykjahverfí á hveiju sumri frá 7 til 15 ára aldurs. Þar kynntist ég sveitastörfum og sveitasælunni. Fjölskyldan átti einnig sumarbústað austur á Þing- völlum og þar var ég oft að veiða murtu og bieikju. Krókurinn beygðist því snemma," segir veiði- málastjórinn. Og við endum þetta spjall á þessum orðum móður hans: „Það sem maður man kannski einna best frá þessum ámm var hvað átti til að detta út úr honum svona 2 til 4 ára gam- all. Það var fyndið þá en kannski ekki svo síðar meir. Eitt dæmi var athugasemd hans við faðirvorið, þar sem hann spurði mig einu sinni hvort ekki mætti fremur segja „gef oss í dag vorar daglegu kóti- lettur" í staðinn fyrir „daglegt brauð“ l ÉG HEITI... HREINN ÓMAR SIGTR YGGSSON Hreinn Ómar Sigtryggsson þvottavélaviðgerðarmaður hefur fengið að heyra óteljandi athugasemdir um nafnið sitt í gegnum tíðina. Viðskiptavinir hans hafa jafnan veitt því athygli og þótt tengingin við starfið augljós og ákaflega fyndin. Það hefur svo orðið til þess að eigendur þeirra þvottavéla sem Hreinn hefur handleikið, gleyma honum ekki. afnið Hreinn á hins vegar lítið skylt við hreinlæti, þvi það hefur sömu merkingu og dýrsheitið hreinn, eða hreindýr. Hreinsnafnið kemur fyrir í Landnámu og Lax- dæla sögu, Sturlungu og fomsög- unum. Það var hins vegar sára- sjaldgæft fram á síðari hluta þess- arar aldar en nú eru nafnberar um 300. Flestir þeir sem heita Hreinn þekkja það hvernig snúið er út úr nafninu á alla mögulega vegu, ekki síst á barnaskólaárunum og er Hreinn Ómar þar engin undantekn- ing. Með því að velja sér þvottavéla- viðgerðir sem starfsvettvang kom hann hins vegar endanlega í veg fyrir að stríðninni linnti. En það er á fleiri stöðum en í vinnu og skóla sem sérkennilegar uppákom- ur verða. „Fyrir nokkrum árum var ég staddur í banka og var að sækja reiknisyfirlit. Afgreiðslustúlkan lít- ur upp og segir grafalvarleg: „Eruð þér Hreinn?" og ég svaraði; Já, ég var það að minnsta kosti þegar ég vaknaði í morgun.“ Þetta þótti svo gott tilsvar að það var tekið upp á árshátíð bankans." Hreinn er sjöundi í röð ellefu systkina og segir foreldrana hafa valið nafnið út í bláinn, enda hafi verið búið að skíra eldri systkinin þeim nöfnum sem foreldramir höfðu hugsað sér. Hvaðan hug- myndin sé komin hafi hann ekki Morgunblaðið/Sverrir Þvottavélaviðgerðarmaðurinn Hreinn. hugmynd, hann giski helst á það að hann hafí verið svo tandurhreint barn! ÞANNIG ... HÓFST SAFNAÐARSTARF í KRISTALSDÓMKIRKJUNNI Guðsorð í glerhúsi ROBERT Schuller heitir amerískur prestur sem þrumar ræður sinar yfir jarðarbúum í orðsins fyllstu merkingu. Hann er með sjónvarpsþátt sem heitir Orkustund (Hour ofPower) og er varpað um gervi- hnetti til allra heimsálfa. Séra Robert kappkostar að vera jákvæður kennimaður og segir aldrei neitt neikvætt úr ræðustólnum. Synd, glötun og önnur slík leiðindamál ber sjaldan á góma, þess meira er talað um velgengni, heilbrigði og framgang á öllum sviðum. Kirkja Roberts Schuller heitir Kristalsdómkirkjan (Crystal Cathedral) og þykir með merkari bygging- um í sinni sveit, Garden Grove í Orange-sýslu í Kalifor- níu. Þetta glerhús Guði til dýrðar var reist úr 10.660 rúðum og stáli þegar söfnuður Schullers ákvað að eign- ast sinn helgidóm. Kirkjan kostaði litlar 16 milljónir bandaríkjadala, sem svarar til eins milljarðs íslenskra króna. Rúmar dómkirkjan á fjórðaþúsund gesta í sæti. Þegar Robert Sculler lauk prestaskóla fann hann sig af Guði kallaðan til að boða íbúum Orange-sýslu fagnað- arerindið. Robert var ungur og áræðinn, hafði allt að vinna og engu að tapa. Hann hóf að plægja sinn and- lega akur með því að vísitera heimamenn og gera könn- un á trúrækni og trúarlífi. Niðurstaðan var sú að marg- ir höfðu áhuga á meiri trúrækni og vildu gjarnan stunda helgihald af einhveiju tagi en fundu sig ekki heima í þeim kirkjum sem fyrir voru. Sculler fann ráð sem dugði. Hann fékk lánað útibíó og hóf þar guðsþjónustuhald á sunnudagsmorgnum. Sóknarbömin óku til messu, lögðu heimilisbifreiðinni fyrir altari og kveiktu á útvarpstæk- inu. Út um framgluggann mátti líta séra Sculler og kórinn, í útvarpinu hljómaði sálmasöngur og guðsorð. Á þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4. júlí, dugir ekki minna en tæplega 30 metra síður fáni til að skreyta Kristalsdómkirkjuna. Söng svo hver með sínu nefi í sínum bíl. Þessi nýbreytni í helgihaldi mæltist vel fyrir og fjölgaði bílum og sóknar- bömum hratt í söfnuðinum. Nú telur söfnuðurinn í Krist- alsdómkirkjunni yfír 10.000 safnaðarböm og er kirkju- sókn slík að margmessað er á helgidögum. Séra Schuller hefur ekki gleymt upphafsárum safnað- arstarfsins og er því enn rúm fyrir þá sem ekki vilja mjaka sér úr heimilisbílnum inn í glerhúsið glæsta. Þeg- ar Schuller stígur í stólinn opnast tveir 30 metra breið- ir glerveggir svo samkomugestir, sem sitja í bifreiðum sínum fyrir utan Kristalsdómkirkjuna, geti meðtekið já- kvæðan fagnaðarboðskapinn og litið séra Schuller eigin augum. Gegnum glerið að sjálfsögðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.