Morgunblaðið - 14.02.1993, Blaðsíða 4
a m
MORÖUNBLÁÐIÐ SÖNNUDAÖCR 14': FEBRÚÁR'1993
veikina við komuna til San Blas-
eyjanna. Á myndinni fyrir neðan
er kötturinn Miles á hraðsiglingu
upp eina ána í krókódilaleit.
ÓTTARR HRAFNKELSSON
AMERÍSKUM MILLJÓNAMÆRINGI
Ottarr með 2 pakka af hassi. En það
rekur á land frá smyglbátum Kolumbíu.
Tb'
■
•holualw
Skutan Holualoa
sérvitringu
eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur I
KARÍBAHAF, krónumiklir kókospálmar á hvítum kóraleyjum, hvað
getur mann dreymt um rómantískara en svífa seglum þöndum á
safírbláum sjónum í slíku umhverfi? Snertir þessi litauðuga lýsing
ekki viðkvæma strengi í brjóstum ykkar lesendur góðir? Getið þið
ímyndað ykkur að hægt sé að láta sér leiðast við slíkar kringum-
stæður? „Víst er það ótrúlegt en oft var svo ólýsanlega leiðinlegt
og tilbreytingalaust á þessari siglingu að það hálfa væri nóg,“
sagði Ottarr Hrafnkelsson sem nýlega er komin úr margra vikna
siglingu um Karíbahaf, sem hann hefur reyndar áður siglt um
mánuðum saman. „Auðvitað var líka stundum gaman, ég sá fram-
andi staði og fólk sem ég hefði ella aldrei augum litið,“ sagði Ótt-
arr ennfremur. Allt byijaði þetta með því að Óttarr kynntist millj-
ónamæringi frá Hawaii, sem bauð honum með sér í siglingar. „Ég
kynntist þessum manni fyrir röð tilviljana eins og gengur,“ sagði
Ottarr í samtali við blaðamann Morgunblaðisins.
.
~ .
Kunoindíánakona með fjögur börn sín. Mólastykki eru saumuð framan á kjóla kvenn-
anna. Á efri myndini gæða Bill og Nicky sér á kókoshnetum á San Blas-eyjum.